Dagur - 01.08.1995, Page 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 1. ágúst 1995
FRÉTTIR
Múlaberg ÓF með 150
tonna afla úr Smugunni
Liðlega tveir tugir íslenskra
skipa eru á veiðum i Smugunni
og a.m.k. átta skip á leiðinni
þangað en siglingin þarna norð-
ur tekur um fimm sólarhringa.
Jóhann A. Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Hraðfrystihúss
Þórshafnar hf., segir veiðina
þokkalegt kropp og augljóst að
veiðin sé eitthvað að glæðast en
þorskurinn, sem aðallega fæst í
flotvörpu, er fremur smár.
Þeir norðlensku togarar sem
þama eru á veiðum eru Mánaberg
ÓF, Svalbakur „gamli“ EA, Slétt-
bakur EA, Skagfirðingur SK,
Málmey SK, Hegranes SK, Sigl-
firðingur SI og Stakfell ÞH.
Aðrir togarar í Smugunni eru
Hoffell SU, Snorri Sturluson RE,
fltap gþflfl 0HC!00flíB
Þriðjudagur 1. ágúst
Söngvaka f kirkju Minjasafnsins kl.
21. Rósa Kristín Baldursdóttir og
Þórarinn Hjartarson tlytja.
Miðvikudagur 2. ágúst
Tríó Reykjavíkur flytur verk eftir Haf-
liöa Hallgrímsson. Tríó Reykjavíkur
skipa þau Guöný Guömundsdótt-
ir, fiöla, Gunnar Kvaran, selló, og
Halldór Haraldsson, píanó. Tón-
leikarnir eru í Listasafninu og hefj-
ast kl. 20.30.
Dagskrá um Davík Stefánsson í
Davföshúsi kl. 21. Hólmfríður Bene-
diktsdóttir og Helga Bryndís
Magnúsdóttir flytja.
Fimmtudagur 3. ágúst
Klúbbur Llstasumars og Karolínu í
Deiglunni. Hólmfríður Ben. ásamt
hljómsveit flytja dagskrá með lög-
um úr söngleikjum eftir Kurt Weill,
Webber, Gershwin o. fl.
Kl. 22. Aögangur ókeypis.
Söngvaka í kirkju Minjasafnsins
kl. 21.
Riiir
nýjustu
/eikimir
TÖLVULEIKIR
frá kr. 890
á diskettum og CD
Soccer Super Star
Fótboltaleikur + fótbolti
Tilboðsverð kr. 3.990,-
T#LVUTÆKI
Furuvöllum 5 • Akureyri
Sími 462 6100
Hólmdrangur ST, Snæfugl SU,
Gnúpur GK, Sléttanes ÍS, Breki
VE, Vestmannaey VE, Kambaröst
SU, Rán HF, Freri RE og Eyvind-
ur Vopni NS.
Á leið í Smuguna eru norð-
lensku togaramir Rauðinúpur ÞH,
Margrét EA, Arnar HU, Sólberg
ÓF sem landaði 95 tonnum af ýsu
í Ólafsfirði sl. miðvikudag, Sigur-
björg ÓF sem landaði 83 tonnum í
Ólafsfirði sl. miðvikudag af fryst-
um afurðum en Kolbeinsey ÞH
heldur líklega í Smuguna í þessari
viku en skipið landaði sl. mánu-
dag á Húsavík og var aflaverð-
mæti 12 milljónir króna.
Múlaberg ÓF landaði 150
tonna afla í Ólafsfirði í gær, en
aflinn fékkst í Smugunni og fer til
vinnslu hjá Hraðfrystihúsi Ólafs-
fjarðar hf. Skipið kemur aðeins
fyrr til löndunar þar sem ísvélin
um borð bilaði.
Auk áðumefndra togara er
Stefnir ÍS á leið norðureftir og vit-
að er um Guðbjart ÍS og fleiri
vestfirska togara sem verið er að
útbúa til veiða í Smugunni en tog-
urunum kann að fjölga ennfrekar,
víðs vegar af landinu, því aðeins
er eftir um mánuður af fiskveiði-
árinu og kvóti margra útgerða á
þrotum. Veiðitúrinn getur varað í
allt að sex vikur.
Sl. föstudag sendu Landssam-
band íslenskra útvegsmanna
(LÍÚ), Farmanna- og fiskimanna-
samband íslands (FFSÍ), Sjó-
mannasamband íslands (SÍ) og
Vélstjórafélag fslands (VÍ) frá sér
sameiginlega beiðni til stjórnvalda
þar sem farið er fram á að varð-
KÞ Húsavík:
Nöggunum
vel tekiö
„Við erum nokkuð brattir og
sáttir. Það seldust 2500 pokar
fyrir helgina og við vonumst
til að selja 3000 í þessari
viku. Þetta er ný vara sem
hefur verið tekið vel, hún er
komin inn í umræðuna og
auglýsingar eru að skila sér,“
sagði Ásgeir Baldurs, mark-
aðsstjóri hjá Kaupfélagi
Þingeyinga, aðspurður um
hvernig salan á nöggunum
hefði gengið fyrir helgina.
Naggar em skyndibiti úr
lambakjöti frá Kjötiðju KÞ,
vara sem lengi hefur verið tal-
að um að vantaði á markaðinn.
