Dagur - 22.07.1995, Side 2
2 - DAGUR - Laugardagur 22. júlí 1995
FRÉTTIR
Unnið að lagfæringum við Andapollinn á Akureyri:
Hálfgert vandræðasvæði
- verið að móta tillögur um framtíðarskipan svæðisins í heild sinni
Starfsmenn umhverfisdeildar
Akureyrarbæjar hafa undan-
farna daga verið að vinna að
ýmsum lagfæringum við Anda-
pollinn á Akureyri. Svæðið er
ekki í því ásigkomulagi sem
margir hafa óskað sér, en nú er
verið að vinna að hugmyndum
um framtíðar skipan svæðisins í
heild sinni, þ.e. Andapollsins og
svæðisins þar í kring og meðal
annars þess vegna sem ekki hef-
ur verið ráðist í róttækar um-
bætur á Andapollinum.
„Þaó eru dálítil vandræði með
þetta svæði, þaó er illa farið og
það kostar milka peninga að gera
eitthvað róttækt þannig aó við er-
um stöðugt að reyna að lappa upp
á þetta. Svæðið er auðvitað ekki
mjög snyrtilegt en endumar hrein-
lega eyðileggja þetta alltaf. Síóan
er líka kvartað yfir að þarna séu of
fáar endur, en við crum ekki með
neinar endur klipptar og á sumrin
fljúga þær flestar í betri haga, en
eru þarna í fæði á veturna. Þarna
komast ekki upp nema sárafáir
ungar út af köttum og þess vegna
fara endumar líka. Mávar hafa
líka verið til vandræða og ég sá
t.d. lesendabréf í Degi á dögunum
-wmn
0GQ flafl* »C3QD0aB
Laugardagur 22. júlí:
Gítarfestival. Nemendur á
námskeiðinu leika á tónleikum í
Deiglunni kl. 18.00. Aðgangur
ókeypis.
Sunnudagur 23. júlí:
Gítarleikarinn Erik Vaarzon Mor-
el leikur m.a. flamenco í Deigl-
unni kl. 20.30.
Sumartónleikar í Akureyrar-
kirkju. Flautuleikararnir Martial
Nardeau og Guðrún Birgisdótt-
ir leika kl. 17.00. Aögangur
ókeypis.
Gönguferð um Innbœinn á
vegum Minjasafnsins á Akur-
eyri. Farið frá Laxdalshúsi kl.
13.00.
Mánudagur 24. júlf:
íslensk kvöldlokka í Deiglunni kl.
21.00. Már Magnússon flytur ís-
lensk sönglög. Aðgangur kr.
500.
Sýningar:
ListasafniO á Akureyri: Jón
Gunnar Árnason, Jan Knap.
Myndlistaskólinn á Akureyri:
Sumar '95.
Deigian: Janie Darovskikh.
Glugginn (Vöruhúsi KEA): Jón
Laxdal.
* " -y' -
Andapollurinn er vinsæll viðkomustaður margra, ekki síst af yngri kynslóðinni og nú er unnið þar að lagfæringum.
Mynd: BG
út af því. Hins vegar getum við
ekkert í því gert mávurinn er frið-
aður á þessum árstíma og við
megun ekki drepa hann,“ sagði
Tryggvi Marinósson hjá umhverf-
isdeild Akureyrarbæjar.
Að sögn Tryggva hafa endum-
ar mikió sótt í að vera undir svöl-
unum fyrir framan sundlaugarhús-
ið. Reynt hefur verið að halda
grasi á svæðinu en það hefur ekki
gengið þar sem endumar hafa étið
það upp og svæóið orðió að mold-
arflagi. Inntak loftræstingarinnar
fyrir sundlaugina er tekið þama
undir svölunum og nú er verið að
setja þar möl, eða efni sem ekki
rýkur úr og berst inn í loftræsting-
una.
