Dagur - 11.11.1995, Page 4
4 - DAGUR - Laugardagur 11. september 1995
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI,
SÍMI: 462 4222
SÍMFAX: 462 7639 • SÍMFAX AUGLÝSINGADEILDAR: 462 2087
ÁSKRIFT M. VSK. KR. 1500 Á MÁNUÐI • LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125
RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.),
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.)
AÐRIR BLAÐAMENN: AUÐUR INGÓLFSDÓTTIR,
GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON,
SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON, FROSTI EIÐSSON (íþróttir),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 464 1585, fax 464 2285).
LJÓSMYNDARI: BJÖRN GÍSLASON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 462 5165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
Gott íramtak
Eins og fram kom í Degi sl. fimmtudag er ákveðið
að efna til mikilla tónleika í íþróttahöllinni á Akur-
eyri sunnudaginn 19. nóvember og rennur allur
ágóði til uppbyggingarinnar á Flateyri.
Hér er um gott framtak að ræða og full ástæða til
að hvetja Norðlendinga að fjölmenna á tónleikana.
Stuðningur af þessu tagi er mikilsverður fyrir fólkið
á Flateyri og það sýnir hug landsmanna í verki að
unnt sé með skömmum fyrirvara að efna til svo
stórra tónleika.
Eins og margoft hefur komið fram hefur þjóðin
sýnt samhug í verki svo eftir verður munað. Sam-
heldnin og krafturinn sem í fólkinu býr er ótrúlegur
þegar á reynir. Auk fjársöfnunar, sem tókst eins og
alþjóð veit, framar öllum vonum, hefur ágóði af fjöl-
mörgum tónleikum og öðrum uppákomum runnið
óskertur til Flateyringa. Þessi stuðningur er gríðar-
lega mikilvægur. Lífið heldur áfram á Flateyri, þrátt
fyrir hörmungarnar sem yfir byggðarlagið hafa dun-
ið. Myndarlegur fjárstuðningur léttir Flateyringum
róðurinn á erfiðum tímum.
Styðjum KA-menn!
í dag taka KA-menn á móti bikarmeisturunum í
handbolta í Slóvakíu, TJ VSZ Kosice, í Evrópu-
keppni bikarhafa. Þetta er vitaskuld afar mikilvægur
leikur enda getur það þegar upp verður staðið skipt
sköpum að heimamenn fari með góðan sigur á Ak-
ureyri í farteskinu til Slóvakíu. Með miklum dugnaði
og krafti náðu KA-menn að sigra norsku bikar-
meistarana og margt bendir til þess að bikar-
meistararnir frá Slóvakíu séu ekki sterkari en hinir
norsku víkingar. Möguleikar KA-manna ættu því að
vera góðir. Það yrði saga til næsta bæjar ef KA kæm-
ist í þriðju umferð Evrópukeppninnar, í fyrsta skipti
sem liðið tekur þátt í keppninni. Eins og áður segir
skiptir heimaleikurinn öllu máli og því er full ástæða
til að skora á fólk að fjölmenna á leikinn í dag og
hvetja heimamenn duglega. Stuðningur áhorfenda í
leiknum gegn norsku bikarmeisturunum hafði allt
að segja. Það sama gildir örugglega í leiknum gegn
Kosice.
■ UPPAHALPI
Saltkjöt og baunir bestí maturinn
- segir Hannes Öm Blandon, sóknarprestur í Eyjafjarðarsveit
Hannes Örn
Blandon, sókn-
arprestur í
Eyjafjarðar-
sveit, hefur í
mörg horn að líta í starfi
sínu um helgina. Hœst ber
þó hátíðarguðsþjónustu í
Grundarkirkju á sunnudag
en þá verða liðin 90 árfrá
því kirkjan var vígð.
Hannes er sjötti prestur-
inn sem þjónar á Grund.
Hann sýnir lesendum sín-
ar uppáhaldshliðar.
HvaÖa matur er í mestu uppáhaldi
hjá þér?
Það er saltkjöt og baunir sem ég
borða oftar en bara á sprengidag-
inn.
Uppáhaldsdrykkur?
Eg held að kaldur bjór og góður
pilsner standi uppúr.
Hvaða lieimilisstörffinnst þér
skemmtilegustlleiðinlegust?
Mér þykja garðyrkjustörfin tví-
mælaiaust skemmtilegust en leið-
inlegast þykir mér að þvo
glugga.
