Dagur - 19.05.1995, Blaðsíða 9

Dagur - 19.05.1995, Blaðsíða 9
Föstudagur 19. maí 1995 - DAGUR - 9 Firmakeppni Léttis: Fjörag og spennandi fjölskylduskemmtun - verður haldin 27. maí Elfa Ágústsdóttir, Vignir Sigurðarson og Sigurður J. Sigurðsson, forseti bæjarstjórnar, opna Hlíðarholtsvöll með formlegum hætti árið 1993. Sprett úr spori á bökkum Eyjafjarðarár. Myndin er tekin á kappreiðum Léttis árið 1961. Það er ávallt garnar. aó mæta á fjöruga og spennandi firmakeppni með alla fjölskylduna, sérstaklega þegar maður tengist henni að einhverju leyti hvort sem það er tengt knapa, hestum eða fyrirtæki. Að vanda verður glæsilegt kaffi- hlaðborð í félagsheimili Léttis- manna, Skeifunni, að aflokinni keppni. Mánudagurinn 22. maí er síð- asti skráningadagurinn og eru þeir sem enn hafa ekki látið skrá sig beðnir að hafa samband við starfs- mann Hestamannafélagsins Léttis, Sigurbjöm Sveinsson í sima 26163 fyrir kl.16 á mánudag. B.B./KLJ og Jóhann Már Jóhannsson. Fyrsta keppnin var haldin á Oseyri, þar sem nú stendur Búgaröur. Keppn- in fór fram á götunni og var búinn til hringur með því að fara yfir uppþomaðan árfarveg Glerár og eftir bökkum hennar. Keppnin var síðan haldin á ýmsum stöðum í bæjarlandinu, mjög oft á Þómnn- arstræti, en eftir að Breiðholtsvöll- ur var tekinn í notkun hefur keppnin farið þar fram Firmakeppni er samvinna við- komandi hestamannafélags, knapa og þeirra fyrirtækja sem skrá sig til keppninnar. I flestum tilfellum er dregið um hvaða knapi keppir fyrir hvaða fyrirtæki. Fyrir þessa keppni er reyndar bryddað upp á þeirri nýbreytni að gefa fyrirtækj- um kost á því að velja sér knapa gegn hærra þátttökugjaldi, en al- mennt þátttökugjald fyrir fyrirtæki er kr. 5.000,- kr. Keppnin er ekki einskoróuð við fyrirtæki heldur geta einstakl- ingar látið skrá sig og greiða þá aðeins kr. 2000.-. Þeir verðlauna- gripir sem vinnast í keppninni verða eign viókomandi fyrirtækis eða einstaklings. Fyrir þessa firmakeppni verður gefm út keppnisskrá þar sem þátttakendur eru skráðir og hvemig þeir raðast í flokka, en þeir eru þrír, bama- og unglingaflokkur, kvennaflokkur og karlaflokkur. Nú líður að hinni árlegu fírma- keppni Léttis, sem haldin hefur verið óslitið frá 1970. Gert er ráð fyrir að keppnin verði haldin laug- ardaginn 27. maí og hefjist kl. 14.00. Ekki er enn búið aó ákveða á hvorum vellinum verði keppt, Breiðholtsvelli eða Hlíðar- holtsvelli. Astæðan er mikill snjór umhverfis vellina. Eigi að síður er stefnt að því að firmakeppnin verði haldin á hinum nýja og glæsilega Hlíðarholtsvelli, sem stendur norðan við heshúsahverfið í Lögmannshlíðarlandi. Hlíðar- holtsvöllur var eins og flestir vita formlega tekinn í notkun 24. júlí 1993 og gjörbreytti þá allri að- stöðu til keppnisíþrótta og sýn- inga. Eins og fram kom hér að fram- an var fyrsta keppnin haldin 1970 og þaó vom nokkrir ungir áhuga- menn um hestamennsku sem lögðu þessa hugmynd fyrir stjóm Léttis á sínum tíma. I framhaldi af þessari hugmynd var þeim falið að hrinda henni í framkvæmd sem þeir og gerðu með sóma. Þessir ungu framsýnu menn vom þeir Reynir Hjartarson, Frímann Frí- mannsson, Hólmgeir Valdemars- son, Jóhannes Mikaelsson, Jón Olafur Sigfússon, Þór Sigurðsson Firmakeppni Léttis hefúr alla tíð vcrið vinsæl fjölskylduskemmtun. Þessi mynd er frá firmakeppninni árið 1973, sem var haldin á skeiðvelli félagsins á Eyjafjarðarárbökkum. Ljóðasöngvar píanósnillinganna Sunnudaginn 14. maí efndu Sig- urðar Bragason, baritón, og Vovka Ashkenasy, píanóleikari, til tónleika í Listasafni Akureyrar. Efnisskráin