Dagur - 21.03.1995, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 28. mars 1995
FRÉTTIR
Námskeið Fiutningamiðstöðvar Norðurlands um gaeði og öryggi í löndunarþjónustu var vei sótt og gagnlegt.
Mynd: Robyn
Flutningamiðstöð Norðurlands hf.:
Gagnlegt námskeið um gæði
og öryggi í löndunarþjónustu
Aöaldalur:
Krummaklettur
ákafi
- mesti snjór síðan 1910?
Á sléttlendi við Sand í Aðaldal er
100 til 120 cin jafnfallinn snjór.
Snjódýpt við bæinn hefur verið
mæld flesta vetur í nokkra ára-
tugi. „Þetta er með því mesta, en
við höfum mælt 100 og 106 cm
áður. Þetta er því í þriðja sinn
sem snjódýptin nær metri,“
sagði Friðjón Guðmundsson.
Friðjón segir að 1936 hafi
mælst mestur snjórinn og það sé
mesti snjóavetur sem hann man,
en hann er 74 ára. Það var líka
mikill snjóavetur 1951 og 1968
kom mikill snjór. „Eg man eftir
tíðarfari til 1930, en þaó hafa ver-
ið mælingar héma frá 1932, fyrst
að eigin frumkvæði en síðan fyrir
Veðurstofuna,“ sagði Friðjón í
samtali við Dag.
Við Hraunkot í Aöaldal mun
kominn á kaf í snjó klettur er nefn-
ist Krummaklettur. Friójón hefur
fregnir af að þessi klettur hafí farið
á kaf í snjó 1910, en ekki er vitað
til að það hafi gerst síðan. Friðjón
segir aó breytt húsaskipun og
skógrækt í nágrenni klettsins geti
þó breytt snjóalögum á þessum
stað þannig aó meira fenni aö
klettinum. Hann hefur heimildir út
dagbókum um mikla snjóavetur
1910, 1914, 1916 og 1920. IM
Tilboð í sorppoka fyrir
Akureyrarbæ:
BB heildverslun
bauð lægst
Tíu tilboð bárust í sorppoka fyr-
ir Akureyrarbæ, en tilboðin voru
opnuð í síðustu viku. Um er að
ræða 350 þús. stykki sem er
u.þ.b. ársnotkun bæjarins.
Lægsta tilboðið kom frá BB
heildverslun á Akureyri 3.048.500
kr. en fyrirtækið átti einnig tvö
önnur tilboð, 4.389.000 kr. og
5.141.500 kr. og mun vera um
mismunandi framleiðendur að
ræða. Þórshamar hf. átti næst
lægsta tilboðió, 4.130.000 og þá
kom tilboð frá Akoplast POB
4.353.142 kr. Akoplast POB bauð
einnig poka á 4.771.462 kr. Tind-
ur sf. bauó 4.409.790, Þ. Björg-
úlfsson hf. 5.036.500, Alexander
Ingimarsson 5.250.000 og Valde-
mar Baldvinsson 5.761.000 kr.
Flutningamiðstöð Norðurlands
hélt nýlega námskeið fyrir
starfsmenn í löndunarþjónustu
fyrirtækisins, undir yfirskrift-
inni; „Gæði og öryggi í löndun-
arþjónustu.“ Flutningamiðstöð
Norðurlands hefur frá stofnun
unnið markvisst að uppgangi
þessarar þjónustu fyrirtækisins.
Þær landanir sem fyrirtækið
hefur unnið að snúast að miklu
leyti um rækjulöndun, m.a. fyrir
Strýtu hf. á Akureyri og íslenskrar
sjávarafurðir. Að sögn Hólmars
Svanssonar, framkvæmdastjóra
Flutningamiðstöóvar Norðurlands,
var oróið löngu tímabært að hittast
og heyra frá viðskiptavinunum
hvað það er sem skapar góða
þjónustu og á sama tíma tryggja
öryggi starfsmannanna sem vió
löndunina vinna.
I þessum tilgangi komu þrír
fyrirlesarar á námskeiðið, Helgi
Þór Bergs, framleiðslustjóri hjá Is-
lenskum sjávarafurðum, Birgir
Össurason, tæknistjóri Söltunarfé-
lags Dalvíkur og Strýtu og Þor-
steinn Þorsteinsson, starfsmaður
Siglingamálastofnunar á Akureyri.
Þeir fóru í gegnum fagleg og
tæknileg atriði sem varða löndun-
arþjónustu og hvemig allir starfs-
menn er að þessu koma eru þátt-
takendur í að móta gæöi og öryggi
þjónustunnar.
