Dagur - 28.10.1995, Síða 9
Laugardagur 28. október 1995 - DAGUR - 9
Szymon Kuran hefur verið annar
konsertmeistari Sinfóníuhljómsveit-
ar Islands síðan 1984. Akureyring-
um gefst nú kostur á að sjá Szymon
í öðru hlutverki því hann er einn
meðlima Kuran Swing kvartettsins
sem verður með djasstónleika í
Safnaðarheimili Akureyrarkirkju á
morgun.
Mynd: BG
Á morgun klukkan 17:00
heldur Kuran Swing
kvartettinn djasstónleika
í Safnaðarheimili Akur-
eyrarkirkju. Kvartettinn
skipa þeir Björn Thor-
oddsen, Ólafur Þórðar-
son, Bjarni Sveinbjörns-
son og Szymon Kuran. Sá
síðastnefndi er pólskur að
uppruna en hefur búið á
íslandi í rúman áratug og
er íslenskur ríkisborgari.
*
I djassmum er
maóur frjálsari
- segir Szymon Kuran, einn meðlima í kvartettinum Kuran Swing
í tilefni tónleikanna hitti blaða-
maður Dags Szymon Kuran að
máli og spjallaði lítillega við hann
um tónleikana og hann sjálfan.
Szymon spilar á fiðlu og er annar
konsertmeistari Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands. Hann hefur einnig
fengist við tónsmíðar og hafa verk
hans m.a. verið flutt af Sinfóníu-
hljómsveitinni.
Szymon segir tónlistina aðal
ástæðu þess að hann kom til ís-
lands á sínum tíma. „Ég fór frá
Póllandi til London í tónlistamám.
Að námi loknu varð ég að fara frá
Bretlandi þar sem ekki var hægt
að semja um að fá að vera þar
lengur. Ég var ungur, bar ekki
ábyrgð á fjölskyldu og langaði
ekkert sérstaklega að fara aftur til
Póllands. Á þessum tíma var erfitt
að komast þaðan og þar sem mér
hafði tekist að komast í burtu vildi
ég njóta þess. Ég var að leita mér
að vinnu út um allt og maður sem
hjálpaði mér á sínum tíma að
komast til Bretlands fann auglýs-
ingu frá Sinfóníuhljómsveitinni á
íslandi. Ég svaraði auglýsingunni
og var valinn annar konsertmeist-
ari og hef verið í þeirri stöðu síð-
an.“
Var valinn
borgarlistamaður
Fyrir ári síðan var Szymon valinn
borgarlistamaður af Reykjavíkur-
borg. Ekki er hægt að sækja um
að vera borgarlistamaður heldur
eru þeir valdir af sérstakri nefnd
og er Szymon mjög stoltur af
þessari útnefningu. „Mér var sagt
að ég væri sá fyrsti sem væri val-
inn sem er af erlendum uppruna
þannig að þetta var mikill heiður.“
Þó Szymon sé orðinn íslenskur
ríkisborgari er Pólland áfram
landið hans. „Ég hálfskammast
mín fyrir hve sjaldan ég hef farið
til Póllands á undanfömum árum,
aðeins þrisvar á síðustu tólf árum.
Fyrst gat ég það ekki vegna þess
hvemig kerfið var á þeim árum.
Þegar jámtjaldið féll og mögulegt
var að fara þangað var ég orðinn
fjölskyldumaður og erfiðara um
vik að ferðast,“ segir hann, en
Szymon var giftur íslenskri konu
um nokkurra ára skeið.
Fyrir þremur ámm fór hann til
Póllands og heimsótti þá m.a.
þorpið sem hann aldist upp í.
„Þetta er pínulítið þorp fyrir utan
Varsjá og heitir Szeligi. Flestir eru
famir þaðan núna. Þeir gömlu eru
dánir og hinir ungu eru famir ann-
að. Það var sorglegt að sjá hve allt
var yfirgefið.“
Draumur að læra á saxafón
í Sinfóníuhljómsveitinni spilar
Szymon fyrst og fremst klassíska
tónlist en tónleikamir á morgun
em djasstónleikar. „Ég er mikill
áhugamaður um djass. Þetta er
gjörólíkt tónlistinni í Sinfóníu-
hljómsveitinni því í djassinum er
maður frjálsari og getur leikið sér
meira. Þegar spilað er með hljóm-
sveit þarf hins vegar að gera eins
og hljómsveitarstjórinn segir og
spila eftir nótunum, rétt eins og
leikarar verða að fylgja textanum í
leikritum.“
Á efnisskrá tónleikanna eru
m.a. lög af geilsaplötu sem kvart-
ettinn undirbýr um þessar mundir
og að sögn Szymons er efnið að
mestu leyti fmmsamið. Allir séu
þeir félagar duglegir að semja en
þeir Bjöm og Ólafur fari þar þó
fremstir í flokki.
