Dagur - 28.10.1995, Blaðsíða 2

Dagur - 28.10.1995, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Laugardagur 28. október 1995 FRÉTTIR íþrótta- og tómstundaráð Akur- eyrar hefur samþykkt að leggja til við bæjarstjórn Akureyrar að gerður verði rammasamningur við íþróttafélagið Þór um bygg- ingu íþróttahúss við félagsheim- ili Þórs, Hamar. Verði ramma- samningurinn undirritaður kemur þó ekki til greiðslna úr bæjarsjóði fyrr en á árinu 1998, þ.e. að lokinni þriggja ára íjár- hagsáætlun bæjarsjóðs, sem ný- lega var samþykkt. En hafa fulltrúar minnihluta bæjarstjómar Akureyrar tekið af- stöðu til þessa rammasamnings? Sigurður J. Sigurðsson, bæjarfull- trúi Sjálfstæðisflokksins, segist ekki hafa rætt þetta formlega við aðra bæjarfulltrúa Sjálfstæðis- flokksins en hann hafi fremur trú á því að tillagan verði samþykkt. „Menn verða hins vegar að átta sig á því að það er verið að lofa fjárframlagi á næsta kjörtímabili þ.e. í framhaldi af þriggja ára áætluninni. Það gæti verið á annað hundrað milljónir króna sem þama er verið að lofa“, sagði Sig- urður J. Sigurðsson. Heimir Ingimarsson, bæjarfull- trúi Alþýðubandalagsins, segir að Samþykkt íþrótta- og tómstundaráðs Akureyrar um rammasamning við Þór: Þrjár íþróttahallir ekki það brýnasta - segir Heimir Ingimarsson og ætlar að leggjast gegn tilllögu íþrótta- og tómstundaráðs samþykkt íþrótta- og tómstunda- ráðs sé ekki í neinu samræmi við þriggja ára áætlun bæjarins og það sé vafamál hvort skynsamlegt sé að binda hendur næstu bæjar- stjómar með þessum hætti en byggingarkostnaður sé allt að 150 milljónir króna að húsinu full- byggðu. Auk þess kosti yfir- byggður knattspyrnuvöllur um 500 milljónir króna en íþrótta- og tómstundaráð hefur einnig sam- þykkt að standa að stofnsamningi um hlutafélag um úrbætur fyrir knattspymumenn. „Þegar sveitarfélagið hefur til ráðstöfunar 150 milljónir á ári í allar fjárfestingar þá geta allir séð hvemig gengur að láta þá enda ná saman. Ég mun leggjast gegn þessum tillögum íþrótta- og tóm- stundaráðs þegar þær koma til af- greiðslu bæjarstjómar því ég sé enga skynsemi í þessu. Þrjár íþróttahallir á Akureyri er ekki það brýnasta sem við þurfum, en fyrir em tvær og önnur þeirra lítt notuð. Ég tel hins vegar miklu skynsamlegra að byggja yfir knattspymumennina og hef alltaf lýst því yfir að ég sé reiðubúinn að skoða raunhæfa lausn í því máli í þeirri trú að tækniframfarir vinni þar með okkur. Það verður hins vegar að vera um það sam- staða að aðeins verður byggt yfir einn völl, en ekki fyrir bæði íþróttafélögin," segir Heimir Ingimarsson. Heimir segir að þeir kapp- fyllstu verði að átta sig á stærð byggðarlagsins og getu þess til byggingar íþróttamannvirkja en engir erlendir aðilar myndu sam- þykkja að 15 þúsund manna byggðarlag eins og Akureyri þyrfti þrjár handboltahallir. GG Mikil sjávarhæð á stórstreymi í vetur Sjómælingar íslands hafa vakið athygli á mikilli sjávarhæð við stórstreymi á tímabilinu frá október 1995 fram í maímánuð 1996. Bent er á nauðsyn þess að fylgjast vel með veðri samfara stórstreymi á næstu mánuðum í þeim höfnum og á þeim stöðum sem þekktir eru fyrir flóðahættu eins og víða er við Suður- og Suðvesturland. Dagana 22. janúar og 20. febrúar á næsta ári er áætlað að flóðhæð fari 0,2 metra yfir meðal- stórstreymi á Siglufirði og Djúpa- vogi, 0,4 metra á ísafirði og 0,6 I, Frítt í Ijós ■ UKAMSRÆKTIN HAMRI Nú er komið aö því að koma sér í form fyrir jólin. Ótrúlegt afmælistilboð: Heill mánuður í eróbikk og 10 tíma Ijósakort fylgir með á aðeins kr. 2.900,- Tveggja mánaða kort á kr. 5.600,- 10 tíma Ijósakort fylgir meö. Kl. Mánud. Þriöjud. Miðvikud. Fimmtud. Föstud. Laugard. 12-13 Blandaður timi Pallahr. 