Stundar þú einhverja markvissa
hreyfingu eða líkamsrœkt?
Já, ég fer reglulega t' leikfimi.
Ert þú í einhverjum klúbb eða fé-
lagasamtökum?
Já, ég er í Freyvangsleikhúsinu
og síðan í félagsstörfum starfsins
vegna.
Hannes Örn Blandon.
Hvaða blöð og tímarit kaupir þú?
Ég kaupi DV og The Flag Bullet-
in, sem er tímarit sem gefið er út
í Boston í Bandaríkjunum og
fjallar um skjaldarmerki og þjóð-
fána. Síðan kaupi ég þýskt tíma-
rit um guðfræði sem heitir Ho-
meletische Monathefte.
Hvaða bók er á náttborðinu hjá þér?
Whiteshark eftir Peter Benchley.
/ hvaða stjörnumerki ert þú?
Steingeit.
Hvaða tónlistarmaður er í mestu
uppáhaldi hjá þér?
Þeir eru nú eiginlega þrír og hver
er í mestu uppáhaldi fer eftir því
hvernig á stendur. Ég held mikið
upp á JJ Cale og síðan hollensk-
an vísnasöngvara sem heitir
Comelis Wreswijk. Þriðji uppá-
haldstónlistarmaðurinn er svo
Eric Clapton.
Uppáhaldsíþróttamaðurlleikari?
Uppáhaldsleikari hjá mér er Jer-
omy Irons og í fþróttunum er það
Asgeir Sigurvinsson, knatt-
spyrnumaður.
Hvað horfir þú mest á ísjónvarpi?
Ég horfi mest á fréttir.
A hvaða stjórnmálamanni hefurðu
mest álit?
Ef ég mætti nefna þann mann
sem hæst rís í stjómmálasögunni
þá væri það Willy Brandt. Hann
var mikill stjómmálamaður.
Hver er að þínu mati fegursti staður
á íslandi?
Það er Héraðið.
Hvar vildirðu helst búa efþú þyrftir
að flytja búferlum nú?
Þá væri það á Héraði.
Efþú ynnir stóra vinninginn i lóttó-
inu hvernig myndirþú eyða pening-
unurn?
Ég hugsa að ég myndi byrja á að
borga upp ýmsar smáskuldir í
kringum mig og því næst höndla
mér íbúð, sem ég hef ekki gert
enn.
Hvernig viltþú lielst verja frístund-
um þínum?
Til ferðalaga og efst á óskalistan-
um er að fara til Eystrasaltsland-
anna.
Hvað gerðir þú í sumarfríinu?
Ég málaði hlöðuna og fjárhúsin.
Hvað œtlarðu að gera um helgina?
Helginni ver ég í störf kirkjulegs
eðlis. Það verður gifting, sunnu-
dagaskóli og hátíðarmessa á
Grund á sunnudaginn. JÓH
MEf> MOROUNKAFFINU
OSKAR ÞOR HALLDORSSON
Karlmennska er lukkusprengja
Ég hafði ekki gert mér grein fyrir því fyrr
en ég fékk í hendur nýjasta tölublað Veru,
sem er kvennabaráttublað og gefið ÚF af
Samtökum um kvennalista, að ég væri
svona frekar absúrd karlmaður. Blaðið var
undirlagt af ósköp settlegum karlmönnum
sem veltu þeirri spurningu fyrir sér hvort
þeir væru í kreppu. Sumir komust að raun
um að þeir væru kannski örlítið krepptir, en
aðrir létu sér fátt um finnast og gáfu karla-
kreppuhugmyndinni langt nef. í þessu
ágæta blaði var m.a. viðtal við ungan mann,
Axel Guðmundsson, sem blaðamaður Veru
segir vera félaga í karlahópi sem hittist einu
sinni í mánuði og hafi „auðlegðarvitund"
(hvað sem það nú er??) að markmiði sínu.
Og Axel þessi segir allt sem segja þarf í
þessu sambandi í Veru: „Ég lít ekki svo á
að karlar hafi misst styrk sinn til kvenna
heldur hafa þeir ósköp einfaldlega misst
sinn styrk vegna þess að þjóðfélagið hefur
breyst svo hratt að feður okkar nýtast illa
sem fyrirmyndir. Til að öðlast styrk þurfum
við að velja og skapa okkur eigin fyrir-
myndir.“ Svo mörg voru þau orð Axels
þessa Guðmundssonar og þykist ég nokkru
vísari um mína stöðu og kynbræðra minna.
