Dagur - 16.08.1995, Blaðsíða 7

Dagur - 16.08.1995, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 16. ágúst 1995 - DAGUR - 7 Garðyrkjufélag Húsavíkur: Garðaskoðunarferð á 20 ára afimæli Garðyrkjufélag Húsavíkur er 20 minnst á ýmsan hátt. Á dögunum garðaskoðunarferð. Þctta var ára og hefur tímamótanna verið fóru 19 félagar m.a. í þriggja daga veigameiri ferð en venja er til hjá Félagar Garðyrkjufélags Húsavíkur í góðu yfirlæti í garði Önnu Gerðar Richtcr og Arnar Jónssonar í Borgarnesi. Bragðað var á framleiðslu mjólkursamlagsins og athyglisverður garður skoðaður. Mynd: Óm Jónsson. félaginu, þó leitast sé við að félag- ar bregði sér af bæ til garðaskoðunar á hverju sumri. Árlega dreifa félagar Garð- yrkjuritinu og halda blómabasar þar sem þeir geta skipst á garð- plöntum. Haft hefur verið á orði að mikill munur sjáist á ræktunar- þættinum í bænum síðan félagið var stofnað, en marga ræktarlega og snyrtilega garða má finna á Húsavík þó að félagar legðu í feró til aó sjá aðra garða. Það var urn hádegi á föstudegi sem lagt var af stað í afmælisferð- ina og lá leiðin að Bjarnastöðum í Vatnsdal þar sem finna má skemmtilegan garð með geysi- miklu plöntusafni. Húsbændur tóku á móti Húsvíkingum af góðri gestrisni. Síöan var haldió að Hofi í Vatnsdal og þar dvalið alllengi. Er fallegur garður hafði verið skoðaður lá leiðin í athyglisvert íbúðarhús þar sem húsráðendur buöu veitingar. Þar næst var litió á ferðaþjónustuaðstöðuna og cndaó í bókaútgáfunni á Hofi. Gist var í Reykjavík en á laug- ardagsmorgun var haldið í Hvera- gerði. Þar var Garðyrkjuskóli rík- isins skoðaður, og síðan bærinn allur með fróðum leiósögumanni, gróðrarstöðvar, verslanir og Eden voru líka heimsótt. Urn miðjan dag var haldið á höfuðborgar- svæðið og nýir og gamlir garðar skoðaðir, athyglisverðir garóar og verðlaunaðir garðar og allsstaóar var Norðlendingum tekið af mik- illi gestrisni og elskulegheitum. Á sunnudagsmorgun var haldið heim á leið með viðkomu í gróðr- arstöðvum og kaktusahúsi og var bíllinn lestaður á hverjum stað. í Borgarnesi var gerður góður stans og athyglisverðir garðar heimsótt- ir, gengið urn Skallagrímsgarð og litið við á leikvelli. Aó lokum var áhugasamur ræktunarmaður við Hvammstanga heimsóttur og er komið var heim seint um kvöldið velktist enginn í vafa urn að allar mögulegar plönt- ur gætu dafnað við ysta haf. IM Ljóðatónleikar í listasafhi Miðvikudaginn 9. ágúst efndu sópr- ansöngkonan Auður Gunnarsdóttir og píanóleikarinn Ingibjörg Þor- steinsdóttir til ljóðatónleika í vestur- sal Listasafnsins á Akureyri. Efnis- skráin var fjölbreytt og voru á henni verk eftir Haydn, Brahms, Alban Berg, Richard Strauss, Jórunni Við- ar, Sigfús Einarsson og Sigvalda Kaldalóns. Auður Gunnarsdóttir hefur mikla rödd og breiða. Hún hcfur mikið vald á beitingu hennar, ekki hvað síst í jöfnum tóni og miklum styrk sem hún gctur nýtt á sem næst öllu raddsviði sínu - síst þó á neðstu tón- um, en þeir eru veikir, eins og reyndar tíðast vill vera. Fyrir kom að undirleikarinn tók ekki tillit til þessa sem skyldi svo að píanóið yfirgnæfði