Verið er að móta tillögur um
framtíðar skipan svæðisins í heild
sinni, þ.e. bamaskólalóðarinnar,
gagnfræöaskólalóðarinnnar, sund-
laugarlóðarinnar og Andapollsins
og það er m.a. þess vegna sem
ekki hefur enn verið ráðist í rót-
tækar aðgerðir til að bæta svæðið
við Andapollinn. Menn vilja
skoða allt svæðið í samhengi, að
sögn Tryggva. HA
Nýtt markaðsátak í ferðamálum:
„Gjugg í bæ“
Flugleiðir hyggja á markaðsátak
næsta vetur, með nokkrum bæj-
arfélaganna sem þeir fljúga til,
undir nafninu „Gjugg í
bæ/borg“. Átakið miðar að því
að kynna bæina og hvað þeir
hafa að bjóða landsmönnum, og
gefa hefðbundnum helgarferð-
um svolitla andlitslyftingu.
Lag Stuómanna „Gjugg í borg“
sem þeir gerðu feikivinsælt fyrir
u.þ.b. tuttugu árum mun verða
einkennislag átaksins, en gera á
sjónvarps- og útvarpsauglýsingar,
efna til útvarpsleikja og prenta á
boli, húfur og merki. Veröur yfir-
skriftin „Gjugg í bæ“ þegar feróir
út á land verða kynntar, en „Gjugg
í borg“ þegar ferðir til Reykjavík-
ur eiga í hlut.
Aó sögn Bergþórs Erlingssonar
eru geysimargir möguleikar sem
bæimir geta nýtt sér; á framfæri sé
helgarferðir til allra landshluta
ætlunin að koma þeirri ímynd að
það sé gaman á landsbyggðinni,
og að hver bær fyrir sig geti boðið
eitthvað sérstakt; veitingastaði,
næturlíf, menningu og hvað sem
hugsast getur.
Stefnt er að því að gera meira
úr einstökum helgum; þungamiðj-
an verði t.d. á Egilsstöðum með
sérstökum uppákomum eina helgi,
á Húsavík aðra o.s.frv. Markhóp-
urinn er 45 ára og yngri en Berg-
þór segist búast við að afþreyingu
megi finna fyrir alla aldurshópa í
þessum bæjarfélögum, þó þetta sé
markaðssett í léttari kantinum.
Fyrirhugað er að útbúa „Gjugg-
hefti“ sem gilda sem afsláttarkort
á ýmis veitingahús, skemmtistaði
og söfn og hver sem fari í „Gjugg-
ferð“ geti nýtt sér afslátt sem
hagsmunaaðilar veita.
Átakið mun standa í þrjú ár og
hefur Akureyrarbær ákveóið að
styrkja verkefnið um 500.000
krónur á ári, en áskilur sér jafn-
framt rétt til að meta árangur
verkefnisins reglulega og endur-
skoða styrkveitinguna ef settum
markmiðum verður ekki náð.
Bergþór sagði að þróun hug-
myndarinnar hefði staðió síðan í
apríl, en meginástæðan fyrir því
að ákveöið var að fara út í svo
stórt verkefni væri sú að yfirbragð
helgarferðanna hefói verið farið
aó þreytast og því væri ástæða til
að gefa þeim svolitla andlitslyft-
ingu. Hann sagði einnig að hann
væri bjartsýnn á árangur á Norð-
urlandi því það hefði mjög mikið
að bjóða. shv
H/F
HYRNA
BYGGINGARVERKTAKI / TRÉSMIÐJA
Dalsbraut 1 • Akureyri • Sími 96-12603 • Fax 96-12604
Smíðum fataskápa, baðinnréttingar,
eldhúsinnréttingar og innihurðir
Teiknum og gerum föst verðtilboð, þér að kostnaðarlausu
Greiðsluskilmálar við allra hæfi
Dráttarvél stolið
í Glæsibæjarhreppi
- og fannst síðar á Akureyri
Aðfaranótt föstudags var drátt-
arvél stolið úr Glæsibæjar-
hreppi. Vélin fannst síðar um
nóttina á Akureyri þar sem hún
stóð við götu í Glerárhverfi.
Þjófurinn var þó horfinn á braut
og hafði ekki fundist í gær. Lög-
regla taldi helst að einhvem
hefði vantað faratæki í bæinn og
tekið það sem hendi var næst.
