Dagur - 27.10.1995, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Föstudagur 27. október 1995
Norðurlandsskjálftar:
Stórtjón á
Húsavík á
öldum áður
„Segja má að smáskjálftar séu
óskaplega gagnlegir til að segja
okkur hvernig jarðskjálftar
verða til. Við höfum byggt upp
einskonar viðvörunarkerfi um
landið á einum 17 stöðum,
þannig að við fáum sjálfvirkt
viðvaranir ef virkni breytist á
ákveðnum stöðum. Þetta hefur
ekki mikla þýðingu ennþá,
nema í sambandi við eldgos,“
sagði Ragnar Stefánsson, jarð-
eðlisfræðingur, á fræðslufundi
um Norðurlandsskjálfta í Safna-
húsinu á Húsavík sl. laugardag.
Safnahúsið hefur haldið nokkra
fræðslufundi um málefni af marg-
víslegu tagi undanfarin misseri.
Að þessu sinni voru fyrirlesarar
jarðeðlisfræðingamir Ragnar Stef-
ánsson, frá Veðurstofu Islands og
Eysteinn Tryggvason, sem búsett-
ur er á Húsavík. Þeir svöruðu jafn-
framt fyrirspumum fundarmanna.
Fjallað var um sprungusvæði,
skjálftavirkni og hættu á stór-
skjálfta á Norðurlandi.
Húsavíkursprungan
Eysteinn rakti sögu jarðskjálfta á
Norðurlandi samkvæmt heimild-
um í annálum og samkvæmt síðari
tíma vitneskju. Hann sagði frá
misgengissprungunum sem harðir
brotaskjálftar verða á; Grímseyjar-
sprungunni sem liggur frá Kópa-
skeri til Grímseyjar og Húsavfkur-
spmngunni sem liggur um Þeista-
reyki, sunnanvert Húsavíkurfjall,
áfram til sjávar og út af Gjögurtá.
Talið er að skjálftar að styrk-
leika 7 á Richter hafi orðið á
Húsavíkurspmngunni. Eysteinn
sagði í samtali við Dag að senni-
lega yrðu svo harðir skjálftar ekki
á svæðinu nema tvisvar á hverjum
1000 ámm, en ekkert væri því til
fyrirstöðu að slíkur skjálfti gæti
komið á næstu árum eins og næstu
árhundruðum.
Spenna hleðst upp í misgengis-
spmngum og hlýtur að losna úr
læðingi fyrr eða síðar. Spennan
myndast við gliðnun jarðskorp-
unnar, annars vegar norður við
Kolbeinseyjarhrygg og hins vegar
austur við gosbeltið. Misgengis-
spmngumar liggja milli gliðnun-
arspmngnanna og jarðskorpan sitt
hvom megin þeirra er einfaldlega
að færast sitt í hvora áttina.
Fö gnum vetri með
kinum eldfjörugu
Miáalda
mönnum
frá Siglufirði
✓
ásamt Jóni Arnasyni
armom
ikuleik
ara
fjórir bæir og þrír löskuðust á
Flateyjardal. I Fljótum duttu ríð-
andi menn af baki, og þar hmndu
fjórir bæir.“
Eysteinn greindi frá heimildum
um fleiri skjálfta en stærstur
þeirra er skjálftahrina sem reið yf-
ir á nokkmm dægmm í maí 1872
og olli stórtjóni á Húsavík, þó
hvorki hlytist af slys eða mann-
skaði, sem telja má með ólíkind-
um miðað við lýsingar sjónarvotts
sem greinir frá á þessa leið í „Öld-
in sem leið“:
Menn drukknuðu
í jarðskjálfta
Það gengur ekkert lítið á þegar
brotasksjálftar ríða yfir. Eysteinn
vitnaði í „Aldimar". Þar er sagt
frá Norðurlandsskjálftanum 1755
þegar bæir hmndu og menn
dmkknuðu. Skjálftinn gerði mik-
inn usla við Skjálfanda og í út-
sveitum milli Eyjafjarðar og
Skagafjarðar. „A Tjömesi hmndu
þrettán bæir til grunna, en sjö
löskuðust. Féll kirkja og prestsetur
á Húsavík, kaupmannshúsin þar
færðust úr stað, en kaupskipi á
legunni lá við áföllum. Tveir bátar
voru á sjó þar ekki langt frá, og
dmkknuðu flestir mannanna.
Djúpar spmngur mynduðust í
grennd við Húsavík, lækir gmgg-
uðust, og víða steyptust skriður
miklar úr fjöllum.
Á Flatey á Skjálfanda hmndu
Eysteinn Tryggvason, jarðeðlisfræðingur.
Guðni Halldórsson, forstöðumaður Safnahússins.
Mæður með hálfnakin börn
„Rétt í sömu andránni laust á hús-
ið svo óttalegum jarðskjálfta, að
mér kom til hugar, að ég væri
knúður til að mölva mig út um
glugga, áður en húsið félli, því
ekki var annað sýnilegt en það
myndi á svipstundu falla til
gmnna. En af því að rykkimir
voru svo grimmúðlegir ýmist fram
og aftur eða þá á hlið, gat ég enga
stjóm á mér haft, meðan á þessum
ósköpum stóð, sem vafalaust hafa
varað í hálfa aðra mínútu. Loks
komst ég út. Varð mér þá fyrst
fyrir að líta í kringum mig, til að
vita hvort nokkuð af smábýlum
hér í kring stæði enn uppi. Sá ég
þá, að fólkið streymdi hópum
saman hingað ofan eftir með þá
sorglegu fregn, að öll hús þess
væru fallin til gmnna.
Þetta var það sviplegasta
augnablik, sem ég hef lifað, þvf
mæðumar komu með bömin á
bakinu hálfnakin, þær einnig sjálf-
ar ekki betur útbúnar. Enginn
vissi, hvert flýja skyldi, til að geta
verið óhultur um líf sitt, og nú
bættist það ofan á, að jarðskjálft-
amir voru svo miklir og tíðir með-
an fólk var að þyrpast saman, að
ekki gátu staðið á bersvæði nema
styrkustu menn.“ Fram kemur að
nær allir torfbæir féllu en timur-
hús rammskekktust og þök þeirra
rifnuðu. Það urðu 104 íbúar hús-
næðislausir og það litla sem þeir
höfðu undir höndum skemmdist
og sumt tapaðist að fullu og öllu.
Á fundinum fjallaði Ragnar
Stefánsson um jarðskjálftarann-
sóknir og taldi að í ljósi sögunnar
og með uppsetningu mælitækja og
auknum rannsóknum mætti hugs-
anlega spá fyrir um jarðskjálfta í
framtíðinni. IM
❖
Vetrardagstilkoð
Kampavínsbœtt humarsúpa
Hvítlauksristaðar lambalundir
með kartöflulcörfu °g koníakspiparsósu
„Frost og funi“
Verð aðeins kr. 2.500,-
Boráapantanir í síma 462 2200
Miáaverá á dansleik kr. 500,-