Dagur - 19.05.1995, Blaðsíða 5
HVAt) ER AP C. E RAST?
Föstudagur 19. maí 1995 - DAGUR - 5
Aðalfundur Samtaka
sykursjúkra
Samtök sykursjúkra á Akureyri og
nágrenni halda aðalfund sinn í Safn-
aðarheimili Akureyrarkirkju mánu-
daginn 22. maí nk. kl. 20.30. Auk
venjulegra aóalfundarstarfa mætir
Höskuldur Höskuldsson, lyfjafræð-
ingur, á fundinn og kynnir nokkrar
vörur fyrir sykursjúkra frá Lyra sf.
Nýir félagar eru velkomnir.
Ljósmyndasýning Sólu í
Deiglunni
Þessa dagana stendur yfir athyglis-
verð ljósmyndasýning Sólrúnar
Jónsdóttur í Deiglunni á Akureyri.
Sýningin nefnist „Við minnumst
þeirra“ og er tileinkuð öllum þeim
sem látist hafa úr alnæmi á Islandi,
en það eru 27 einstaklingar. Al-
menningi er gefinn kostur á að
minnast hinna látnu í verki t.d. með
því að skilja eftir rós við myndir
Sólrúnar. Sýningin verður opin til
26. maí nk. kl. 14-18.
Myndlistasýning í Vín
Allan James heldur sölusýningu í
Blómaskálanum Vín í Eyjafjarðar-
sveit um helgina. Sýnir hann þar
fjórtán landslagsmyndir þar sem
þemaó er íslenskir fossar. Allar
myndimar eru unnar í olíukrít.
„Nytjalist í svefn-
herbergjum“ í Varmahlíð
Hrönn Vilhelmsdóttir textilhönnuð-
ur, Textilkjallaranum í Reykjavík,
opnar sýningu á „Nytjalist í svefn-
herbcrgjum" í Gallerí ASH i Lundi,
Varmahlíð, sunnudaginn 21. maí kl.
14.
Hrönn nam við Myndlista- og
handíðaskóla íslands og lauk námi
1990 og fór síðan í eitt ár í fram-
haldsnám í iðnhönnun. Hrönn tók
þátt í handverkssýningunni á
Hrafnagili 1993 og einnig sýndi hún
í Geysishúsinu á Hönnunardögum í
febrúar síðastliónum og á afmælis-
sýningu Textilfélagsins í Hafnarborg
nú í apríl. Sýningin er opin alla daga
nema fimmtudaga frá kl. 13 til 18 og
stendur til 8. júní.
Aukasýning á
Kvennaskólaævintýrinu
Freyvangsleikhúsiö verður með
aukasýningu á Kvennaskólaævintýr-
inu á sunnudagskvöld, 21. maí, kl.
20.30 í Freyvangi. Miðasala og
pantanir eru í síma 31349 og 31196.
Djöflaeyjan rís um helgina
Leikfélag Akureyrar sýnir í tvígang
um helgina Þar sem djöflaeyjan rís
eftir Einar Kárason og Kjartan
Ragnarsson. Sýnt verður í kvöld og
annað kvöld kl. 20.30. Sími í miða-
sölunni er 24073.
Passíukórinn með bingó
Passíukórinn á Akureyri heldur
bingó í Lóni við Hrísalund nk.
sunnudag, 21. maí, kl. 15. Bingóið
er til fjáröflunar fyrir kórinn sem
mun flytja tónverkið Carmina Bur-
ana um hvítasunnuna. Fjöldi glæsi-
legra vinninga.
Vortónleikar söngdeildar
Tónlistarskóla Dalvíkur
Vortónleikar söngdeildar Tónlistar-
skóla Dalvíkur verða í Dalvíkur-
kirkju á morgun, laugardag, kl. 15.
Þar koma fram Sólveig Hjálmars-
dóttir og Svana Halldórsdóttir ásamt
Lidiu Kolosowsku píanóleikara. A
efnisskránni eru lög og aríur eftir ís-
lensk og erlend tónskáld. Aðgangur
er ókeypis og eru allir velkomnir.
Diskótek í Dynheimum
Diskótek verður í Dynheimum á Ak-
ureyri annað kvöld, laugardags-
kvöld, kl. 20-24. Aldurstakmark er
árgangur 1981 og miðaverð er kr.
