Dagur - 25.10.1995, Síða 6
6 - DAGUR - Miðvikudagur 25. október 1995
Drög aö nýrri lögreglusamþykkt fyrir Akureyri til
umfjöllunar í bæjarkerfinu:
Lögreglusamþykkt
er ekkí grundvallar-
plagg í starfi okkar
- segir Ólafur Ásgeirsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn
Baldur Dýrfjörð er bæjarlögmaður Akureyrar. Hann bindur vonir við að
hin nýja lögreglusamþykkt hafí öðlast gildi ekki síðar en um áramót.
Til umfjöllunar hjá bæjarstjórn
Akureyrar eru þessa dagana
drög að nýrri lögreglusamþykkt
fyrir bæinn. Sú sem í dag er gild-
andi var staðfest 1954 og er um
margt ekki í takt við daginn í
dag. Baldur Dýrfjörð bæjarlög-
maður hefur sett saman drög að
nýrri lögreglusamþykkt sem nú
er til umfjöllunar í bæjarkerfinu.
Hann segir að sjálfsagt eigi drög-
in eftir að breytast talsvert við
umfjöllun manna á meðal, en
hann bindur þó vonir við að hún
verði samþykkt öðru hvoru meg-
in við komandi áramót.
Drögin að nýju lögreglusam-
þykktinni eru mun skýrari, knapp-
ari og skorinyrtari en í gildandi
samþykkt. Efnislega eru báðar
samþykktirnar þó keimlíkar, en sú
nýja tekur þó mið af þjóðfélagsað-
stæðum dagsins í dag, en ekki
þeim sem voru gildandi fyrir nær
40 árum. Að sögn Baldurs lágu
drög að nýrri lögreglusamþykkt
Akureyrarbæjar fyrir um tíu árum.
Þá dagaði málið uppi og þykir það
miður, en þeir sem blaðið ræddi
við segja að brýnt sé að ný sam-
þykkt komist í gildi.
Almennir mannasiðir
Fjölmörg atriði lögreglusamþykkta
lúta beinlínis að því að fólk skuli
viðhafa almenna mannasiði í dag-
legri breytni sinni. Nefna má þau
ákvæði að uppþot og áflog eru
bönnuð á almannafæri; að ekkert
má aðhafast sem veldur ónæði eða
raskar næturró manna; að ganga á
vel um á almannafæri; að ekki skal
troða gróður niður eða slíta upp
blóm og ekki má raska friði fugla í
tjömum. Þetta er meðal atriða í
fyrsta kafla væntanlegrar sam-
þykktar sem fjallar um reglu, vel-
sæmi og almennt öryggi á al-
mannafæri.
Annar kafli draganna að lög-
reglusamþykktinni fjallar um góða
umgengnishætti og hreinlæti á al-
Lögreglumenn lenda í ýmsu háskalegu í starfi sínu. Hér fást þeir við einn góðborgara sem hefur lent í hálku á svell-
inu.
Ólafur Ásgeirsson er aðstoðaryfírlögregluþjónn á Akureyri. Hann segir að í
löggæslustarfi sé fremur tekið mið af landslögum en lögreglusamþykktum
hvers byggðarlags.
mannafæri. Þar segir að öllum beri
að ganga vel um og skemma ekki
hús né krota á veggi þeirra. Ekki
má troða niður ræktaða bletti og
bannað er að slíta upp blóm; rusl
má ekki frá sé fleygja á víðavangi;
og frið fugla í tjömum á Akureyri
má ekki raska. í þriðja kafla, sem
lýtur að almennum reglum um ör-
yggi á almannafæri, segir að með-
ferð vatns, svo sem við glugga-
þvott, sé óheimil nema í frostlausu
veðri og haga skuli þvottinum
Stofnlánadeild
landbúnaðarins
Stofnlánadeild landbúnaðarins hefur
eftirfarandi eignir til sölu:
Vesturberg 6, Reykjavík...................íbúö, 4. h. t.h., 4 herbergja.
Sláturhús/frystihús, Saurbæjarhreppi, Dal.Sauðfjársláturhús & frystihús.
Dýrholt, Svarfaðardalshreppi, Ey.Loðdýraskálar.
Þverá, Svarfaðardalshreppi, Ey............Jörð
Skógahlíð, Reykjahreppi, S-Þing....Jörð
Norður Skálanes I, Vopnafjarðarhreppi, N-Múl.Loðdýraskálar.
Lindarhóll, Tunguhreppi, N-Múl.....Jörð.
Réttarholt, Gnúpverjahreppi, Árn...Loðdýrajörð.
Alifuglasláturhús Árnesi, Gnúpverjahreppi, Árn.Kjúklingasláturhús, án búnaðar.
