Dagur - 11.11.1995, Blaðsíða 6

Dagur - 11.11.1995, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Laugardagur 11. nóvember 1995 Hraunsstrákarnir eru þeir Jón og Aðalsteinn gjarnan kallaðir. Þeir taka hlutunum af stóískri ró og búa með sínu lagi. Myndir: -sbs ..Þar til fíalla frainmi“ - rætt við bræðurna Jón og Aðalstein Jónassyni, bændur á Hrauni í Oxnadal ▲ Hraunastalli undir. Séð heim að Hrauni í Öxnadal og Dranginn gnæfir yfir. Engu er líkara en tíminn hafi fyrir allmörgum árum og jafnvel áratugum numið staðar á Hrauni í Oxnadal. Bræðurnir Jón og Aðalsteinn Jónassynir búa þar með sínu lagi - og fara sér engu óðslega við að færa sér tækni nútímans í nyt. Þeir búa á Hrauni með um 80 fjár og hafa verið að fækka því frá ári til árs. Heilsan gefur ekki tækifæri til að búa stórt. Og þótt þjóðvegur númer 1 liggi um bæjarhlaðið svo að segja telja þeir bræður sig ekkert er- indi eiga í aðrar byggðir. Til Reykjavíkur hefur Aðalsteinn aldrei komið en Jón þó einu sinni, það var árið 1946 þegar hann þurfti til augnlæknis. Heimreiðin að Hrauni var ófær þegar blaðamaður kom í heimsókn. Bfllinn var skilinn eftir við þjóðveginn og þessi síðasti spotti genginn. Fallegt bæjarstæðið fangar athyglina og við tökum mynd af staðnum og Hraundranga, sem yfir gnæfir líkt og kóngur yfir ríkidæmi sínu. Og þegar heim að bæ kemur heyrist hundgá og kindajarm. í dyra- gættinni standa þessir tveir heiðurskarlar og bjóða komumann velkominn í bæinn. Segja að hann, líkt og aðrir aðkomumenn, hafi uppfyllt nánast heilaga skyldu; að taka mynd af staðnum. Stundum segjast þeir horfa á alla farþega fjölmennra rútubíla koma út og munda vélar sínar. Listmálarar hafa einnig gert þetta bæjarstæði að yrkis- efni sínu; að öðrum ólöstuðum meistara Kjarval sem stóð við trönur sínar á þessum slóðum og með pensil og liti í hendi fyrir um 60 árum síðan. Fluttu að Hrauni 1938 Það var um fardagana vorið 1938 sem þau hófu búskap að Hrauni í Öxnadal hjónin Jónas Rósant Jónsson og Elínborg Aðal- steinsdóttir. Um nokkurra ára skeið höfðu þau áður búið á bænum Varmavatnshólum, sem var innst í Öxnadal. Snjóflóð féll á úti- hús þar þann 5. apríl þetta sama ár og það gerði búsetu á þessum stað ekki lengur væra. Um 90 kindur voru á húsi þegar flóð þetta brast á og um 30 náðust lifandi. „Það munaði litlu að við færum líka, fióðið stoppaði um 20 metra frá baðstofunni. Þetta var torfbær með timburklæðningu að innan. Það er ekki að því að spyrja hvernig farið hefði ef flóðið hefði fallið á bæinn,“ segir Jón. Elís Tómasson, hreppstjóri og oddyiti Öxndælinga, brá búi vorið 1938 og þá losn- aði Hraun til ábúðar. Þangað fluttu Jónas og Elínborg, ásamt níu bömum sínum, en frá kaupum á jörðinni var gengið 1941. „Var kaupverð nítján þúsund krónur. Á jörðinni hvíldi rúmlega sex þúsund og þrjú hundruð króna veðskuld hjá Byggingasjóði Búnaðar- bankans. Það sem vatnaði, eða hátt á þrett- ánda þúsund krónur, greiddi Jónas strax, og þurfti ekki á lántöku að halda utan eitthvað lítilsháttar sem hann fékk hjá sonum sínum og tengdaforeldrum,“ segir Guðmundur L. Friðfinnsson á Egilsá í bók sinni Saga bónd- ans á Hrauni, sem fjallar um ævi og starf Jónasar. Fé á fóðrum í Varmavatnshólum Jafnhliða því sem búskapur var stundaður og hann vaxandi á Hrauni var fé á fóðrum í Varmavatnshólum. Hraunsbræður, Jón og Aðalsteinn, voru næstu vetur hjá Stefáni Nikódemussyni og Sigurbjörgu Jónasdóttur í Gloppu, sem er næsti bær við Varmavatns- hóla, og önnuðust fjárhald þar. Þegar Stefán og Sigurbjörg brugðu búi í Gloppu tók Að- alsteinn málin í sínar hendur og dag hvem veturna 1944 til 1949 fór Aðalsteinn frá Hrauni fram að Varmavatnshólum til fjár- hirðingar þar. Þessa leið, sem er 22 km. báð- ar leiðir samanlagt, fór hann ýmist gangandi, á skíðum, á hjóli og síðustu vet- uma á bfl. Þá var Willis jeppinn kominn til sögunnar. „Þetta voru snjóléttir vetur og það bjarg- aði þessu. Ég man þó sérstaklega eftir vor- inu 1949 þegar gerði viku stórhríð í lok maí. Þá vorum við orðnir tæpir með hey héma heima á Hrauni en nóg var til í Varmavatns- hólum. Þá var gott að geta flutt heyið í jepp- anum,“ segir Aðalsteinn. Hann segir búskap í Varmavatsnhólum hafa endanlega verið hætt við tjárskiptin, 1949, og jörðina þá sameinaða landareign Hrauns. Á Hrauni vilja þeir vera „Við bræðumir höfum alltaf verið samrýmd- ir. Hjörtun hafa slegið í takt,“ segir Áðal- steinn og hlær við. Hann og Jón segja að það hafi verið óbein þróun að þeir bræður tækju við búskap af foreldrum sínum. Aldrei hafi um annað verið rætt eða annað komið til.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.