Naggar voru markaðssettir á
föstudag og vakti framtakið
talsverða athygli. Naggarnir
komu í verslanir á Húsavík,
Akureyri og Reykjavík fyrir
helgina en koma nú í vikunni í
verslanir víðar á landinu. Hag-
kaup og Bónus hefur verið
boðin varan en ekki hefur bor-
ist svar frá verslunarkeðjunum.
Ásgeir sagðist ekki eiga von á
öðru en svarið yrði jákvætt.
Ásgeir sagði að mesta salan
hefði verið í búðum þar sem
kynning var á vörunni og væru
framleiðendur mjög ánægðir
með viðtökurnar.
Að sögn Ásgeirs eru naggar
býsna víða komnir á matseðil
skyndibitastaða og söluskálar
sýni mikinn áhuga þó skipuleg
sala sé ekki komin í gang.
Hann sagði að naggar væru t.d.
talsvert mikið keyptir í hádeg-
inu á Kaffi Reykjavík og lík-
uðu þar mjög vel. IM
skip verði sent í Smuguna íslensk-
um togurunum til aðstoðar. Ráð-
herra hefur enn ekki sent Land-
helgisgæslunni fyrirmæli en búist
er við þeim innan tíðar. Helgi
Hallvarðsson, skipherra hjá Land-
helgisgæslunni, segir eitt varð-
skip, Öðinn, liggja við bryggju í
Reykjavík og það sé hægt að gera
það klárt í Smuguleiðangur með
litlum fyrirvara. A síðasta ári hélt
varðskipið Óðinn í Smuguna og
var þar í fimm vikur og var læknir
með í för. Allan þann tíma var um
mikil verkefni að ræða, bæði fyrir
lækninn og eins var um ýmiss
konar aðstoð að ræða við flotann,
og því brýn nauðsyn að senda
varðskipið, en nú munu vera allt
að 500 íslenskir sjómenn í Smug-
unni. GG
Blönduós:
Húskönnun í
gamla bænum
Húsfriðunarnefnd ríkisins
hefur samþykkt að veita 250
þús. kr. til húsakönnunar í
gamla bænum á Blönduósi.
Hefúr Guðrún Jónsdóttir,
arkitekt, verið fengin í það
verkefni.
Að sögn Gríms Gíslasonar,
sem er í safnanefnd Blönduóss-
bæjar, er bærinn sérstakur að
því leyti að í gamla bæjarhlut-
anum hefur lítið verið byggt af
nýrri húsum, þ.e. öll stækkun
Blönduóss hefur orðið fyrir
utan þennan eldri bæjarhluta.
„Svo eru hér gömul vatnsból
sem eru síðustu forvöð að
finna og varðveita, þannig að
fólk viti að þar var tekið vatn
fyrir staðinn. Síðan er gamla
kirkjan sem varð 100 ára í
janúar síðastliðnum. Hún er
því líka söguleg, hvað sem um
hana verður,“ sagði Grímur.
HA
Eyborg EA-59 á veiðar í þessari viku:
Kvótaleysi hamlað veiðum
Eyborg EA-59 frá Hrísey hefur
legið bundin við bryggju á Akur-
eyri síðan sjómannaverkfalli
lauk í júm'. Birgir Sigurjónsson
útgerðarmaður segir að ekki
standi til að selja skipið úr landi
eða úrelda það en það verður
sent á veiðar í þessari viku.
Birgir segir að skortur á fisk-
veiðikvóta valdi þessu langa
Sjávarútvegsráðuneytið:
Bannar ekki notkun
stórmöskva í þorskanetum
stoppi en ekki hafi verið talið ger-
legt að kaupa kvóta á því upp-
sprengda verði sem verið hefur á
markaðnum að undanfömu. Skip-
ið hefur verið á tveggja trolla
rækjuveiðum síðan það kom til
landsins á sl. ári en það var smíð-
að í Portúgal.
Birgir segir veiðamar hafa
gengið vel en það hafi sína ann-
marka hversu lítið skipið er, en
það er 165 tonn. GG
Hugmyndir um bann við notkun
þorskaneta með stórmöskvum
eða möskvum sem eru yfir 8
þumlungar að stærð hefúr verið
til skoðunar hjá Hafrannsókna-
stofnun. Þessar hugmyndir
komu til vegna þess að rann-
sóknir Hafrannsóknastofnunar
bentu til að eldri hrygnur og
stærri leggðu meira til hryging-
arstofnsins en yngri og smærri
hrygnur.
Niðurstöður athugana Hafrann-
sóknastofnunar em þær að þrátt
fyrir að marktækur munur sé á
meðallengd og meðalþyngd kyn-
þroska þorsks eftir möskvastærð,
miðað við 7, 8 og 9 þumlunga net,
þá sé ljóst að aldursdreifingin hafi
verið svipuð í öllum netum. Var 6
og 7 ára þorskur mest áberandi en
lítið var af eldri fiski.
Þannig var meðalaldur þorsks,
sem gekk til hrygningar á grunn-
slóð sl. vor lægri en meðalaldur
þorsks sem gekk tvö vor þar á
undan, en þá var nokkurt magn af
8 til 11 ára hrygningarþorski til
staðar. GG
Bárðardalur:
Ferðamaður
á sjúkrahús
Erlendur ferðamaður lenti í
óhappi við ísólfsvatn í Bárðar-
dal sl. föstudag.
Maðurinn var fluttur á sjúkra-
hús á Akureyri eftir að hann kast-
aðist af hjóli og lenti með kviðinn
á steini. IM