Dagur - 02.03.1995, Blaðsíða 1
78.
. ■ :.
Akureyrl, fimmtudagur 2. mars 1995
43. tÖlublað
4 . Venjulegir og demantsskornir É trúlofunarhringar ^ Afgreiddir samdægurs
GULLSMIÐIR SiGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI
Útgerðarfyrirtækið Ingimundur hf.:
Hyggst láta smíða
2000 tonna rækju-
togara innanlands
Oskudagurinn á Akureyri
Eins og venja er til á öskudaginn var iíf og fjör á Akureyri í gær. Unga kynslóðin brá sér í allskyns gervi og setti
þannig heldur betur svip á bæinn, enda veitti ekki af í grámygiulegri snjókomunni. Krakkarnir létu veðrið ekkert á
sig fá, skunduðu í fyrirtæki og sungu af krafti og auðvitað fengu þeir að launum sælgæti. Á meðfylgjandi mynd eru
tvær hressar Línur sem að sjálfsögðu brostu sínu breiðasta til Ijósmyndarans. Mynd: Robyn.
Utgerðarfyrirtækið Ingi-
mundur hf., sem gerir út
Helgu RE og Helgu II RE og
rekur rækjuverksmiðju á Siglu-
flrði, hefur látið teikna fyrir sig
rækjutogara í Noregi. Útboðs-
gögn hafa verið send öllum ís-
lenskum skipasmíðafyrirtækjum
og er skilafrestur tilboða til
kiukkan 13.00 föstudaginn 10.
mars og segir Ármann Ár-
mannsson, framkvæmdastjóri,
að þann dag liggi fyrir hvaða til-
boði verði tekið.
Skipið veróur um 2.000 brúttó-
tonn og lengd þess 60,4 metrar og
breidd 13 metrar. Skipið verður
útbúió til tveggja trolla veiða á
rækjunni og einnig er fyrirhugað
að senda það á úthafskarfaveiðar.
Ekki er ákveðið hvort skipið verði
gert út frá Siglufirði en til þess að
Umtalsverð hækkun á gengi hlutabréfa fjölmargra hlutafélaga:
Uppsveifla hjá Þormóði ramma og Sæplasti
Frá áramótum hefur orðið at-
hyglisverð hækkun hluta-
bréfa í Þormóði ramma hf. á
Siglufirði og Sæplasti hf. Hækk-
unin á bréfunum í Þormóði
ramma nemur 13% og 12% í
Sæplasti. Þá hefur gengi bréfa í
Skagstrendingi hf. hækkað um
8%. Hins vegar hefur engin
breyting átt sér stað á gengi
hlutabréfa í ÚA, Hlutabréfasjóði
Norðurlands og KEA.
„Skýringin á þessari hækkun
hlutabréfa í Þormóði ramma er
fyrst og fremst hækkandi rækju-
verð. Afkoman var ágæt hjá fyrir-
tækinu á sl. ári og miðað við
hækkandi rækjuverð hafa menn
væntingar um góða afkomu á
þessu ári,“ sagði Hreiðar Sigurðs-
son, hjá Kaupþingi hf.
Ef hins vegar er litið til hækk-
unar á hlutabréfum í Sæplasti hf.
segir Hreiðar að skýringin á henni
sé ekki síst sú að bréf i Sæplasti
hafí setið eftir þegar almenn
hækkun varó á gengi hlutabréfa á
markaðnum. Þetta sé nú Ieiðrétt
með umtalsverðri hækkun bréf-
anna. Þá beri að horfa til þess að
umtalsverð veltuaukning hafi orð-
ið hjá Sæplasti og horfumar á
næstu mánuðum séu góðar. Allt
hafí þetta áhrif til hækkunar á
hlutabréfum í fyrirtækinu.
Engin breyting hefur orðið á
gengi hlutabréfa í ÚA. Hreiðar
segist hafa merkt það að umræðan
sem skapaðist um fyrirtækið
vegna sölumálanna, hafi fælt fjár-
festa frá ÚA. Þeir telji að á meðan
Akureyrarbær eigi meirihluta í fé-
laginu sé það ekki vænlegur fjár-
festingarkostur.
Hreiðar sagði að miðað við síð-
ustu ár hafi verið óvenjulega líf-
legt á hlutabréfamarkaðnum það
sem af er þessu ári. Þau fyrirtæki,
sem þegar eru búin að halda aðal-
fundi, hafi sýnt góða afkomu. Til
dæmis hafi Hampiðjan hf. skilað
mjög góðri afkomu og í kjölfarið
hafi gengi bréfa í fyrirtækinu
hækkað vemlega, eða um 17% frá
áramótum. óþh
geta keypt skipið og fá „rúmmetra
á móti“ veröa bæði Helga RE sem
er 199 tonn að stærð og hefur að-
allega verið gerð út á rækju og
frystiskipið Helga II RE sem er
794 tonn og hefur verið gerð út á
rækju-, bolfisk- og loðnuveiðar,
seldar, væntanlega innanlands.
_____________________GG
Félag byggingamnna
Eyjafiröi:
Fjórði hver
atvinnulaus
- samningarnir samþykktir
Félag byggingamanna Eyja-
firði hélt félagsfund sl.
þriðjudagskvöld þar sem kjara-
smningarnir voru afgreiddir.
