Dagur - 16.08.1995, Blaðsíða 16
Endurskoðun búvörusamnings:
Fjárlaganefnd Aiþingis á ferð um Norðurland eystra:
l’löntur sem Brynjar Skarphcðinsson, skógræktarfraeðingur, færði Melgerðismelum að gjöf voru gróðursettar á
þriðjudaginn. Plönturnar eru í hcstshæð og er andvirði gjafarinnar um 300 þúsund krónur. shv/Mynd: BG
Líkur á al Isherjaratkvæða-
greiðslu meðal bænda um
endanlega gerð hans
Vegamálin ofarlega á
baugi á fundi á Raufarhöfn
Gunnlaugur Júlíusson, sveit-
arstjóri á Raufarhöfn, af-
henti Jóni Kristjánssyni, for-
manni fjárlaganefndar Aiþingis,
undirskriftir rúmlega 2.500 ein-
staklinga á hádegisverðarfundi
nefndarinnar með héraðsnefnd
N- Þingeyinga á Hótel Norður-
Ijósi á Raufarhöfn í gær. Á und-
irskriftalistanum er krafist úr-
bóta í vegamálum á svæðinu.
Gunnlaugur sagði að mönnum
þætti lítið þokast í endurbótum
vega á meðan 30% af fram-
kvæmdafé kjördæmisins væri
lagt í veg yftr öræftn.
Vcgamálin voru mjög til um-
- undirskriftalistar afhentir, þar sem krafist er úrbóta í vegamálum
ræðu er fjárlaganefnd Alþings hóf
yfirreið sína um Norðurlandskjör-
dæmi eystra á Þórshöfn í gær-
morgun. Frá Þórshöfn var haldið
til Raufarhafnar þar sem rætt var
við sveitarstjórn og héraðsnefnd
og síðan hélt ncfndin för sinni
áfram til Kópaskcrs.
Ingunn St. Svavarsdóttir, odd-
viti héraðsnefndar, sagöi í samtali
við Dag að megináherslan væri
lögð á vegamálin og það komi
fram í undirskriftalistunun sem af-
hentir voru i gær. „Við leggjum
þunga áherslu á skólamálin, að
við fáum það fjármagn sem þarf
til aó geta staðið hér jafn myndar-
lega að skólum og hingað til, eftir
að sveitarfclögin yfirtaka rekstur
þeirra. Eins ætlum vió aðeins að
ræóa menningarmál við nefndina,
um Sauðaneshúsið sem við erum
að fjármagna í sameiningu.“
Barnaverndarmál verða einnig
til umræðu, hversu mikilvægt er
að barnastofa styðji viö bakið á
barnavemdanefndum út um land-
ið. „Hver sveitarstjórn fyrir sig
ræðir svo við Vita- og hafnamála-
stjórn um hafnamál," sagði Ing-
unn.
Aðspurð um hvaða væntingar
hún hefði af þessum fundum með
nefndinni, sagði Ingunn: „Ég vona
að þetta vcröi til þess að nefndar-
menn fái sterkari tilfinningu fyrir
okkar byggðarlagi og hvað sé aðal-
atriðið fyrir okkur.“
Jón Kristjánsson, formaður
fjárlaganefndar, sagóist hafa farið
um þetta svæði áður en undir leiö-
sögn heimamanna kæmust menn
betur inn í málin. „Það hefur ekki
margt komið á óvart, því aðstæður
hér eru um margt svipaðar og í
mínu kjördæmi, Austurlandskjör-
dæmi. Éigi að síóur er margt sem
skýrist fyrir manni á svona ferð og
hún hefur tvímælalaust gildi.“
Jón sagði sumarió vera nauð-
synlegan tíma til að fara á vett-
vang því ncfndarmenn heföu ekki
mikinn tíma fyrir viðtöl, meðan á
fjárlagagerð stendur. „Það er ekki
algengt að vió fáum undirskrifta-
lista cn sýnir hvað menn leggja
mikla áherslu á vegamálin hér. Ég
þori ekki að spá um framhaldið,
vcgamálin heyra ekki undir fjár-
laganefnd, nema hcildarramminn.
Skipting og forgangsröð er í hönd-
um samgöngunefndar og þing-
manna cinstakra kjördæma. Eigi
að síður koma vegamálin fjárlaga-
nefnd við. Ég hlakka til að fara
hcr um kjördæmið en feróin er rétt
aó byrja,“ sagði Jón. IM/KK
Menntasmiöja
kvenna á Akureyri:
Rúmlega
20 umsóknir
hafa borist
Umsóknarfrestur um nám á
haustönn í Menntasmiðju
kvenna á Akureyri átti að
renna út 14. ágúst en ákveðið
var að framlengja umsóknar-
frestinn til mánudagsins 21.
ágúst. Rúmlcga 20 umsóknir
hafa þegar borist og ltkur á að
fleiri bætist við fyrir mánudag.
