Dagur - 31.10.1995, Page 4
4 - DAGUR - Þriðjudagur 31. október 1995
LEIÐARI-----------------
Samhugur í verki
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI,
SÍMI: 462 4222
ÁSKRIFT KR. M. VSK. 1500 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125
RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.),
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.)
AÐRIR BLAÐAMENN:
AUÐUR INGÓLFSDÓTTIR, GEIR A. GUÐSTEINSSON,
HALLDÓR ARINBJARNARSON,
SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON, FROSTI EIÐSSON ((þróttir),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavik vs. 464 1585, fax 464 2285).
LJÓSMYNDARI: BJÖRN GÍSUSON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI462 5165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 462 7639
Þjóðin hefur sýnt það enn einu sinni hverju
hún fær áorkað þegar hún tekur höndum sam-
an. Þátttakan í þjóðarátaki fjölmiðla landsins,
Hjálparstofnunar kirkjunnar, Pósts og síma og
Rauða kross íslands, „Samhugur í verki", er til
marks um það. Söfnunin hófst sl. laugardag og
þjóðin sýndi strax hug sinn í verki. Hápunkti
náði söfnunin í gær þegar útvarpsstöðvar
landsins tóku höndum saman og í gærkvöld var
viðamikil samsending Ríkissjónvarpsins og
Stöðvar 2.
Það er ánægjulegt þegar fjölmiðlar landsins
taka sig saman og lyfta slíku bjargi sem þessi
landssöfnun er. Framkvæmd söfnunarinnar
hefur gengið afskaplega vel og má auðvitað
þakka því að menn búa að þeirri reynslu sem
fékkst með söfnuninni „Samhugur í verki'1 fyrir
fórnarlömb snjóflóðsins í Súðavík í janúar sl.
Um það er engum blöðum að fletta að lands-
söfnun fyrir þá sem eiga um sárt að binda
vegna náttúruhamfaranna á Flateyri, er þeim
mjög mikilvæg. Það er fórnarlömbunum ómet-
anlegur styrkur að fá á þennan hátt fjárhags-
legan stuðning til þess að halda baráttunni
áfram. Þrátt fyrir ólýsanlega erfiða daga, verða
þeir Flateyringar sem lifðu af þessar náttúru-
hamfarir, að horfast áfram í augu við lífið, og þá
er fjárstuðningur einstaklinga, fyrirtækja og fé-
lagasamtaka um allt land, og raunar líka er-
lendis, afar mikilsverður. Þessi fjárframlög
bæta vitaskuld ekki allt það eignatjón sem varð
á Flateyri, en þau hafa sannarlega sitt að
segja, þau létta róðurinn og eru umfram allt
táknrænn stuðningur almennings í landinu
sem er harmi sleginn yfir þeirri ógæfu sem yfir
Vestfirði hafa riðið á einu ári.
Fyrir þá sem ekki hafa þegar gefið í söfnun-
ina, en ætla sér að gera það, er rétt að minna á
að henni lýkur í kvöld. Tekið verður á móti
framlögum í dag frá kl. 9 til 22 og er símanúm-
erið 800 5050. Einnig er hægt að fara í næsta
banka eða sparisjóð og leggja inn á reikning
númer 1183-26-800 í Sparisjóði Önfirðinga á
Flateyri.
Á 80 ára afmæli Þórs
- ávarp Sigfríðar Þorsteinsdóttur, forseta bæjarstjórnar Akureyrar, í Sjallanum sl. laugardagskvöld
og athugasemd hennar
Sigfríður Þorsteinsdóttir, forseti
bœjarstjórnar Akureyrar, flutti
ávarp á 80 ára afmœlishátíð
Iþróttafélagsins Þórs í Sjallanum
sl. laugardagskvöld. Að beiðni
Sigfríðar birtist hér ávarp hennar
í SjaUanum og þar á eftir athuga-
semd hennar. Ritstj.
„Ágætu Þórsarar.
Það er mér sérstök ánægja að
flytja ykkur ámaðaróskir Akureyr-
arbæjar í tilefni þessara tímamóta.
Eg kem ekki hér með íþrótta-
hús á silfurfati, ef þið hafið átt
von á því, en ég færi ykkur góðar
kveðjur frá bæjarstjórn og íþrótta-
og tómstundaráði.
Einnig bað bæjarstjóri mig að
bera ykkur kveðju sína.
Tímamót á að nota til þess að
líta yfir farinn veg, en einnig til
þess að horfa til framtíðar og móta
stefnuna.
Saga Þórs, sem upphaflega hét
íþróttafélag Oddeyrar, segir okkur
frá baráttu og óeigingjömu starfi
áhugasamra, dugnaðarforka, sem
sjaldan létu deigan síga og hvert
bæjarfélag má vera hreykið af.
En það er mjög merkilegt að
saga Þórs er eins og íslandssagan,
kvenmannslaus.
Vonandi breytist það til hins
betra áður en félagið heldur upp á
aldarafmælið.
Á 25 ára afmæli Þórs minnist
þáverandi formaður félagsins á
ýmis óleyst verkefni, þar á meðal
að það þurfi að berjast fyrir nýju
leikfimihúsi. „Þar sem fyrsta og
síðasta leikfimihúsi bæjarins hafi
verið lokað fyrir hrörleika sakir.“
Sagan endurtekur sig í sífellu og í
dag er það draumur félagsmanna
að byggja íþróttahús á félagssvæði
sínu.
Bæjarstjórn vill líta til þess
með velvilja. En í hreinskilni sagt
þá er fjárhagurinn þröngur og í
mörg hom að líta. Ef það breytist
ekki til muna á næstu ámm verður
erfitt að verða við þeirri ósk.
