Dagur - 25.10.1995, Page 15
IÞROTTIR
Miðvikudagur 25. október 1995 - DAGUR - 15
FROSTI EIÐSSON
Blakleik
frestað
Ekkert varð af leik KA og HK,
sem fram átti að fara í KA-
heimilinu í gærkvöld. Ekki var
flogið frá Reykjavík vegna
veðurskilyrða og leiknum var
frestað af þeim sökum. Hann
hefur verið settur á nk. þriðju-
dag klukkan 19:30.
Lárus Orri
með
Lárus Orri Sigurðsson lék all-
an leikinn með Stoke er liðið
gerði jafntefli við Derby, 1:1
um síðustu helgi og hefur Lár-
us ekki misst úr deildarleik
með liðinu. Þorvaldur Örlygs-
son var ekki í leikmannahópi
liðsins. Stoke leikur gegn efsta
liði úrvalsdeildarinnar, New-
castle, í bikarkeppninni í
kvöld. Þá sigruðu Dean Martin
og félagar í Brentford, Peter-
borough 3:0 í 2. deildinni og
lék Martin með allan leikinn.
Tímarit um
skíðaíþróttina
Nýlega kom út skíðablaðið
Skíðalíf og mun það vera í
fyrsta skipti sem tímarit er gef-
ið sérstaklega út sem fjallar
eingöngu um skíðafþróttina.
Stefnt er að því að gefa ritið út
fimm sinnum á ári og verður
það selt í smásölu og áskrift.
Meðal efnis í fyrsta tölublað-
inu er viðtal við Daníel Jak-
obsson skíðagöngumann, sagt
frá þjálfaranámskeiði sem
haldið var á Akureyri og fleira.
Blaðið er 40 síður, að mestu
prentað í lit og lausasöluverð
þess er 590 krónur.
Þórsstrákar
sigursælir í
körfubolta
Sjöundi flokkur Þórs í körfu-
knattleik sigraði í C-riðli á
fjölliðamóti, sem fram fór í
Iþróttahúsi Fjölnis í Reykjavík
fyrir stuttu. Þórsaramir sigruðu
Fjölnisstrákana 35:23, Stjöm-
una 44:17 og Tindastól 44:21
og færðust þar með upp í B-
riðlinn, en leikið verður í hon-
um 11. og 12. næsta mánaðar.
Gunnar Konráðsson var stiga-
hæstur Þórsara í keppninni
með 58 stig, Baldvin Þor-
steinsson skoraði 17 og Birgir
Þór Þrastarson 12.
Völsungur
sterkastur
Völsungur varð sigurvegari á
fyrsta fjölliðamótinu í Norður-
landsriðlinum í 3. flokki
kvenna, sem frani fór í íþrótta-
höllinni á Akureyri á laugar-
daginn. Þrjú lið tóku þátt í
mótinu, auk Völsungs, Akur-
eyrarliðin Þór og KA. Völs-
ungur og KA skildu jöfn í
fyrsta leiknum 17:17 og síðan
sigraði KA Þór 13:7. Þórs-
stúlkumar iéku síðan strax á
eftir við Völsung og virtust að-
eins hafa þrek framan af leikn-
um. Lokatölur urðu 22:10.
Völsungur og KA fengu því
þrjú stig en markatala Húsa-
víkurliðsins var sex mörkum
betri.
Handknattleikur - B-liöakeppnin:
Algengt að lið mæti ekki til leiks
Völsungur, sem keppir í B-liða-
keppninni á Islandsmótinu í
handknattleik, hefur byrjað
tímabilið vel og unnið fyrstu
fjóra leiki sína, þrátt fyrir að
hafa aðeins þurft að leika tvo
leiki í mótinu.
Völsungar sigruðu Selfoss á
heimavelli 23:17 og lögðu síðan
Aftureldingu í Mosfellsbæ, 23:21.
Síðasti leikur liðsins var síðan
gegn Víkingi á Húsavík en Vík-
ingar mættu ekki til leiks og Völs-
ungi var því dæmdur sigur, 10:0.
Það er í annað skiptið í vetur sem
að lið mæta ekki til leiks gegn
Völsungum. Valsarar mættu ekki
á eigin heimavöll gegn þeim í 1.
umferðinni en drógu lið sitt út úr
deildinni skömmu síðar.