3 17.15-18.15 M.r&l M.rSI M.r&l 18.15-19.15 Pallapuð 2 Pallapuð 3 Blandaður tími Vaxtm.erob. 2 Pallapuð 3 Blandaður tími Pallahringur 2 19.15-28.15 — Pallapuð 1 Vaxtm.erob 1 — Pallahringur 1 Afmœlistilboð í tilefni af 80 ára afmæli Þórs 1. mán. í eróbikk 3x í viku og 10 tíma Ijósakort frítt kr. 2.900,- 2. mán. í eróbikk 3x í viku og 10 tíma Ijósakort frítt kr. 5.600,- Lokaðir kvennatímar! Blandaður tími Nýtt námskeið hefst mánudaginn 30. október Vatnsgufubað, nuddpottur og frábærir Ijósabekkir. Mánaöarkort í tækjasalinn aðeins kr. 2.400,- ótakmörkuð mæting Opiö frá kl. 9-23 virka daga, til kl. 1B um helgar Ath! Munid ódýru morguntímana í Ijósabekkina, aðeins kr. 270,- frá kl. 9-14. Skráning og allar upplýsingar f Hamri, sími 46*1 2080. Tilboöiö gildir til 31.12 1995. VISA Greiðslukjör við allra hæfi metra í Reykjavík. Meðalloft- þrýstingur við yfirborð sjávar er nálægt 1013 millibörum og frávik frá meðalloftþrýstingi kemur fram í flóðhæð til aukningar við lægri loftþrýsting og öfugt. Nota má þá þumalputtareglu að l millibar breyti flóðhæð um l cm en jafn- framt geta langvarandi hafáttir aukið flóðhæð. Stórstreymt er þessa dagana í sex daga samfleytt sem er óvenju langt því venjulega varir það í 2 til 3 daga. Hæst varð yfirborð sjávar um hádegisbilið á Siglufirði í fyrradag og þá var helst hætta á að flæddi inn með öldubrjótnum og inn í Hvanneyrarkrókinn. Þar eru nokkur verksmiðjuhús en lengra í íbúðarhús. Töluverð hreyfing var í höfninni á Siglufirði en ekkert tjón og samkæmt öldumælisdufli, sem staðsett er við Grímsey, var ölduhæðin síðdegis á miðvikudag 4,4 metrar en var orðinn 12,5 metrar á fimmtudagsmorgun, en þá voru 4 vindstig af norðaustri við Grímsey. Þegar ölduhæð er slík í norðaustanátt og stórstreymt gæti flætt á Siglufirði. Hlaðnir voru á miðvikudag snjóvamar- garðar til að draga úr áhrifum hugsanlegs tjóns ef sjó flæddi þegar hann stæði hæst. Ekkert tjón varð hvort sem vamargörðum má þar þakka að einhverju leyti. GG Ekkert tilboð í eignir þrotabús Hótels Vertshúss Ekkert tilboð barst í Hótel Vertshús á Hvammstanga en hótelið var auglýst nýverið tii sölu af skiptastjóra þrotabús- ins, Ágústi Sindra Karlssyni hdl. og skyldu tilboð berast fyrir 22. október sl. Hótelið var í septembermánuði lýst gjaldþrota af Héraðsdómi Norðurlands vestra og er kröfulýsingarfrestur í þrota- búið tii 4. desember nk. Skiptastjóri segir að nokkrir aðilar. mestmegnis aðilar Hvammstanga. hafi sýnt hótel- inu áhuga en ekkert kauptilboð hafi borist. Heimamenn hafa áhuga á því að leigja hótelið en ekki hefur verið tekin afstaða tii þess. „Ég á frekar von á því nú að stærsti veðhafinn, Sparisjóður Vestur-Húnavatnssýslu, ieysi hótelið til sín. Veðkröfur nema um 13 milljónum króna en aðr- ar kröfur geta numið um fjórum milljónum króna. Hótelið er ekki í neinum rekstri sem marg- ir heimamanna telja rnjög baga- legt, þeir sakni þess úr bæjarlíf- inu að geta ekki átl þess kost að fara á barinn eða kaupa sér mál- tíð. Aðkomumenn á Hvamms- tanga eiga því engra kosta völ hvað varðar gistingu, fæði eða drykk um þessar mundir.“ GG Skagafjörður: Snjóflóð féll við Smiðsgerði Stórt snjóflóð féll á hiöðu við bæinn Smiðsgerði í Hólahreppi í Skagafirði í norðan áhlaupinu í vikunni og olli þar verulegum skemmdum. Þá lentu hross frá Sleitustöðum í flóðinu. Jón Ámi Friðjónsson, bóndi í Smiðsgerði, sagði að flóðið hefði komið úr hlíð þeirri fyrir ofan bæ- inn sem gjaman er nefnd Hnjúkar. Á þessum slóðum hefðu minni snjóflóð eða spýjur oftsinnis fall- ið, en ekkert á borð við þetta nú. Jón Ámi segir talsverðar skemmd- ir hafa orðið á hlöðunni í Smiðs- gerði, en ekki á öðru. íbúðarhús og fólk þar var aldrei í hættu. I fyrradag var leitað að hross- um frá Sleitustöðum. Nokkur höfðu fundist lifandi, nokkur dauð og annarra var enn leitað. -sbs.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.