Dagur - 19.05.1995, Blaðsíða 7

Dagur - 19.05.1995, Blaðsíða 7
I Föstudagur 19. maí 1995-DAGUR-7 Slysstaburinn Fæsta grunar að þetta sé mynd af gili en svo er nú samt. Sleðaförin sem liggja frá myndatökumanninum eru eftir Smára og iiggja í áttina að gilinu. Maður- inn á myndinni stendur á giibarminum og þetta er það sjónarhorn sem Smári hafði. Hér sést sleði Smára niðri í gilinu. Með ólíkindum hversu heillcgur hann er Mynd tekin af botni gilsins fácinum klukkustundum cftir að slysið varð. Efst eftir slysið en slcðinn lenti nánast á hvolfi. Það hefúr því orðið Smára til iífs tii vinstri sést í brúnina þar sem Smári fór fram af og síðan klettaveginn sem að hafa sieppt sleðanum strax og honum var Ijóst hvert stefndi. hann hrapaði niður með. sér líka grein fyrir að hann yrði að láta vita af sér því ekki yrði undan því komist að kalla til lækni á staðinn. Klukkan var nú að nálg- ast eitt og um tveir tímar frá því slysið varð. Vildi í fyrstu ekki kalla á þyrluna Smári var drifinn inn í stofu á bænum og búið um hann og kall- aður til hjálpar læknir frá Hólma- vík. „Eg fann að ég var með verk í brjóstinu en gerði mér ekki grein fyrir hvort ég var meiddur í baki, á brjósti eða báðum megin. Eg vissi að hendumar voru úr leik í bili enda litu þær út eins og tenn- isspaðar. Læknirinn sá strax að ég væri tiltölulega lítið slasaður en vildi fá þyrluna til að flytja mig suður en ég reyndi að berjast á móti því vegna þess að ég gerði mér grein fyrir allri fjölmiðlaat- hyglinni og látunum sem því gæti fylgt. Eg vildi fara á heilsugæslu- stöðina í Hólmavík en ég fann svo síðar þegar ég var fluttur í börum frá bænum og niður á veg að það var alveg nóg fyrir mig. Samt var ég hálfvegis á floti í morfini þegar það var gert. En auðvitaó er ég ánægður með að hafa farið á Borgarspítalann því þar komst ég í alla bestu meðferð og umönnun sem hægt er að fá.“ A Borgarspítalann var Smári kominn um kl. 17 eða um sex tím- um eftir að slysið varð. Þar tóku við myndatökur, rannsóknir og áðgerðir á höndum hans þar sem gert var að beinbrotum sem eru rétt fyrir ofan úlnliðina. Sárt að vera sigraður við bestu aðstæður Vélsleðaslysin hafa verið mörg í vetur og því miður hafa tapast mannslíf í þeim. Smári segir þessi slys alltof mörg og að menn verði að viðurkenna aö mörg þeirra verði vegna hraðaksturs og gá- leysis. „En hvort þessi slys eru hlutfallslega eitthvað fleiri eða færri en slysin í umferðinni geri ég mér ekki grein fyrir. í minni ferðamennsku og í mínum hópi höfum vió verið meðvitaðir um að sú staða gæti komið upp að ein- hver lenti í slysi en ég átti aldrei von á því að verða sigraður í bestu skilyrðum sem hægt er að fá. Yfir því er ég svekktastur en jafnframt feginn að vió þessi skilyrði var auðveldara að koma mér undir læknishendur. Að því leytinu til var ég heppinn,“ sagði Smári. „Það er ekki nokkur vafi á að umræóan um slysin verður að vera mikil hjá vélsleðamönnum sjálf- um og hún hefur verið það að undanfömu. Hins vegar er það staðreynd að það er sjaldgæft að mjög vanir vélsleóamenn verði fyrir slysum og fæst slysin verða við erfiðar aðstæður. Menn láta of mikið gamminr goysa þegar gott er veður og margir þeirra sem eru á ferðinni keyra lítið nema þegar gott er veður. Þannig öðlast menn ekki eins mikla reynslu til að var- ast hættumar. I mínu tilfelli þakka ég reynslunni mikið vegna þess að ef ég hefói ekki kunnað að lesa úr landslaginu fyrir ofan mig þá hefði ég keyrt alla leið fram af og farið þannig niður með sleðanum. Þá hefði ekki verið að sökum aó spyrja. Reynslan að lesa landið var mér þama til bjargar.“ Strandavættirnir í gilinu björguðu Mynd af slysstaðnum, sem birtist með viðtalinu, sýnir það sjónar- hom sem Smári hafði þegar hann kom að gilinu. Hann segir að allt þangað til hann fékk hana hafi slysið nagað samviskuna. „En þama fékk ég staðfestingu á að ég hefði ekki getað brugðist öðmvísi við, fyrst á annað borð ég var kominn skrefi of langt. Eg verð samt aldrei sáttur vió að hafa lent í þessu en þakka hinum mögnuðu Strandavættum í gilinu fyrir að bjarga lífi mínu.“ - Varstu óheppinn eða gerðir þú mistök? „Nei, ég er ekki tilbúinn að segja að ég hafi gert mistök. Ef ég yrði fyrir bíl á Glerárgötunni þá segði ég ekki við sjálfan mig að ég hefði gert mistök og átt að fara Hjalteyrargötuna. Það er langsótt hugsun. Eg tel mig miklu frekar hafa verið óheppinn." - Kemur þú til með að breytast sem ferðamaóur eftir þetta óhapp? „Eg held að það hljóti aó vera. Þama hef ég lært aö hættumar geta leynst án þess aó maður sjái þær. Eg er samt ekki viss um að það verði veruleg breyting á mín- um ferðaháttum því þessu gat ég ekki á einn eða annan hátt afstýrt. Ætli ég verði ekki enn grimmari að ferðast þegar ég hef náð mér á strik,“ segir Smári og brosir. Fer að skoða gilið í sumar Vegna meiðslanna mun Smári lít- ið geta sinnt garðyrkjunni á næst- unni og hann segir í gríni að sjálf- sagt þurfi hann aó skipta yfir í geðlyfin þegar átinu á verkjatöfl- unum linni. „Fram að þessu hefur þetta ekki verið stórmál því ég get ekkert gert, er núna fyrst að veróa svolítið sjálfbjarga. Kannski er það einmitt það versta við að lenda í svona slysi aó finna hvem- ig maður verður algerlega upp á aóra kominn. Eg hef þó talfærin heil og þá er þetta í góðu lagi. Ég verð bara að veita mér það að haga mér eins og maður meðan þetta gengur yfir. Viðskiptavinim- ir hafa vcrið að hringja og halda surnir aó garðyrkjufyrirtækið sé hreinlega niður lagt út af þessu en við erum tveir sem eigum þetta og höfum góöan mannskap í vinnu þannig að hjólin snúast áfram. Ég get að minnsta kosti farið um og fylgst með verkunum. Það eina sem ég er nú þegar búinn að ákveða er aó fara vestur í Bjamar- fjörð í sumar til að skoða gilið,“ segir Smári. I bílskúmum vió húsið í Hjarð- arlundinum er vélsleði Smára, illa útleikinn eftir fallið ofan í gilið en samt hefur það undrað menn að hann skyldi ekki fara verr. Smári segir að þegar lengra líói á vorið komi feróafélagamir í sleða- mennskunni til að rífa sleðann og þá sést hvort hægt veróur að gera við hann. „Ég get nú kannski ekki gert mikið meira en að halda á einni og einni skrúfu og fylgjast með en vonandi komumst við báðir aftur á ról, félagamir," segir hann og klappar sleðanum. JOH

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.