Nú er það vitaskuld hið alvarlegasta mál
þegar karlar missa styrk sinn til kvenna,
eins og Axel vinur vor orðar það, og út af
fyrir sig er það sannarlega tilefni kreppu. En
líklega er eitthvað annað og meira sem gerir
það að verkum að karlmönnum finnst þeir
eiga við kreppu að stríða. Er það vegna þess
að karlar fái ekki að taka fæðingarorlof
nema konan fallist á það? Er það vegna þess
að þeir séu búnir að gefast upp á hreysti-
ímyndinni? Eða er það vegna þess að þeim
finnist konan hafa gengið lengra en góðu
hófi gegnir í jafnréttisbaráttunni? Ekki veit
ég það. En ef til vill er lykilatriðið fólgið í
niðurlagi greinar Ingólfs V. Gíslasonar,
starfsmanns á skrifstofu jafnréttismála, í
títtnefndri Veru: „Okkur er það mikilvægt
að skárri öfl samfélagsins taki á í þeirri
veiku von að enn sé unnt að tryggja framtíð
á þessari jörð. Þar held ég að jafnréttisbar-
átta beggja kynja sé lykilatriði. Og alveg
þætti mér skaðlaust að sú barátta yrði ívið
herskárri en hún hefur verið seinni árin.“
Lukkusprengjur og Hemmahapp
Mér er alveg farið að blöskra allar þessar
lukkusprengjur og Hemmahapp. Kannski er
það vegna þess að ég vinn aldrei nokkum
skapaðan hlut í þessu (sennilega vegna þess
að ég kaupi ekki miða), en svona í alvöru
talað, er þetta ekki að verða meira en nóg?
A besta útsendingartíma Stöðvar 2, á laug-
ardagskvöldum, ræður Bingó-Ingvi ríkjum
og fer víst ekki fram hjá nokkrum manni.
Maður getur varla farið inn í matvörubúð á
föstudögum án þess að í eyrjum glymji „má
bjóða þér Bingólottó“? og meira að segja er
svo langt gengið að sölufólk gengur í hús til
þess að selja bingólottómiða. Bara sú sölu-
aðferð gerir það að verkum að ég læt mér
ekki koma til hugar að spila með Bingó-
Ingva.
Og auðvitað gat sjónvarpið ekki látið sitt
eftir liggja og er nú farið að senda út aug-
lýsingadagskrá fyrir Happdrætti Háskólans
á besta útsendingartíma á föstudagskvöld-
um. Og meira að segja vinur vor Derrick
hefur orðið að víkja fyrir happinu og hrakist
yfir á þriðjudagskvöldin. En það má Hemmi
Gunn eiga að hann stendur sig betur í aug-
lýsingadagskránni á föstudagskvöldum en
hann gerði í „er ekki allir í stuði?“ þætti sín-
um á miðvikudagskvöldum.
Nýjasta nýtt á þessum happmarkaði er
svo fyrirbæri sem nefnist „Lengjan, lengjan,
lukkusprengjan...“ Ég hef að vísu ekki
komist nægilega vel til botns í því hvað
þetta er og ekki eykur sjónvarpsauglýsing á
þessu fyrirbæri skilning minn. Og ekki
gengur mér betur að skilja fyrirbæri sem
nefnist Kínó. Ég er alveg hættur að skilja í
þessu öllu saman.
Miðað við allan þennan fjölda happ-
drætta, lukkumiða og -sprengja, gæti maður
álitið að þjóðin vissi vart aura sinna tal. En
miðað við þjóðfélagsumræðuna er það nú
sennilega ekki tilfellið. Og mín litla kunn-
átta í hagfræði segir mér að þegar upp er
staðið hljóti einhver að missa spón úr sínum
aski. Varla getur það verið að allir séu að
græða? Og þegar ég er að hamra þennan
texta inn á tölvuna mína fæ ég í hendur
fréttatilkynningu frá Hagstofu Islands þar
sem fram kemur að 25% hækkun á verði
Lottómiða hafi valdið 0,13% hækkun vísi-
tölu neysluverðs. Það er sem ég segi, lukku-
miðastandið í landinu er smám saman að
taka yfir efnahagsstjóm landsins. Með
þessu áframhaldi verður Davíð óþarfur.