Dagur - 11.11.1995, Side 4

Dagur - 11.11.1995, Side 4
4 - DAGUR - Laugardagur 11. september 1995 ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI, SÍMI: 462 4222 SÍMFAX: 462 7639 • SÍMFAX AUGLÝSINGADEILDAR: 462 2087 ÁSKRIFT M. VSK. KR. 1500 Á MÁNUÐI • LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125 RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.), ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.) AÐRIR BLAÐAMENN: AUÐUR INGÓLFSDÓTTIR, GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON, SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON, FROSTI EIÐSSON (íþróttir), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 464 1585, fax 464 2285). LJÓSMYNDARI: BJÖRN GÍSLASON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 462 5165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF. Gott íramtak Eins og fram kom í Degi sl. fimmtudag er ákveðið að efna til mikilla tónleika í íþróttahöllinni á Akur- eyri sunnudaginn 19. nóvember og rennur allur ágóði til uppbyggingarinnar á Flateyri. Hér er um gott framtak að ræða og full ástæða til að hvetja Norðlendinga að fjölmenna á tónleikana. Stuðningur af þessu tagi er mikilsverður fyrir fólkið á Flateyri og það sýnir hug landsmanna í verki að unnt sé með skömmum fyrirvara að efna til svo stórra tónleika. Eins og margoft hefur komið fram hefur þjóðin sýnt samhug í verki svo eftir verður munað. Sam- heldnin og krafturinn sem í fólkinu býr er ótrúlegur þegar á reynir. Auk fjársöfnunar, sem tókst eins og alþjóð veit, framar öllum vonum, hefur ágóði af fjöl- mörgum tónleikum og öðrum uppákomum runnið óskertur til Flateyringa. Þessi stuðningur er gríðar- lega mikilvægur. Lífið heldur áfram á Flateyri, þrátt fyrir hörmungarnar sem yfir byggðarlagið hafa dun- ið. Myndarlegur fjárstuðningur léttir Flateyringum róðurinn á erfiðum tímum. Styðjum KA-menn! í dag taka KA-menn á móti bikarmeisturunum í handbolta í Slóvakíu, TJ VSZ Kosice, í Evrópu- keppni bikarhafa. Þetta er vitaskuld afar mikilvægur leikur enda getur það þegar upp verður staðið skipt sköpum að heimamenn fari með góðan sigur á Ak- ureyri í farteskinu til Slóvakíu. Með miklum dugnaði og krafti náðu KA-menn að sigra norsku bikar- meistarana og margt bendir til þess að bikar- meistararnir frá Slóvakíu séu ekki sterkari en hinir norsku víkingar. Möguleikar KA-manna ættu því að vera góðir. Það yrði saga til næsta bæjar ef KA kæm- ist í þriðju umferð Evrópukeppninnar, í fyrsta skipti sem liðið tekur þátt í keppninni. Eins og áður segir skiptir heimaleikurinn öllu máli og því er full ástæða til að skora á fólk að fjölmenna á leikinn í dag og hvetja heimamenn duglega. Stuðningur áhorfenda í leiknum gegn norsku bikarmeisturunum hafði allt að segja. Það sama gildir örugglega í leiknum gegn Kosice. ■ UPPAHALPI Saltkjöt og baunir bestí maturinn - segir Hannes Öm Blandon, sóknarprestur í Eyjafjarðarsveit Hannes Örn Blandon, sókn- arprestur í Eyjafjarðar- sveit, hefur í mörg horn að líta í starfi sínu um helgina. Hœst ber þó hátíðarguðsþjónustu í Grundarkirkju á sunnudag en þá verða liðin 90 árfrá því kirkjan var vígð. Hannes er sjötti prestur- inn sem þjónar á Grund. Hann sýnir lesendum sín- ar uppáhaldshliðar. HvaÖa matur er í mestu uppáhaldi hjá þér? Það er saltkjöt og baunir sem ég borða oftar en bara á sprengidag- inn. Uppáhaldsdrykkur? Eg