Magnús Ingi Eggertsson, þjálf-
ari Völsungs, segist vera mjög
óhress með það hve vel lið sleppi
frá því að gefa leiki og viðurlög
eru lítil. Víkingar þurfa til að
mynda aðeins að inna af hendi
15.000 króna sektargreiðslu sem
rennur til HSÍ en það er mun
minni upphæð en liðið hefði þurft
að greiða fyrir ferðalag frá
Reykjavík til Húsavíkur. Á meðan
viðurlögin eru ekki strangari en
þetta má því búast við að lið sjái
hag sinn í að mæta ekki til leiks
og svo kann að fara að óvenju
margir leikir deildarinnar lykti
með 10:0 sigri heimaliðanna.
Næsti leikur Völsungs er í
kvöld, á Húsavík. Liðið mætir
Ögra og hefur það heyrst að liðið
muni mæta til Húsavíkur. Leikur-
inn hefst klukkan 18.
Skíði - Akureyri:
Sömu þjálfarar í
eldri aldursflokkum
„Komum með því hugar-
fari að sækja tvö stig“
- segir Viggó Sigurðsson, þjálfari Stjörnunnar, sem mætir KA í kvöld
„Þetta verður mjög erfiður leik-
ur þessi lið gefa hvort öðru ekki
neitt, það er alveg á hreinu.
Þetta er mjög mikilvægur leikur
fyrir bæði lið, ekki síst fyrir
Stjörnuna því það yrði þá þriðji
tapleikur liðsins í röð og það
yrði nokkuð með öðrum hætti
en þeir ráðgerðu veturinn. Eg á
því von á hörkuleik og við þurf-
um að leika vel til að sigra,“ seg-
ir Alfreð Gíslason, þjálfari KA,
þegar Dagur sló á þráðinn til
hans í gær.
Leikur liðanna í KA-heimilinu
hefst klukkan 20 en það er fyrsta
viðureign liðanna frá því í úrslita-
keppninni sl. vor þegar KA
tryggði sér áframhaldandi þátttöku
í úrslitakeppninni með því að
leggja Stjömuna að velli í Garða-
bænum. Leikurinn dró dilk á eftir
sér fyrir Stjömuna, áhangendur
liðsins veittust að dómurum leiks-
ins og í kjölfarið var Garðabæjar-
liðið dæmt til að leika fyrsta
heimaleik sinn í haust fyrir luktum
dyrum. Þess má geta að Stjaman
sigraði KA í báðum deildarleikj-
um liðanna sl. vetur en KA sló
Stjömuna út 2:1 í úrslitakeppn-
inni.
Stjaman byrjaði mjög vel í
haust og var í toppsætinu ásamt
KA í fyrstu umferðunum. Hlut-
skipti liðanna hefur hins vegar
verið misjafnt að undanförnu, Ak-
ureyrarliðið hefur haldið sig-
urgöngunni áfram en Stjaman hef-
ur mátt þola töp í tveimur síðustu
leikjum sínum, gegn Aftureldingu
og Haukum í spennandi viður-
eignum.
Viggó Sigurðsson, þjálfari
Stjömunnar sagði að ófarimar frá
því sl. vor mundu ekki sitja í leik-
mönnum. „Við eigum vinnings-
möguleika og komum með því
hugarfari að sækja tvö stig. Til
þess þurfum við þó að spila betur
en við höfum gert í síðustu leikj-
um okkar, það verður erfitt að ná
stigunum því KA-menn eru geysi-
sterkir og sjálfsagt með besta
heimavöll landsins í dag,“ sagði
Viggó, sem oftast hefur verið
óragur við að reyna ýmsar útfærsl-
ur í varnarleik. Það ætti ekki að
koma neinum á óvart þó hann
reyndi að finna leiðir til að stöðva
Patrek Jóhannesson og Julian
Duranona, eða „Dúndranúna“ eins
og hann er kallaður af sumum
stuðningsmönnum KA-liðsins, en
þeir hafa verið atkvæðamiklir í
síðustu leikjum liðsins. Dómarar í
kvöld verða þeir Þorlákur Kjart-
ansson og Einar Sveinsson.