400.
Flóamarkaður í Kjarnalundi
Náttúrulækningafélag Akureyrar
heldur flóamarkað í Kjamalundi á
morgun, laugardag, kl. 14-17. Mikið
úrval af nýkomnum vörum verður í
boði, s.s. fatnaður á böm og full-
orðna, strigaskór, belti, hálsbindi,
bækur og margt annað nýtilegt á afar
lágu verði.
Hádegisverðarfu ndur
Foreldrafélags barna með
sérþarfir
Foreldrafélag bama með sérþarfir
heldur hádegisverðarfund með
starfsfólki Svæóisskrifstofu málefna
fatlaðra á Norðurlandi eystra á Hótel
KEA á morgun, laugardag, kl. 12-
14. A fundinn mæta frá skrifstofunni
Bjami Kristjánsson framkvæmda-
stjóri, Lone Jensen og Karólína
Gunnarsdóttir, forstöðumenn Leik-
fangasafns og Vilborg Oddsdóttir fé-
lagsráðgjafi. Til umræðu verða
stuðningsúrræði og afleysing fyrir
foreldra/fjölskyldur fatlaðra bama,
0-16 ára, einkum stuðningsfjöl-
skylda, skammtímavistun og sumar-
dvöl aó Botni í Eyjafjarðarsveit.
Starfsfólk svæðisskrifstofu mun
kynna nýja reglugerð um þjónustu
við fötluð böm og fjölskyldur fatl-
aðra og tcngja hana aðstæðum á
svæðinu. Mæður lýsa reynslu sinni
og fjalla um óskir foreldra um stuðn-
ing. Einnig talar einstaklingur sem
hefur reynslu af því að gegna hlut-
verki stuðningsfjölskyldu. Hádegis-
verður, súpa, brauð og kaffi verður á
boðstólum á kr. 550. Allir foreldrar
fatlaðra bama em velkomnir svo og
stuðningsfjölskyldur og starfsfólk
skammtímavistunar og sumardvalar-
innar að Botni.
Geirmundur og
Helga Möller á KEA
Það verður líf og fjör á Hótel KEA
annað kvöld þegar sjálfur sveiflu-
kóngurinn Geirmundur Valtýsson
stígur á stokk og skemmtir gestum.
Helga Möller söngkona syngur með
hljómsveitinni að þessu sinni.
Vinir vors og blóma í
Miðgarði
Hljómsveitin Vinir vors og blóma
leikur fyrir dansi í Miðgarði í Skaga-
firði annað kvöld, laugardagskvöld.
Hljómsveitina skipa Þorsteinn G.
Olafsson söngvari, Gunnar Eggerts-
son gítarleikari, Siggeir Pétursson
bassaleikari, Njáll Þórðarson hljóm-
borð og Birgir Nilsen trommuleik-
ari.
Ríó og Páll Óskar og
Milljónamæringarnir í
Sjallanum
Það verður mikið um að vera í SjalL
anum á Akureyri um helgina. I
kvöld, föstudag, verður reyndar lok-
að vegna einkasamkvæmis, en ann-
að kvöld verður heldur betur mikið
um aó vera. Þá skemmtir hið eina og
sanna Ríó tríó gestum og Páll Óskar
Hjálmtýsson og Milljónamæringam-
ir leika fyrir dansi. Verð á mat,
skemmtun og dansleik er kr. 3.500.
Á sunnudagskvöldið kl. 20.30
verður síðan málverkauppboð í
Sjallanum, myndimar verða sýndar í
Mánasal um daginn.
Quiz Show í Borgarbíói
Stórmynd helgarinnar í Borgarbíói á
Akureyri er Quiz Show sem Robert
Redford leikstýrir. Myndin var til-
nefnd til fjögurra Óskarsverðlauna,
m.a. sem besta myndin og Redford
var tilefndur sem besti leikstjórinn.
Þessi mynd, sem verður sýnd kl. 21,
fjallar í sem stystu máli um sið-
ferðispillingu og blekkingu.
Klukkan 21 og 23 verður sýnd
mynd Roberts Altmans Pret a Porter
sem gerir grín á skemmtilegan hátt
af heimi hátískunnar í París. Pret a
Porter hefur vakió gífurlega athygli
og jafnvel deilur.