Meðlimir í Kuran Swing hafa
spilað saman af og til í nokkur ár
og spiluðu m.a. á Akureyri sumar-
ið 94. Szymon segir að kvartettinn
komi ekki mjög oft saman en
leggi frekar áherslu á að spila vel í
þau skipti sem þeir hittist. Fjór-
menningunum gangi vel að vinna
saman og svo framarlega sem þeir
hafi gaman af þessu sjálfir sé til-
ganginum náð. Bjöm og Ólafur
spila báðir á gítar, Bjami á kontra-
bassa og stundum á klassískan
bassagítar en Szymon spilar á
fiðlu. I huga margra er djasstónlist
og saxafónn tengd órjúfanlegum
böndum og Szymon hefur átt sér
þann draum lengi að læra á saxa-
fón. „Ég hef lofað sjálfum mér að
ef hljómsveitin gengur lengi tek
ég einhvem tímann nokkrar lag-
línur á saxafón. Mér þykir vænt
um saxafón og finnst hann flott
hljóðfæri."
Szymon segir mest gaman á
djasstónleikum þegar margir mæta
og vonast eftir sem flestum á tón-
leikana. Ólafur, sem þekktastur er
fyrir að vera einn þriðji hluti Ríó
Tríósins, sé snillingur í að tala og
kynna og nái alltaf góðu sambandi
við hlustendur og því engin hætta
á að neinum leiðist. AI
Njtt fólk er tekid við rekstri Flatkökugerðarinnar á Akureyri:
Ur búskap í bakstur
Fyrir um mánuði síðan tók nýtt
fólk við rékstri Flatkökugerðar-
innar, sem er Iítið bílskúrsfyrir-
tæki á Akureyri. Kristján H.
Theódórsson og Brynja Þor-
steinsdóttir, sem bjuggu á Brún-
um í Eyjafirði, brugðu nýlega
búi og hafa nú tekið við fram-
leiðslunni, sem er í bílskúrnum í
húsi þeirra að Beykilundi 2 á
Akureyri.
„Það var fyrir um ári síðan að
við ákváðum að hætta í búskap og
snúa okkur að öðru. Við keyptum
þetta hús hér við Beykilund og
síðan kom jafnframt til að við
gætum keypt þessa framleiðslu í
bílskúmum. Þetta fyrirtæki, Flat-
kökugerðin, hafði í þrettán ár, eða
alveg frá upphafi, verið í eigu Óla
Ólafssonar, sem ákvað að snúa sér
að öðru. Inn í þetta gengum við
um leið og við fluttum hingað. Jú,
auðvitað var strembið að fara
beint í þetta án þess að hafa neina
reynslu í þessum verkum. Vinnu-
dagur okkar hefur verið oft um 20
klukkutímar á sólarhring. Höfum
oft byrjað kl. fimm á morgnana og
unnið fram á kvöld. En ég vona að
sá tími styttist eitthvað þegar við
höfum náð fullum vinnuhraða og
erum komin vel inn í þetta,“ sagði
Kristján í samtali við Dag.
Brynja tók í sama streng, en
hún hefur í tæp ár starfað sem
stöðumælavörður hjá Akureyrar-
bæ. Nú hellir hún sér hins vegar af
fullum krafti í baksturinn. Hún
segist telja sér til tekna í þessu
sambandi að hafa fyrir margt
löngu verið einn vetur við Hús-
mæðraskólann á ísafirði. Þar hafi
hún numið margt, sem korni að
góðum notum nú.
Hjá Flatkökugerðinni eru fram-
leiddar margar tegundir af bakk-
elsi. Þar má nefna flatkökur, soð-
iðbrauð, kleinur og kanelsnúða
auk fjögurra tegunda af formkök-
um. Framleiðslan er seld í versl-
unum víða á Norðurlandi. „Mér
finnst helsta breytingin á störfun-
um vera sú að maður ber ekki
lengur ábyrgð á lifandi skepnum.
Hvað afkomuna varðar á maður
eftir að sjá hvemig það dæmi
Mikið hefur verið að gera að undanförnu í bakstrinum hjá þeim Brynju og
Kristjáni, sem hér sjást á inyndinni. Mynd: -sbs.
kemur út,“ sagði Kristján. Þess
má geta að hann var frá árinu
1982 og allt til í haust hreppstjóri í
sinni heimasveit. Fyrst í Önguls-
staðahreppi og frá 1991 í Eyja-
fjarðarsveit. -sbs.