held að kaldur bjór og góður pilsner standi uppúr. Hvaða lieimilisstörffinnst þér skemmtilegustlleiðinlegust? Mér þykja garðyrkjustörfin tví- mælaiaust skemmtilegust en leið- inlegast þykir mér að þvo glugga. Stundar þú einhverja markvissa hreyfingu eða líkamsrœkt? Já, ég fer reglulega t' leikfimi. Ert þú í einhverjum klúbb eða fé- lagasamtökum? Já, ég er í Freyvangsleikhúsinu og síðan í félagsstörfum starfsins vegna. Hannes Örn Blandon. Hvaða blöð og tímarit kaupir þú? Ég kaupi DV og The Flag Bullet- in, sem er tímarit sem gefið er út í Boston í Bandaríkjunum og fjallar um skjaldarmerki og þjóð- fána. Síðan kaupi ég þýskt tíma- rit um guðfræði sem heitir Ho- meletische Monathefte. Hvaða bók er á náttborðinu hjá þér? Whiteshark eftir Peter Benchley. / hvaða stjörnumerki ert þú? Steingeit. Hvaða tónlistarmaður er í mestu uppáhaldi hjá þér? Þeir eru nú eiginlega þrír og hver er í mestu uppáhaldi fer eftir því hvernig á stendur. Ég held mikið upp á JJ Cale og síðan hollensk- an vísnasöngvara sem heitir Comelis Wreswijk. Þriðji uppá- haldstónlistarmaðurinn er svo Eric Clapton. Uppáhaldsíþróttamaðurlleikari? Uppáhaldsleikari hjá mér er Jer- omy Irons og í fþróttunum er það Asgeir Sigurvinsson, knatt- spyrnumaður. Hvað horfir þú mest á ísjónvarpi? Ég horfi mest á fréttir. A hvaða stjórnmálamanni hefurðu mest álit? Ef ég mætti nefna þann mann sem hæst rís í stjómmálasögunni þá væri það Willy Brandt. Hann var mikill stjómmálamaður. Hver er að þínu mati fegursti staður á íslandi? Það er Héraðið. Hvar vildirðu helst búa efþú þyrftir að flytja búferlum nú? Þá væri það á Héraði. Efþú ynnir stóra vinninginn i lóttó- inu hvernig myndirþú eyða pening- unurn? Ég hugsa að ég myndi byrja á að borga upp ýmsar smáskuldir í kringum mig og því næst höndla mér íbúð, sem ég hef ekki gert enn. Hvernig viltþú lielst verja frístund- um þínum? Til ferðalaga og efst á óskalistan- um er að fara til Eystrasaltsland- anna. Hvað gerðir þú í sumarfríinu? Ég málaði hlöðuna og fjárhúsin. Hvað œtlarðu að gera um helgina? Helginni ver ég í störf kirkjulegs eðlis. Það verður gifting, sunnu- dagaskóli og hátíðarmessa á Grund á sunnudaginn. JÓH MEf> MOROUNKAFFINU OSKAR ÞOR HALLDORSSON Karlmennska er lukkusprengja Ég hafði ekki gert mér grein fyrir því fyrr en ég fékk í hendur nýjasta tölublað Veru, sem er kvennabaráttublað og gefið ÚF af Samtökum um kvennalista, að ég væri svona frekar absúrd karlmaður. Blaðið var undirlagt af ósköp settlegum karlmönnum sem veltu þeirri spurningu fyrir sér hvort þeir væru í kreppu. Sumir komust að raun um að þeir væru kannski örlítið krepptir, en aðrir létu sér fátt um finnast og gáfu karla- kreppuhugmyndinni langt nef. í þessu ágæta blaði var m.a. viðtal við ungan mann, Axel Guðmundsson, sem blaðamaður Veru segir vera félaga í karlahópi sem hittist einu sinni í mánuði og hafi „auðlegðarvitund" (hvað sem það nú er??) að markmiði sínu. Og Axel þessi segir allt sem segja þarf í þessu sambandi í Veru: „Ég lít ekki svo á að karlar hafi misst styrk sinn til kvenna heldur hafa þeir ósköp einfaldlega misst sinn styrk vegna þess að þjóðfélagið hefur breyst svo hratt að feður okkar nýtast illa sem fyrirmyndir. Til að öðlast styrk þurfum við að velja og skapa okkur eigin fyrir- myndir.