Dagur


Dagur - 19.05.1995, Qupperneq 16

Dagur - 19.05.1995, Qupperneq 16
Illlllllllllllllllllllll Akureyri, föstudagur 19. maí 1995 Wyr kvöldseðill 1. Pönnusteikt hörpuskel með basllrjóma og fersku pasta Grllluð nautabuffsteik með rauðvinssósu og „Rusty" kartöflum Piparmyntupera með súkkulaðimousse 2. Blandað salat með hráu hangikjötl og Fetaostl Gufusoðin smálúða á tveimur sósum Mokkafrauð í súkkulaðidropa iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinii^ Víking hf. á Akureyri hellir sér út í samkeppnina á léttölsmarkaðnum: Keyptum verksmiðjuna án kvaöa - liður í því að auka okkar atvinnustarfsemi, segir Baldvin Valdemarsson Víking M. á Akureyri setti í gær á markaðinn þrjár nýj- ar drykkjarvörutegundir, tvær léttölstegundir, Víking pilsner og Thule pilsner, og Maltöl. Þessi nýja framleiðsla sætir nokkrum tíðindum vegna þess að þar með eru hérlendar bjór- verksmiðjur farnar að keppa á þessum markaði, en þar er fyrir Ólgerðin Egill Skallagrímsson í Reykjavík ásamt innfluttum teg- undum. Hér á árum áður var framleiddur léttur pilsner hjá Sana á Akureyri og síðar undir merkj- um Sanitas, sem einnig framleiddi maltöl. Fyrri eigendur Viking Brugg seldu tækjabúnað til þess- arar framleiðslu og léttölsvöru- merkin til Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar og þeim við- skiptum fylgdu þær kvaðir að Viking Brugg færi ekki út í þessa framleiðslu í samkeppni við Öl- gerðina. Síðar urðu hins vegar eigendaskipti á verksmiðjunni á Akureyri, nýir eigendur telja sig á engan hátt skuldbundna af áður- nefndum samningum og því sé ekkert því til fyrirstöðu að hella sér í slaginn á þessum markaói. Baldvin Valdemarsson, fram- kvæmdastjóri Víking hf., segist auðvitað gera sér grein fyrir því aö á léttölsmarkaðnum sé hörð samkeppni en það sé engan bilbug á þeim aó finna. Baldvin vill hins vegar ekki gefa upp hvaða mark- aðshlutdeild hann geri sig ánægð- an meó. „Við förum út í þessa fram- leiðslu til þess að nýta verksmiðj- una hér eins vel og við mögulega getum. Við keyptum verksmiðj- una án kvaða. Þetta er liður í því að auka okkar atvinnustarfsemi,“ sagði Baldvin. Hann dró ekki dul á að með því að framleiða léttöl hefói Víking hf. nú möguleika á að auglýsa sín vörumerki, heimilt væri samkvæmt íslenskum lögum að auglýsa léttöl en ekki bjór. Baldvin sagðist reikna með að verð á þessum framleiðsluvörum yrði á svipuðu róli og hjá sam- keppnisaðilunum en til að byrja meö væri gefinn góður kynningar- afsláttur. „Viðbrögðin hafa verið mjög góð,“ sagði Baldvin, „lager- amir bæði hér nyrðra og fyrir sunnan em að klárast.“ Baldvin sagði að frá því að nýir eigendur tóku viö rekstri Víking hf. um síðustu áramót hafi strax verið ákveðið að fara inn á léttöls- markaðinn. „Frá því við tókum vió rekstrinum höfum við fengið áskoranir frá neytendum og kaup- mönnum um að fara inn á þennan markað. Undirbúningurinn hefur tekið þennan tíma, við höfum þreifað okkur áfram þangað til við vomm ánægðir með útkomuna,“ sagði Baldvin Valdemarsson. Baldur Kárason, bmggmeistari, er höfundur uppskriftar þessara nýju drykkja. óþh Sláturleyfishafar í Dala-, Stranda- og V.