Dagur - 11.11.1995, Page 2
2 - DAGUR - Laugardagur 11. nóvember 1995
FRÉTTIR
Steingrímur J. Sigfússon, alþingismaður Alþýðubandalags á Norðurlandi eystra:
Mótmælir því að sýslumanns-
embættið í Ólafsfirði verði lagt af
Eins og fram kom í Degi sl.
fimmtudag hyggst Þorsteinn
Pálsson, dómsmálaráðherra,
ekki breyta þeirri ákvörðun
sinni að ieggja niður sýslu-
mannsembættið í Ólafsfírði.
Sýslumannsembættið í Ólafsfirði
kom til umfjöllunar á Alþingi á
dögunum þegar rætt var um
endurskoðun á verksviði sýslu-
mannsembætta. Steingrímur J.
Sigfússon, alþingismaður Norð-
Úlfar Bragason, Rósa Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Ásptents hf., og Hrafn Bragason er bækur Braga heitins
Sigurjónssonar voru kynntar. Mynd: GG
Utgáfa Ijóða og Ijóðaþýð-
inga Braga Siguijónssonar
á útfarardegi hans
Bragi Sigurjónsson skáld var
borinn til grafar í gær og á þeim
degi kom út ljóðabókin Misvœg
orð og ennfremur ljóðaþýðingar
eftir hann sem bera heitið Af er-
lendum tungum II. Bragi Sigur-
jónsson var fæddur 9. nóvember
árið 1910 og upphaflega hafði
verið ráðgert að bækurnar
kæmu út á afmælisdegi hans en
vegna fráfalls hans var ákveðið
að gefa þær út á útfarardaginn.
Upphaflega stóð til að gefa að-
eins ljóðaþýðingamar út nú en
síðan var ákveðið að gefa ljóðin
einnig út. Það er Ásútgáfan á Ak-
ureyri sem sá um prentun bókanna
og sér um dreifingu þeirra.
Það voru synir Braga heitins,
Úlfar og Hrafn, sem kynntu bækur
föður síns, og sagði Úlfar að ljóð-
in væru öll frá síðustu sex árum
og þau síðustu frá síðasta sumri.
Síðast komu út frumort ljóð frá
Braga árið 1989, Einmœli. Ljóða-
þýðingamar eru aðallega úr
norsku, en einnig öðrum Norður-
UGGUR
Ég dauðann óttast ei,
efutanhúss ég dey.
Það sem auglits er
ugg ei vekur mér.
En halli ég hinsta kveld
höfði undirfeld,
hrœðir það háskaefni
að hrökkva upp dáinn afsvefni!
landamálum og ensku og em eftir
skáld sem em nýlega látin eða
eldri þekkt skáld í Noregi eins og
Rolf Jacobsen og Olav H. Hauge
auk Stein Mehren, sem er meðal
þekktustu núlifandi ljóðskálda
Norðmanna.
„Ljóðin eru hefðbundin, en sú
háttleysa sem upp kom eftir stríð
tengist umrótinu í þjóðfélaginu,
sem hann upplifði ekki í bænda-
samfélaginu og var ekki rótlaus.
Eg hef ekki tekið neinu sérstöku
ástfóstri við neitt einstakt ljóð en
Sálarháska, sem birtist nýlega í
DEGI, hef ég lesið oftar en önnur
ljóð í bókinni. í ljóðaþýðingunum
er ljóð sem heitir Uggur, sem ég
staðnæmdist svolítið við, kannski
vegna þess að hann er horfinn frá
okkur,“ sagði Úlfar Bragason. GG
Viðtalstímar
bæjarfulltrúa
Mánudaginn 13. nóvember 1995
kl. 20-22 veröa bæjarfulltrúarnir
Guðmundur Stefánsson og
Þórarinn B. Jónsson til viðtals á
skrifstofu bæjarstjóra að Geisla-
götu 9, 2. hæð.
