Dagur


Dagur - 28.10.1995, Qupperneq 5

Dagur - 28.10.1995, Qupperneq 5
Laugardagur 28. október 1995 - DAGUR - 5 ◄ Vegg- spjald sem vakti mikla umræðu. Ófbeldi í Deiglunni Myndlistagagnrýnendurnir Þorsteinn (t.v.) og Kristján. Mitt í friðsæld Akureyrar- bæjar fer nú fram um- ræða um eitt stærsta vandamál samfélags okk- ar en Gilfélagið hefur sett upp sýningu í Deiglunni með veggspjöldum sem öll íjalla um þá ógnun sem stafa af ofbeldi. Sýn- ingin stendur til 5. nóv- ember en myndirnar eru afurð framtaks Félags ís- lenskra teiknara sem, að áskorun karlanefndar Jafnréttisráðs í Reykja- vík, efndu til samkeppni í tengslum við átakið Karl- ar gegn ofbeldi. Sýningin hér á Akureyri er fram- hald af þemakvöldi sem haldið var fyrr í þessum mánuði á vegum jafnrétt- isnefndar Akureyrarbæjar og þótti heppnast vel. Umræður sem hófust þar hafa því fengið nýjan hljómgrunn. Framkvæmdastjóri Deiglunnar, Ragnheiður Ólafsdóttir, er frum- kvöðull þess að sýningin var sett upp hér á Akureyri. Hún telur þetta mjög þarft framtak og vill leggja sitt af mörkum til að stuðla að því að tekið verði á ofbeldis- málum í þjóðfélaginu. Þetta er mál sem varðar alltof marga Is- lendinga, bæði böm og fullorðna. Ef vandinn er gerður sýnilegur em meiri líkur á því að hægt sé að leysa hann. Það má segja að þetta sé framlag Gilfélagsins í þá átt. Ragnheiður á von á að sýningin verði vel sótt þar sem Akureyring- ar em iðnir við að sækja sýningar sem settar eru upp í bænum. Hún er ánægð með myndimar og segir þær vel til þess fallnar að vekja upp umræðu. Hún telur verðlauna- myndina, sem sýnir konu og bam í búri og dýrsleg augu í bakgrunni, túlka á áhrifaríkan hátt tilfinningar þeirra sem búa við stöðuga ógn. Ragnheiði finnst aðrar myndir sýningarinnar þó ekki síður at- hyglisverðar og bendir sérstaklega á mynd af Jesú á krossinum og stórum naglbíti. Hana má túlka sem hvatningu til karlmanna þess efnis að leysa kynbræður sína úr þeirri ánauð sem ofbeldi er fyrir þá sjálfa. Hvað er karlmennska? I samræmi við þema átaksins Karlar gegn ofbeldi er vel við hæfi að fá skoðun karlmanna á sýningunni. Þeir Kristján M. Magnússon, sálfræðingur, og Þor- steinn Sigurðsson, fulltrúi í jafn- réttisnefnd, eru meðal þeirra sem stóðu að þemakvöldinu á Akur- eyri og þeir tóku vel í þá hugmynd að segja álit sitt á þeirri mynd sem dregin er upp af ofbeldi á sýning- unni. Þessi óvenjulega myndlistar- gagnrýni leiddi ýmislegt skemmti- legt í ljós. Kristján segir sýninguna vera mikilvægt framlag til átaksins og góða leið til þess að breyta viðtek- inni skilgreiningu á karlmennsku. í hugum margra felist karl- mennska í því að berja aðra. Margar myndanna taka á þessarri hugmynd og gefa í skyn að sönn karlmennska felist fremur í and- legum styrk en líkamlegu afli. Þorsteinn bendir sérstaklega á mynd af manni sem á dýrslegan hátt æpir af öllum kröftum og ber sér á brjóst. Yfirskriftin er Þér er gefið vit - ekki berja það frá þér! Hann segir veggspjaldið höfða mjög til sín vegna þess að það sýni að mesti veikleiki mannsins geti einmitt birst sem bakhliðin á hans mesta styrkleika. Þannig eru líkamlegir burðir karlmannsins ekki aðeins styrkur hans heldur einnig baggi því hann á oft erfitt með að beisla þá krafta sem í hon- um búa. Veggspjald sem sýnir einstakling sem er karlmaður að ofan en kona að neðan lýsir einnig tilfinningu margra ofbeldismanna sem eru hræddir við það að vera ekki alvöru karlmenn ef þeir lemja ekki frá sér. Þorsteinn telur sýninguna þó bera þess vott hversu stutt á veg þessi umræða er komin þar sem fáar hugmyndir virðast vera fyrir myndlistarmennina til að vinna úr. Hann telur einnig að sumar mynd- anna fari of langt út á þá braut að stimpla alla karlmenn sem ofbeld- ismenn. Ein sláandi mynd sýnir t.d. blóði