Bæjarstjóm gerir sér fulla grein
fyrir mikilvægi íþróttafélaganna
Sigfríður Þorsteinsdóttir smellir ^
kossi á Aðalstein Sigurgeirsson, r
formann Þórs, í afmælishófinu í
Sjallanum sl. laugardagskvöld.
Mynd: HA.
hér í bænum og þess starfs sem
þau sinna. Það er líka mjög mikil-
vægt að íbúamir sýni frumkvæði
og ábyrgð.
Ég vil að lokum þakka fyrir
hönd bæjarstjómar þetta glæsilega
boð hér í kvöld og biðja alla sem
hér eru staddir að lyfta glösum og
drekka skál íþróttafélagsins Þórs
og óska þeim heilla í framtíðinni."
Athugasemd
„En það er mjög merkilegt að
saga Þórs er eins og Islandssag-
an, kvenmannslaus.“
Þar sem þessi ummæli í ávarp-
inu rnínu hafa valdið misskilningi
og menn talið þau vera árás á kon-
umar í Þór, vil ég koma skýring-
um á framfæri:
Þessi ummæli em ekki til þess
að lítilsvirða konumar í Iþróttafé-
laginu Þór. Þau era sögð til þess
að vekja athygli á þeirri sö«u sem
sögð er af starfi félagsins. I henni
eins og Islandssögunni segir fátt
af konum. Konur eru ósýnilegar
þegar sögur eru skráðar og því er
mikilvægt að breyta.
Sigfríður Þorsteinsdóttir.
Góðan daginn, Sigfiríður!
Á laugardaginn fór ég í afmælis-
fagnað þar sem Iþróttafélagið Þór
hélt upp á 80 ára afmælið. Sjallinn
var pakkfullur, eða um 250 at-
kvæði saman að borða og
skemmtu sér hið besta. Ymsir for-
ystumenn íþróttamála landsins
voru í veislunni og fluttu hlý og
góð orð afmælisbaminu til handa
og óskuðu velfamaðar. Þama var
líka fulltrúi Akureyrarbæjar, Sig-
friður Þorsteinsdóttir forseti bæj-
arstjómar og flutti þar ávarp sem
var hið einkennilegasta.
I síðustu viku samþykkti
íþrótta- og tómstundaráð fram-
kvæmdaáætlun næstu þriggja ára
og er þar m.a. gert ráð fyrir að
Akureyrarbær og Þór geri samn-
ing um byggingu íþróttahúss við
Hamar. Nú er það auðvitað þannig
að sömu flokkar skipa meirihluta í
ÍTA og í bæjarstjóm. Því er ekki
óeðlilegt að almenningur áætli að
þessi framkvæmdaröð ITA hafi
meirihlutastuðning í bæjarstjóm
þó svo að málið hafi ekki verið
tekið þar formlega fyrir. Þegar
„Þegar Sigfríður
sté í pontu vonuð-
ust þeir bjartsýn-
ustu eftir
einhverjum orð-
um bæjarstjórnar
vegna þessa máls
þar sem tækifærið
var gráupplagt.
En það var nú al-
deilis ekki.“
Sigfríður sté í pontu vonuðust þeir
bjartsýnustu eftir einhverjum orð-
um bæjarstjómar vegna þessa
máls þar sem tækifærið var grá-
upplagt. En það var nú aldeilis
ekki. Ef maður dregur orð Sigfríð-
ar saman og segir það tæpitungu-
laust vora skilaboðin eftirfarandi:
Anton Benjamínsson.
Þið fáið ekkert íþróttahús, auk
þess sem þið eruð karlrembur og
leyfið stelpunum ekki að vera
með.
Ágætir félagar okkar í KA
færðu félaginu að gjöf í afmælinu
ágætis reku til að taka fyrstu
skóflustunguna, en Sigfríður möl-
braut skófluna með sínu ávarpi.
Síðari helming ræðu hennar nenni
ég ekki að fjalla um enda óþarfi.
Þó gæti verið skynsamlegt ef ein-
hver hinna mörgu kvenna í Þór
sem hlaut viðurkenningu fyrir
störf sín, svaraði henni skriflega.
Þess skal þó getið að mikill fjöldi
kvenna starfar í ýmsum stjórnum
og ráðum á vegum Þórs, ekki
Út er komin hjá Hörpuútgáfunni á
Akranesi ný bók eftir Jónas Áma-
son rithöfund, sem hann nefnir
„Furður og feluleikir". Á síðasta
ári kom út eftir Jónas bókin „Jón-
asarlimrur" og hlaut frábærar við-
tökur. Allir landsmenn þekkja
leikrit og söngva hans sem hafa
svo sannarlega snortið þjóðarsál-
ina. Limruformið nýtur mikilla
vinsælda. Óhætt er að fullyrða að
hvað síst í bama- og unglinga-
starfi. Auk þess er mjög öflug
kvennadeild hjá félaginu sem er
einmitt 20 ára um þessar mundir.
Að lokum vil ég bara minna
Þórsara á prófkjör sem gjaman eru
skömmu fyrir kosningar.
Anton Benjaniínsson.
Höfundur er félagsmaður í íþróttafélaginu Þór
á Akureyri.
engum muni leiðast að lesa þessa
nýju bók Jónasar Ámasonar. Hún
er barmafull af skopi, en alltaf er
samt stutt í alvörana hjá höfundin-
um, eins og í öðrurn verkum hans.
Bókin er 76 blaðsíður. Mynd af
höfundi gerði Erla Sigurðardóttir
myndlistarkona.
Prentvinnsla: Oddi hf.
Verð kr. 1.580,-
Furður og feluleikír
limrur og ljóð í sama dúr