rödd Auóar á lágum tón- um. Flutningur Auðar var öruggur og ákveðinn. Henni förlaóist sem næst aldrei, hvort hcldur er snerti tónhæð eða lagferð. Hins vegar var túlkun hennar á stundum nokkuð einhæf og virtist ekki litast sem skyldi af efni ljóðanna sem sungin voru. Svo var til dæmis með verkin Das Mádchen spricht eftir Brahms við ljóð Ottos Friedrichs Gruppcs og Vergebliche Stándchen, sem er eftir sama tón- skáld og við þjóðvísu frá Rínarlönd- um. Þessa gætti víðar og var sem röddina skorti mýkt á stundum og jafnvel að hún leitaði yfir í óperutil- þrif og þau nokkrum sinnum allt að því Wagncrísk. Slíkt á ekki verulega vel við í ljóðasöng, þar sem radd- styrkur og ákefð eiga helst að víkja fyrir hlýju og næmni á Ijóö og lag. Auður komst þó vel í samband við efni og brag í nokkrum lögum og einkum þeim sem hún flutti úr söngvasmiðju Sigvalda Kaldalóns. Á efnisskrá eftir þennan höfund voru lögin Betlikerlingin við ljóó Gests Pálssonar, Eg lít í anda liðna tíð við ljóð Höllu Eyjólfsdóttur og Leitin við Ijóó eftir sama höfund og hið síðasta. Þessi lög flutti Auður af tilfinningu sem á stundum gekk sem næst að hjarta og þá einkum í túlkun hennar á Betlikerlingunni sem var sérlega nærn. Af erlendum lögum, sem Auður náði eóðri túlkun á. má TONLIST HAUKUR ÁdÚSTSSON SKRIFAR nefna Von ewiger Liebe eftir Brahms við ljóð eftir Josef Wentzig, In Zimmer eftir Alban Berg við ljóð eftir Johannes Schlaf og Ach lieb ich muss nun scheiden eftir Richard Strauss við ljóð cftir Felix Dahn. Píanóleikur Ingibjargar Þor- steinsdóttur var almennt öruggur og ákveðinn. I fáein skipti brá þó út af cn aldrei svo aó til nokkurra vand- ræða væri. I undirleik Ingibjargar gætti alloft nokkurs ósveigjanleika sern olli því að hann verkaði nokkuð kaldur og kantaður á stundum. Þá söne hlióðfærið ekki sem skyldi undir fingrum hennar og hlúði því ekki svo að túlkun Auðar sem æski- legt hefði mátt kalla. Meiri tilbrigði og dýpt í flutningi hefði verið æski- leg til þess að ná fram hlýrri blæ og meiri nánd við ýmiss þeirra verka sem flutt voru. Þrátt fyrir þau atriði sem hér hafa verið talin náðu Auður og Ingibjörg upp góðri stemmningu á tónleikum sínurn í Listasafninu á Akureyri. Víða var líka um hrífandi tilþrif að ræða þar sem Auður nýtti getu mik- illar raddar sinnar og sýndi hvað hún hafði til að bera og Ingibjörg fylgdi henni vel eftir. Tónleikarnir voru af venjulegri lengd en óvenju- legir að því leyti að ekki var í þeim raunverulegt hlé. Þrátt fyrir það var tæplega unnt að finna á Auði þrcytu í lok þeirra þcgar þakklátir áheyr- endur klöppuðu hana upp aftur og aftur og hún veitti þeim hvert auka- Iagið af öðru - alls fjögur. Þannig lauk þessum tónleikum og væri sannarlega skemmtilegt að heyra Auði aftur og þá nteð efnisskrá úr óperum - og þar á meðal eftir Wagner. DRAUPNISGÖTU 2 AKUREYRI SÍMI (96)22360 ern ttirn en ba h Verð miðað við staðgreiðslu er 1300* krónur fyrsta birting og hver endurtekning 400 krónur AUGLYSINGAR ■ RITSTJORN ■ DREIFING Á AKUREYRI462 4222 Á HÚSAVÍK 464 1585

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.