Bæjarfulltrúarnir munu svara
símaviðtölum eftir því sem
aðstæður leyfa.
Síminn er 462 1000.
Utanverður Eyjafjörður:
Samstarfsnefnd um
skólamál skilar af sér
Samstarfsnefnd sem skipuð
var af sveitarfélögunum við
utanverðan Eyjafjörð um
skólamál hefur lokið störfum
og mun næstu daga afhenda
sveitarstjórnunum sem hana
skipuðu skýrslu sína. Það
voru Ólafstjarðar- og Dalvík-
urbær, Svarfaðardals-, Ár-
skógs- og Hríseyjarhreppar
sem skipuðu í nefndina og var
formaður Óskar Þór Sigur-
björnsson í Ólafsfirði.
Nefndinni var falið að skil-
greina hvaða þjónustu skólamir
á svæðinu eiga rétt til sam-
kvæmt grunnskólalögum og
hvernig þeirri þjónustu er háttað
í dag. Einnig var henni falið að
gera tillögur um hvemig þjón-
ustunni verði best sinnt á svæð-
inu og æskilegri tenginu við þá
félagsþjónustu sem sveitarfé-
lögin veita nú þegar, sern og
þeirri þjónustu sem leikskólar
eiga rétt á. Nefndinni var einnig
falið að setja fram hugmyndir
með hvaða hætti þessi málefni
verði best leyst með tilliti til
stofnunar væntanlegrar skóla-
þjónustuskrifstofu á vegum Ey-
þings. Óskar Þór segir vinnu
nefndarinnar hafa gengið með
miklum ágætum og samstarf
verið fádæma gott. HA
urlands eystra, mótmælti því
harðlega að rekstur sýslumanns-
embættisins í Ólafsfirði væri
lakari eða síður þarfur en víða
annars staðar á landinu.
Steingrímur J. Sigfússon spurði
dómsmálaráðherra hverju það
sætti að í fjárlagafrumvarpinu
væri gert ráð fyrir því að tvö
sýslumannsembætti yrðu lögð nið-
ur, í Ólafsfirði og Bolungarvík.
Steingrímur spurði hvort ráðherra
væri ekki tilbúinn til samkomu-
lags um að fresta þeim áformum
að leggja niður þessi tvö embætti,
„og láta á það reyna hvort ekki sé
jafnframt hægt að finna fullnægj-
andi starfsgrundvöll fyrir þau
embætti með því að fela þeim
aukin verkefni og nýta þau betur.“
Og síðan sagði Steingrímur J.:
„Eg mótmæli því mjög harðlega
til að mynda að sýslumannsemb-
ættið í Olafsfirði sé tekið út úr og
þar sé á ferðinni lakari rekstur eða
síður þarfur en á við víða annars
staðar á landinu. Ég vildi gjaman
að hæstv. ráðherra eða þeir
flökksbræður sem hafa fjallað um
þetta mál tækju með í reikninginn
að samkvæmt greinargerð fjár-
lagafrumvarpsins sem fyrir liggur,
þá á þrátt fyrir það sem hér er sagt
um flutning verkefna til embætt-
anna að leggja tvö þeirra niður á
næstu árum.“
Einar K. Guðfinnsson, alþing-
ismaður Sjálfstæðisflokks á Vest-
fjörðum, fyrirspyrjandi í þessari
umræðu, sagði það skoðun sína að
skynsamlegast væri að slá á frest
frekari uppstokkun sýslumanns-
embættanna í landinu.
