Dagur - 22.07.1995, Blaðsíða 20
TVOFALDUR
1. VINNINGUR
Landsleikurinn okkar!
Vegakerfíð þolir ekki meiri hraða
lögreglan telur hraðakstur ekki hafa aukist
Asumrin, þegar uinferð eykst
á vegum landsins, berast
jafnan fréttir um Qölda öku-
manna sem eru teknir fyrir að
stíga fullfast á bensíngjöfína og
brjóta þar með lög um leyfílegan
hámarkshraða. Þær spurningar
vakna hvort hraðakstur sé að
aukast og hvort hugsanlegt sé að
hraðatakmarkanir séu of strang-
ar.
Frá Blöndósi hafa undanfamar
helgar borist fréttir af miklum
fjölda ökumanna sem voru stöðv-
aðir fyrir of hraðan akstur. Krist-
ján Þorbjömsson hjá lögreglunni á
Blöndósi segir þó að hann telji
hraðakstur ekki vera að aukast.
„Þessi hraðakstur er svolítið til-
viljunarkenndur. Það er kannski
hratt keyrt í dag og hægt á morg-
un. Síóan getur komið tímabil að
deginum sem er keyrt mjög hratt.
Þannig að þetta er nokkuð mis-
jafnt og erfitt að vita hvað það er
sem hefur áhrif, veðrið, vegurinn
eða eitthvað annaó.“
Kristján segir að þaó sé algeng-
ara að yngra fólkið sé tekió fyrir
að keyra of hratt en þeir sjái samt
sem áður alla aldurshópa og fólk
úr öllum þjóðfélagshópum. „Það
má segja að þetta sé allt frá ungl-
ingum upp í ráöherra þannig að
þetta er öll flóran. Maður sér ekki
í fljótu bragði neitt munstur á
þessu en sjálfsagt væri hægt að
finna það með rannsóknum.“
- Gceti það orðið til bóta að
hámarkshraði yrði hœkkaður?
„Mitt mat er það að þessir veg-
ir héma þoli það engan veginn þó
að auðvitað sé einn og einn kafli
sem að þolir alveg meiri hraða,“
segir Kristján og bendir jafnframt
á að það sé ekki sambærilegt þeg-
ar verió sé aó taka krakka með ný-
Ieg skírteini, kannski á lélegum
bíl, eða einhvem sem sé atvinnu-
bílstjóri á góðum bíl og búinn að
keyra í 10-15 ár og ráði vel við
þennan hraða. Það sé hinsvegar
ekki hægt að skilja þama á milli
þannig að allir ökumenn verói að
fylgja sömu reglum.
Hlynntur hærri sektum
I nágrenni Akureyrar merkja
menn ekki heldur að hraðakstur sé
að aukast. „Þetta er nokkuð jafnt.
Það eru einhverjir teknir á
hverjum einasta degi, en ég held
að við getum ekki séð neinn
merkjanlegan hækkandi umferðar-
hraða núna. Að vísu eykst um-
ferðarhraðinn ævinlega á vorin en
svo róast þetta oft þegar fer að
líða á,“ segir Olafur Asgeirsson
hjá lögreglunni á Akureyri.
Olafur tekur undir með starfs-
bróður sínum á Blöndósi að vegir
landsins þoli ekki að hámarks-
hraði hækki. „Hámarkshraði hér á
Islandi er algjörlega í botni og
myndi hvergi annars staðar í
heiminum vera leyfður 90 km há-
markshraði á þjóðvegum eins og
við erum með. Þannig að ég er
alls ekki hlynntur því að hækka
hámarkshraða. Ég er hinsvegar
miklu hlynntari því að sektir fyrir
of hraðan akstur verði hækkaðar
mjög mikið þannig að menn þori
ekki að keyra hraðar en þeir
mega.“ AI
I stuttri pásu
Þessir ungu hressu herramenn í vinnuskóla Akureyrar areyju í Glerárgötu en þeir félagamir kváðust vera að
gáfu sér rétt sem snöggvast tíma til að stilla sér upp telja bíla sem færu um gatnamót Glerárgötu og
fyrir ljósmyridara Dags. Myndin var tekin á umferð- Strandgðtu. óþh/Mynd: bg
Ferðaþjónustan:
Lausaumferð ferða-
manna loks að aukast
Gunnar M. Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Sérleyf-
isbfla Akureyrar, segir að mikið
hafí verið að gera það sem af er
sumri og þessa dagana sé vax-
andi lausaumferð ferðamanna,
bæði innlendra sem erlendra.
„Jú, það er helst að lausaum-
ferðin hafi farið seint af stað. Hún
hefur þó verið að aukast síðustu
vikuna og ef sumarið kæmi hér á
Norðurlandi þá kæmi fólkið líka,“
sagði Gunnar og bætti við að í gær
hafi verið 70 farþegar í áætlunar-
bílunum frá Egilsstöðum til Akur-
eyrar.
Hann segir greinilega sömu
lögmál gilda um erlenda ferða-
menn sem Ieggi upp í feró um
landið, þeir velji að byrja á þeim
Q HELCARVEÐRIÐ
Veðurstofa íslands spáir
sæmilegu helgarveðri á
Norðurlandi. Á morgun er
búist við 3-5 vindstigum,
vestan- eða norðvestanátt.
Hiti verður 5-10 stig, hlýjast
inn til landsins.
Á sunnudag verður frem-
ur hæg vestlæg átt og gæti
orðið einhver súld á annesj-
um norðanlands en annars
léttskýjað og svipaður hiti.
svæðum þar sem besta veðrið sé.
„Ég hef því trú á að þegar kemur
fram í ágúst verði góð lausaum-
ferð.“
Stór hluti erlendra ferðamanna
fer um ísland í skipulögðum hóp-
ferðum og þær ganga fram hvem-
ig sem veður er. Gunnar segir aö
erlendu gestimir taki því vel þó
heldur andi köldu enda komi
margt af þessu fólki frá heitari
löndunum og þiggi því að kynnast
öðm veðurlagi en það er vant.
Allt fyrir garðinn
í Perlunni við
□
KAUPLAND
Kaupangi v/Mýrarveg. simi 23565
Sfcórleikurf á 4
Akureyrarvelli
íslandsmótið í knattspyrnu 2. deild
sunnudaginn 23. júlí kl. 20.00
Akureyringar - Nærsveitamenn!
Komid á völlinn og hvetjid ykkar menn til sigurs
Styrktarklúbbsfélagar - Hittumst í Hamri kl. 18.00 á morgun
Akureyrar