Dagur - 22.07.1995, Síða 13

Dagur - 22.07.1995, Síða 13
Laugardagur 22. júlí 1995 - DAGUR - 13 POPP MA6NÚS ÚEIR ÚUÐMUNDSSON Lipstikk leynir á sér Hljómsveitin Lipstick Lovers hef- ur verið á ferðinni í íslensku poppi í um þrjú til fjögur ár og er nú fyr- ir stuttu búin að senda frá sér sína aðra plötu, DÝRA-LÍF. Þrátt fyrir þennan „langa“ feril á íslenskan mælikvarða og mikinn dugnaó við að koma sér á framfæri með böll- um og tónleikum, hefur sveitin ekki verið neitt sérstaklega áber- andi, a.m.k. ekki í fjölmiðlum og þess háttar. Því er nú samt þannig farið að Lipstick, sem nú hefur reyndar breytt nafni sínu og stytt í Lipstikk með nýju plötunni, hefur náð að koma ár sinni bara nokkuð vel fyrir borð og skapað sér stærri fylgjendakjama en ætla mætti. Fólk hefur til dæmis ekki látið sig vanta hér á Norðurlandi, bæði austan- og vestanverðu, þegar þeir félagar í Lipstikk hafa verið á ferðinni og í höfuðborginni hefur líka gengiö ágætlega hjá þeim. Framfarir Einfalt rokk og tiltölulega hrátt, framreitt án mikillar ábyrgðar, stundum kallað kráarrokk, (á ensku Pub Rock) var það sem Lipstikk bauð upp á með fyrri plötunni, My Dingaling, sumarið 1993. (Nafnið dregið af lagi eftir rokkkónginn Chuck Berry.) Þaö var nú svo sem gott og blessað og á plötunni hin þokkalegustu lög á boró vió Been Tempted og Juke- box Queen, auk þess sem kráar- rokkið er langt frá því það versta sem maður heyrir í tónlistinni. En staðreyndin er hins vegar sú að □ÝRA-LÍF. L Kemur nokkuð á óvart. r þeir Bjarki Kalkumo söngvari, Ragnar Ingi trommari, Anton Már gítarleikari og Sævar Þór bassa- leikari, hafa ásamt nýja meðlimin- um, Ama gítarleikara, tekið tölu- verðum framförum á nýju plötunni, DÝRA-LÍF. Fyrst og fremst eru lagasmíðamar mun fjölbreyttari og meira í þær lagt en fyrr auk þess sem hljómurinn er mun betri en á My Dingaling. Þá hljómar söngur Bjarka bæði betur og öruggar nú þegar hann syngur á íslensku, en ekki á ensku. Alls eru lög og reyndar lagabútar 15 og má tína út, Alein, Þrjú augu Far- inu, Astin aldrei deyr og Brosandi fjölskylda, sem dæmi um fínar lagasmíðar á plötunni. Tvö síðar- nefndu lögin eru t.a.m. skemmti- lega drífandi í nýbylgju/pönkstíl, sem alveg er ný hlið að því ég best veit á Lipstikk. Verður því ekki annað sagt en aó DÝRA-LÍF komi nokkuð þægilega á óvart og að þeir félagamir í Lipstikk hafi leynt töluvert á sér. Viðbætir Colleccive Soul. Svelt aem varið er í. Alvörurokk Eins og sagt var frá fyrir viku, hef- ur stórrokksveitin kraftmikla Met- allica komið Doningtonrokkhátíð- inni á Englandi til bjargar og verð- ur hún haldin laugardaginn 26. ágúst. Hafa nú tvær aðrar hljóm- sveitir bæst við á listann yfir þær sem þama eiga að koma fram og em það White Zombie og Mac- hine Head. Sú fyrmefnda hefur selt sínar tvær fyrstu plötur í millj- ónum eintaka í Bandaríkjunum, en sú síðamefnda kom fram á síóasta ári og vakti töluverða lukku með fyrstu plötu sinni, Burn My Eyes. Onnur nöfn sem koma til greina eru síóan Alice In Chains, Nine Inch Nails og jafnvel Oasis. Hefur mikil spenna og eftirvænting myndast fyrir hátíðinni eftir að Metallica kom til skjalanna og bjargaði henni þetta árió og er bú- ist fastlega við því að uppselt verði, allir 80.000 miðamir seljist. Má búast vió að rokkunnendur hvaðanæva að úr Evrópu flykkist á hátíðina og þá sérstaklega til að sjá Metallica, því þetta verður í eina skiptið sem hljómsveitin verður meó tónleika í álfunni á þessu ári. Svo fullyrðir trommarinn Lars Ul- rich allavega í nýlegu viðtali. Eitt af því ánægjulegasta sem kom frá Bandaríkjunum á síðasta ári, var tilkoma hinnar margræðu rokksveitar frá Atlanta, Collective Soul. Sló hljómsveitin í gegn með smáskífulaginu Shine, sérstæðu popplagi með rymrokksáhrifum og síðan í kjölfarió með 'fyrstu stóru