Dagur - 19.05.1995, Blaðsíða 2

Dagur - 19.05.1995, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Föstudagur 19. maí 1995 FRÉTTIR Höndlað í heila öld á Hvammstanga: Afmælis- hátíð 8. júlí nk. - þar sem m.a. verður boðið upp á útimarkað, sögulega dagskrá og fjöl- skyldudansleik Hvammstangahreppur hlaut lög- gildingu Kristjáns konungs 9. af Guðs náð, Danmerkurkonungur, Vinda, Gauta, og hertogi af Slés- vík-Holzetalandi og Stórmæris, sem verslunarstaður 13. desember 1895 og verður því 100 ára versl- unarafmælis staðarins minnst með ýmsum hætti á þessu ári. Skipuð hefur verið sérstök afmæl- isnefnd sem í eiga sæti fulltrúar Kaupfélags Vestur- Húnvetninga, kaupmenn á Hvammstanga, Verslunarmannafélag Vestur- Húnavatnssýslu, Verkalýðsfélagið Hvöt og Hvammstangahreppur. Fyrsta verk nefndarinnar var að auglýsa eftir slagorði sem minnti áþreifanlega á verslunarafmæli staðarins og varð slagorðið Höndl- að í heila öld hlutskarpast. Stefnt er að því að halda afmælishátíð laug- ardaginn 8. júlí nk. og á dagskrá þann dag verður m.a. útimarkaður þar sem á boðstólum verður fjöl- breytt vöruframboð meö veitinga- sölu og léttri skemmtidagskrá en markaðsdagar verða einnig föstu- daginn 21. júlí og föstudaginn 11. ágúst. Boðið verður upp á sögulega dagskrá 8. júlí og verður gengið um söluslóðir og verslunarsaga Hvammstanga rakin með leiðsögu- manni og leiknum atriðum; inni- dagskrá í félagsheimilinu þar sem m.a. verður boðið upp á sögulega dagskrá á léttum nótum þar sem ljósi verður bmgðið á atburði og þekkta einstaklinga úr verslunar- sögu Vestur-Húnavatnssýslu. Um kvöldið verður fjölskyldudansleik- ur, eða „eðalball að gömlum sið“. Komið verður upp verslunar- minjasýningu í gamla „VSP-pakk- húsinu“ sem verður þar uppi í allt sumar. Þar verður komið fyrir mun- um og myndum sem tengjast versl- unarsögu héraðsins. Einnig verða húnvetnskir handunnir munir til sölu á sýningunni í tengslum viö Gallerí Bardúsu. Hugmyndir em uppi um að koma sýningunni upp annars staðar í framtíðinni eða tengja hana með einhverjum hætti héraðsby ggðasafninu. Hvammstangahreppur hefur ráð- ið Steingrím Steinþórsson sagn- fræðing til að skrifa Sögu Hvamms- tanga og verður hún gefin út á af- mælisárinu. GG HM lokið á Akureyri í gærmorgun var haflst handa við að ganga frá í íþróttahöllinni, eftir að leikjum í Heimsmeistarakeppninni Iauk á Akureyri. Það var af nógu að taka enda er mikið umstang í kringum svona heimsviðburð. A stærri myndinni eru starfsmcnn að ganga frá umtöluðu auglýsingaskiltunum, þar sem var m.a. auglýst- ur bjór. Á minni myndinni er starfsmaður Pósts og síma að ganga frá símtólunum en það var einn og einn sími notaður í tengslum við mótið. KK/Myndir: Robyn HM-gestir kvöddu hótelin á Akureyri í gær: Undantekningalaust mikil ánægja erlendu gestanna Keppnislið og blaðamenn sem dvalið hafa á Akureyri hálfa aðra viku héldu á brott í gær enda taka nú við úrslitaleikir keppninnar og leikir um sæti í Reykjavík. Undantekningalaust er gott hljóð í starfsfólki hótel- anna á Akureyri með hvernig til tókst og var það sammála um að keppnisliðunum og öðrum gest- um hafi líkað dvölin norðan heiða mjög vel. Alls komu átta keppnislið til Akureyrar vegna HM, sex til keppni í D-riðli og tvö komu til að spila í úrslita- keppninni. Flestir blaðamennimir gistu á Hótel Norðurlandi og sagðist Jón Ragnarsson ekki hafa heyrt annað en góðan hljóm í þeim hópi. „Þeim fannst Akureyri mjög skemmtilegur, fallegur bær og umhverfíð fallegt,“ sagði Jón. Svíar gistu á Hótel KEA og þeir komu og lýstu yfír mikilli ánægju með Akureyrardvölina þegar þeir fóru í gærmorgun enda óskuðu þeir sér sjálfir að leika í riðlakeppninni á Akureyri. „Þetta gekk allt vel. Við vorum allan tímann með tvö lið og síóan dóm- ara, starfsmenn og fulltrúa IHF. Menn voru almennt ánægðir með viðgjöming og almennt með bæ- inn. Fyrir hótelin var þetta gott og sérstakt að fá svona stóran hóp sem dvelur í marga daga,“ sagði Gunnar Karlsson, hótelstjóri. Egyptar gistu á Hótel Óðali og sagði Oddný Ólafsdóttir í af- greiðslu hótelsins að þeir hafí ver- ið kátir enda komust þeir í 8 liða úrslit keppninnar. „Það sem snýr að liðunum var í góöu lagi en það vantaói frekar upp á ýmis skipu- lagningaratriði fyrir keppnina. En Egyptamir voru ánægóir og gam- an að fá gesti svona langt að,“ sagði Oddný. Helga Gunnur Þorvaldsdóttir í afgreiðslu Hótels Hörpu sagði gestina hafa verið þægilega. „Þeir vom misglaðir eftir leiki og sorg hjá sumum en allt voru þetta mjög elskulegir menn.