Dagur


Dagur - 16.08.1995, Qupperneq 6

Dagur - 16.08.1995, Qupperneq 6
.'SJBSSSMíSSSr/i 6 - DAGUR - Miðvikudagur 16. ágúst 1995 Verðlaunasjóður íslenskra bamaboka: Samkeppni um bestu barnabók næsta árs - tekið á móti handritum til 15. október næstkomandi Nú stendur yfir samkeppni um verðlaunabamabók ársins 1996. Fyrir samkeppninni stendur Verð- launasjóður íslenskra bamabóka og er þetta í ellefta sinn sem verð- laun af þessu tagi verða afhent. Um leið og verðlaunin verða af- hent gefur Vaka- Helgafell bók- ina út. Samkvæmt upplýsingum frá Verðlaunasjóði íslenskra bama- bóka er frestur til að skila inn handritum til 15. október næst- komandi. Islensku bamabókaverðlaunin nema 200 þúsund krónum auk þess sem höfundur verðlaunabók- arinnar fær greidd laun sam- kvæmt^ samningi Rithöfundasam- bands íslands og Félags íslenskra bókaútgefenda. Dómnefnd mun velja verð- launasöguna úr þcim handritum sem berast. Ekki eru sett nein tak- mörk varðandi lengd sagnanna og einungis við það miðað að efnið hæfi bömum og unglingum. Hvatt er til þess að óreyndir, jafnt sem reyndir rithöfundar, spreyti sig í þessari samkeppni en handrit þarf að merkja dulnefni og nafn höf- undar skal fylgja með í lokuðu umslagi. Sögumar skal svo senda Verðlaunasjóði íslenskra bama- bóka í hcimilisfangi bókaútgáf- unnar Vöku- Hclgafells. I 1 HOTEL KEA Föstudagsjass Hínn frábærí gftarleíkarí Bjöm Thoroddsen ásamt Jóní Rafnssyní í léttrí sveíflu frá kl. 10-01. Ath! Enginn aðgangseyrír. Laugardagskvöld f -KLASS ásamt söngvurunum Berglíndi Björk og Reyní Guðmundssyní Borðapantanir fyrir matargesti í síma 462 2200 Sólrún Bragadóttir heimsækir Norðurland - kemur fram á þrennum tónleikum um næstu helgi ásamt Jónasi Ingimundarsyni Sólrún Bragadóttir, söngkona, og dagkl. 21 og í safnaóarheimili Ak- mjög fjölbreytt og aðgöngumiða- Jónas Ingimundarson, píanóleikari, ureyrarkirkju á sunnudag kl. 20.30. sala verður vió innganginn á heimsækja Húsavík, Breiðumýri, Efnisskrá tónleikanna verður hverjum stað. Akureyri og Borgames næstu daga rrteð spili og söng. Tónleikaröð þeirra á Noróurlandi hefst á föstu- dag og lýkur á sunnudagskvöld. Sólrún Bragadóttir hefur undan- farin ár starfaö í Þýskalandi og sungið víða. Að loknu söngnámi hér heima og í Bandaríkjunum fékk hún fastráðningu við ópcruna í Keiserslautem, var þar í nokkur ár og síðan var hún fastráðin við óperuna í Hannover. Hún hefur sungió mjög víða sem gestur og tekist á við mörg stór hlutverk í mörgum helstu óperum sögunnar, auk þess sem hún hefur komið fram á tónleikum af ýmsu tagi. Þau Jónas og Sólrún hefja tón- leikaröðina í sal Borgarhólsskóla á Húsavík á föstudag, 18. ágúst kl. 20,30. Þau veróa síðan í félags- heimilinu að Breiðumýri á laugar- Landskeppni Færeyinga og íslendinga í skák á Akureyri: Miklir yfirburðir íslenska liðsins Landskeppni í skák fór fram milli Færeyinga og Islendinga á Akur- eyri um liðna helgi. Þetta var í 9. sinn sem slík landskeppni er hald- in en jafnan hefur lið Islands verið skipaó skákmönnum af Akureyri og Austurlandi þó í þetta sinn hafi aóeins Akureyringar komið aó taflmennskunni. Skemmst er frá því að segja að íslenska liðið vann yfirburða sigur á mótinu. Ætlunin var að tveir skákmenn af Austurlandi yröu í íslenska keppnisliðinu en þeir forfölluðust á síðustu stundu. Aður en keppnin hófst var ljóst að lið Færeyinga var mun veikara en þaó íslenska ef skákstig eru mælikvarði á slíkt. Eins og alþjóó veit hafa verið erf- ióleikar í Færeyjum og fólksflutn- ingar úr landi. Nokkrir bestu skák- menn Færeyja eru af þessum ástæóum búsettir í Danmörku um þessar mundir. Yfirburðir í keppninni voru miklir, eins og áður segir. Fyrri umferðin endaði meó níu sigrum gegn einum og sú síóari sömuleið- is. Lokastaðan varö því 18:2 fyrir Rúnar Sigurpálsson sigraði á hraðskákmótinu scm var lokapunktur hcim- sóknar Færcyinganna til Akureyrar. ísland. Sigurlið Islands var þannig skipaó: Jón Garðar Viðarsson, 01- afur Kristjánsson, Gylfi Þórhalls- son, Askell Örn Kárason, Rúnar Sigurpálsson, Bogi Pálsson, Þór- leifur K. Karlsson, Þór Valtýsson, Magnús Teitsson, Sigurjón Sigur- bjömsson, Jón Björgvinsson og Jakob Þór Kristjánsson. Heimsókn Færeyinga á Akur- eyri lauk með hraðskákmóti á mánudag þar sem voru 23 kepp- endur. Sigur í mótinu hafói Rúnar Sigurpálsson sem hlaut 20 vinn- inga. Röð næstu manna var þann- ig: Jón Garðar Viðarsson 19 v., Olafur Kristjánsson 17,5, Flóvin Næs 17,5, Ólavur Simonsen 16,5 og Magnús Teitsson 16. JÓH Landslið íslands og Færeyja scm tókust á á taflborðunum um hclgina. Færeyingar urðu að lúta í lægra haldi enda sakna þcir sinna stcrkustu skákmanna.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.