drifið andlit konu undir yfirskriftinni smánarblettur sterk- ara kynsins. Kristján vill þó benda á að sú mynd taki á áhrifamikinn hátt á samviskubitinu sem óneit- anlega fylgi í kjölfar ofbeldis- verka. Þorsteinn og Kristján eru sam- mála um að veggspjald sem sýnir steytta hnefa karlmanns og bams sé afskaplega sterkt. Við hnefa karlmannsins stendur Þekkirþú þennan? en hjá bamshnefanum er skrifað Þetta er sonur hans. Þetta er eina myndin á sýningunni sem fjallar beint um keðjuverkun of- beldis. Hún sýnir glögglega að of- beldi leiðir til ofbeldis. Veggspjald sem sýnir karl- mannshendur handleika brotið egg hefur einnig mikilvæg skilaboð fram að færa. Kristjáni finnst at- hyglisvert hvernig sú mynd sýnir að ofbeldið eyðileggur það sem manninum er kærast. Eggið er gott tákn fyrir dýrmæta eign sem er afar brothætt og vandmeðfarin, eins og t.d. ástin. Þorsteinn bendir einnig á að þó ofbeldismaður hætti að berja þá haldi hann oft á tjðum áfram að eyðileggja. Ástandið á heimilinu batnar ekki þó ofbeldið hætti ef hjón ráðast Höfundur: Inga Sigrún Þórarinsdóttir er einn nemenda í hagnýtri fjöl- miðslun viS Hóskóía Islands. Hún er 25 óra og lauk BA- prófi fró ensKudeild HÍ síSastliðiS vor. ekki að vandanum sjálfum, sam- skiptaháttum sínum. Karlmaðurinn er líka fórnarlamb Aðstandendur átaksins Karlar gegn ofbeldi hafa lagt áherslu á að nauðsynlegt sé að fjalla um afleið- ingar ofbeldis fyrir karlmennina sjálfa. Umræðan hingað til hefur verið einskorðuð við konuna og hlutverk hennar sem fómarlamb. Veggspjaldasýningin er þó ekki fullkomlega samkvæm þessari stefnu og boðskapur sumra þeirra örlítið ofnotaður. Fyrir vikið em ekki allar myndimar jafn áhrifa- ríkar og mynd sem sýnir bólgið andlit konu undir yfirskriftinni Sýnir konan þín þitt rétta andlit, á ef til vill ekki heima á þessarri sýningu. Kristján sagðist sjálfur hafa kosið á þemakvöldinu að fjalla um karlinn og reyna að skilja orsakir þess að karlar beiti ofbeldi. Þó það komi illa við marga verðum við að viðurkenna að konur eru einnig gerendur í því samspili sem leiðir til ofbeldis, segja þeir Kristján og Þorsteinn. Andlegt ofbeldi og áreiti getur haft áhrif á framgang mála, hvort sem er af konunnar hálfu eða mannsins. Oft er ofbeldi viðleitni karla til þess að ná yfir- burðum í baráttu þar sem þeir verða undir ef þeirra eina vopn er tungumálið, segir Kristján. Þetta veitir þó aldrei geranda ofbeldis afsökun fyrir verknaði sínum. Of- beldi er alltaf óhæfa en við verð- um þó að reyna að skilja það sam- spil sem býr að baki. Það vill oft gleymast.“ Á einu veggspjaldanna myndar textinn hakakross og líkir þannig ofbeldi við fasisma. Slík skilaboð em vafasöm, segir Krist- ján. Þau taka ekki tillit til þess samspils tveggja aðila sem leiðir til ofbeldis né gera ráð fyrir því að ofbeldismaður geti einnig verið fómarlamb. Kristjáni finnst verð- launaveggspjaldið einnig misvís- andi. Það er ekki aðeins konan og bamið sem eru fangar í þessu búri sem heitir ofbeldi. Karlinn er einnig fangi í ofbeldisvítahringn- um. Þetta er aðeins áframhald á því þema sem gerir ráð fyrir því að karlmaðurinn sé eini ógnvald- urinn. Jesúmyndin fyrmefnda sýn- ir hins vegar á skemmtilegan hátt karlmanninn sem fómarlamb. Krossfesting Krists er táknræn mynd fyrir þann dóm sem ofbeld- ismaður hlýtur þegar hann festist inn í samskiptavítahring ofbeldis, segir Kristján. Kristján og Þorsteinn eru sam- ntála um að sýningin sé áhugaverð og gott framhald af þemakvöldinu í Deiglunni. Þeir hafa fengið mikil viðbrögð við átakinu á Akureyri og eru ánægðir með þá umfjöllun sem málefnið hefur fengið. Um- ræðan er þó ekki á enda komin og vonandi er þetta aðeins byrjunin á átaki Akureyringa gegn ofbeldis- vágestinum.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.