Dagur - 11.11.1995, Side 2

Dagur - 11.11.1995, Side 2
2 - DAGUR - Laugardagur 11. nóvember 1995 FRÉTTIR Steingrímur J. Sigfússon, alþingismaður Alþýðubandalags á Norðurlandi eystra: Mótmælir því að sýslumanns- embættið í Ólafsfirði verði lagt af Eins og fram kom í Degi sl. fimmtudag hyggst Þorsteinn Pálsson, dómsmálaráðherra, ekki breyta þeirri ákvörðun sinni að ieggja niður sýslu- mannsembættið í Ólafsfírði. Sýslumannsembættið í Ólafsfirði kom til umfjöllunar á Alþingi á dögunum þegar rætt var um endurskoðun á verksviði sýslu- mannsembætta. Steingrímur J. Sigfússon, alþingismaður Norð- Úlfar Bragason, Rósa Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Ásptents hf., og Hrafn Bragason er bækur Braga heitins Sigurjónssonar voru kynntar. Mynd: GG Utgáfa Ijóða og Ijóðaþýð- inga Braga Siguijónssonar á útfarardegi hans Bragi Sigurjónsson skáld var borinn til grafar í gær og á þeim degi kom út ljóðabókin Misvœg orð og ennfremur ljóðaþýðingar eftir hann sem bera heitið Af er- lendum tungum II. Bragi Sigur- jónsson var fæddur 9. nóvember árið 1910 og upphaflega hafði verið ráðgert að bækurnar kæmu út á afmælisdegi hans en vegna fráfalls hans var ákveðið að gefa þær út á útfarardaginn. Upphaflega stóð til að gefa að- eins ljóðaþýðingamar út nú en síðan var ákveðið að gefa ljóðin einnig út. Það er Ásútgáfan á Ak- ureyri sem sá um prentun bókanna og sér um dreifingu þeirra. Það voru synir Braga heitins, Úlfar og Hrafn, sem kynntu bækur föður síns, og sagði Úlfar að ljóð- in væru öll frá síðustu sex árum og þau síðustu frá síðasta sumri. Síðast komu út frumort ljóð frá Braga árið 1989, Einmœli. Ljóða- þýðingamar eru aðallega úr norsku, en einnig öðrum Norður- UGGUR Ég dauðann óttast ei, efutanhúss ég dey. Það sem auglits er ugg ei vekur mér. En halli ég hinsta kveld höfði undirfeld, hrœðir það háskaefni að hrökkva upp dáinn afsvefni! landamálum og ensku og em eftir skáld sem em nýlega látin eða eldri þekkt skáld í Noregi eins og Rolf Jacobsen og Olav H. Hauge auk Stein Mehren, sem er meðal þekktustu núlifandi ljóðskálda Norðmanna. „Ljóðin eru hefðbundin, en sú háttleysa sem upp kom eftir stríð tengist umrótinu í þjóðfélaginu, sem hann upplifði ekki í bænda- samfélaginu og var ekki rótlaus. Eg hef ekki tekið neinu sérstöku ástfóstri við neitt einstakt ljóð en Sálarháska, sem birtist nýlega í DEGI, hef ég lesið oftar en önnur ljóð í bókinni. í ljóðaþýðingunum er ljóð sem heitir Uggur, sem ég staðnæmdist svolítið við, kannski vegna þess að hann er horfinn frá okkur,“ sagði Úlfar Bragason. GG Viðtalstímar bæjarfulltrúa Mánudaginn 13. nóvember 1995 kl. 20-22 veröa bæjarfulltrúarnir Guðmundur Stefánsson og Þórarinn B. Jónsson til viðtals á skrifstofu bæjarstjóra að Geisla- götu 9, 2. hæð. Bæjarfulltrúarnir munu svara símaviðtölum eftir því sem aðstæður leyfa. Síminn er 462 1000. Utanverður Eyjafjörður: Samstarfsnefnd um skólamál skilar af sér Samstarfsnefnd sem skipuð var af sveitarfélögunum við utanverðan Eyjafjörð um skólamál hefur lokið störfum og mun næstu daga afhenda sveitarstjórnunum sem hana skipuðu skýrslu sína. Það voru Ólafstjarðar- og Dalvík- urbær, Svarfaðardals-, Ár- skógs- og Hríseyjarhreppar sem skipuðu í nefndina og var formaður Óskar Þór Sigur- björnsson í Ólafsfirði. Nefndinni var falið að skil- greina hvaða þjónustu skólamir á svæðinu eiga rétt til sam- kvæmt grunnskólalögum og hvernig þeirri þjónustu er háttað í dag. Einnig var henni falið að gera tillögur um hvemig þjón- ustunni verði best sinnt á svæð- inu og æskilegri tenginu við þá félagsþjónustu sem sveitarfé- lögin veita nú þegar, sern og þeirri þjónustu sem leikskólar eiga rétt á. Nefndinni var einnig falið að setja fram hugmyndir með hvaða hætti þessi málefni verði best leyst með tilliti til stofnunar væntanlegrar skóla- þjónustuskrifstofu á vegum Ey- þings. Óskar Þór segir vinnu nefndarinnar hafa gengið með miklum ágætum og samstarf verið fádæma gott. HA urlands eystra, mótmælti því harðlega að rekstur sýslumanns- embættisins í Ólafsfirði væri lakari eða síður þarfur en víða annars staðar á landinu. Steingrímur J. Sigfússon spurði dómsmálaráðherra hverju það sætti að í fjárlagafrumvarpinu væri gert ráð fyrir því að tvö sýslumannsembætti yrðu lögð nið- ur, í Ólafsfirði og Bolungarvík. Steingrímur spurði hvort ráðherra væri ekki tilbúinn til samkomu- lags um að fresta þeim áformum að leggja niður þessi tvö embætti, „og láta á það reyna hvort ekki sé jafnframt hægt að finna fullnægj- andi starfsgrundvöll fyrir þau embætti með því að fela þeim aukin verkefni og nýta þau betur.