Dagur


Dagur - 25.02.1995, Qupperneq 13

Dagur - 25.02.1995, Qupperneq 13
Laugardagur 25. febrúar 1995 - DAGUR - 13 POPP MAÚNÚS CEIR 6UÐMUNDSSON ITom ölumannssonurinn scrn uarð að rokðstjömu Svokallað gallabuxnarokk, sem svo hefur verið nefnt á íslensku, hefur verið nokkuð gegn- umgangandi í amerísku rokklífi síóustu tvo til þrjá áratugina. Þessi tónlistarstefna, sem ekki er svo glatt hægt að skilgreina, en segja má aö sé blanda m.a. af sveita/þjóðlagaáhrifum, rokki og popplaglínum í anda sjötta og sjö- unda áratugarins, hefur á þessum tíma meira og minna átt gríðarleg- um vinsældum að fagna og eru tónlistarmennimir sem falla undir skilgreininguna um það, margir hverjir einir af hinum vinsælustu í rokkheiminum í dag. Orfá dæmi um fræga og vin- sæla „gallabuxnarokkara“, eru Bruce Springsteen, Bryan Adams, John (Cougar) Mellemcamp, Jackson Browne og síðast en ekki síst Tom Petty og hljómsveitin hans, The heartbreakers. Hefur stjama Pettys risið mjög hátt á síðustu árum og hann komist í hóp vinsælustu og virtustu tónlistar- manna Bandaríkjanna. Basl til að byrja með Líkt og margir aðrir sem höndlað hafa frægðina, hefur Tom Petty þurft að vinna vel fyrir henni. Fæddist hann árið 1953, sonur far- andsölumanns í Florida, sem var því víst ekki mikið heima. Skólagangan náði allt til 17 ára aldurs þegar hann hætti til að ganga til liðs við hljómsveitina Madcmnch. Hafði hann þá þegar verið í nokkrum skólasveitum, m.a. Epics. Freistuðu Petty og fé- lagar í Madcrunch gæfunnar og fluttu frá Florida til Los Angeles, en fljótlega eftir að þangað var komið lognaðist sveitin út af. Þetta var í kringum 1973 og benti fátt til þess að úr tónlistarferli Pettys ætlaði að rætast. Hafði hann reyndar þegar þama var komið sögu komist í kynni við forráðamenn útgáfunnar Shelter (annar þeirrra var hinn þekkti upp- tökustjóri með meiru Leon Russel) en tilraunir til að gefa út plötu á eigin nafni undir hennar nafni fóru hins vegar út um þúfur. Petty neitaði samt enn að gefast ® I hdðurs - Beep J^urplE, drEam og Xeú ^EppElín Heióursplötumar svokkölluðu, eða „Tribute“ hafa sem kunnugt er verið vinsælar að undanfömu og reynst gróðavænlegar fyrir útgef- endur. Hafa stóru útgáfumar (á ensku nefndar Major label) verið duglegar aö tefla sínum stjömum fram á þessum plötum, en einnig hafa minni útgáfur gefíð út slíkar plötur með „minni spámönnum“, sem þó hafa ekki síður reynst at- hyglisverðar. Það hefur hins vegar oftar en ekki verið erfiðara að nálgast þær síðamefndu vegna takmarkaðrar útbreiðslu, en þeim mun meiri er ánægjan á móti ef tekst aó næla í þær. Allir forfallnir tónlistaráhugamenn þekkja al- mennt þá góðu tilfinningu að fá í hendur plötu sem þeir hafa lagt mikið á sig að fá. tribute to Deep Purple, en yfir- skrift hinnar er LA blues Authority Volume 5: Cream of the crop, a tribute. Eiga þessar plötur það sameiginlegt að á þeim koma nokkrir sömu tónlistarmennimir við sögu, t.d. gamli Purplesöngv- arinn og bassaleikarinn Glenn Hughes, en aðrir sem koma við sögu á plötunum eru m.a. Leslie West og Pat Travers á Cream- plötunni, en gítarhetjur á borð við John Nomm, Vinnie Moore og Richie Kotzen á Deep Purple gripnum, að ógleymdum Yngwie