Klukkan 23 verður sýnd myndin
A Low Down Dirty Shame.
Á bamasýningum kl. 15 á sunnu-
dag verða sýndar myndimar Lassie
(ókeypis) og Skýjahöllin, íslenska
fjölskyldumyndin. Miðaverð kr.
550.
Kristján Ö. Hjálmarsson þjón-
ustuaðili Kompass á Norðurlandi
Þessa dagana eru fyrirtækja-
stjórnendur um allt land að fá í
hendur kynningarbækling frá
fyrirtækinu íslensku viðskipta-
skránni - Kompass á íslandi,
sem greinir frá því hvernig fyrir-
tæki á íslandi geta á auðveldan
hátt nálgast upplýsingar og
komist í samband við fyrirtæki á
sama sviði út um allan heim í
gegnum alþjóðlegt kódakerfi
Kompass, sem byggist á því að
sama kódanúmer stendur fyrir
sömu vörutegund hvar sem er í
heiminum.
Kristján Ö. Hjálmarsson.
Þeir sem tengjast Kompass net-
inu fá m.a. hugbúnað í Windows
umhverfi, heildarskrá íslenskra
fyrirtækja, stofnana og þjónustu-
aðila, notendahandbækur, aðgang
að FaxCall símkerfinu, aðgang aó
Kompass Intemational fyrirtækja-
netinu, skráningar í Kompass fyr-
irtækjanetið og margt fleira.
Kristján Ö. Hjálmarsson,
reksu-arfræðingur, hjá Stólpa á
Akureyri, er þjónustuaðili Kom-
pass á Norðurlandi og Austurlandi
og er unnt að fá hjá honum allar
nánari upplýsingar.
Kveðjutónleikar
Ingvars Jonassonar
Ingvar Jónasson víóluleikari, hljómsveitarinnar í Stokkhólmi
Anna Guðný Guðmundsdóttir en flutti þá heim al'tur og hefur
píanóleikari og Sigurður I. lcikið síðan með Sinfóníuhljóm-
Snorrason klarinettulcikari halda sveit íslands ásarnt kennslustörf-
tónleika á vegum Tónlistarfélags um við Tónlistarskólann í
Akureyrar í Safnaðárheimili Ak- Reykjavík og Tónskóla Sigur-
ureyrarkirkju sunnudaginn 21. sveins D. Kristinssonar.
maí kl. 17. Á efnisskránni eru Tengsl Ingvars við tónlistarlíf
verk eftir Johannes Brahms, Akureyrar hafa vcrið mikil og
W.A. Mozart og Jón Nordal sem góð, hann hefúr oft komið fram
samdi sérstaklega verk fyrir með Kammersvcit Akureyrar og
Ingvar af þessu tilefni. Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
auk þess starfs sem hann hefur
Ingvar Jónasson stundaði unnið við Tónlistarskóla Akur-
nám við Tónlistarskólann í cyrar.
Reykjavík, Royal College of
Music í London og í Vínarborg. Anna Guðný Guðmundsdóttir
Hann lék með Sinfóníuhljóm- hefur síðastliðin 13 ár tekiö
sveit íslands og stundaói virkan þátt í tónleikahaldi á ís-
kennslu við Tónlistarskólann í landi ásamt kennslu við Tónlist-
Reykjavík fram til 1972 er hann arskólann í Reykjavík.
gerðist 1. víólulcikari Sinfóníu- Sigurður Ingvi Snorrason
hljómsveitarinnar í Malmö og starfar nú með Sinfóníuhljóm-
kenndi jafnframt vió tónlistar- sveit íslands og kennir við Tón-
skólana í Malmö og Gautaborg. Iistarskólann í Reykjavík auk
Frá 1981 til 1989 var hann 2. ví- þess sem hann stundar einleiks-
óluleikari Konunglegu óperu- og kammertónlist.
Pepsi leikur
KEA og Ölgerðin
Góð verðlaun
Tilbob
ó 2L Pepsi kr. 139,-
Tilbob
Appelsínur 25 kr. kg
meban birgbir ei^dast
Tilbob: /
Lambapottsteik,
súrsæt og bar-B-Q
495 kr. kg
Vérib velkomin
.^Épr
Tekið vel á móti ykkur
Starfsfólk
Byggðavegi 98