var óvenjuleg og því forvitnileg. A henni voru einungis ljóðalög eftir tónskáld, sem eru sannarlega fyrir annað þekktari en það, að semja tónlist af þeim toga. Fyrst á efnisskrá tónleika Sig- urðar Bragasonar og Vovkas Ashkenasys voru fjögur lög eftir Fryderyk Chopin. Hann er þekkt- astur fyrir rómantískar píanótón- smíðar sínar, sem þykja margar hverjar á meðal þess fegursta, sem samið hefur verið fyrir hljóðfærið. Hér birtist skemmtileg hlið á þess- um mikla snillingi. Ljóðalög hans eru með greinilegum slavneskum brag og var flutningur Siguróar Bragasonar í góðu samræmi við það. Hann minnti einna helst á rússneskan baritón og beitti mjúk- um bátónum, sem minntu á stund- um á falsettu. Undirleikur Vovkas Ashkenasys var mjög við hæfi og fylgdi söngvaranum vel. Sérlega góð var túlkun þeirra á síðasta lagi flokksins, sem var Nie Ma Czego Trezeba, og kom þar vel í ljós vald það, sem Sigurður hefur á rödd sinni á sem næst öllu sviði hennar. Næst komu lög eftir Franz Liszt við þrjár sonnettur eftir Petr- arca. Liszt hefur verið talinn á meðal mestu snillinga píanósins og samdi fjölda verka fyrir það, sem eru talin á meðal þess stór- fenglegasta, sem samið hefur ver- ið fyrir hljóðfærið. Lög hans bera merki píanóverka hans ekki síst í þætti undirleikshljóðfærisins. Þau eru litrík og tilfinningarík en jafn- framt lagræn. Sigurður Bragason TÓNLIST HAUKUR Á6ÚSTSSON SKRIFAR og Vovka Ashkenasy gerðu verk- unum góð skil ekki síst hinu fyrsta, sem ber heitið Pace non trovo og hinu síðasta, I vidt i terra, þar sem sviptingar eru miklar jafnt í söng sem undirleik. í öðru laginu virtist Sigurður Bragason vera á mörkum tónhæðar sinnar og gætti því nokkurrar þvingunar. Þriðji lagaflokkurinn var eftir Serge Rachmaninoff, sem er einnig talinn á meðal höfuðsnill- inga píanósins, en er ekki síður þekktur fyrir mikla fæmi sína í skrifum fyrir hljómsveit. Þeir fé- lagar Sigurður Bragason og Vovka Ashkenasy fluttu fimm lög eftir Rachmaninoff. Hér féll að anda laganna, sem er nokkuð slav- neskur, svo sem vænta má. Víða voru mikil átök í túlkun, svo sem í In the Silent Night og Christ is Risen. Ljúfleiki ríkti í laginu All once I gladly Owned, og mikið svið tilfinninga var undir í lögun- um When Yesterday We Met og Oh, Stay, My Love, Forsake Me not. Þó heiti laganna séu hér á ensku, eins og í efnisskrá, söng Sigurður á rússnesku. Lokaflokkurinn á tónleikum Sigurðar Bragasonar og Vovkas Ashkenasys var eftir Maurice Ra- vel og ber heitió Don Quichotte e Dolcinée. Þetta eru kímilegar tón- smíðar, enda efnið byggt á ævin- týrum Don Kíkóta og ástum hans. Söngvarinn fór á kostum og ekki síóur píanóleikarinn í túlkun lag- anna þriggja, sem heita Chanson romanesque, Chanson epique og Chanson á boire. Sérlegt flug komst á síðasta lagið, sem er drykkjusöngur, þar sem ljóðió sem lagið eru þrungin skopi og fjöri. Sigurður Bragason og Vovka Ashkenasy fluttu tvö aukalög: Lindina eftir Eyþór Stefánsson og Persneskan ástarsöng eftir Anton Rubinstein, sem Sigurður sagðist hafa leitað lengi og loks fundið í handriti í British Museum. Rubin- stein er einnig á meðal píanósnill- inganna. Lagið, sem að sögn Sig- urðar er sem næst gleymt, var til- valið aukalag á tónleikum sem þeim, sem hann efndi til með und- irleikara sínum í Listasafni Akur- eyrar og var kærkominn ábætir á góða stund. Hljómsveit GEIRMUNDAR VALTÝSSONAR ásamt HEIGU MÖLIER Það gerist ekki fjörugra HÓTEL Sími 22200 HOTEL KEA Laugardagskvöldið 20. maí Landsins vinsælasta stuðsveit

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.