Malmsteen, sem er frægur af ein- dæmum og rúmlega það, að herma eftir Richie Blackmore gít- arleikara Deep Purple fyrir nokkr- um ámm. Cream og Deep Purple Skömmu fyrir síðustu áramót komu út með stuttu millibili plötur til heiðurs tveimur af stór- sveitum rokksins, Cream og Deep Purple. Komu þessar plötur út á frekar litlum merkjum, og hafa því ekki verið ýkja áberandi, en sem fyrr sagði eru þær sem slíkar athyglisverðar og áhugaverðar fyrir marga. Nefnist Deep Purple platan Smoke on the water, A Zeppelinplata líka Það er svo ekki nóg með að Led Zeppelin hafi verið teknir inn í heiðursstúku rokksins í ársbyrjun, eins og skýrt var frá hér í Poppi, heldur er nú líka á leiðinni plata til heiðurs þeim, rétt eins og Cream og Deep purple. Hefur þessi heið- ursplata til handa Zeppelin reynd- ar verið nokkuð lengi í deiglunni, en mun loksins líta dagsins ljós í marsmánuði, sem nú fer í hönd. Mun platan líkt og fleiri slíkar Tom Petty er á góðri siglingu á nýj- ustu plötunni sinni og hefur sjaldan verið betri á ferlinum. Áfram veginn Upp frá þessu má segja að Tom Petty og The heartbreakers hafi stóráfallalítið haldið áfram veginn í átt að frægðinni. Með næstu plötum og tilþrifamiklu tónleika- haldi tókst sveitinni að skapa sér nafn sem ein sú athyglisverðasta í bandarísku rokki. Plötur á borð upp og árið 1975 hafði hann stofnað nýja sveit með tveimur fyrrverandi félögum sínum úr Madcrunch, Tom Petty and The heartbreakers. Náði hún að koma saman viðunandi plötu, að megin- hluta með lögum eftir Petty, sem kom út undir sveitamafninu árið 1976 á vegum Shelter. Voru þaó eins og oft áður Bretar sem upp- götvuðu „kanana“ áður en sam- landar þeirra tóku við sér. Náðu þrjú lög plötunnar inn á topp 40 í Bretlandi, sem svo m.a. gerði það að verkum að risaútgáfan EMI tók hljómsveitina upp á sína arma. Var Petty þar meó kominn á nokkuð beina braut eftir töluvert mikið basl fyrstu árin. innihalda framlög frá fjölbreyttum hópi listamanna, þar á meðal jafn ólíkum sem Rollins band, Duran Duran, Cheryl Crow, Stone temple pilots og að öllum líkind- um Sting. Þá mun sjálfur Robert Plant, söngvari Led Zeppelin, Tori Amos syngur dúett með Robert Plant á plötu til heiðurs Led Zeppelin. leggja sitt að mörkum á plötunni, „til heiðurs sjálfum sér og félög- um sínum“, ef svo má segja. Syngur hann dúett með Tori Amos í laginu Down by the sea- side. Verður nokkuð spennandi að heyra hvemig útkoman verður úr þessu fjölbreytta dæmi. Annars er það frekar að segja um heiðurs- eða tileinkunarplötumar að ekki em allir jafn hrifnir af þeim og dómamir um þær hafa verið ærið misjafnir. Má taka undir með þeim sem segja að helst til mikið sé orðið um slíkar plötur, en eins og áður sagði um Zeppe- linplötuna, og það hefur gilt um fleiri, þá er það nokkuð spennandi fyrirfram a.m.k. aó heyra útkom- una. Rétt er það nú samt að öllu má ofgera. við Damn the Torpedoes (1979), Hard promises (1981) og Sout- hem accents (1985) náðu t.d. allar inn á topp tíu í Bretlandi og fóm einnig hátt í Bandaríkjunum. Það má hins vegar segja að alheims- ffægðin verði Pettys fyrir alvöm árið 1988, en þá ekki meó The heartbreakers í för, heldur með til- komu „súpergrúppunnar" Travel- ing