Dagur


Dagur - 16.08.1995, Qupperneq 9

Dagur - 16.08.1995, Qupperneq 9
Miðvikudagur 16. ágúst 1995 - DAGUR - 9 Iðnaður ’95 hefst ■ dag Bæði skemmtun og fræðsla - segir Jóhannes Geir Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri Iðnaðar ’95, um sýningarhaldið næstu daga í kvöld setur Finnur Ingólfsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, sýninguna Iðnaður ’95 á Hrafna- gili í Eyjafjarðarsveit. Þar með hefst formlega sýning sem helg- uð er ísienskum iðnaði en sýn- ingarsvæðið verður opnað al- menningi kl. 16. Inn í dagskrána næstu daga verður fléttað sögu- og menningarsýningum, fræðslu- og skemmtiefni. For- svarsmenn Lifandi lands hf., sem stendur fyrir sýningunni, segja mikið lagt upp úr að spinna á þennan hátt saman dagskrá sem höfði til breiðs hóps, jafnt full- orðinna sem barna. „Inni á þessari sýningu eru jafnt fyrirtæki sem eru að stíga sín fyrstu skref sem rótgróin og öflug stórfyrirtæki. Þar má til dæmis nefna fyrirtæki eins og Landsvirkj- un, Rarik og fleiri,“ segir Jóhannes Geir Sigurgeirsson, framkvæmda- stjóri Iönaðar ’95. Með Iðnaði ’95 lýkur þriggja helga sýningar -og skcmmtana- haldi að Hrafnagili sem hófst með Ættarmóti Helga magra um versl- unarmannahelgina og síðan fylgdi í kjölfariö handverkshátíð um liðna helgi. Lifandi land efndi einnig til viðamikillar landbúnað- arsýningar í fyrra þar sem komu um 9000 gestir. Jóhannes Geir segir að iðnsýningin sé talsvert frábrugðin landbúnaðarsýning- unni. Að hans sögn koma gestir til með að sjá þar hvernig íslensk fyr- irtæki notfæra sér nútíma tölvu- tækni því nokkur fyrirtæki ætla að vera í beinu sambandi við sínar höfuðstöðvar, auk þess sem á svæðinu verða einnig aðilar sem kynna tölvutengingar inn á al- þjóðanetið Intemet. Fjölbreyttar hliðarsýningar Alls eru á áttunda tug aðila á sýn- ingunni, jafnt á úti- sem innisvæð- um. Þá verða hliðarsýningar, s.s. sýningin „Fólk og vélar í 60 ár“, þar sem fjallað er um sögu Sam- bandsverksmiðjanna á Akureyri. Myndavélasafn verður einnig til sýnis sem og yfir 50 einstakar myndir sem sýna iónaóarmenn á Akureyri að störfum snemma á öldinni. Jóhannes Geir segir að meó þessari umgjöró um iónsýn- ingunna sé undirstrikað að at- hafnasemi verði að eiga sér rætur í öðrum þáttum þjóðlífsins. Líflegt á útisvæðunum Jóhannes Gcir segir að í sýningar- haldinu næstu daga fari saman fræðsla, skemmtun og fallegt unt- hverfi og þessir dagar geti orðið sumarauki fyrir fjölskyldufólk á Noróurlandi. I vcitingatjaldi verða öll kvöld söng- eða leikatriði og á útisvæði verða t.d. hestasýningar, hestaleiga, dýrasýning, svifllug- skynning, torfærubílar, hoppkast- ali, starfsþrautakeppni og hesta- kerra. Sýningarsvæðið verður opnað í dag kl. 16 þegar klippt vcrður á borða sem strengdur verður um- hverfis sýningarsvæðið. Klukkan 20.30 í kvöld hefst svo formleg opnunarhátíð þar sem meðal ann- ars verður ávarp Haraldar Sumar- lióasonar, formanns Samtaka iðn- aðarins, setningarávarp Finns Ing- ólfssonar, iðnaðarráðherra, og ávarp Davíðs Sch. Thorsteinsson- ar, sem er sérstakur gestur sýning- arinnar. Þá verða nokkur söngat- riði þar sem fram koma Om Viðar Birgisson, Kór Glerárkirkju, Pálmi Gunnarsson, Kristján frá Gilhaga, Alftageróisbræður og flciri. Viðamikill undirbúningur Sýning á borð við Iðnað ’95 er viðamikió verkefni, ekki síst fyrir ungt fyrirtæki eins og Lifandi land. Jóhannes Geir segir að á vegum fyrirtækisins komi um 40 manns að sýningunni og undirbúningi hennar og þá er ótalinn allur sá fjöldi fólks sem kemur að þátttöku fyrirtækja í sýningunni. „Þetta er mikið fyrirtæki sem kostar bæði mikla vinnu og fjár- magn. Framhaldió á svona starf- semi hjá okkur ræðst því mikið af því hvemig viötökur við fáum núna. Það hefur sína kosti og galla að halda sýningu á þessum árstíma en kostirnir eru þeir að hún tengist sumarleyfistíma fólks og sumar- ferðalögum og er þannig sumar- auki fyrir fjölskyldufólk. Við erum líka að nýta húsnæði og aðstöðu sem hér er til staðar, bæói skóla- húsnæði og útiaðstöðu,” segir Jó- hannes Sýningin verður opin milli kl. 16 og 22 í dag, 14-22 á morgun og föstudag og 10-22 á Iaugardag. A sunnudag veróur opið milli kl. 10 og 18. Fjölskylduafsláttur verður á miðaverði og gilda miðamir alla dagana. Þá verður frítt inn fyrir böm yngri en 14 ára. Gestir geta vænst óvænts glaðnings því með hverjum miða fylgir lukkumiði.en einn sýningargestur fær tölvu af fullkomnustu gerð, tilbúna í teng- ingu á alþjóóanetið, Intemet. JÓH Jóhanncs Gcir Sigurgeirsson í sal íþróttahússins á Hrafnagili í gær. Þar, eins og alls staðar annars staðar á svæðinu var unnið hörðum höndum að lokaundirbúningi Iðnaðar ’95. Mynd: BG ii«rararararararaini»i«rarainisBraiiai»inrararaimraini»rarainrarararai»i»i»raraimrarai»ifnffiiL g s s g g g g g g g g g g g g g g g g g g g g g g g g g g y e tft m WHk Brauðgerð Kjötiðnaðarstöð Safagerð Smjöriíkisgerð Kafflbrennsla Akureyrar hf. Á iðnsfningunni að Hrafnagili munu iðnfyrirlæki KEA ásamt Kaffibrennslu Akureyrar hf. kynna fjölbreytta framleiðslu sína á sviði matvælaiðnaðar Sfningargestum gefst einnig tækifæri á að kynnast nokkrum framleiðsluvörum nánar mm í s - T ^ „.‘i’ S’Jk jf 'jf I •"« |1 II i/ al UdS bk __________ s 3 3 3 3 3 3 3 3 3 3 3 3 3 3 3 3 3 3 3 3 3 3 3 3 3 3 3 3 3 3 3 3 ’'P»P»P»P»P»P»P»PaP»PaP»PaP»P»l»P»P»P»P«P»PraP»l!»P»P«P»P«PaP!»P»P»P»P»P»j!»P»K«PB3ÍP»P!»P»j!»P!«P!»r

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.