Dagur - 25.10.1995, Qupperneq 11
Miðvikudagur 25. október 1995 - DAGUR - 11
Hrísey:
Samvinna sveitarfélaga er
mikilvægt hagsmunamál okkar
- segir Jónas Vigfússon, sveitarstjóri
Bifvélavirki óskast
Óskum eftir að ráða bifvélavirkja sem fyrst.
Upplýsingar ekki veittar í síma.
/ \ Bifreiðaverkstæði
„Hérna í eynni voru íbúar skráðir 277 þann 1. des-
ember í fyrra. Ég hef ekki fylgst náið með þessu,
en þetta er að hlaupa til og frá eitthvað í kringum
þessa tölu. Sveiflurnar eru litlar. Þegar ein fjöl-
skylda fer héðan kemur önnur í staðinn. Það sem
hins vegar háir okkur er að hér skortir leiguhús-
næði. Töluvert er hringt og spurt um húsnæði og
til eru sjómenn sem sótt hafa verulega stíft að fá
pláss á bátum héðan. Hér er ágætt atvinnuástand,“
segir Jónas Vigfússon, sveitarstjóri í Hrísey.
Talsverðar framkvæmdir hafa ver-
ið í gangi í Hrísey að undanförnu.
Unnið hefur verið að endurbótum
við höfnina og steypt þekja á hluta
hafnarsvæðisins. Þá er jafnframt
unnið að ýmsum öðrum hafnar-
bótum, en framkvæmdir þessar
miða í heild sinni að því að þar
geti komið inun stærri skip en ver-
ið hefur til þessa. Nú eiga að geta
lagst að bryggju í Hrísey, allt að
70 metra löng skip. Ekki er til
staðar fjárveiting frá ríkisvaldinu
til þessa verkefnis - og lánar Vita-
og hafnamálaskrifstofan peninga
til framkvæmda. Á meðan bíða
aðrar umfangsmeiri framkvæmdir
í eynni.
Jónas Vigfússon segir að at-
vinnuástand í eynni sé allgott og
hann bindur jafnframt vonir við að
samstarf KEA við útgerðarfélagið
Snæfelling í Ólafsvík muni
tryggja nægt hráefni til vinnslu í
Fiskvinnslustöð KEA í eynni.
Samningar þar að lútandi hafi ver-
ið gerðir. „Við höfurn verið með
nokkuð háar meðaltekjur á hvern
íbúa,“ segir Jónas Vigfússon.
I þróun hafa verið hugmyndir
um frekara samstarf sveitarfélaga
á Eyjafjarðarsvæðinu um ýmis
málefni. Þannig segir Jónas brýnt
að almenningssamgöngur á þessu
svæði verði efldar með það fyrir
Jónas Vigfússon er sveitarstjóri í Hrísey. Hann segir fjölda feröanianna koma í eyna á hverju sumri, en þeir skilji þó
litlar tekjur eftir.
augum að það geti verið eitt at-
vinnusvæði. Að áætlunarbílar
leggi upp frá Ólafsfirði og Akur-
eyri snemma morguns og þeir
rnætist á miðri leið, á Árskógs-
sandi, og þannig geti íbúar af öllu
svæðinu sótt atvinnu til sitt hvorr-
ar áttar. Þessar rútuferðir yrðu
síðan stilltar saman við ferðir
Hríseyjarferjunnar Sævars. Þessar
hugmyndir hafa enn ekki orðið að
veruleika, en Jónas vonast til að
svo verði innan fárra ára. Þá vænt-
ir hann þess jafnframt að samstarf
sveitarfélaga náist um almanna-
vamir, barnavemdarmál, bruna-
varnir og mörg fleiri samfélags-
verkefni.
Fjöldi þeirra ferðamanna sem
heimsækir Hrísey á sumri hverju
hefur aukist stórum á síðustu
misserum. Skiptir fjöldi þessara
ferðamanna orðið þúsundum, en á
hinn bóginn skilja þeir ekki ýkja
miklar tekjur eftir sig, segir Jónas.
„Þessir ferðamenn koma hingað
og stoppa í nokkrar klukkustundir.
Þeir fara hér kannski í sund og
sumir borða á veitingahúsinu
Brekku eða á skyndibitastaðnum
Snekkjunni. Hér er gistiaðstaða í
Brekku og skólanum og tjald-
svæði er hér einnig og á því eru
fyrirhugaðar endurbætur á næsta
ári. Þá höfum við einnig verið að
ræða um að koma hér upp há-
karlaminjasafni, en þetta eru enn-
þá hugmyndir,“ sagði Jónas Vig-
fússon. -sbs.
Unnið er að hafnarbótum í Hrísey þessa dagana og er það stærsta verkefnið sem er í gangi í eynni nú. Myndir: sbs.
BSV
Sigurðar Valdimarssonar
v
j
Óseyri 5 - Sími 462 2520 - Akureyri
Sjávarfréttir
,95/,96
Handbókin Sjávarfréttir ’95/’96 er
komin út hjá Fróða hf. Bókin
kemur út í upphafi hvers físk-
veiðiárs og er send öllum áskrif-
endum vikublaðsins Fiskifrétta
endurgjaldslaust en er boðin öðr-
um til kaups.
I bókinni er að finna margvís-
legar upplýsingar sem starfsmenn
í sjávarútvegi og þjónustuaðilar í
greininni þurfa á að halda. Þar er
m.a. skrá yfir öll íslensk þilfars-
skip, sem er frábrugðin öðrum
skipaskrám að því leyti, að auk
hefðbundinna upplýsingar um
skipin er þar að finna heimilis-
föng, símanúmer, faxnúmer og
kennitölur útgerðaraðila skipanna.
Einnig er sérstök skrá yfir alla
smábáta sem hafa farsíma. Þá er
birt sundurliðuð dagskrá yfir öll
helstu fyrirtæki sem þjónusta sjáv-
arútveginn og ftarleg skrá yftr út-
flytjendur sjávarafurða og þær af-
urðir sem þeir flytja út.
Af öðru efni bókarinnar má
nefna ágrip af skýrslu Hafrann-
sóknastofnunar um ástand fiski-
stofna, upplýsingar um aflaþróun
helstu fisktegunda á íslandsmið-
um, veiðar Islendinga utan land-
helgi, veiðar útlendinga í íslenskri
lögsögu, sölu á fiskmörkuðum
heima og erlendis og fleira. Síðast
en ekki síst er svo birtur kvóti
allra fiskiskipa, skrá yfir kvóta-
hæstu sjávarútvegsfyrirtækin og
upplýsingar um hlutdeild ein-
staikra verstöðva í heildarkvótan-
um.
Skipaskrá og kvótaskrá Sjávar-
frétta eru einnig fáanlegar á tölvu-
diski.