Wilburys. Naut Petty þar þess heiðurs að vera í flokki með Ge- orge Harrison gítarleikara Bítl- anna, Roy Orbison, Bob Dylan og ELOboltanum Jeff Lynne á plöt- unni volume one, sem naut mik- illa vinsælda. Innihélt platan m.a. topplagið Handl with care. Er síð- an skemmst firá því að segja að þrjár síðustu plötumar sem Petty og The heartbreakers hafa sent frá sér, Full moon fever, Into the great wide open og safnplatan Greatest hits (þær komu út 1989, 1991 og 1993) hafa selst mjög vel og verið í hæstu hæðum sölulista. Ekki hefur heldur vantað smellina á þessum plötum og nægir þar að nefna I want back down á Fmf, titillagið á Into the.. og Mary Janes last dance, eitt þriggja þá áður óútgefmna laga á safnplöt- unni. Skömmu fyrir síðustu áramót kom svo nýjasta plata Tom Petty út, en í þetta skiptið án The heart- breakers strangt tiltekið. (Félagar hans úr Heartbreakers, Mike Campbell gítarleikari og Bermo- unt Tench hljómborðsleikari með rneim, sem verið hafa með Petty frá upphafi em ennþá meó.) Wild- flowers nefnist platan og er um margt hrárri og rokkaðri en síðustu plötumar með The heartbreakers. Hún gefur þeim hins vegar ekkert eftir og hefur komist inn á topp tíu víða. Gæóalög á henni em t.d. Honey Bee (sem skírskotar til samnefnds blúsljóðs) You wreck me, You don’t know how it feels og Cabin down below, sem er eins konar Doorstileinkun. Er Wildflo- wers eftir á að hyggja ein af skemmtilegri plötum síðasta árs, en varð svolítið útundan vegna þess hversu seint hún kom út. HBan $ialen í soíðsljósinu Van Halen hefur nær allt frá stofnun árið 1978 verið ein far- sælasta rokksveít Bandaríkjanna af kraftmeiri gerðinni. Það vakti samt athygli þegar sveitin fór með síóustu hljóðversplötu sína, For unlawful camal knowledgc, beint á topp bandaríska sölulist- ans árið 1991, en slíkt var ekki algengt þar og raunar einsdæmi með rokkplötur. Þennan maka- lausa leik hefur Van Halen þó tekist að leika aftur nú, því nýja platan Balance, fór Hka beint á toppinn fyrir hálfum mánuði. En þaó er fleira sem er líkt með út- gáfu þessara platna. Útlit þeirra hefur ncfnilega hyort á sinn hátt orðið fréttnæmt. í fyrra tilvikinu var það vegna unglingspilts sem komst S kast við lögin að því er virtist bara fyrir að klæðast bol með nafni plötunnar á, en nú er Umdcilt albúm nýjustu plötu Van Hulen. það vegna ntyndarinnar sem prýðir Balance, að hljómsveitin er í fréttunum. Eins og sjá má á myndinni, sem hér fýlgir með, eru á henni ungir Síamstvíburar, samvaxnir tvíburar, sem ekki beint teljast mikið augnayndi. Stóð heldur ekki á vióbrögðun- um og var platan bönnuó í Japan. Útgáfufyrirtæki sveitarinnar virðist þó hafa búist við einhverju slíku, því tiltæk var önnur útgáfa með öðru útliti sem í snarhasti var sett á markaó. Kom bannió því lítið að sök. Þetta er reyndar ekki S fyrsta skipti sem plata með Síamství- burum framaná veldur deiluni og er bönnuð. Árið 1988 kom út platan Nothing’s shocking með hinni framsæknu sveit Jane’s addiction, sem skartaði nöktum kvensiamstvíburum á framhlið- inni. Var hún m.a. bönnuð 1 Bandaríkjunum og fékkst ekki seld nema í þar til gerðu svörtu hulstri.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.