Dagur - 01.08.1995, Qupperneq 6
6 - DAGUR - Þriðjudagur 1. ágúst 1995
MANNLÍF
Opnun
sýningará
verkum Hafliða
Síðastliðinn laugardag
var opnuð í Listasafninu
á Akureyri sýning á verk-
um Hafliða Hallgríms-
sonar, þar sem hann sýnir
grafíkverk, sem hann hef-
ur sett á blað jafnhliða
tónlistarsköpuninni.
Ljósmyndari Dags var
við opnunina í Listasafn-
inu og tók meðfylgjandi
myndir. Óþh/Myndir: BG.
Jón Hlöðvcr Áskclsson, tónskáld, og Steinar Þorsteinsson, tannlæknir, ræða
málin.
Tónlistar- og myndlistarmaðurinn Hafliði Hallgrímsson ræðir við Guðnýju Gerði Gunnarsdóttur, forstöðukonu
Minjasafnsins á Akureyri.
Sýningargestir skoða grafíkverk Hafliða.
Góðir gestir Érá Heidelberg
í þriðju tónleikaröð Sumartón-
leika ’95 voru flytjendur Madrig-
alkórinn í Heidelberg undir stjóm
Geralds Kegermanns, Margrét
Bóasdóttir, sópransöngkona og
Bjöm Steinar Sólbergsson, organ-
leikari Akureyrarkirkju.
Madrigalkórinn í Heidelberg er
ekki gamall. Gerald Kegermann
stofnaði hann árið 1971 og hefur
stjómað honum alla starfstíð hans.
Kórinn hefur átt mikilli velgengni
að fagna og komið víóa fram í
tónleikaferðum og á tónlistarhá-
tíðum auk þess sem hann hefur
gefið út plötur og komið fram út-
varpi og sjónvarpi.
Kórinn er vel skipaður. Allar
raddir hans skila sínu fagurlega og
má þar vart á milli sjá um gæði
tóns og nákvæmni í hverju einu.
Það er tæplega unnt aó telja það
galla, þó aó fyrir kæmi lítillega,
að tónn væri lítils háttar ójafn, svo
sem í tenór í fyrsta verkinu á
söngskránni, sem var Ecco mor-
morar l’onde eftir Claudio Monte-
verdi. Ekki heldur það að fyrir
kom örlítið sár bragur og smábrot
í sópran á allra hæstu tónum, svo
sem í öðru aukalaginu, sem kórinn
söng í tónleikalok, en það var
þýska þjóðlagið Lorelei. Það verð-
ur ætíð mannlegt að vera ekki al-
veg fullkominn.
Efnisskrá kórsins hófst á
madrigölum eftir Monteverdi,
þegar hefur hins fyrsta verið getið.
Hinir voru O primavera, sem var
mjög agað og nákvæmt í meóför-
um kórsins, A un giro son d’ begl’
occhi, þar sem falleg skörun var í
TONLIST
Madrigalkórinn í Heidclbcrg.
HAUKUR ACU5TSSON
5KRIFAR
raddferð, Sestina og Lagrime
d’Amante al Sepolcro dell’ Am-
ata, þar sem fallegar styrkleika-
breytingar einkenndu flutning og
ekki síður ljúfur blær síðastnefnda
madrigalans.
Næst á efnisskránni voru tvær
mótettur eftir Heinrich Schútz:
Selig sind die Toten og Die Him-
mel erzahlen. Fallega unnar inn-
komur einkenndu flutning fyrri
mótettunnar og áhrifamikil notkun
fínlegra styrkleikabreytinga hina
síðari.
Eftir Johannes Brahms flutti
Madrigalkórinn tvö verk. Hið
fyrra var Warum is da Licht gege-
ben den Muhseligen. Þetta er mik-
ið verk, sem að hluta er fúgískt í
uppbyggingu og flutti kórinn það
af miklu öryggi og fallega. Hið
síðara var Geistlich Lied op 30,
þar sem Bjöm Steinar Sólbergs-
son lék með á orgel og var flutn-
ingur afar innilegur. Sérlega
glæsilegur er lokahluti verksins,
sem er fagurlega samansett Amen.
Hjálmar H. Ragnarsson átti eitt
verk á tónleikum Madrigalkórsins
og var það Ave Maria. Þetta ljúfa
verk var mjög fallega flutt og
mátti heita, að kórinn umvefði það
í túlkun sinni.
Næstsíðast á efnisskrá var
verkið Hymne eftir Felix Mend-
elssohn. Það er samið fyrir kór,
sópran og orgel. Sópranhlutverkið
var í höndum Margrétar Bóasdótt-
ir og fór hún mjög vel með það.
Kórinn var ekki síðri jafnt í inn-
komum sínum sem í bakröddum,
sem voru mjög við hæfi í styrk og
blæ. Orgelleikur Bjöms Steinars
Sólbergssonar var mjög smekk-
lega unninn.
Lokaverkin á tónleikum Madr-
igalkórsins voru eftir Johannes
Brahms. Þau voru Von alten Lie-
besliedem, Waldesnacht og All
meine Herzgedanken. I þessum
verkum fór kórinn fallega með.
Fjörlegur flutningur var á fyrsta
verkinu, jafn og agaður blær á
öðru og hófleg tilfmning í því síó-
asta.
Stjórnandi Madrigalkórsins í
Heidelberg, Gerald Kegelmann,
hefur mjög gott vald á verki sínu.
Bendingar hans eru afar greinileg-
ar og tjáningarríkar og hann hefur
auga með einstökum röddum og
fylgir þeim í hvívetna hvar sem á
þarf að taka. Þaó er skemmtilegt
að fylgjast með stjómendum sem
kunna sitt fag og ná að fullu til
flytjenda sinna. Svo er greinilega
meö Gerald Kegelmann sem hefur
skapað sér fagurt hljóðfæri í sam-
vinnunni við kórfélagana í Madr-
igalkórnum í Heidelberg.