Dagur - 28.10.1995, Síða 15
UTAN LAND5TEINANNA
Laugardagur 28. október 1995 - DAGUR - 15
ELSA JÓHANNSDÓTTIR
Vínkonur með
mjólkurskegg
Eru þessar tvær ekki eitthvað
kunnuglegar? Jú, þær munu vera í
þáttunum „Friends“, sem Stöð 2
sýnir nú á laugardagskvöldum við
miklar vinsældir. Nýlega var þessi
þáttur valinn besti sjónvarpsþátt-
urinn í Bandaríkjunum ásamt öðr-
um þáttum sem allir eru eða hafa
verið til sýninga hér á landi,
Bráðavaktin (,,ER“), Ráðgátur
(,,X-files“), Lífið kallar („My so-
called life“) og Seinfeld. En nóg
um það, hér gefur að líta þær vin-
konumar Phoebe og Rachel, eins
og þær heita í þáttunum, en þær
tóku sig til og auglýstu mjólk með
þessum árangri...
Só eRirsótlosli
í Hellvuieed
^ Leikarinn Antonio Banderas myndi örugglega ekki græða
^ neitt minna á módelstörfum en kvikmyndaleik, eins og gef-
ur að sjá. Hann þykir einn sá kynþokkafyllsti sem spígsporar
um götur Hollywood og virðist vera jafnmikill vinur mynda-
vélarinnar og Marilyn Monroe var á sínum tíma. Nú bíðum við
bara í ofvæni eftir að hann fari að auglýsa léttan fatnað, eins
og t.d. sundskýlur eða bara pungbindi fyrir eitt af þessum am-
erísku fótboltaliðum...
Ulesley meðol
skroutfuglo
Töffarinn Wesley Snipes og leik- munum eftir úr myndinni Another
konan Rosie O’Donnell, sem við Stakeout, voru viðstödd frumsýn-
ingu myndarinnar „To Wong Foo,
Thanks for Everything, Julie
Newmar“ í New York, en í þeirri
mynd brá Snipes sér í kjól og
hælaskó ásamt stífmáluðum félaga
sínum Patrick Swayse. Hér hrósar
einn sýningargesta Wesley fyrir
góðan og sannfærandi leik og ann-
ar aðdáandi myndarinnar, fyrir-
sætan og söngvarinn RuPaul (sem
nú er líkamlega orðinn kona), lét
þau orð falla að „undir öllu meik-
inu og málningunni erum við samt
manneskjur". Myndin fjallar um
það að þykja vænt um náungann.
RuPaul varð m.a. þekkt(ur) fyr-
ir það að vera valin(n)til að aug-
lýsa frægar snyrtivörur, auk þess
að vera ekkert svo ómyndar-
leg(ur)...
Aðalsportið í Hollywood virðist
vera að eiga veitingastað í Planet
Hollywood-keðjunni og á dögun-
um var sá 28. opnaður með pompi
og pragt. Á meðfylgjandi mynd
eru stofnendur keðjunnar, félag-
amir Amold Schwarzenegger og
Sylvester Stallone ásamt hjónun-
um Bruce Willis og Deini Moore,
á. sjálfu opnunarkvöldinu. í öllu
fjörinu hafa greinilega komið
nokkrir rólegir punktar inn á milli
og þá hefur gefist gullið tækifæri
fyrir vöðvabúntið og þokkagyðj-
una að setjast niður, hvíla lúin
bein og bora svolítið í nefið...