plötunni, Hints, Allegations And things Left Unsaid. Kom hún reyndar upphaflega út árið 1993, en var endurútgefin í kjölfar vin- sælda Shine og gekk semsagt mjög vel, eins og fyrr sagði. Sitt lítið af hverju, poppi, suðurríkja- rokki, áðurnefndu rymrokks- kryddi/“grunge“ og jafnvel pönki, var hrært saman á Hints..., sem einhvem tímann hefði ekki þótt til fyrirmyndar né líklegt til góðrar útkomu, en en hið ólíklega gerðist og Collective Soul hlaut bæði lof gagnrýnenda og tónlistaráhuga- manna. Sama upp á teningnum Fyrr á þessu sumri sendi Collecti- ve Soul frá sér sína aðra plötu og ber hún einfaldlega nafn hljóm- sveitarinnar. Þar er strax ljóst að sama er upp á teningnum hvað það varðar að aldrei er víst á hverju er von frá lagi til lags, eins og á fyrri plötunni. Þaó sem hins vegar sker nýju plötuna afgerandi frá hinni er tvennt. Meiri kraftur og framsækni (á hið síðara var þó vart bætandi) og að hún er ENNÞÁ BETRI. Um það eru allavega flestir ef ekki all- ir gagnrýnendur sammála og vin- sældimar láta heldur ekki á sér standa í heimalandinu. December, rokkstemma eins og þær gerast mest grípandi, meó Suðurríkjablæ, hefur t.d. nú síðustu vikumar verið á toppnum í Bandaríkjunum yfir rokklög, sem merkir að það er það mest spilaði í þarlendu útvarpi. The World I Know, Smashing Yo- ung Man, Untitled, Gel, (heyrðist fyrst í myndinni Airheads) Collection of Goods og Reunion, eru síóan sex dæmi um aórar glæstar lagasmíóar á þessari sam- nefndu plötu Collectivc Soul. Um enga gervimennsku eöa iðnaðar- framleiðslu, eins og sumir vilja víst halda fram, er að ræða hér. Það heyra menn glögglega cf þeir hlusta almennilega á verkið. Með öðrum orðum: Alvömrokk og ekk- ert minna. New Order hefur nú í annað sinn endurunnið og gefið út sitt frægasta og vinsælasta lag, Blue Monday, sem forsmekk af nýrri safnplötu með hljóm- sveitinni sem væntanleg er Frjáls Poppsöngvarinn sykursæti og hjartakúnsarinn grískættaði Ge- orge Michael, hefur nú eftir langa og stranga baráttu, sem staðið hefur í nokkur ár, loks fengið sig lausan allra mála frá útgáfurisanum Sony. I staðinn hcfur hann hins vegar gcrt tveggja platna samning við ann- að risafyrirtæki, nýtilkomið, sem nefnist DreamWorks og er í eigu m.a. Steven Spielbergs, kvikmyndaleikstjórans fræga og David Geffen, ciganda þriðju stórútgáfunnar, Geffen Records. Fær Michael að sögn hvorki meira né minna en andvirði um 5 milljarða ísl. kr. frá Dream- Works fyrir samninginn, en auk þess mun fyrirtækið líka hafa þurft að punga út ótilgreindri upphæð til Sony til að fá popp- stjömuna í sínar raðir. Er þama sýnilega um þríhliðasamning að ræða, sem að auki mun fela það í sér að Sony fær að gefa út safnplötu með Michael þar sem hans vinsælustu lög verða að finna auk fjögurra nýrra, áöur en til þess kemur að kappinn hljóðriti fyrir DreamWorks. Anda nú fjölmargir aðdáendur hans víða um heim ömgglega léttar og fara að hlakka til að heyra í honum að nýju á plasti. seinna á árinu. Kom lagið fyrst út 1983 og sat á breska smáskífulistanum í hvorki fleiri né færri en 38 vikur, eða vel fram á árið 1984. Þegar það var endurútgefið í fyrra sinnið, 1986, fór það líka hátt á lista. Machine Head verður á □cnington. Ef söngvari Stone Temple Pilots, Scott Weiland, undirgengst og stenst stranga meóferó vegna eiturlyfjafíknar sinnar, er talió næsta víst aö hann sleppi vió fang- elsisdóm sem vofaó hefur yfir honum að undan- fömu. Varó hann, eins og sagt var frá hér á síðunni fyrir nokkru, uppvís aó hafa ólögleg eiturlyf undir höndum fyrr á árinu og blasti vió honum tukthús- vistin. B jörk hefur nú eftir að hafa fallió nióur tvær síöustu vikur, aftur hækkaó flugið á breska sölulistanum. Fór Post úr 10. sæti í þaó 8. í síðustu viku.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.