Dagur - 19.05.1995, Blaðsíða 14

Dagur - 19.05.1995, Blaðsíða 14
14 - DAGUR - Föstudagur 19. maí 1995 Samtök sykursjúkra á Akureyri og nágrenni halda aðalfund sinn í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju mánudaginn 22. maí kl. 20.30. Aóalfundarstörf - Kaffiveitingar - Umræöur. Höskuldur Höskuldsson, lyfjafræðingur, mætir á fundinn og kynnir nokkrar vörur fyrir sykursjúka frá Lyra s/f. Nýir félagar velkomnir Stjórnin. STAK félagar Kynning á nýgerðum kjarasamningum STAK við ríkið og við Launanefnd sveitarfélaga f.h. Akureyr- arbæjar stendur yfir. Allsherjaratkvæðagreiðsla verður 22. og 23. maí. Sjá vinnustaðaauglýsingar. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar er á skrifstofu STAK kl. 12 til 16 á föstudag. Samningarnir liggja frammi á skrifstofu STAK. Stjórn STAK. Foreldrafélag barna með sérþarfir heldur hádegisverðarfund með starfsfólki Svæðis- skrifstofu málefna fatlaðra á N.e. á Hótel KEA laug- ardaginn 20. maí, kl. 12.00-14.00. Fundarefni: Stuðningsúrræði og afleysing fyrir foreldra/fjölskyldur fatlaðra barna, 0-16 ára. Foreldrar fatlaðra barna, stuðningsfjölskyldur og starfs- fólk er boðið velkomið. Fræðslunefnd. STARFSAMNNAFELAG AKUREYRARBÆJAR Vinningstölur miövikudaginn: 17.05.1995 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ A HVERN VINNING n6afe 1 115.770.000 5 af 6 tfi+bónus 2 625.920 m 5 af 6 10 43.170 0 4af6 380 1.800 ra 3 af 6 t*J+bónus 1.313 220 JJfUinningur: Fór til Danmerkur Aðaitölur: (8)@(§) (2l)§)@ BÓNUSTÖLUR Heildarupphæð þessa viku: 118.426.400 á ísi.: 2.656.400 UPPLÝSINGAR. SÍMSVARI 01- 68 15 11 LUKKULINA 99 10 00 - TEXTAVARP 451 BIRT MtD fYRIRVARA UM PRENTVILLUR AKUREYRARBÆR Viðtalstímar bæjarfulltrúa Mánudaginn 22. maí 1995 kl. 20-22 verða bæjarfull- trúarnir Jakob Björnsson og Heimir Ingimarsson til viótals á skrifstofu bæjarstjóra að Geislagötu 9, 2. hæð. Bæjarfulltrúarnir munu svara símaviðtölum eftir því sem aðstæður leyfa. Síminn er 21000. Bæjarstjóri. Söngnemar syngja lög eftir Sigfús Halldórsson. Tónlistarskólinn á Laugum í Reykjadal: Sigíus HaUdórsson heið- ursgestur á vortónleikum Tónlistarskólinn á Laugum hélt vortónleika sína á Breiðumýri við húsfylli 6. maí sl. og í tilefni af 15 ára afmæli skólans var Sigfúsi Halldórssyni tónskáldi boðið til tónleikanna sem heið- ursgesti, meðal annars voru sungin lög Sigfúsar og spilaði hann sjálfur tvö lög við mikla hrifningu. Eftir tónleikana var boðið til kaffisamsætis í boði Reykdælahrepps. Um 70 nem- endur stunda nám við skólann og er kennt á flestar tegundir hljóðfæra ásamt söngkennslu. Bjöm Þórarinsson, núverandi skólastjóri við starfinu. Margt hefur á dagana drifið þau 15 ár sem Tónlistarskólinn á Laugum hefur starfað. Skólinn er öllum opinn og auk íbúa sveitarfé- lagsins stunda þar nám nemendur Framhaldsskólans á Laugum. Kennt er á píanó, hljómborð, harmoniku, gítar, bassagítar, blokkflautu, þverflautu og saxó- fón. Við skólann er starfandi for- skóladeild sem telur 17 nemendur og söngdeild þar sem 15 nemend- ur stunda nám. Einnig er starfandi sameiginlegur kór Tónlistarskól- ans og Litlulaugaskóla. Rétt er að geta þess aö Reyk- dælahreppur hefur staðið myndar- lega að rekstri Tónlistarskólans og hefur nú útvegað honum gott framtíðarhúsnæði, sem hann deilir með Leikskólanum Krílabæ. Þetta húsnæói stendur til að fullgera nú í sumar. Kennarar við skólann í vetur hafa verið, auk skólastjórans, Þór- unn Sigurðardóttir, píanó- og flautukennari, og Natalía Chow, söngkennari. Tónlistarskóli tók til starfa í Reykjadal árió 1979. Fyrsta árið var hann rekinn sem útibú frá Tónlistarskóla Mývetninga, en síðan árið 1980 hefur skólinn ver- ið rekinn sem sjálfstæð stofnun á vegum Reykdælahrepps. Fyrsti skólastjóri skólans var Ragnar L. Þorgrímsson. Hann gegndi því starfi til ársins 1990, en þá tók Guðfinna Sverrisdóttir, formaður skólanefndar Tónlistarskólans, afhcndir Sigfúsi Haildórssyni nýútkomið nótnahcfti reykdælska tónskáldsins Friðriks Jónssonar frá Halldórsstöðum. Arngrímur Konráðsson 13 ára spil- ar á harmoniku. Sýslumaðurinn á Akureyri Hafnarstræti 107, 600 Akureyri Sími 96-26900 Uppboð Framhald uppboðs á neðangreindri eign verður háð á henni sjálfri sem hér segir: Aðalstræti 63, Akureyri, þingl. eig. Kristján Jóhannsson og Anna G. Torfadóttir, gerðarbeiðendur Akur- eyrarbær, Landsbanki íslands, Líf- eyrissjóður verslunarmanna, Tryggingarstofnun ríkisins og Vá- tryggingafélag íslands h.f., 24. maí 1995 kl. 10.00. Sýslumaðurinn á Akureyri, 18. maí 1995 Barnakórinn undir stjórn Björns Þórarinssonar, undirlcikari er Þórunn Sigurðardóttir.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.