“ Og síðan sagði Steingrímur J.: „Eg mótmæli því mjög harðlega til að mynda að sýslumannsemb- ættið í Olafsfirði sé tekið út úr og þar sé á ferðinni lakari rekstur eða síður þarfur en á við víða annars staðar á landinu. Ég vildi gjaman að hæstv. ráðherra eða þeir flökksbræður sem hafa fjallað um þetta mál tækju með í reikninginn að samkvæmt greinargerð fjár- lagafrumvarpsins sem fyrir liggur, þá á þrátt fyrir það sem hér er sagt um flutning verkefna til embætt- anna að leggja tvö þeirra niður á næstu árum.“ Einar K. Guðfinnsson, alþing- ismaður Sjálfstæðisflokks á Vest- fjörðum, fyrirspyrjandi í þessari umræðu, sagði það skoðun sína að skynsamlegast væri að slá á frest frekari uppstokkun sýslumanns- embættanna í landinu. I svari sínu sagði Þorsteinn Pálsson, dómsmálaráðherra, m.a.: „Varðandi samruna embætta er það rétt sem hér kom fram að í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir því að tvö minni embætti verði sameinuð öðrum, ekki vegna þess að rekstur þeirra hafi verið slæmur heldur vegna þess að það liggur fyrir að það má spara í yfir- stjóm með því að sameina sýslu- mannsembætti." óþh Afli Suðurnesja- báta til vinnslu hjá Útgeröarfélaginu Aðalvík KE-95, annar þeirra báta sem Útgerðarfélag Akur- eyringa hf. hefur tekið á leigu af íslenskum aðalverktökum, land- aði í vikunni á Suðurnesjum eft- ir fyrsta túr bátsins. Aflinn, 75 kör eða um 35 tonn, kom norður til Grenivíkur í gær og verður aflinn unninn í frystihúsi ÚA á staðnum. Aflinn er góður línuþorskur, að meðaltali 2,5 kg. Aðalvík og Ljós- fari landa svo báðir í næstu viku og verður þeim afla einnig ekið norður til vinnslu. Harðbakur EA kom á fimmtudag með 190 tonn, sem var að mestu þorskur og ýsa. Kaldbakur EA kemur til löndunar á mánudag með svipaða aflasam- setningu og Harðbakur EA en báðir togaramir hafa verið á Vest- fjarðamiðum. Mikill fiskur berst til vinnslu hjá ÚA um þessar mundir. Unnið er í dag frá klukk- an sex að morgni til hádegis og í næstu viku hefst vinna klukkan sex að morgni og lýkur klukkan fimm, bæði á Akureyri og Greni- vík. GG Skatt- stjóri hættir störfum Sveinbjörn Sveinbjörnsson, skattstjóri í Norðurlandsum- dæmi eystra, hefur sagt upp starfi sínu og hyggst flytja til Reykjavíkur. Hann hefur ráðið sig til starfa hjá Olíu- dreifingu ehf., sem er sam- eignarfélag Olíufélagsins hf. og Oh's, en það fyrirtæki fer af stað um áramót. „Ég fer í hið nýja starf urn leið og ég losna,“ sagði Svein- bjöm í samtali við Dag í gær. Aðspurður kvaðst hann ekki hafa áður starfað á vettvangi olíuviðskipta. í auglýsingu í Degi, þar sem auglýst er eftir eftirmanni Sveinbjöms, kemur fram að umsóknir um starfið skuli berast fjármálaráðuneyti fyrir 4. desember næstkom- andi. -sbs. Framhaldsskólinn á Húsavík: Ráðstefna um málefni skól- ans fyrirhuguð „Við vorum ánægðir með að sjá þá sem komu og urðum ekki vör við annað en að þeir færu ánægð- ir héðan,“ sagði Guðmundur Birkir Þorkelsson, skólameistari við Framhaldsskólann á Húsa- vík, en í vikunni voru opnir dag- ar í skólanum þannig að fólk gat komið og kynnt sér hvað fram fer þar innan dyra. Fáir nýttu sér boðið og sagðist Guðmundur Birkir hafa átt von á fleiri for- eldrum í heimsókn. Þann 25. nóv. verður haldin ráðstefna um málefni skólans og opnu dagamir vom ætlaðir til kynningar og til að opna umræðu um skólann og hvað megi gera bet- ur, að sögn skólameistara. I vetur eru 160 nemendur við nám á þó nokkuð mörgum brautum við Framhaldsskólann á Húsavík. Guðmundur Birkir sagði að ekkert væri að frétta af heimavist- armálum skólans en það segði sig sjálft að það vantaði heimavistar- rými. Sótt hefði verið um að byggð yrði heimavist fyrir skólann og er málið til afgreiðslu hjá stjómvöld- um. „Við teljum það töluvert brýnt að fólk úr nágrannahéruðum geti komist hér á heimavist. Það hefur alls staðar verið reynslan að heima- vistarhúsnæði hefur fyllst þar sem byggðar hafa verið myndarlegar vistir," sagði Guðmundur Birkir. IM

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.