Dagur - 31.10.1995, Blaðsíða 1
STUTT-
FRAKKAR
kr. 15.900,-
HERRADEILD
Gránufélagsgötu 4
Akureyri • Sími 462 3599
Aldin hf. á Húsavík:
Fyrirtæki um trjá-
iðnað stofnað
Aldin hf. heitir hlutafélag um
trjáiðnað, sem starfrækja
mun þurrkun og sögun á góðviði
til markaðssetningar hér á landi
og erlendis. Hlutafélagið var
stofnað á Húsavík sl. föstudag.
Eigendur þess eru Kaupfélag
Þingeyinga, Kaupfélag Eyfírð-
inga, JxK hf., Reykjavík, Rekst-
ur og Ráðgjöf hf., Reykjavík,
Norðurvík hf., Húsavík, og Stef-
án Óskarsson, Rein, Reykja-
hverfi.
„Þetta verkefni er í eðli sínu
áhugavert og virðist arðvænlegt
og því ákváðum við að standa að
stofnun þessa fyrirtækis," sagði
Þorgeir B. Hlöðversson, stjómar-
formaður Aldins og kaupfélags-
stjóri KÞ. Kaupfélagið hefur þegar
keypt húsnæði á Höfða af Iðnlána-
sjóði, en þar var Trésmiðjan Fjalar
áður til húsa. Stefán Jónsson hjá
Atvinnuþróunarfélagi Þingeyinga
hefur unnið með stofnendum fé-
lagsins að undirbúningi stofnunar
tráiðnaðarfyrirtækisins.
Gmnnur fyrirtækisins er áætlun
um notkun ódýrrar orku úr hita-
veituvatni til þurrkunar á góðvið.
Markaðssetja á viðinn bæði hér-
lendis og í Evrópu, en heimsvið-
skipti með harðvið eru mjög mik-
il, ekki síst til Evrópu, þar sem
fyrirsjáanlegur er skortur á harð-
viði um nána framtíð. Við skoðun
málsins var ákveðið að flytja hrá-
efnið inn óunnið og vinna hér-
lendis. Sögun og þurrkun trjáviðar
er talinn mjög umhverfisvænn
iðnaður.
Stofnsetning fyrirtækisins
byggir á samstarfi við aðila í þess-
um iðnaði í norðaustur fylkjum
Bandaríkjanna, en þar er rótgróinn
þekking og raunar menning í nytj-
un skóga og úrvinnslu trjáviðar.
Fyrirtækið hyggur þannig á sam-
starf við aðila, sem leggja mikla
áherslu á umhverfisvæna nýtingu
skóga og er endumýjun skóga
meiri en nýting á þessum svæðum
í dag, að sögn Þorgeirs.
„Stofnun fyrirtækis sem þessa
krefst mikils innflutnings á þekk-
ingu og nýjum venjum í nýtingu
trjáviðar. Sú aukna þekking sem
því fylgir er mikilvægur jarðvegur
fyrir framþróun í þessari grein
hérlendis og ekki síður mikilvæg
Fjalarshúsið, þar sem starfsemi hins nýja hlutafélags verður til húsa.
forsenda fyrir nýtingu innlendra
nytjaskóga í framtíð.
Þetta fyrirtæki gefur einnig
nýja möguleika á nýtingu rekavið-
ar sem hlunninda, en þeir mögu-
leikar hafa verið mjög til skoðun-
ar undanfarið,“ sagði Þorgeir.
Ásamt honum voru kjörnir í stjóm
Aldins hf þeir: Karl Ásmundsson,
JxK hf„ varaformaður og Sig-
Mynd: IM
mundur Ófeigsson, KEA, ritari.
Ákveðið er að hefja undirbún-
ingsframkvæmdir að starfrækslu
fyrirtækisins strax á næstu vikum.
IM
Tjón RARIK á Noröurlandi:
Metið á um 250 milljónir
Tjón Rafmagnsveitna ríkisins
á Norðurlandi vegna óveð-
ursins sem reið yfir landið í síð-
80 ára afmælisfagnaður íþróttafélagsins Þórs:
Hálf milljón gef-
in í byggingu
íþróttahúss
Fagnaður í tilefni af áttræðis-
afmæli íþróttafélagsins Þórs
var haldinn í Sjallanum á Akur-
eyri sl. laugardagskvöld. Hús-
fyllir var eins og við mátti búast
og stemmning með miklum
ágætum.
Amar Einarsson, skólastjóri
Húnavallaskóla, stjómaði sam-
komunni af miklum skörungsskap
og þá var einnig frumflutt nýtt lag
eftir hann, sannkallað Þórslag.
Eins og venja er á slíkum sam-
komum var talsvert um heiðranir
félagsmanna og ræður voru flutt-
ar. Félaginu bárust góðar gjafir og
sýnu stærstar voru þær sem tengd-
ust byggingu íþróttahúss við fé-
lagsheimilið Hamar, en það er
einmitt helsta baráttumál félagsins
um þessar mundir.
Fyrsta gjöfin tengd íþróttahús-
inu kom frá KA. Sigmundur Þór-
isson, formaður félagsins, sagist
vel skilja mikilvægi þess að Þór
fengi íþróttahús við Hamar, því
hann sæi sjálfur hvaða þýðingu
slíkt hús hefði fyrir sitt félag. Til
þess að taka fyrstu skóflustungu
að íþróttahúsi færði hann Þór að
gjöf forláta stunguspaða og hlaut
fyrir mikið lófaklapp.