“ A hótelinu gistu Hvít-Rússar, Frakkar og Tékkar en í Kjamalundi gistu Suður- Kóreumenn, Brasilíumenn og Spánverjar. JÓH Húsavík: Togurum haldið á veiðum alveg fram að verkfalli - segir Kristján Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Höfða hf. og íshafs hf. Rækjutogaramir hafa margir hveijir verið á Kolbeinseyjar- svæðinu að undanförnu, m.a. Júlíus Havsteen frá Húsavík, en flotinn er nokkuð dreifður út í djúpkantinum. Jóhann Gunn- arsson skipstjóri segir dræma veiði nú fyrir norðan og austan en stærðina á rækjunni góða, frá 100 upp í 180 stk/kg. Júlíus Havsteen ÞH landaði sl. fostu- dag 58 tonnum á Húsavík, tæp- ur helmingur aflans, eða um 28 tonn fór á Japansmarkað en 30 tonn til vinnslu hjá rækju- vinnslu FH á Húsavík. Japans- rækjunni er pakkað í kflós- pakkningar eftir að hún hefúr verið plokkuð um borð og fryst. Kristján Ásgeirsson, fram- kvæmdastjóri útgerðanna Höfða hf. og íshafs hf. á Húsavík, segir Kolbeinsey ÞH hafa verið á veið- um suðaustan vió landiö í karfa og grálúðu en fiskurinn er hausskor- inn og síðan heilfrystur. „Ekki er vitaó hvenær Kol- beinsey ÞH eða Júlíus Havsteen ÞH koma til löndunar, því verður stýrt í ljósi þess hvort um sjó- mannaverkfall verður á ræða í næstu viku og skipunum þá haldið á veióum alveg fram að miðnætti aðfaranótt fímmtudagsins 25. maí. Skipin mega keyra heim í verk- fallinu en veiðum skal ljúka um leið og verkfall skellur á. Yfirvofandi verkfall hefur dregið úr sókn í úthafið, m.a. á Reykjaneshrygg, en eftir sjó- mannadag má reikna með að sótt verði á Reykjaneshrygg og í Smuguna ef verkfall hefur þá ver- ið leyst,“ sagði Kristján Ásgeirs- sonv Útgerðin gerir einnig út Aldey og Kristey sem eru á rækjuveiðum og er allur aflinn unninn á Húsa- vík. Kristey var á innfjarðarrækju- veiði á Öxarfirði en hefur veitt all- an sinn kvóta þar. GG Veitingasala á HM á Akureyri gekk vel: Bjórsala varð samt aldrei mikil - segir Andri Gylfason, veitingamaður á Greifanum Alls störfuðu 17 starfsmenn við veitingasöluna í Höllinni en einnig var unnin forvinna á veit- ingastað Greifans. „Þannig að þetta var mjög atvinnuskapandi,“ sagði Andri og ítrekaði að þeir Greifamenn væru mjög sáttir við sinn hlut. KK Þjónustuaðilar á Akureyri í tengslum við HM: Er í heildina ánægður - segir Gunnar M. Guð- mundsson hjá Sérleyfis- bílum Akureyrar „Þetta gekk mjög vel öll skipu- lagning gekk upp, að minnsta kosti sem að okkur sneri. Ég er ánægður með þetta í heildina,“ segir Gunnar M. Guðmundsson, framkvæmdastjóri Sérleyfisbfla Akureyrar, um verkefni síðustu dagana í tengslum við HM ’95 á Akureyri. Gunnar sagðist hafa haft sex bíla í vinnu meðan á riðlakeppn- inni stóð og fjóra bíla eftir að í úr- slitakeppnina kom. „Nei, það komu engin vanda- mál upp. Svona verkefni eru góð á þessum árstíma og eru okkur kær- komin. Þó þetta séu engin stór- kostleg uppgrip þá er þetta góð viðbót,“ sagði Gunnar. JÖH „Veitingasalan gekk bara vel og það er svo sem ekki yfir neinu að kvarta. Salan var góð, þó svo að áhorfendur hafi ekki verið fleiri suma dagana en raun bar vitni,“ sagði Andri Gylfason, veitingamaður á Greifanum, en fyrirtæki hans hafði með alla veitingasölu í Höllinni á Akur- eyri að gera á HM í handbolta. Það gekk mikið á í bænum í kringum bjórsöluna í Höllinni en það er saga sem flestum er kunn- ug. „Bjórsalan varð aldrei mjög mikil, nema þá helst á sunnudag- inn en þann dag var jafn mikil bjórsala og alla hina keppnisdag- ana.“ - Nú höfðu menn á orði að t.d. bjór og gosdrykkir hafi verið dýr- ir. Var verólagning á þessum vör- um óeðlilega há? „Mér er vel kunnugt um að bjórinn hafi verið dýrastur hjá okkur, af þessum fjórum keppnis- stöðum. Við tókum hins vegar þá ákvörðun að vera ekki að örva bjórdrykkjuna með því að vera með hann á einhverju hlægilegu verói. Varðandi gosið fannst mér verðið á því ekkert óeólilegt. Hins vegar hef ég heyrt að ég hafi verió með eitt besta matarverðið á land- inu, t.d. á hamborgurum og öðru.“ Andri sagði að það væri stefna Greifans aó vera ekki að bjóða áfengi eða aðra drykki á lægra veðri en aðrir og þess vegna væri hægt að bjóða upp á betra matar- verð.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.