Pálína Guömundsdóttir,
verkefnisfreyja Menntasmiðj-
unnar, segir að mikið hafi vcrið
hringt og margar séu að velta
fyrir sér að sækja um og því eigi
hún von á að umsóknir verði
nokkuð margar. „Við getum
ekki tckið fleiri en tuttugu cn
það cr ágætt að fá sem flcsta
umsækjendur til að velja úr.“
Pálína segir að allir umsækj-
endur verði teknir í viðtöl og
reynt að meta hvaða umsækj-
cndur sýni mestan áhuga og séu
í meslxi þörf fyrir nám af þcssu
tagi. Öllum umsækjendum verð-
ur svaraó 25. ágúst en námið í
Menntasmiðjunni byrjar 11.
scptember.
Pálína mun ekki gegna starfi
verkcfnisfreyju áfram í vetur en
heldur þó áíram sem kennari í
hlutastarfi. Jafnréttisnefnd aug-
lýsti nýlega eftir nýrri verkefnis-
freyju og hafði ein umsókn bor-
ist þcgar umsóknarfrcstur rann
út. Fjallað verður um umsóknina
á fundi jafnréttisnefndar í þess-
ari viku. AI
Brúnni við Hróarsstaði
lyft í lok september
- tvö tilboð bárust í verkið
Fnjóskárbrúin við Hróarsstaði
liggur enn niðri, en á mánu-
dag voru opnuð tilboð um að
lyfta endanum. Útboðið var lok-
að og einungis tvö tilboð bárust,
bæði yftr kostnaðaráætlun.
Á Norðvesturlandi má í dag
búast við norðaustan kalda
eða stinningskalda með
rigningu og hiti verður 9-15
stig. Veðrið á Norðurlandi
eystra verður ekki skemmti-
legra; því samkvæmt Veð-
urstofu íslands er gert ráó
fyrir austan eða suðaustan
kalda og rigningu og 5-9
stiga hita. Ætli það sé farið
aó hausta?
VEÐRIÐ
Kostnaðaráætlun var upp á
800.000 krónur, en lægra tilboðið,
frá TG-krönum í Reykjavík var
hátt í 400.000 krónum hærra;
1.167.063, en tilboð Valfells hf. í
Reykjavík bætti uni betur; nam
2.212.116 krónum. Þrátt fyrir að
tiiboðin séu mun hærri en áætlun
veróur að taka tillit til þess að
mat Vegagerðarinnar miðast við
að notað sé spil til að lyfta brúnni
en tilboóin byggjast á öðrum
aðferðum.
Ekki hefur vcriö tckin ákvörð-
un um hvor hlýtur vcrkiö cða
hvort samið vcrður viö hvorugan
þcssara aðila, en búist cr við að
nióurstaóa fáist um það í lok vik-
unnar.
Fyrirhugað er að lyfta brúnni
seinnipartinn í september, en fram
að því mun Vegagerðin vinna að
annarri viðgerð á brúnni. shv
Bílvelta í Eyjafjarðarsveit
Bflvelta varð í Eyjafjarðar-
sveit laust eftir klukkan ell-
efu í gærmorgun.
Ökumaðurinn missti stjórn á
bílnum eftir að hafa lent í lausa-
möl í vegkantinum meö þeim af-
leiðingum aö bíllinn fór út af veg-
inum og valt tvær veltur. Bifreiðin
er mikið skcmmd, cn ökumanninn
sakaði lítið; kvartaði að sögn lög-
reglu um í öxl og hné, en sá ekki
ástæðu til að lcita læknis. shv
Viðræðunefnd fulltrúa ríkis-
valdsins og bænda um end-
urskoðun búvörusamningsins
hélt áfram fundi t gær en ekki
hefur verið fundað í liðlega hálf-
an mánuð vegna sumarleyfa
nefndarmanna. Guðmundur
Sigþórsson skrifstofustjóri í
landbúnaðarráðuneytinu og for-
maður búvörusamningsnefndar
segir markmiðið vera að ljúka
endurskoðuninni fyrir lok ágúst-
mánaðar.
Þá verða tillögurnar sendar rík-
isvaldinu og til Bændasamtakanna
því nefndarmenn bænda verða að
leita til sinna umbjóðenda um
samþykki eða synjun tillagnanna.
Stefnt er að því aó í endanlegri
gerð búvörusamningsins vcrði
ákvæði um aó allsherjaratkvæða-
greiðsla fari fram meðal bænda
um hann.
Næsti fundur nefndarinnar
verður nk. mánudag en í millitíð-
inni þinga starfs- eða vinnuhópar
um þær tillögur sent frant eru
kornnar. Bændur hafa m.a. lagt
fram tillögu um að kindakjöts-
framleiðslan verði dregin saman
um allt að 1000 tonn sem gæti
þýtt að sauðfjárbændum fækkaði
um a.m.k. 200 talsins. Fram-
leiðslustýring hefur einnig verið á
borði nefndarinnar, en þar er m.a.
rætt um að bændur taki á sig ein-
hvern útflutning á kindakjöti til aó
ekki myndist kjötfjall. Guðmund-
ur Sigþórsson segir að mjög mörg
sjónarmið nefndarmanna séu sam-
eiginleg og það létti vinnuna
nokkuð. Einnig fylgist landbúnað-
arráóherra, Guðmundur Bjarna-
son, náið með því sem gerist á
fundum nefndarinnar. GG
Allt fyrir garðinn
í Perlunni við
0KAUPLAND
Kaupangi v/Myrarveg. simi 23565