I svari sínu sagði Þorsteinn
Pálsson, dómsmálaráðherra, m.a.:
„Varðandi samruna embætta er
það rétt sem hér kom fram að í
fjárlagafrumvarpinu er gert ráð
fyrir því að tvö minni embætti
verði sameinuð öðrum, ekki vegna
þess að rekstur þeirra hafi verið
slæmur heldur vegna þess að það
liggur fyrir að það má spara í yfir-
stjóm með því að sameina sýslu-
mannsembætti." óþh
Afli Suðurnesja-
báta til vinnslu hjá
Útgeröarfélaginu
Aðalvík KE-95, annar þeirra
báta sem Útgerðarfélag Akur-
eyringa hf. hefur tekið á leigu af
íslenskum aðalverktökum, land-
aði í vikunni á Suðurnesjum eft-
ir fyrsta túr bátsins. Aflinn, 75
kör eða um 35 tonn, kom norður
til Grenivíkur í gær og verður
aflinn unninn í frystihúsi ÚA á
staðnum.
Aflinn er góður línuþorskur, að
meðaltali 2,5 kg. Aðalvík og Ljós-
fari landa svo báðir í næstu viku
og verður þeim afla einnig ekið
norður til vinnslu. Harðbakur EA
kom á fimmtudag með 190 tonn,
sem var að mestu þorskur og ýsa.
Kaldbakur EA kemur til löndunar
á mánudag með svipaða aflasam-
setningu og Harðbakur EA en
báðir togaramir hafa verið á Vest-
fjarðamiðum. Mikill fiskur berst
til vinnslu hjá ÚA um þessar
mundir. Unnið er í dag frá klukk-
an sex að morgni til hádegis og í
næstu viku hefst vinna klukkan
sex að morgni og lýkur klukkan
fimm, bæði á Akureyri og Greni-
vík. GG
Skatt-
stjóri
hættir
störfum
Sveinbjörn Sveinbjörnsson,
skattstjóri í Norðurlandsum-
dæmi eystra, hefur sagt upp
starfi sínu og hyggst flytja til
Reykjavíkur. Hann hefur
ráðið sig til starfa hjá Olíu-
dreifingu ehf., sem er sam-
eignarfélag Olíufélagsins hf.
og Oh's, en það fyrirtæki fer
af stað um áramót.
„Ég fer í hið nýja starf urn
leið og ég losna,“ sagði Svein-
bjöm í samtali við Dag í gær.
Aðspurður kvaðst hann ekki
hafa áður starfað á vettvangi
olíuviðskipta. í auglýsingu í
Degi, þar sem auglýst er eftir
eftirmanni Sveinbjöms, kemur
fram að umsóknir um starfið
skuli berast fjármálaráðuneyti
fyrir 4. desember næstkom-
andi. -sbs.
Framhaldsskólinn
á Húsavík:
Ráðstefna um
málefni skól-
ans fyrirhuguð
„Við vorum ánægðir með að sjá
þá sem komu og urðum ekki vör
við annað en að þeir færu ánægð-
ir héðan,“ sagði Guðmundur
Birkir Þorkelsson, skólameistari
við Framhaldsskólann á Húsa-
vík, en í vikunni voru opnir dag-
ar í skólanum þannig að fólk gat
komið og kynnt sér hvað fram fer
þar innan dyra. Fáir nýttu sér
boðið og sagðist Guðmundur
Birkir hafa átt von á fleiri for-
eldrum í heimsókn.
Þann 25. nóv. verður haldin
ráðstefna um málefni skólans og
opnu dagamir vom ætlaðir til
kynningar og til að opna umræðu
um skólann og hvað megi gera bet-
ur, að sögn skólameistara.
I vetur eru 160 nemendur við
nám á þó nokkuð mörgum brautum
við Framhaldsskólann á Húsavík.
Guðmundur Birkir sagði að
ekkert væri að frétta af heimavist-
armálum skólans en það segði sig
sjálft að það vantaði heimavistar-
rými. Sótt hefði verið um að byggð
yrði heimavist fyrir skólann og er
málið til afgreiðslu hjá stjómvöld-
um. „Við teljum það töluvert brýnt
að fólk úr nágrannahéruðum geti
komist hér á heimavist. Það hefur
alls staðar verið reynslan að heima-
vistarhúsnæði hefur fyllst þar sem
byggðar hafa verið myndarlegar
vistir," sagði Guðmundur Birkir.
IM