Dagur - 21.03.1995, Qupperneq 16
Akureyri, þriðjudagur 21. mars 1995
^Peátomynda
HVERRI
FRAMKÖUUN
FYLGIR
GETRAUNASEDILL
Skipagata 16 - 600Akureyri - Slmi 96-23520
- o
Loðnan komin í hrygningu og
hrognatöku hætt:
Þórshöfn aflahæst
norðlenskra hafna
- Júpíter ÞH landaði þar 1.200 tonnum í nótt
með Austurlandi né upp að Vest-
Gftir að stanslaust hefur bætt á snjónn í margar vikur er Ioksins útiit fyrir það í dag að hann geti sjatnað eitthvað. í
það minnsta er spáð a.m.k. 5 stiga hita. Mynd: Benni.
Um 20 þúsund tonn veiddust
af loðnu um helgina og einn
bátanna, Júpíter ÞH-61, kom um
miðnættið með fitllfermi af
loðnu til Þórshafnar, eða um
1.200 tonn, en aflinn fékkst
sunnan við Jökul á sunnudag. í
gærdag voru nokkrar bátar að
kasta á litlar peðrur við Önd-
verðarnes en það var eini staður-
inn þar sem var eitthvað skjól
fyrir brælu.
En hrygningin á sér stað þessa
dagana. Loðnuveiðinni viróist því
vera að ljúka því ekki hefur orðið
vart við nýja göngu, hvorki suður
„Veðurtepptur“, óslægður fiskur til Dalvíkur talinn ónýtur:
„Vegagerðin brynjaði sig gegn
mokstri vegna veðurspárinnar"
- segir Stefán Gíslason, flutningabílstjóri, sem var veðurtepptur vestan
Víðihlíðar rúma þrjá sólarhringa
eftir á Blönduósi því þar var farin
Flutningabflarnir frá Akur-
eyri, Dalvík og víðar, sem
setið höfðu fastir í Húnavatns-
sýslu vestan Víðihlíðar síðan á
miðvikudagskvöld, komust loks
til Eyjaíjarðar á sunnudags-
kvöld en ferðalagið hafði þá
staðið frá því klukkan 10 á mið-
vikudagskvöld. Um var að ræða
10 bfla vestan Víðihlíðar og
a.m.k. 5 bfla nokkru austar, eða
við Víðidalsafleggjarann. Með
bflunum voru ýmsar vörur sem
lágu undir skemmdum, m.a. 6
tonn af slægðum og óslægðum
fiski sem fara átti til vinnslu á
Dalvík hjá Norðurströnd hf. og
Fiskverkun Jóhannesar & Helga
hf. og er hætt við að óslægði
fiskurinn sé allur ónýtur og jafn-
vel eitthvað af þeim slægða.
Einnig var í bílunum grænmeti
og skyldur vamingur auk máln-
ingar, en eigendur vamingsins
þurfa að skoða hann og meta
hvort eitthvað af honum er
skemmt.
Tveir af bílunum sem komu
norður á sunnudagskvöldið voru
strax lestaðir og héldu þeir þegar
aftur til Reykjavíkur.
„Þaó kom til okkar stór snjó-
blásari á sunnudagsmorguninn frá
Hvammstanga, en hann hafði ver-
ið bilaður. Það tók nokkra klukku-
tíma að „græja“ bílana í ökuhæft
ástand og það kom einnig olíubíll,
enda sumir bílanna orðnir olíulitl-
ir. Björgunarveitarmennimir frá
Hvammstanga útveguðu okkur allt
sem við þurftum, m.a. heitt vatn á
brúsum og Kosangastæki til að
þíða bremsur og Ioft á bílunum
enda hafði lekið niður af vélunum
og fokið inn í bremuskálar og
sumir lofthreinsaranna voru orðnir
fullir. Minn bíl varð svo að skilja
í honum kúplingin. Verkstæðis-
mennimir komu svo með hann til
Akureyrar klukkan fimm aðfara-
nótt mánudags,“ sagöi Stefán
Gíslason, flutningabílstjóri hjá
Dreka hf. á Akureyri.
- Telur Stefán að Vegagerðin
hefði getað komið flutningabílun-
um til aðstoóar strax á fimmtu-
dagsmorguninn?
„Þeir brynjuðu sig strax á
fimmtudagsmorguninn gegn því
að moka vegna veðurspárinnar.
Þeir hefðu auðveldlega getað
komið okkur burtu úr Víðidalnum
þann dag og a.m.k. til Blönduóss,
þar sem við hefðum getað komið
bílunum í rafmagn til að halda
kyndingu í gangi og sparað okkur
ýmis óþægindi. A föstudag og
laugardag var veðurofsinn slíkur
að mokstur kom ekki til greina,“
sagói Stefán Gíslason. GG
Hrísey:
Austfirskir batar afla
hráefnis fyrir frystihúsið
- nokkuö um aðkomufólk, þ.m.t. Færeyingar
VEÐRIÐ
I dag ætti hitinn víðast að
yera yfir fimm stig á landinu.
Á vestanverðu Norðurlandi
verður suðvestan hvassvirði
með rigningu framan af degi
en allhavasst og dregur úr
úrkomu síðdegis. Á Norður-
landi eystra verður allhvöss
eða hvöss sunnanátt og dá-
lítil rigning fyrst í stað en
suðvestlægari og úrkomu-
laust seinnipartinn.