“ Svo mörg voru þau orð Axels þessa Guðmundssonar og þykist ég nokkru vísari um mína stöðu og kynbræðra minna. Nú er það vitaskuld hið alvarlegasta mál þegar karlar missa styrk sinn til kvenna, eins og Axel vinur vor orðar það, og út af fyrir sig er það sannarlega tilefni kreppu. En líklega er eitthvað annað og meira sem gerir það að verkum að karlmönnum finnst þeir eiga við kreppu að stríða. Er það vegna þess að karlar fái ekki að taka fæðingarorlof nema konan fallist á það? Er það vegna þess að þeir séu búnir að gefast upp á hreysti- ímyndinni? Eða er það vegna þess að þeim finnist konan hafa gengið lengra en góðu hófi gegnir í jafnréttisbaráttunni? Ekki veit ég það. En ef til vill er lykilatriðið fólgið í niðurlagi greinar Ingólfs V. Gíslasonar, starfsmanns á skrifstofu jafnréttismála, í títtnefndri Veru: „Okkur er það mikilvægt að skárri öfl samfélagsins taki á í þeirri veiku von að enn sé unnt að tryggja framtíð á þessari jörð. Þar held ég að jafnréttisbar- átta beggja kynja sé lykilatriði. Og alveg þætti mér skaðlaust að sú barátta yrði ívið herskárri en hún hefur verið seinni árin.“ Lukkusprengjur og Hemmahapp Mér er alveg farið að blöskra allar þessar lukkusprengjur og Hemmahapp. Kannski er það vegna þess að ég vinn aldrei nokkum skapaðan hlut í þessu (sennilega vegna þess að ég kaupi ekki miða), en svona í alvöru talað, er þetta ekki að verða meira en nóg? A besta útsendingartíma Stöðvar 2, á laug- ardagskvöldum, ræður Bingó-Ingvi ríkjum og fer víst ekki fram hjá nokkrum manni. Maður getur varla farið inn í matvörubúð á föstudögum án þess að í eyrjum glymji „má bjóða þér Bingólottó“? og meira að segja er svo langt gengið að sölufólk gengur í hús til þess að selja bingólottómiða. Bara sú sölu- aðferð gerir það að verkum að ég læt mér ekki koma til hugar að spila með Bingó- Ingva. Og auðvitað gat sjónvarpið ekki látið sitt eftir liggja og er nú farið að senda út aug- lýsingadagskrá fyrir Happdrætti Háskólans á besta útsendingartíma á föstudagskvöld- um. Og meira að segja vinur vor Derrick hefur orðið að víkja fyrir happinu og hrakist yfir á þriðjudagskvöldin. En það má Hemmi Gunn eiga að hann stendur sig betur í aug- lýsingadagskránni á föstudagskvöldum en hann gerði í „er ekki allir í stuði?“ þætti sín- um á miðvikudagskvöldum. Nýjasta nýtt á þessum happmarkaði er svo fyrirbæri sem nefnist „Lengjan, lengjan, lukkusprengjan...“ Ég hef að vísu ekki komist nægilega vel til botns í því hvað þetta er og ekki eykur sjónvarpsauglýsing á þessu fyrirbæri skilning minn. Og ekki gengur mér betur að skilja fyrirbæri sem nefnist Kínó. Ég er alveg hættur að skilja í þessu öllu saman. Miðað við allan þennan fjölda happ- drætta, lukkumiða og -sprengja, gæti maður álitið að þjóðin vissi vart aura sinna tal. En miðað við þjóðfélagsumræðuna er það nú sennilega ekki tilfellið. Og mín litla kunn- átta í hagfræði segir mér að þegar upp er staðið hljóti einhver að missa spón úr sínum aski. Varla getur það verið að allir séu að græða? Og þegar ég er að hamra þennan texta inn á tölvuna mína fæ ég í hendur fréttatilkynningu frá Hagstofu Islands þar sem fram kemur að 25% hækkun á verði Lottómiða hafi valdið 0,13% hækkun vísi- tölu neysluverðs. Það er sem ég segi, lukku- miðastandið í landinu er smám saman að taka yfir efnahagsstjóm landsins. Með þessu áframhaldi verður Davíð óþarfur.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.