-Húnvatnssýslu í eina sæng? Af þessu svæði koma 20 prósent alls kjöts í landinu Sláturleyfishafar í Dalasýslu, Strandasýslu og Vestur- Húnavatnssýslu hafa að undan- förnu rætt um samstarf og jafn- vel sameiningu einhverra slátur- húsa á svæðinu en búnaðarsam- böndin á félagssvæðunum voru frumkvöðlar að þessum viðræð- um og komu þeim af stað. Gunnar Sæmundsson, bóndi í Hrútatungu, segir það ekki ljóst hvaða stefnu þessar viðræður taki, en til þessa hafi umræðumar fyrst og fremst snúist um samstarf og samvinnu en ekki sameiningu að svo komnu máli. A Hvammstanga er starfrækt útflutningssláturhús og er áhugi á að nýta það enn frekar en nú er og auka slátmn þar á erlendan markað. Einnig hefur verió til umræðu hvort hægt sé að fara nýjar og arðbærari leiðir til úrvinnslu hráefnisins. Af áðumefndu svæði kemur um 20% alls þess kjöts sem til boða er á markaðnum hérlendis og því er verið að ræða um sam- starf eða sameiningu mikilla um- svifa og veltu. Næsti fundur slát- urleyfishafa og búnaðarsambanda er fyrirhugaður í júnímánuói þeg- ar annir vegna sauðburðar eru frá og segir Gunnar Sæmundsson að þá fari hjólin að snúast ef raun- verulegur áhugi sé á samstarfi og/eða sameiningu og segist hann bjartsýnn um að jákvæðar niður- stöður komi úr þeim samningavið- ræðum. GG Þeir Baldvin Valdemarsson, son, bruggmeistari, hressir Víking pilsner og Maltöl. framkvæmdastjóri Víking hf., og Baldur Kára- með nýjustu afurðir Víking hf., Thule pilsner, Mynd: Robyn. Kísiliöjan viö Mývatn: * Ytri-Flóa hafin kísil- gúr úr Ytri- Flóa í Mý- vatni á veg- um Kísiliðj- unnar hf. ardaginn 6. rnaí Sl. Og er Bjarm Bjaras- áætlað að «PP um 30 þúsiutd tonnum af hráefiú á þessu sumri en dæ- lingu lýkur í septembermán- uði. Það er svipað magn og á síðasta ári sem nam 32.900 tonnum. Áætlað er að kíslll á því svæði sem heimilt er að dæla upp úr í Ytri-Flóa dugi til allt að 12 ára reksturs verksraiðjuimar miðað við framleiðslumagnið á árinu 1994, sem var 25.197 tonn og útfiutningsverðmæti 446 milljónir króna. Áætlað er að framleiða svipað magn á Fimm nýir starfsmenn bæt- ast við starfsmannafjöldann við upphaf dælingar og síðan bæt- ast fimm aðrir við í almennar sumarafleysingar en 45 fast- ráðnir starfsmenn starfa við Kísiliöjuna. Framleiðslustöðv- un hófst mánudaginn 8. maí og stendur í allt að þrjár vikur og er vegna almenns vióhalds eftir veturinn, aðallega á tækjabún- aði, sem framkvæmt er árlega. í haust verður einnig fram- leiðslustöðvun til undirbúnings vinnslunnar yfir vetrarmánuð- ina. Nú er verið að skipta um skorsteín og skorsteinslagnir og við það starfa fimm starfs- menn Véia- og stálsnúðju Ak- ureyrar auk krana sent iýlgir GG Aðalfundur Jökuls hf. og Fiskiðju Raufarhafnar hf. á morgun: Taprekstri snúið í hagnað - togari útgerðarinnar fiskar í gáma en þorskkvéti hans er nýttur til viðskipta við báta VEÐRIÐ Nú virðist vorið vera á næsta leiti og því ekki að vera bjart- sýn