Handknattleikur -1. deild karla:
Johann G. Jóhannsson, hornamaður KA, verður í eldlínunni í KA-heimilinu
í kvöld þegar KA mætir Stjörnunni. Mynd: BG
Skíðaráð Akureyrar hefur geng-
ið frá ráðningu flestra þjálfara
fyrir veturinn en þeir verða 14
eða 15 talsins í vetur. Sömu
þjálfarar eru með fullorðins-
fiokkana, 13 ára og eldri og í
fyrra, en það eru þeir Guð-
mundur Sigurjónsson og Gunn-
ar Reynisson, sem sjá um þjálf-
un í alpagreinum karla og
kvenna.
Haukur Eiríksson verður með
eldra göngufólkið og Kári Jóhann-
esson með tólf ára og yngri. Ekki
hefur verið gengið frá ráðningu á
þjálfurum í flestum yngri flokk-
anna en ljóst er að Ingólfur Gísla-
son og Gunnlaugur Magnússon
verða þjálfarar hjá 10-12 ára
krökkum í alpagreinum. Skíða-
hópar hófu þrekæfingar fyrir rúm-
um mánuði.
Ekki hefur verið gengið endan-
lega frá mótaskrá fyrir veturinn.
Andrésar andarmótið verður sem
fyrr langfjölmennasta mótið sem
Skíðarráðið stendur fyrir, þá verð-
ur Unglingameistaramót Islands
13-16 ára haldið á Hlíðarfjalli
bæði í alpagreinum og göngu. Þá
mun verða keppt í tvo daga á al-
þjóðlegu móti í Hlíðarfjalli næsta
vor en það fer einnig fram á Dal-
vík og í Reykjavík.
Evrópurleikir KA:
Leikið heima
og að heiman
Ljóst er að Evrópttleikir KA og
Kosice frá Slóvakíu í Evrópu-
keppni bikarhafa í handknatt-
leik verða leiknir sunnudagana
12. og 19. nóvember.
KA-menn reyndu að fá heima-
leikinn keyptan í KA-heimilið en
það reyndist aldrei vera neinn vilji
fyrir því hjá forráðamönnum Kos-
ice. Félagið hafði gert það einu
sinni fyrir þremur árum en það
hefði mælst illa fyrir hjá áhorfend-
um og stuðningsaðilum og því
hefði liðið ekki hug á því að leika
sama leik.
KA á heimaleikinn á undan og
ljóst er að það verður engin hóp-
ferð á síðari leikinn í Slóvakíu.
Stjómarmenn KA hafa undanfarið
verið að vinna í málinu og segir
Þorvaldur Þorvaldsson að líklega
yrði flogið með fimmtán manna
hóp með Metró- vél Flugfélags
Norðurlands til Slóvakíu með
millilendingu í Noregi. Farið yrði
föstudaginn 17. og flogið til baka
strax eftir leik.
Norsku dómaramir Abraham-
sen og Kristiansen dæma leikinn í
KA-heimilinu en það verða
pólsku dómaramir Durka og Uz-
inski sem dæma síðari leikinn í
Slóvakíu og þá verður rúmenskur
eftirlitsdómari á leiknum. Sagðist
Þorvaldur kvíða þeirri blöndu að
fá tríó frá Austur-Evrópuþjóðum
til að dæma leikinn í Slóvakíu.
—
i 1 i lÍlDDDD n a
Myndarugl
í leikmannakynningu á Þórsliðinu í
körfuknattleik í gær urðu þau leiðu
mistök að Óðinn Ásgeirsson, 16 ára
piltur hjá Þór, var sagður vera Haf-
steinn Lúðvíksson. Þá vantaði mynd
af Hafsteini í kynninguna. Hlutaðeig-
andi em beðnir velvirðingar á mistök-
unum.
Hafsteinn Lúðvíksson, 19 ára,
bakvörður/framherji, 189 sm,
78 leikir.
Óðinn Ásgeirsson, 16 ára
framherji, 192 sm, nýliði.
Afnuelisfagnaður
1995
80 ára
Sjallanum
28. okt.
Húsið opnað kl. 19.30 og borðhald
hefst stundvíslega kl. 20.30.
Þríréttaður matseðill
á aðeins kr. 2.500.