Voru þeir samþykktir með tals-
verðum mun.
Alls voru 21 sem greiddi at-
kvæói. Já sögðu tólf, einn sagði
nei en átta sátu hjá. Að sögn Guð-
mundar Ómars Guðmundssonar,
formanns félagsins, er mikið at-
vinnuleysi meðal félagsmanna
hans eóa 25%, sem þýðir að fjórði
hver er án atvinnu. Er þetta svipað
hlutfall og á sama tíma fyrir ári
síðan. HA
Áta gerir loðnuna óhæfa til frystingar:
Aðeins fryst upp í helm-
ing samninga til Japans
Frystitogararnir hætta loðnufrystingu:
Stakfell á rækjuveiðar
Stakfell ÞH-360, togari Hrað-
frystistöðvar Þórshafnar hf.,
kemur til Þórshafnar í dag eftir
að hafa verið á loðnumiðunum
og fryst um 180 tonn af kven-
loðnu á Japansmarkað. Togar-
inn hefur ekki áður fylgt loðnu-
flotanum og tekið loðnu til fryst-
ingar frekar en margir aðrir ís-
lenskir frystitogarar.
Togarinn fer nú á rækjuveiðar
og verður að öllum líkindum hald-
ið vestur á Dohmbanka, en veðrið
hefur verið þar mjög rysjótt og
hafa rækjutogararnir þurft að leita
vars við Vestfirðina öðru hverju.
Ágætis veiði hefur verið þegar
gefið hefur.
Togarar Sigfírðings hf. á Siglu-
ur
sunnan
firði, Siglir SI-250 og Siglfirðing-
SI-150, hafa báðir verið fyrir
land á loónufrystingu.
Siglfirðingur SI kom til Reykja-
víkur í gær með 70 tonn af frystri
loónu, og mun síðan halda á
blandað fiskerí, aðallega ýsu og
karfa. Siglir SI er enn á loðnumið-
unum og bíður átekta, en vegna
mikillar átu í loðnunni hentar hún
ekki orðið eins vel til frystingar. í
gær var búið að frysta um 270
tonn af loðnu um borð í Sigli, þar
af um 40 tonn af blandaðri loónu,
þ.e. bæði karl- og kvenloónu, og
mjölframleiðslan var orðinn 70
tonn. Erfiðlega hefur gengið að
bræða, og er orsakarinnar að leita
í því hversu ný loðnan er þegar
hún kemur til bræðslu. GG
Agæt loðnuveiði var í fyrri-
nótt á Selvogi en töluverð
áta er í Ioðnunni sem gerir hana
óhæfa til frystingar en hún er
stór og góð og full af hrognum,
eða um 22%. Mjög algengt er að
áta sé í loðnunni þegar gangan
fer vestur með suðurströndinni
framhjá Vestmannaeyjum, en
það vekur meiri athygli nú en
undanfarin ár þegar svo stór
hluti loðnuaflans er frystur á
kostnað bræðslunnar.
Heildaraflinn var í gær orðinn
188 þúsund tonn og hafði mestu
magni verið landað í Vestmanna-
eyjum, 37 þúsund tonnum, og er
sú höfn þar með orðin aflahæst í
fyrsta skipti á vertíðinni. Á Seyð-
isfirði var búið að landa 36 þús-
und tonnum, á Eskifirði 29 þús-
und tonnum og í Neskaupstað 20
þúsund tonnum.
Á Norðurlandi hafa 6.816 tonn
borist til Raufarhafnar, 6.279 tonn
til Þórshafnar og 4.016 tonn til
Krossanesverksmiðjunnar.
Búið er aó frysta tæplega
19.000 þúsund tonn af loðnu í
febrúarmánuði, sem er nokkuð
minna magn en í fyrra og nær
helmingi minna magn en samið
var um sölu á til Japans. Söluverð-
mætið er um 1,6 milljarður króna
sem er 73% af söluverðmæti
frystrar loðnu á sl. ári, en um
nokkra verðlækkun er einnig að
ræða, allt upp í 15% eftir stærðar-
flokkum.
Tveir bátar, Svanur RE og Jóna
Eðvalds SF, fundu loðnu á Hroll-
augseyjasvæðinu í fyrradag og var
í fyrstu talió að um nýja
loðnugöngu væri að ræða en lík-
legra er talið að dreifð loðna hafi
þétt sig í veiðanlegar torfur. Loðn-
an dreifói sér svo í myrkrinu og í
gærmorgun höfðu Jón Kjartansson
SU og Beitir NK fengið nokkum
afla á þessum slóðum en það ríkti
ekki mikil bjartsýni um framhald-
ið. Blíðuveður var á þessum slóð-
um í gærdag, norðan andvari og
sólskin.
Bátar Langaness hf„ Björg
Jónsdóttir ÞH og Björg Jónsdóttir
II ÞH, vom í gærdag á leió austur
á Reyðarfjörð eða Seyðisfjörð til
löndunar með fullfermi. Afli
Bjargar Jónsdóttur ÞH er oróinn
um 5 þúsund tonn frá því veiðar
bátsins hófust 10. febrúar. GG
Afli Bjargar Jónsdóttur ÞH er orðinn um 5
hófust 10. febrúar sl.
þúsund tonn frá því veiðar
Mynd: IM