í gærmorgun var árekstur á
Hörgárbrú þegar vörubifreið og
fólksbíll lentu saman. Engin
meiðsl urðu á fólki en fólksbíllinn
mun vera óökufær. AI
mri
Óiafsfjöröur:
Bæjarmála-
punktar
■ Á bæjarráösfundi nýverið
óskaði Guóbjörn Arngrímsson
eftir því að Vcgagerð ríkisins
vinni að úrbótum vegna þess
mikla leka sem hefur veriö í
Múlagöngum. Jafnframt er
óskað efúr því að Vcgagerðin
lagfæri Ólafsfjarðarvcg vestri
(veginn vestan Hundasunds-
brúar-Kleilar) og hann hækk-
aður upp.
B Á fundi bæjarráös 13. júlí
voru mættir Sveinbjörn Áma-
son og Gunnar L. Jóhannsson
frá Veiðifélagi Ólafsfjaröarár.
Farið var yfir drög aö samningi
um veiðiréttindi milli Ólafs-
fjarðarbæjar og Veiðifélags Ól-
afsfjarðarár. Onnur grein var
samþykkt svohljóðandi: „Öll
umferð um vatnið á mótor-
knúnum farartækjum er mcó
öllu óheimil, nema með skrif-
legu leyfi Veiðifélags Ólafs-
fjarðarár og Ólafsfjaröarbæjar.
Samningurinn var aó öóru lcyti
samþykktur.
B Fulltrúar veiðifélagsins voru
boðaðir á bæjarráðsfund vegna
erindis í bæjarráói 6. júlí frá
Sigurjóni Magnússyni og
Magnúsi Þorgeirssyni um leyfi
bæjarstjómar Ólafsfjarðar til að
hafa bát staðsettan á vatnsbakk-
anum vestan vió Hombrekku.
B íbúar við Aöalgötu 25-58 og
Ólafsveg 39-51 hafa sent bréf
til bæjaryfirvalda þar sem
óskað er eltir lagfæringu á
göngustíg milli Ólafsvegar og
Aóalgötu. Tæknideild var falió
aó skoða málið.
B í bæjarráði 14. júlí var
fjallað um nauöasamninga Sæ-
dísar hf. Gunnar Þór Magnús-
son og Siguróur Gunnarsson
gerðu grein fyrir nauðasamn-
ingnum sem Sædís hf. hefur
gert við lánardrottna fyrirtæk-
isins. í samkomulaginu fclst að
fjármunir þeir scm eru í vörslu
Sparisjóðs Ólalsfjarðar og get-
iö var í nauöasamningsmálinu,
renni til að tryggja að nauða-
samningsgerðin nái fram að
ganga. Bæjarráð fcllst á nauða-
samningsgerðina og fól bæjar-
stjóra að tilkynna það með
formlegum hætti.
B í bókun húsnæöisnefndar 20.
júní sl. er getið um kæru Sig-
ríóar Tóntasdóttur „á vinnu-
brögð starfsmanns húsnæöis-
nefndar Ólafsfjaróar, þ.e. Hálf-
dáns Kristjánssonar bæjar-
stjóra“ til stjómar Húsnæðis-
stofnunar ríkisins. í bókun hús-
næðisnefndar kemur fram að
viðbrögð hafi ekki borist frá
stjóm Húsnæðisstofnunar ríkis-
ins við kæmnni. Húsnæðis-
nefnd samþykkir að beina þeim
eindregnu tilmælum til stjómar
Húsnæðisstofnunar ríkisins að
úrskurða sem fyrst þennan
ágreining, enda hafi málió ver-
ið til skoðunar hjá Félagsíbúða-
deild frá því í október á sl. ári.
B Á fundi ferðamálaráðs ný-
verið kom fram það álit Sigur-
jóns Magnússonar að brýnt
væri að merkja Ólafsfjörö á
gatnamótum við Moldhaugna-
háls og svo í Skagafirói. Til
dæmis mætti nota mynd af ÓI-
afi Bekk og merkja inn á skilt-
ið þá þjónustu sem ÓlafsfjÖró-
ur hefði upp á að bjóóa.