Dagur - 01.08.1995, Síða 5
Þriðjudagur 1. ágúst 1995 - DAGUR - 5
Mikill fjöldi var á Neistaflugi í fyrra.
Verslunarmannahelgin:
Neistaflug
á Neskaupstað
Fjölskylduhátíð verður haldin í
Neskaupstað í þriðja sinn um
verslunarmannahelgina, undir
yfirskriftinni „Neistaflug ’95“.
Hátíðin verður með svipuðu sniði
og undanfarin ár. Aðgangseyrir er
enginn og tjaldstæði ókeypis.
Hátíðarhöldin fara fram í mið-
bænum og næsta nágrenni frá
föstudagssíðdegi til mánudags-
morguns. Hápunktur hátíð-
arhaldanna verður skemmtidag-
skrá á sunnudeginum, sem endar
s-með varðeldi, söng og flugelda-
sýnmgu í Lystigarði bæjarins.
Á Neistaflugi verða ýmsir vel
þekktir tónlistarmenn og skemmti-
kraftar, m.a. bítlahljómsveitin
Sixties, Páll Óskar og milljóna-
mæringarnir, Geirmundur Valtýs-
son ásamt Helgu Möller, Sól-
strandargæjarnir og Ózon. Auk
þess verður margt annað í boði,
s.s. listflug, kraftakeppni, hjól-
reiðakeppni, dorgveiðikeppni, rat-
leikur, útibíó, götukörfubolti, sjó-
skíðasýning, útidiskótek, harm-
onikkudansleik, o.s. frv. shv
Miðgarður um Verslunarmannahelgina:
SSSól á tvennum
miðnæturtónleikum
Hljómsveitin SSSól verður með
tvenna miðnæturtónleika í Mið-
garði í Skagafirði um Verslunar-
mannahelgina. Tónleikarnir eru
liðir í tónleikaferðinni Sólbruna
1995 sem sveitin hefur verið á í
sumar.
Með SSSól verða nokkrar
hljómsveitir. í fyrsta lagi má
nefna hljómsveitina Sólstrandar-
gæjana en hún hefur komið fram
með SSSól á ölium tónleikum
sumarsins. Einnig verða félagarnir
í hljómsveitinni Skítamórall frá
Selfossi á staðnum og frá Blöndu-
ósi kemur sveitin BCLB sem er
nýstofnuð og hefur verið að gera
góða hluti í vor. Síðast en ekki síst
er svo að nefna gleðisveitina Bylt-
ingu frá Akureyri.
Tveir Dijeijar halda liðinu
djammandi milli sveita. Það er
D.J. Dont give a shit frá dóme-
níska lýðveldinu og D.J. Marvin
frá Selfossi. Segja má að þetta
verði einskonar mínútuhátíð og
bent er á að næg tjaldstæði eru í
Varmahlíð og aðstaða öll til fyrir-
myndar.
Lokatónleikar hljómsveitarinn-
ar SSSól um Verslunarmanna-
helgina verða á tónlistarhátíðinni
UXA þar sem hún kemur fram
ásamt fleiri heimsfrægum lista-
mönnum.
íslandsdeild Vestnorræna
þingmannaráðsins:
Steingrímur J.
formaður
íslandsdeild Vestnorræna þing-
mannaráðsins kom saman til fund-
ar fimmtudaginn 27. júlí sl. Stein-
grímur J. Sigfússon, alþingismað-
ur, var kjörinn formaður og Árni
Johnsen, alþingismaður, varafor-
maður deildarinnar.
Fyrir dyrum stendur 11. árs-
fundur ráðsins sem verður haldinn
í Qaqortoq á Grænlandi dagana
11.-12. ágúst nk. Eitt meginvið-
fangsefni þess fundar verður að
ræða framtíðartilhögun samstarfs
og samskipta vestnorrænu þjóð-
þinganna. Einnig verður rætt um
tengsl vestnorrænnar samvinnu
við Norðuriandasamstarfið.
1. AOUSTTIL 5. AGUST
SVEFNPOKAR FRA KR. 15
I UTILECUNA
ORILLKOL4.5 KO. KR. 268
DISKAR, 50 STK. KR. 238,
ELDHUSRULLUR, 4 STK. KR. 138,-
NEMLI UPPÞVOTTALÖÚUR ULTRA,
500 ML KR. 94,-
PH SHAMPO OÚTANNBURTSI KR. 298
ÞU SPARAR
ÞEÚAR ÞU VERSLAR ODYRT
OPIt>: MÁNUDACA-FÖSTUDACA KL. 12-18.30
LAUCARDACA KL. 10-16 • SUNNUDACA KL. 13-17