„Það er mjög mikilvægt á
svona námskeiðum, að fylgja hlut-
unum vel eftir og láta ekki svona
stund verða marklaust hjal. Þess
Gífurlegt fannfergi hefur verið á
vegum í Þingeyjarsýslu undan-
farna daga og frá miðvikudegi
til sunnudags var leiðin frá Ak-
ureyri til Húsavíkur lokuð, en
þar er um óvenju langa lokun að
ræða. Aðfaranótt sunnudags
hófú snjóruðningsmenn frá Ak-
ureyri störf kl. 2 og að austan-
verðu hófst mokstur kl. 5, en
það var ekki fyrr en um kl. 15 á
sunnudag sem leiðin varð fær.
Svavar Jónsson, rekstrarstjóri
Vegagerðarinnar á Húsavík,
reiknaði síðan með að síðdegis í
gær tækist að opna Ieiðina aust-
ur til Þórshafnar.
„Þetta er þreytandi og skelfi-
legt ástand og alltaf verður verra
og verra að halda opnu. Mokstur-
inn kostar gífurlegar fjárhæðir, t.d.
kostaði einn mokstur frá Húsavík
til Þórshafnar 1200 þúsund á dög-
„Við erum með snjó, um það bil
það sem ég man mest á þessum
árstfma. Seinni hluti mars og
apríl hefur yfirleitt verið verstur
hjá okkur,“ sagði Guðni Odd-
geirsson, sem barist hefúr við
snjóinn fyrir Vegagerðina á
Þórshöfn í 31 ár.
„Ég vil meina að jafnaðarlega
hafi ekki verið svona mikill snjór í
þessari sýslu síðan veturinn 1966-
67. Við erum sífellt að safna
snjónum að vegunum með því að
moka þá og þetta er orðið mikió.
Vió gáfumst upp á mokstrinum á
fjallvegunum, því það rauk upp
með suðvestan skafrenningi,"
vegna var öllum þátttakendum
boðið að skoða Strýtu og þá sér-
staklega rækjulínuna til þess að
átta sig á hvemig framhaldsmeð-
höndlun vörunnar er eftir að hún
kemur úr höndum starfsmanna
Flutningamiðstöðvarinnar. Það
var mjög gagnleg ferð og sýndi
þátttakendum hversu mikilvæg
vönduó vörumeðhöndlun er,“
sagði Hólmar Svansson. KK
unum,“ sagði Svavar.
Hann sagði aó síminn hjá
Vegagerðinni þagnaði ekki og
sumir væru orðnir órólegir, enda
hefðu menn tekið upp á eilífum
fiskflutningum milli landshluta og
svo sætu bílamir fastir í ófærðinni.
„Það er allt á svartakafi. Á
sunnudagsmorgun var Mývatns-
heiói opnuð og menn leggja nótt
við dag því snjógöngin lokast
jafnóöum. Ég hef unnió hjá Vega-
gerðinni í 28 ár og þetta er lang-
erfiðasti vetur sem komið hefur.
Þetta hefur líka staðiö svo lengi,
byrjaði í september með norðanátt
og rigningum og síðan slyddu og
snjó. Ég held líka að þetta sé lang-
mesti snjórinn. Þó mikill snjór
væri 1990 kom hann ekki fyrr en í
febrúar,“ sagði Svavar, sem orð-
inn var þreyttur á ástandinu í gær.
IM
sagði Guðni síðdegis í gær. Hann
reiknaði með að vegurinn milli
Kópaskers og Húsavíkur opnaðist
í gærkvöld og fyrir stóra bíla til
Raufarhafnar. Milli Raufarhafnar
og Þórshafnar þýddi ekki aö reyna
að opna þar sem þar væri öskrandi
skafrenningur. „Það þýðir ekki
annað en fara í koju og bíða til
fyrramáls, og svo var hefillinn
okkar að bila,“ sagði Guðni og
mæddist í mörgu í gær.
Björgunarsveitin í Þistilfirði
ferjaði fólk innan Þórshafnar í
versta veðrinu og var á ferð út um
sveitir til aö moka snjó af þökum.
IM
Akureyri:
Bæjarmála-
punktar
■ Menningarmálanefnd hefur
samþykkt eflirfarandi úthlutun
á ibúð í Davíðshúsi tímabilið
september-dcsember 1995:
Skúli Bjöm Gunnarsson, ís-
lenskunemi við HI, 1 .-27. sept-
embcr, Myndlístaskólinn á Ak-
ureyri vegna gestakennara frá
Lahtí, 29. september-29. nóv-
ember, Einar Öm Stefánsson,
rithöfundur, 1 .-29. desember.