Stöðug vinna hefúr verið í
frystihúsi KEA í Hrísey það
sem af er árinu að undanskild-
um tæpum hálfúm mánuði í
janúarmánuði sl. Fiskurínn sem
unninn hefur verið hefur komið
nokkuð af fískmörkuðum og er
þá fluttur með skipum eða bflum
norður í land.
Hráefnisöflunin er að miklu
sameiginleg með frystihúsi KEA á
Hesthúsahverfið
í Ólafsfirði:
Enn talin
snjóflóðahætta
Síðdegis í gær var enn talin
hætta á að snjóflóð gæti fallið
á hesthúsahverfi Ólafsfirðinga.
Hesthúsahverfið er vestan við
flugvöllinn vió rætur Ósbrekku-
fjalls. Engin íbúðabyggð er á þessu
svæði og ekki talin hætta á að
snjóflóð falli á sjálfan bæinn. HA
Dalvík og þannig næst fram meiri
hagkvæmni og nýting. Togarinn
Björgúlfur EA-312 hefur ekki afl-
að frystihúsunum hráefnis að und-
anfömu, en hann hefur verið á grá-
lúðuveiðum fyrir austan land og
landað í gáma til útflutnings.
Magnús Helgason, nýráðinn
frystihússtjóri í Hrísey, segir veiði-
heimildir Súlnafells EA-840, sem
nýlega var selt til Rifs hf. í Hrísey
án kvóta, hafa verið nýttar af öðr-
um bátum, aðallega austur á
Homafirði, sem hafa veitt hann,
tonn gegn tonni, en aflinn unninn í
Hrísey. Aflinn hefur síðan verið
fluttur norður með skipum Sam-
skipa hf. Magnús Helgason var áð-
ur útgerðarstjóri Hraðfrystistöðvar
Þórshafnar hf.
Nokkrar færeyskar fjölskyldur
komu til Hríseyjar í fyrra til vinnu,
aðallega í frystihúsinu, eða um 14
manns, en í dag em eftir 8 manns,
og er það aðallega fjöskyldufólk.
Nokkuð er um annaö aðkomufólk,
íslenskt, sem dvelur flest í eins-
konar „verbúó“. Einnig hafa
nokkrir unglingar komið til vinnu í
frystihúsinu vegna kennaraverk-
fallsins. GG
Húsavík:
Fannfergi
í bænum
Mikil ófærð hefur verið á
götum Húsavíkur síðustu
dagana og elstu menn horfa upp
í loftið á skaflabrúnirnar og
muna ekki annað eins.
Um og fyrir helgina var ástand-
ið verst og rétt hægt að kalla að
Garðarsbrautin og einstaka aðrar
götur væru jeppafærar. Lögregla
og snjóbíll ók starfsfólki sjúkra-
húss til og frá vinnu meðan versta
ófærðin var.
Slysalaust var í óveðrinu og
hafði fólk hægt um sig, að sögn
lögreglu. IM
fjörðunum.
Einhverja daga í viðbót kunna
bátamir að fá ágætan afla af karl-
loðnu meóan hún gefur sig. Allur
afli nú fer til bræðslu því lokið er
við að framleiða upp í samninga til
Japan á frystum loðnuhrognum.
Heildaraflinn á vetrarvertíö er
nú orðinn 348 þúsund tonn en enn
óveidd 279 þúsund tonn og þarf
mikið að gerast til þess að loðnu-
flotinn nái að veiða það magn því
loðnugangan vió Snæfellsnes er aó
hrygna og af því loknu sekkur hún
til botns.
Þórshöfn er oróin aflahæst
norðlenskra hafna á loðnuvertíð-
inni með 13.300 tonn og hefði þaö
einhvem tíma fyrr á ámm þótt
saga til næsta bæjar að meiri loðna
bærist til Þórshafnar en til Siglu-
fjarðar og Raufarhafnar. Til Siglu-
fjarðar hafa borist 13.265 tonn,
9.418 tonn til Krossaness og 6.816
tonn til Raufarhafnar. Vestmanna-
eyjar eru sem fyrr aflahæsta höfnin
með 70.529 tonn en síðan Seyðis-
fjörður með 48.320 tonn. GG
Húsavíkurflugvöllur:
Ekkert flug í
þrjá daga
Þetta er með lengri köflum
sem flug hefur fallið niður,
það var ekkert flogið hingað á
fimmtudag, föstudag og laugar-
dag og ekki fyrr en á sunnu-
dagskvöld,“ sagði Bjöm Hólm-
geirsson, umboðsmaður Flug-
leiða á Húsavík.
Er loks var flogið komu 58 far-
þegar á völlinn en 35 flugu suður.
Á föstudag var hætt við hópferðir,
bæði skemmtiferðir og íþrótta-
ferðir, þar sem farþegar komust
ekki af svæóinu vegna snjóa.
„Þetta er með því almesta af
snjó sem við höfum séð á leiðinni
á flugvöllinn, en ekki með því
mesta sem verið hefur á vellin-
um,“ sagði Bjöm. „Það var ekki
búið að ryðja snjónum af flugvél-
arstæðinu svo farþegar urðu að
ganga i 18 stiga frosti af flug-
brautinni að flugstöðinni á sunnu-
dagskvöldið," sagði Björn. IM
^ínnanhúss-"1
málning
10 lítrar
KAUPLAND
B Kaupangi • Sími 23Ö65 B