Dagur - 07.10.1995, Síða 5

Dagur - 07.10.1995, Síða 5
Laugardagur 7. október 1995 - DAGUR - 5 Nýtt andlit: Tekur 4-5 tíma að undir- búa og mynda fyrirsætu Á næstu mánuðum munu birtast af og til í Degi myndir af fallegu og vel snyrtu fólki. Hér er ekki um frægt sýningarfólk að ræða heldur er ætlunin að taka venjulegt fólk á öllum aldri, fá það í hendur fag- fólki í förðun, greiðslu og ljós- myndun og afraksturinn verður síðan hægt að skoða á síðum Dags. Förðunin verður í höndum Nönnu Yngvadóttur hjá Snyrti- stofu Nönnu, Sólrún Stefánsdóttir, sem rekur Hársnyrtistofuna Sam- son, mun sjá um hárgreiðslu og Sigríður Soffía hjá List-Mynd myndar módelin. Þær Nanna, Sólrún og Sigríður hafa starfað saman í nokkurn tíma en það var Nanna sem upphaflega fékk hugmyndina að þessari sam- vinnu. Hún segir að þegar allt sé tekið saman taki yfirleitt um 4-5 tíma að undirbúa og mynda eina fyrirsætu. Fyrst þarf að farða módelið, síðan er það greiðslan og lokapunkturinn er myndatakan. „Við erum búnar að vinna afskap- lega vel saman og það er mjög gaman að þessu verkefni," segir Nanna. - Hvernig útvegið þið fyrirsæt- ur? „Við auglýstum á sínum tíma og þeir sem höfðu áhuga sendu inn myndir. Ég fékk 60-70 myndir sendar og enn eru að berast fleiri myndir. Fyrst fengum við aðallega myndir af ungum stúlkum en nú fáum við myndir af stúlkum á öllum aldri og það er mjög gaman. Við viljum taka venjulegt fólk, ekki sýningarstúlkur, heldur bara venjulegt fólk. Auðvitað kemur það misjafnlega út á mynd því sumir eru stressaðir fyrir framan myndavélina. Það getur stundum verið erfitt en allir hafa þó gaman af þessu ekki síst módelin sjálf,“ segir Nanna. Módelin sem þær stöllur hafa tekið fyrir fram að þessu hafa flest verið konur, bæði vegna þess að fleiri konur hafa sýnt áhuga og eins eru möguleikarnir færri þegar unnið er með karlmann. Þó hafa þær verið með karlmenn líka og aldrei að vita nema óvæntir gestir, sem lesendur þekkja frá öðrum vettvangi, eigi eftir að sýna á sér nýja hlið í útlitsþætti þeirra Nönnu, Sólrúnar og Sigríðar. AI ^ Fyrsta skrefið í um- breytingunni er förðun- in. Hér er Nanna að byrja að farða fyrsta módelið sem mun birt- ast í Degi, Önnu Maríu McCrann. Lögmannavaktin á Akureyri: Veitir almenningi ókeypis rádgjöf - nafnleynd heitið Nútímaþjóðfélagið verður sífellt flóknara og oft getur það reynst hinum almenna borgara erfitt að fóta sig í frumskógi laga og reglu- gerða. Lögmenn á Akureyri, í samvinnu við starfsfólk Akureyr- arkirkju, halda uppi lögmannavakt þar sem almenningi gefst kostur á ókeypis lögfræðiráðgjöf. Mark- miðið er að mæta vaxandi þörf al- mennings við að fá upplýsingar um réttarstöðu sína í nútímaþjóð- félagi. Lögmannavaktin á Akureyri var starfrækt í fyrsta sinn síðasta vetur og ákveðið hefur verið að halda þjónustunni áfram í vetur. Ólafur Birgir Árnason, hæstarétt- arlögmaður á Akureyri, segir að þjónustan hafi verið notuð tölu- vert fyrst þegar hún hafí farið af stað en síðan hafi ásóknin minnk- að. Það hafi því verið nokkur um- ræða meðal lögmannanna hvort þörf væri á þessari þjónustu. Nið- urstaðan var þó sú að halda áfram með lögmannavaktina en í vetur og verður hún tvisvar í mánuði en ekki einu sinni í viku eins og var í fyrravetur. „Við verðum sennilega um 8 tíma í senn. Ef aðsóknin verður meiri lengjum við bara tímann," segir Ólafur. Lögmannavaktin er staðsett í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju