Dagur - 31.10.1995, Blaðsíða 3

Dagur - 31.10.1995, Blaðsíða 3
FRÉTTIR Dalvík: Bæjarmála- punktar Ekki heiðursáskrifandi Bæjarráð hefur hafnað erindi frá Skógræktarfélagi íslands um að Dalvíkurbær gerist heiðursáskrifandi að ársriti fé- lagsins. Skilti í bið Á fundi ferðamálanefndar ný- verið var rætt um uppsetningu skiltis um Friðland Svarfdæla og spunnust miklar umræður um gerð, hönnun og fleira. Málið var sett í bið og ákveðið að atla frekari gagna og upp- lýsinga. Bæjarskilti Á sama fundi var rætt um upp- setningu bæjarskiltis á vegum björgunarsveitar S.V.F.Í. Fram kom að skiltinu hefur verið fundinn staður austan og sunn- an við Ásgarð. Miklar umræð- ur spunnust á fundinum um kjör Dalvíkurbæjar vegna aug- lýsinga á skiltinu. Skiptar skoðanir voru um hver afslátt- ur Dalvíkurbæjar yrði. Á fundi ferðamálanefndar 19. október sl. var síðan ákveðið að kaupa 5 merki inn á bæjarskiltið og Dalvíkur- merki fyrir staðsetningu ráð- hússins. Samningur ferðamálanefnd- ar og Björgunarsveitar S.V.F.Í. kveður á tim eftirfarandi: - S.V.F.Í. og H.S.S. Dalvík annast hönnun og uppsetningu þjónustuskiltis sunnan Dalvík- ur ásamt aðkeyrslum og lýs- ingu. - Ferðamálanefnd samþykkir að leggja fram kr. 225 þúsund til verksins svo og að kaupa 5 skráningar árlega. - S.V.F.Í. og H.S.S.D. selja ferðamálanefnd árlega skrán- ingar með 50% afslætti frá og með 1996. Merking Ráðhúss með merki bæjarfélagsins er án greiöslu. - S.V.F.Í. og H.S.S.D. annast viðhald, rekstur og nýskrán- ingar af eigin tekjum. Gildistími samningsins er 15 ár, til 31. desember 2010. íþróttamaður Dalvíkur Á fundi í íþrótta- og æskuiýðs- ráði 11. október sl. voru lögð fram drög að rammasamningi við íþrótta- og æskulýðsfélög- in og þau yfirfarin af ráðinu. Kynnt voru drög að Reglugerð um afreks- og styrktarsjóð íþrótta- og æskulýðsráðs Dal- víkur. í þeim kom m.a. fram að ráðið hyggst kjósa árlega íþróttamann Dalvíkur að fengnum tilnefningum frá fé- lögurn á Dalvík. 30 km hámarkshraði Skipulagsnefnd hefur sam- þykkt tillögur frá lögreglu- varðstjóra um að 30 km/klst. hámarkshraði verði heimilaður á eftirtöldum götum: Ránar- braut, Martröð, Karlsrauða- torgi austan Hafnarbrautar, Karlsbraut, Bárugata, Brim- nesbraut, Lokastígur, Ægis- gata, Drafnarbraut og Öldu- gata. Þriðjudagur 31. október 1995 - DAGUR - 3 Ótrúlega mikið af smárækju alls staðar en stór- rækjuna vantar - segir Hinrik Hringsson, skipstjori Fjölveiðiskipið Sunna SI-67 hef- ur verið á rækjuveiðum djúpt vestur á Halamiðum (Djúpkrók) sl. hálfan mánuð en vegna fár- viðris sem geysað hefur á þess- um slóðum hefur ekki nema um helmingur þess tíma nýst til veiða. Ólafur Dýrmunds- son á Bænda- klúbbsfundi Bændaklúbbsfundur verður á Hótel KEA fimmtudaginn 2. nóv. nk. og hefst kl. 20.30. Frummælandi verður dr. Ólafur Dýrmundsson, ráðunautur Bænda- samtaka Islands, og ræðir hann um lífrænan og vistvænan land- búnað og þær reglur sem uppfylla þarf til þess að viðkomandi fram- leiðsla skoðist sem slík. Hinrik Hringsson, skipstjóri, segir rækjuna sem fáist mjög smáa, og þykir gott ef fást 140 stk/kg en mikið íleiri stykki í kg verði að teljast hálfgert „sjálfs- morð“. Um 50% aflans fer í pakkningar á Japansmarkað en það sem smærra er, iðnaðarrækj- an, fer til vinnslu í rækjuverk- smiðju Þonnóðs ramma hf. á Siglufirði. „Það er ótrúlega mikið af smá- rækju alls staðar þar sem menn hafa leitað fyrir sér á rækjunni og það virðist alveg vatna stórrækj- una. Ástæðan er bæði sú að mikið er búið að veiða og eins er nýlið- unip góð. Það ætti að skila sér seinna í góðri rækju en það er hins vegar mikil sókn í rækjuna, meira en oft áður og hún fjölgar sér ekki sú rækja sem búið er að veiða. Við verðum á veiðum hér við land fram á veturinn, fram yfir áramót, en þó förum við að huga að því að