■ Skólanefitd hefúr samþykkt
að leggja til við bæjarstjóm aö
allir nemendur 4. bekkjar fái 8
kennslustunda dansnámskeió,
án gjaldtöku, frá og með skóla-
árinu 1995-1996. Nemendur 2.
bekkjar fái hliðstæð dansnám-
skeió frá og með skólaárinu
1996- 1997 og nemendur 7.
bekkjar íái hliöstæð dansnám-
skeiö í'rá og með skólaárinu
1997- 1998.
■ Á fundi jafnréttisnefndar var
vakin athygli á því að Valgerð-
ur Bjamadóttir, núverandi jafn-
réttisfulltrúi, lætur af störfum í
júlí í sumar. Jafnréttisnefnd lét
bóka að hún óski eftir aó stað-
an verði auglýst sem fyrst.
Á bæjarráðsfundi sl. fimmtu-
dag var samþykkt að óska eftir
því aó áður en ákvörðun verður
tekin um ráðningu nýs jafnrétt-
is- og fræðslufulltrúa í stað
Valgeröar Bjarnadóttur, geri
jafnréttisnefnd og fræðslu-
nefnd bæjarráði grein íýrir ár-
angri af starfi jafnréttisfulltrúa
hingað til og setji jafnframt
fram ábendingar um það,
hvemig hag bcri starfí að jafn-
rcttis- og fræðslumáluin á vcg-
um Akureyrarbæjar lrarnvegis.
■ Á sama fundi jafnréttis-
nefndar var lagt til að þeir karl-
ar sem starfa hjá Akureyrarbæ
og sækja um að fara á karla-
ráðstcfnuna í Stokkhólmi fái
þriggja daga frí á launum. Bæj-
arráð sainþykkti aó veita um-
rætt leyfi á launum með sam-
bærilegum hætti og veitt var
konum, sem sóttu kvennaráó-
stefnuna í Finnlandi sl. sumar.
■ Atvinnumálancfnd hefur
borist erindi ffá Samveri um
geró kynningarmyndar urn
Lambaskálann í Glerárdal. At-
vinnumálancfnd samþykkti að
grciða þriðjung þess kostnaðar,
sem sótt var um, og greiöi að
hámarki kr. 110 þúsund.
■ Á fundi atvinnumálanefndar
var lagt fram erindi frá
Tryggva G. Hansen um bygg-
ingu völundarhúss úr klömbru
o.fl. Atvinnumálanefnd lét
bóka aó hún teldi erindið
áhugavert og sé reióubúin til
samstarfs um þetta mál að svo
miklu leyti sem það heyri undir
verksvið hcnnar.
■ Atvinnumálanefnd hefur
samþykkt aó auglýsa í Around
Iceland, Á ferð um ísland og
tslandskorú alls kr. 350 þús-
und.
■ Atvinnumálanefnd sam-
þykkti cinnig að standa aó gerð
korts fyrir Eyjafjarðarsvæðið í
samstarfi vió önnur sveitarfé-
lög í Eyjafirði enda taki þau
þátt í helmingi kostnaóar, en
heildarkostnaður er kr. 150 þús.
HA
Frá yfirkjörstjórn
Norðurlandskjördæmis eystra
Framboðsfrestur til Alþingis rennur út föstudaginn 24.
mars nk. kl. 12 á hádegi.
Framboðum skal skila fyrir þann tíma til formanns yfir-
kjörstjórnar Freys Ófeigssonar, dómstjóra, á skrifstofu
hans í Héraðsdómi Norðurlands eystra, Hafnarstræti
107, 4. hæð, Akureyri.
Framboðum skal fylgja listi meó nöfnum meðmæl-
enda, sem nú skulu vera eigi færri en 120 og eigi
fleiri en 180 svo og tilkynning um umboðsmenn list-
ans.
Yfirkjörstjórnin kemur saman til fundar um listana, á
framangreindri skrifstofu formanns, föstudaginn 24.
mars nk. kl. 15.00 og eru umboðsmenn listanna hér
með boðaðir til þess fundar.
Akureyri, 20. mars 1995.
Yfirkjörstjórn Norðurlandskjördæmis eystra.
Freyr Ófeigsson,
Guðmundur Þór Benediktsson, Jóhann Sigurjónsson,
Þorsteinn Hjaltason, Páll Hlöðversson.
Þingeyjarsýsla:
„Allt á svartakafi“
Norður-Þingeyjarsýsla:
Hætt við mokstur í gær