og það eru ekki síst prestamir sem leggja mikið upp úr að þjónust- unni verði haldið áfram. Ólafur segir að stundum komi fyrir að fólk leiti til prestanna með vanda- mál sem séu lögfræðilegs eðlis og þá sé gott að geta vísað á Lög- mannavaktina. Þeir sem vilja notfæra sér Lög- mannavaktina geta pantað tíma í síma Safnaðarheimilisins. Við- komandi þarf ekki að segja til nafns né hvers eðlis mál hans sé heldur fær hann úthlutað tíma og númeri. Ekki er hægt að velja um hvaða lögmann er talað við og ekki er gefið upp hver er á vakt hverju sinni. Ráðgjöfin takmark- ast við munnlega ráðgjöf og er miðað við að hver fái um 15 mín- útuna viðtal en ekki meira en 30 mínútur. Ef þörf er talin vísa lög- mennirnir fólki áfram til annarra lögmanna, stjórnvalda eða annarra eftir því hvað við á hverju sinni. Gengur skrefi lengra en símaþjónusta Ólafur segir að sambærilega þjón- ustu og Lögmannavaktin veiti sé að finna víða erlendis. Hérlendis hafa ýmsir aðilar veitt almenningi ókeypis lögfræðiaðstoð en í mörg- um tilfellum er aðstoðin í tengsl- um við ákveðin félög t.d. stéttarfé- lög eða Neytendasamtökin. Félag laganema, Órator, hefur einnig um árabil veitt almenningi ókeypis lögfræðiaðstoð með símaþjónustu. Ólafur segir þjónustu Orators hafa á sér gott orð og þangað leiti margir. Lögmannavaktin gangi hinsvegar skrefi lengra. í fyrsta lagi séu þar starfandi lögmenn með reynslu, en ekki laganemar, og í öðru lagi fái fólk tækifæri á að fara og hitta löginennina frekar en að tala í síma. „Þegar allt er í gegnum síma sér sá sem veitir ráðgjöf ekki fólkið og getur ekki skoðað nein gögn um málin en oft getur verið erfitt að átta sig á málavöxtum þegar maður þarf að treysta eingöngu á frásagnir þeirra Ólafur Birgir Árnason, hæstaréttarlögmaður: „Oft leitar fólk til okkar með eitthvað sem það er búið að velta fyrir sér og hafa áhyggjur af árum saman og svo er hægt að leysa málið á korteri." Mynd: BG sem hringja og er ekki með nein gögn í höndunum," segir Ólafur. Ólafur Birgir bendir á að þeir sem búi utan Akureyrar og sjái sér ekki fært að koma og tala við lög- fræðing geti líka notfært sér þjón- ustu Lögmannavaktarinnar. „Þeir sem þannig er ástatt um fá líka út- hlutað ákveðnum tírna en þeir þurfa að gefa upp símanúmer og síðan hringjum við í þá. Við get- um að vísu ekki skoðað skjöl eða önnur gögn þegar þessi háttur er hafður á nema fólk sendi þau.“ Spurt um allt milli himins og jarðar Bæði karlar og konur leituðu til Lögmannavaktarinnar á síðasta ári þó karlamir væru heldur fleiri. Flestir voru á aldrinum 30-65 ára en þó voru dæmi um að fólk undir 20 ára aldri leitaði eftir ráðgjöf. Ólafur segir að spurt sé um allt mögulegt. Til dæmis hafa komið fyrirspurnir um skaðabótamál, fasteignir, dánarbús- eða gjald- þrotaskipti, greiðsluerfiðleika, erfðamál, hjónaskilnað og sam- búðarslit svo eitthvað sé nefnt. „Það er eiginlega fátt sem er ekki spurt um,“ segir hann. Stundum ráðleggja lögmenn- irnir fólki að leita sér lögmannsað- stoðar eða vísa á aðra aðila sem geta veitt aðstoð. Ólafur segir að fiest málin séu þó leyst á staðnum og raunar hafi það konrið á óvart hve mörg mál hafi verið hægt að leysa í 15 mínútna viðtali. „Oft er þetta eitthvað sein fólk er búið að velta fyrir sér og hafa áhyggjur af árum saman og svo er hægt að leysa málið á korteri." AI

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.