fara á rækjuveiðar í Flæmska hatt- inum við Nýfundnaland. GG Bragi Sigurjónsson, fyrrv. alþingismaður og skáld, látinn Bragi Sigurjónsson, fyrrv. al- þingismaður og skáld, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur- eyri sl. sunnudagskvöld á 85. aldursári. Bragi Sigurjónsson fæddist á Einarsstöðum í Reykjadal 9. nóvember 1910. Foreldrar hans voru Sigurjón Friðjónsson, bóndi og skáld á Sandi í Aðal- dal, og Kristín Jónsdóttir, hús- freyja á Sandi. Bragi varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri 1935 og kennaraprófi lauk hann frá Kennaraskóla íslands árið 1931. Nám í norrænudeild HÍ stundaði hann 1935-1936 og lauk þaðan cand. phil prófi. Bragi starfaði við kennslu um tveggja ára skeið við Reyk- dælaskóla og síðan um áratug við Gagnfræðaskólann á Akur- eyri og Iðnskólann á Akureyri. Þá vann hann í mörg sumur sem bókari hjá Kaupfélagi verkamanna á Akureyri, var fulltrúi hjá bæjarfógetanum á Akureyri við almannatrygging- ar 1946-1964 og útibússtjóri Utvegsbanka Islands á Akur- eyri 1964-1978. Alþingismaður fyrir Alþýðuflokkinn var Bragi 1967-1971 og 1978-1979 og fyrsti varaþingmaður 1971- 1978. Hann var forseti efri deildar 1978. Iðnaðar- og land- búnaðarráðherra var Bragi í ráðuneyti Benedikts Gröndal 1979-1980. Bragi Sigurjónsson var til fjölda ára bæjarfulltrúi Alþýðu- flokksins á Akureyri, fyrst 1950-1954 og aftur 1958-1970. Forseti bæjarstjórnar var hann 1967-1970. Bragi Sigurjónsson var þekktur fyrir ritstörf. Hann sendi frá sér fjölmargar ljóða- bækur, sú fyrsta kom út árið 1947, og einnig minningar, ferðaþætti, smásögur og þýð- ingar. Meðal bóka sem hann gaf út má nefna ritsafnið Göngur og réttir I-V sem kom út á árunum 1948-1953 og auk- ið og endurbætt 1983-1987. I viðtali sem birtist við Braga Sigurjónsson í Degi 21. október sl. kom fram að von væri á tveim bókum frá skáld- inu. Annars vegar ljóðabókinni Misvæg orð og hins vegar Af erlendum tungum II, sem hefur að geyma ljóðaþýðingar Braga. Ætlunin mun vera að gefa bæk- umar út 9. nóvember nk. en þá hefði Bragi orðið 85 ára gam- all. Eftirlifandi eiginkona Braga Sigurjónssonar er Helga Jóns- dóttir. Þau eignuðust sex böm; Sigurjón f. 1937, d. 1976, Hrafn f. 1938, Þórunni f. 1940, Gunnhildi f. 1941, Ragnhildi f. 1944 og Úlfar 1949. Þá eignað- ist Bragi tvo syni; Helga Ómar f. 1954 og Kormák Þráin f. 1955. óþh Sunna SI-67 við bryggju á Akureyri í sl. viku, en hingaö kom skipið vegna þrálátrar brælu. Mynd: BG Fjárskaðarnir á Eyjafjarðarsvæðinu: Tjónið er áaðra milljón Reikna má með að tjón bænda á Eyjafjarðarsvæðinu vegna fjár- missis í norðanáhlaupinu í síð- ustu viku sé ekki minna en 1,2 millj. kr. „Þetta er þó aðeins byrjunartala og sett fram án þess að málið sé fullkannað,“ sagði Ólafur Vagnsson, ráðu- nautur hjá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar, í samtali við Dag. Ólafur Vagnsson segir enn ekki fullljóst hvar fjárskaðar hafi orðið, né hve miklir þeir séu. Þetta sé þó óðum að skýrast. Um 200 fjár sé tala sem ekki sé fjarri lagi skv. fréttum síðustu daga og ef hver kind leggi sig á 6.000 kr. sé tjónið um 1.2 millj. króna. -sbs. r i BI5LEY skjalasképar BI5LEY skjalaskáparnir eru einfaldlega betri T#LVUTÆKI Furuvöllum 5 • Akureyri Sími 462 6100 k______________Á BÁSMOTTUR CÚMMÍMOTTUR FVRIR HROSS OC NAUTCRIPI UBO básmottur skapa betra heilsufar búpenings. UBO básmottur einangra frá gólfkulda. UBO básmottur eru slitsterkar og endingargóðar. UBO básmottur er auðvelt að prífa. ÞOR HF REYKJAVIK - AKUREYRI REYKJAVÍK: Ármúla 11 - Sími 568-1500 AKUREYRI: Lónsbakka - Sími 461-1070 Einar Logi Einarsson grasalæknir verður á Akureyri fimmtudaginn 2. nóvember. Tímapantanir í dag, þriðjudag, í síma 562 2777 og í kvöld í síma 587 7714.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.