Árgil, Biskupstungnahreppi, Árn................íbúðarhús.
Stærri Bær II, Grímsneshreppi, Árn.............íbúðarhús & loðdýraskálar.
Upplýsingar um eignirnar gefa Þorfinnur Björnsson og Gunnar M. Jónasson,
sími 525 6430, fax 525 6439.
Stofnlánadeild landbúnaðarins,
Laugavegi 120,105 Reykjavík.
þannig að sem minnst óþægindi
stafi af fyrir vegfarendur. A al-
mannafæri má ekki nota skotvopn,
ganga með logandi blys eða
kveikja í bálköstum nema með
leyfi lögreglustjóra. Tilkynna skal
lögreglustjóra um fyrirhugaðar úti-
samkomur. Þá segir í 14. grein
samþykktarinnar sem er í nefndum
kafla að lögreglustjóra sé heimilt
að banna öllum óviðkomandi, sem
ekki eiga brýnt erindi í skip sem
liggja við bryggju, umferð um
borð í þau.
í þeim kafla sem fjallar um um-
ferð og ökutæki er reglugerð sem
heyrir til nokkurra nýmæla. Þar
segir að allir sem ferðist um á reið-
hjólum, hjólabrettum og hjóla-
skautum skuli nota hlífðarhjálma.
Þetta ákvæði heyrir til nýmæla hér
á landi og segir Baldur Dýrfjörð
að ánægjulegt væri ef Akureyring-
ar yrðu fyrstir bæjarfélaga á land-
inu að lögleiða notkun reið-
hjólahjálma. Fyrir slíku ætti að
vera lagastoð þegar dómsmálaráð-
herra staðfestir lögreglusamþykkt-
ina í heild sinni.
Vitnum sjaldan til
lögreglusamþykktar
í samtali við Dag sagði Ólafur Ás-
geirsson aðstoðaryfirlögreglu-
þjónn á Akureyri að í löggæslu-
starfi væri lögreglusamþykkt hvers
byggðarlags ekkert grundvallarp-
lagg, en þannig hefði verið áður.
„Við erum mikið að atast í málum;
svo sem umferðarlagabrotum og
mörgu öðru sem kemur til kasta
lögreglu og heyrir þá undir önnur
lög. I skýrslum okkar vitnum við
mjög sjaldan til lögreglusam-
þykkta,“ sagði Ólafur. Hann sagði
ennfremur að lögreglusamþykkt
Akureyrar hefði ekki verið kynnt
fyrir ungum og nýjum mönnum
sem koma í lögreglulið bæjarins.
Svo lengi hefði samþykktin verið í
endurskoðun, að með allt slíkt
hefði verið beðið. Þó væri fyrirsjá-
anlegt að efna yrði til víðtækrar
kynningar í liðinu þegar hin nýja
lögreglusamþykkt hefði verið sam-
þykkt af bæjarstjóm.
Núgildandi lögreglusamþykkt
er barn síns tíma, enda þótt mörg
ákvæði hennar gefi alla möguleika
á að halda góðu skikki í bænum.
Sum ákvæðin eiga þó alls ekki
lengur við í dag og hljóma sem
gamanmál.
Bannað að synda nakinn
við bryggjur
I 8. grein samþykktarinnar segir
meðal annars að enginn megi baða
sig eða synda nakinn við bryggur
bæjarins - eða annarsstaðar svo
nærri landi eða skipum í höfninni
að hneyksli valdi. 13. grein kveður
meðal annars á um að sölumönn-
um sé bannað að gera vart við sig
með ópum og köllum „eða'annarri
háreysti, einkum frá náttmálum til
dagmála,“ einsog þar segir. Og í
14. grein segir síðan að án leyfis
húsráðenda megi enginn láta fyrir-
berast í eigum annars manns, svo
sem á húsþökum.
I 56. grein lögreglusamþykktar
segir svo: „Naut, sem farið er með
um bæinn, skulu ávallt leidd í
bandi, þannig útbúnu að auðvelt sé
að hafa vald á nautinu og tveir
fullorðnir karlmenn fylgja hverju
nauti. Ekki má láta naut standa úti
gæzlulaust.“ Og 74. grein kveður á
um að í valdi lögreglustjóra og
undirmanna hans sé heimilt að
leysa upp sjónleiki, dansleiki, sam-
söng eða hverslags skemmtanir
sem brjóti í bága við almennt vel-
sæmi. Þá megi lögreglustjóri jafn-
framt skóða kvikmyndir sem tekn-
ar eru til sýninga og banna þær, ef
skaðlegar og siðspillandi séu. -sbs.