Þórarinn B. Jónsson, bæjarfull-
trúi og umboðsmaður Sjóvá-Al-
mennra á Akureyri, kom einnig
færandi hendi. Gjöfin var í formi
bankabókar með 100 þúsund
króna innistæðu frá Sjóvá-Al-
mennum sem Þóarinn skoraði á
menn að bæta við. Þá kom í pontu
Atli Viðar Jóhannesson, „eða Atli
rída,“ kunnur Þórsari búsettur á
Sigmundur Þórisson, formaður KA, færði Þór stunguspaða til að taka fyrstu
skóflustungu fyrir íþróttahús félagsins við Hamar og þáði Aðalsteinn Sigur-
geirsson, formaður Þórs, gjöfina með þökkum. Mynd: Haildór.
Eskifirði. Hann sagðist ekki geta
verið minni maður en Sjóva-Al-
mennar og lofaði sömu upphæð.
Nokkru síðar tók til máls sr. Pétur
Þórarinsson í Laufási, liðsmaður í
B-liði Þórs, sem gert hefur garðinn
frægan á hinum landsfrægu Polla-
mótum félagsins. Pétur tilkynnti
að B-liðið ætlaði að leggja fram
300 þúsund krónur til byggingar
íþróttahúss og því hálf milljón
komin á skammri stundu.
Nánar verður sagt frá afmæli
Þórs á morgun. HA
ustu viku er metið á um 250
milljónir króna. Díselstöðvar eru
ennþá keyrðar í Kelduhverfi og
á Þórshöfn en vonir standa til að
hægt verði að leysa þær af í lok
þessarar viku.
Tryggvi Þór Haraldsson, um-
dæmisstjóri RARIK á Norðurlandi
eystra, segir að verið sé að meta
tjón Rafmagnsveitnanna á Norð-
urlandi og það nemi nær 250
milljónum króna. Tryggvi Þór
segir að þetta veður sé eitt hið
versta sem dunið hafi yfir ef tekið
sé mið af því tjóni sem það olli á
rafstrengjum og staurum, en á
Norðurlandi eystra hafi brotnað
um 270 staurar og um 200 staurar
hafi lagst á hliðina vegna þunga
ísingar á línum. Tjón RARIK er
fyrst og fremst á Norðurlandi, lít-
ilsháttar tjón hafi orðið á Aust-
fjörðum og á Vesturlandi. Tryggvi
Þór segir að ef til þess fengist fjár-
magn mundu þeir gjaman vilja
koma sem flestum þverálmum í
jörð en það sé mikið verk og mik-
ill kostnaður. Draga megi af þessu
þann lærdóm að alltaf megi búast
við því að slík veður bresti á og að
rafmagnsnotendur verði án raf-
magns um lengri eða skemmri
tíma. Það þurfi ekki að vera þorri
til þess, nýyfirstaðið veður hafi
t.d. komið á sumri samkvæmt
fomu tímatali. Reiknað er með að
lokið verði við að reisa allt sem
reisa á í bili um miðja næstu viku
en viðgerðum verði lokið um
næstu áramót. Það verður hins
vegar ekki fyrr en á næsta sumri
sem varanleg viðgerð getur farið
fram á sumum línulögnunum. GG
Hross drápust í snjó-
flóði í Langadal
Bændur að Fagranesi og
Móbergi í Langadal í
Austur-Húnavatnssýslu urðu
fyrir umtalsverðu tjóni í
óveðrinu á fimmtudag í síð-
ustu viku er 18 hross fórust í
snjóflóði í Langadalsfjalli, 12
frá Fagranesi og 6 frá Mó-
bergi. Eitt hross frá Fagranesi
náðist lifandi en farga varð
því vegna ástands þess. Hross-
in voru í hlíðinni milli Mó-
bergs og Skriðulands en það
uppgötvaðist ekki fyrr en á
sunnudeginum að fallið hafði
snjóflóð á þessum stað og ein-
hverra hrossa var saknað.
Björgunarsveit frá Blönduósi
tók þátt í leitinni að hrossunum
ásamt bændum í Langadal og
Svartárdal og við að grafa
hrossin upp og voru nær 40
manns við leit í hlíðinni þegar
mest var. Jón Ingi Guðmunds-
son, bóndi að Fagranesi, segir
að á þessum slóðum falli yfir-
leitt ekki snjóflóð, en fyrir rétt-
um 70 árum hafi þó farist 9
hross. Jón Ingi segir hrossin
sem fórust nú hafa hrakist und-
an veðri og verið að standa af
sér veðrið þegar snjóflóðið féll
á þau. Snjóflóðið féll innan við
100 metrum sunnan bæjarhús-
anna á Skriðulandi en enginn
varð þess var á bænum, senni-
lega vegna veðurofsans. Snjó-
flóðið er um 100 metrar að
breidd og töluvert þykkt, en það
hross sem síðast fannst var á
tæplega þriggja metra dýpi.
Ekki er að sjá að annað snjótlóð
hafi fallið í Langadalshlíðinni
að undanskildu litlu flóði sem
l'éll síðar en gerði engan usla.
Frekari leit hefur verið hætt þar
sem mjög erfitt vtu- orðið um
vik við að moka þar sem snjór-
inn var orðinn harður sem stál.
Talið er að enn séu ófundinn
allmörg hross, jafnvel svo
skiptir tugum. GG