Dagur - 07.10.1995, Qupperneq 6
6 - DAGUR - Laugardagur 7. október 1995
Myndir: Sigurður Bogi.
höfuðstöðvar SH á Akureyri.
Gylfi Þór Magnússon forstöðumaður Akureyrarskrifstofu SH:
„Eram að slípa og
stilla strengi“
Gylfi Þór Magnússon veitir skrifstofu SH á Akureyri forstöðu. „Þeir
sem skipta við fyrirtækið eiga á engan hátt að finna hvort sá sem þeir
lcita til er staðsettur í Reykjavík eða á Akureyri.“
Líkt og Islendingarnir sem námu
land á sléttunum vestur í Kanada
fyrir rösklega 100 árum má á
sama hátt segja að landnemar geri
nú innrás á Akureyri. Um þessar
mundir eru nokkrir tugir nýs fólks
að flytjast í bæinn, en það gerist
samfara því að Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna flytur í bæinn tals-
verðan hluta starfsemi sinnar.
Blaðamaður Dags ræddi við hina
nýju landnema fyrir nokkrum
dögum og kjaminn í máli þeirra er
sá, að gott sé að búa fyrir norðan.
Forsaga máls þessa er slagur-
inn um viðskiptin við Útgerðarfé-
lag Akureyringa í byrjun árs.
Stærstu fisksölufyrirtæki landsins,
íslenskar sjávarafurðir og Sölu-
miðstöðin, tókust þar á, en lyktir
málsins urðu að SH hélt áfram
sölustarfsemi fyrir ÚA. í samn-
ingum þar um var skilyrt að SH
færi með nokkurn hluta starfsemi
Flytja með þrjú börn norður:
Erum ekkí farin enn í Sjallann
Hjónin Ragnheiður Valdimars-
dóttir og Svavar Jóhannsson eru
meðal þess fólks, sem tók þá
ákvörðun að flytjast til Akureyrar
með starfsemi SH norður. Bæði
vinna þau hjá fyrirtækinu; Ragn-
heiður í útflutningsdeild og Svav-
ar á birgðalager.
„Nei, við höfum engin tengsl
við Akureyri, önnur en þau að
hafa komið hingað sem ferða-
menn. Það var auðvitað ögrandi
að flytjast hingað, en við ákváðum
að slá til. Höfum keypt hér íbúð
og erum ákveðin í að búa hér í tvö
ár að minnsta kosti. Nei, við höf-
um ekki ennþá farið í Sjallann,"
sagði Ragnheiður.
Ragnheiður á fyrir 10 ára dótt-
ur, Ágústu, og býr faðir hennar
hér á Akureyri. Síðan eiga þau
Svavar þriggja ára tvíburastelpur,
Steinunni og Stefaníu. „Þetta er
Ragnheiður og Svavar ásamt dætr-
um sínum, þeim Ágústu, Stein- ^
unni og Stefaníu. Mynd: BG. ^
góður kostur fyrir elstu stelpuna
að geta verið meira með pabba
sínum og þær yngri verða sjálfsagt
ekki lengi að kynnast jafnöldr-
um,“ segir viðmælandi okkar.
-sbs.
sinnar norður, alls 31 starf. Það er
þriðjungur starfsmanna fyrirtækis-
ins. Þá mun Umbúðamiðstöðin
hf., sem er dótturfyrirtæki þeirra
hraðfrystihúsa sem skipta við SH,
flytja umbúðalager sinn til Akur-
eyrar og starfrækja þar eina til
tvær framleiðslulínur. Við það
munu starfa um 12 manns.
„Þetta er allt að slípast til og
við erum að stilla saman strengi
deilda fyrirtækisins sem nú verða
á tveimur stöðum. Um tveir þriðju
hlutar starfseminnar verða í
Reykjavík en nærri þriðjungur hér
á Ákureyri, í svonefndu Lindu-
húsi, sem margir eru nú famir að
nefna SH-húsið,“ segir Gylfi Þór
Magnússon. Hann er fram-
kvæmdastjóri markaðsdeildar
Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna
jafnframt því að veita hinni nýju
Akureyrarskrifstofu forstöðu.
Það eru ákveðnir hlutar úr öll-
um deildum rekstrar SH sem
flytjast norður. Innkaupadeild er
þar á meðal og verður stýrt frá
Akureyri, enda þótt nokkur hluti
verði eftir sem áður staðsettur í
Reykjavík. Stærstur hluti gæðaeft-
irlits er staðsettur nyrðra sem og
skoðunarstofa. Þá er útflutnings-
deild að hluta komin norður og
öllum útflutningi til Frakklands og
Bretlands verður stýrt í gegnum
Akureyri.
„Það er samgöngutækni nútím-
ans sem gerir það mögulegt að
starfsemi fyrirtækisins sé á tveim-
ur stöðum, á sitt hvoru landshorn-
inu. Þeir sem skipta við fyrirtækið
eiga á engan hátt að finna hvort sá
sem þeir leita til er staðsettur í
Reykjavík eða á Akureyri," sagði
Gylfi Þór Magnússon.
Skrifstofur SH verða á efstu
hæð Linduhússins við Hvanna-
velli. Á jarðhæð og miðhæð verð-
ur Umbúðamiðstöðin með sig og
sína. -sbs.