og trúa því? í dag er spáð hægri suðaustan átt og björtu verðri. Hitinn verður 0-5 stig að næturlagi en 6-14 stig að deginum. Um helgina er spáð hægri suðlægri átt á laugar- dag en strekkingi á sunnu- dag, eftir helgi verður áfram suðlæg átt. Utgerðarfyrirtækið Jökull hf. á Raufarhöfn og Fiskiðja Raufarhafnar M. voru rekin með 2,7 milljóna króna hagnaði á árinu 1994 á móti 38 milljóna króna tapi á árinu 1993. Því hef- ur orðið um 40 milljóna króna bati á samstæðureikningi á milli áranna 1993 og 1994. Aðalfund- ur fyrirtækjanna verður haldinn á Raufarhöfn nk. laugardag og hefst klukkan tvö. Fram- kvæmdastjóri fyrirtækjanna er Jóhann Ólafsson. Batinn felst fyrst og fremst í því að fjármagnsliðir lækka úr 60 milljónum króna í 26 milljónir króna, eða lækka um 34 milljónir króna og framlegð fyrirtækjanna skánar. Rekstur togarans Rauða- núps ÞH reyndist útgerðinni þung- ur í skauti á árinu 1993, m.a vegna skipta á aðalvél o.fl., en var mun betri á árinu 1994 og það sem af er ársins 1995 hefur reksturinn stöóugt verið að batna. Jökull hf. var rekinn með 3 milljóna króna hagnaði á árinu 1994 en Fiskiðja Raufarhafnar hf. var rekin með 19 milljóna króna tapi. Rekstur frystihúss Fiskiðju Raufarhafnar hf. var fremur erfiður á sl. ári sem er aðalástæða erfiós reksturs. Á árinu 1993 var Jökull hf. rekinn með 11 milljóna króna tapi en Fiskiðja Raufarhafnar hf. með 26 milljón króna tapi. Afurðir fyrirtækjanna eru seld- ar gegnum Sölumiðstöð hrað- frystihúsanna (SH) og eru engar áætlanir uppi um breytingar á söluaðila, en þau mál hafa verið könnuð til hlítar á undanfömum mánuðum. Á sl. ári var saltað úr liðlega 2.100 tonnum en á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs hefur verið saltað úr 1.000 tonnum, þannig að öll framleiðsluaukning hefur verið gegnum saltfiskfram- leiðslu. Þrátt fyrir það hefur verið mikil vinna við frystinguna svo vaxandi saltfiskframleiðsla er hrein aukning. Atvinnuástand hef- ur því verið mjög gott á Raufar- höfn undanfarin misseri, jafnvel skortur á vinnufærum mönnum, bæði til fiskvinnslu og í verk- smiðju SR-mjöl hf. Umtalsverð áherslubreyting átti sér stað í rekstri fyrirtækjanna á sl. ári. Um mitt árið 1994 var togar- inn algjörlega tekinn frá frystihús- inu, þ.e. hann hætti algjörlega á þorskveiðum og lögð hefur verið áhersla á veiðar annarra tegunda, eins og t.d. ýsu, karfa og grálúðu, og hefur togarinn landað í gáma til útflutnings. Til að mæta því keypti útgerðin Ásgeir Guð- mundsson SF, sem hefur verið á línutvöföldun auk þess sem þorsk- kvótinn hefur verið nýttur til við- skipta við aðra báta, þ.e. tonn á móti tonni. Ásgeir Guðmundsson SF er í slipp í Reykjavík þar sem verið er að gera bátinn kláran á út- hafsrækjufrystingu með niðursetn- ingu á vinnslubúnaði, taka upp að- alvél og ljósavél, mála bátinn o.fl. en hann verður innan tíðar skráður nýju nafni, þ.e. Atlanúpur ÞH. GG r ínnanhúss- "* málning 10 lítrar kr. 4.640,- 0 KAUPLAND Kaupangl • Sími 23565

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.