Dagur - 11.11.1995, Page 11

Dagur - 11.11.1995, Page 11
Félag vélsleðamanna í Eyjafírði Árlegur haustfundur vélsleða- manna úr Eyjafirði var haldinn í Blómaskálanum Vín sl. fimmtu- dagskvöld. Eyfirskir vélsleðamenn hafa hist á þessum sama stað und- anfarin ár og „hitað upp“ fyrir vet- urinn. I raun hefur ekki verið um formlegan félagsskap að ræða og aðal fundarefnið verið að skipa nefndir til að sjá um vélsleða- og útilífssýningu og árshátíð í tengsl- um við hana, sem jafnan er haldin í janúar. Að þessu sinni var fund- arefnið viðameira en oft áður, eða stofnun formlegs félags vélsleða- manna á Eyjafjarðarsvæðinu. Er það jafnframt félag innan Lands- sambands íslenskra vélsleða- manna, LÍV, og lýtur lögum þess. Samkvæmt núverandi skipulagi færist stjórn LÍV milli landshluta með reglulegu millibili. Hefur hún sl. tvö ár setið á sv-horninu og gott starf verið unnið í þágu vél- sleðamanna, svo sem að öryggis- málum og ýmsu öðru er lýtur að samskiptum við opinbera aðila. Hins vegar hefur staðreyndin ver- ið sú að félagsstarf hefur nánast dottið niður á þeim svæðum þar sem stjóm LÍV er ekki í það og það skipti. Með stofnun sérstaks félags vilja menn freista þess að gera á þessu breytingu og færa ýmislegt starf sem betur verður sinnt af svæðisbundnu félagi, nær hinum almenna félagsmanni og styrkja þannig samtök vélsleða- manna sem slík. Vösk sveit manna hefur á und- anförnum misserum unnið að und- irbúningi málsins og fundað bæði með aðalstjóm LIV og fleirum. Menn hafa skipst á skoðunum um fyrirkomulagið en niðurstaðan er sú að stofnað var sérstakt félag, Félag vélsleðamanna í Eyjafirði, sem jafnframt er félag í LÍV. Er Tómas Búi Böðvarsson, formaður Félags vélsleðamanna í Eyjafírði. hugsunin sú að LÍV verði í fram- tíðinni samtök svæðafélaga. Lög voru samþykkt fyrir hið nýja fé- lag, en ýmis nánari útfærsluatriði bíða nýkjörinnar stjórnar. Hana skipa: Tómas Búi Böðvarsson, formaður, og aðrir í stjóm eru Marinó Sveinsson, Halldór Arin- bjamarson, Kjartan Snorrason og Oli Þór Ragnarsson. Var leitast við að skipa stjórnina monnum sem víðast af félagssvæðinu og að ungir vélsleðamenn ættu þar sinn fulltrúa. Félagið er áhugamanna- félag og öllum opið. Næsta stórverkefni hins nýja félags er að standa fyrir hinni ár- legu vélsleða- og útilífssýningu og árshátíð. Var skipað í sýningar- nefnd, sem er hin sama og undan- farin tvö ár og lýtur öruggri stjórn Kjartans Snorrasonar. Raunar er undirbúningur sýningarinnar haf- inn fyrir nokkru og verður hún helgina 13. og 14. janúar nk. í Iþróttaskemmunni á Akureyri og árshátíðin laugardagskvöldið 13. janúar. HA Biindrafélagid: Gagnrýnir Seðlabankann „Seðlabanki Islands hefur gefið út nýjan peningaseðil. Utgáfa hans brýtur blað í útgáfustefnu bank- ans. Seðlabankinn hefur tekið um það sérstaka og meðvitaða ákvörðun að blindir eigi ekki að geta aðgreint peningaseðla eftir stærð. Ennfremur að gera skuli sjónskertum örðugt að aðgreina seðlana eftir lit. Þessi makalausa stefnubreyting bankans er skýlaust brot á þeirri jafnræðisreglu sem opinberri þjónustustofnun á borð við Seðla- bankann er skylt að gæta. Það er óskiljanlegt með öllu, eftir þá við- leitni sem bankinn sýndi í útgáfu sinni áður, að hann skuli nú ákveða að varna blindum og sjón- skertum þátttöku í almennri versl- un og viðskiptum í landinu." (Fréttatilkynning) Nafh Bjartmars féll nidur I frásögn blaðsins í gær af 90 ára afmæli Grundarkirkju í Eyjafjarð- arsveit féll niður nafn sr. Bjartmars Kristjánssonar í upp- talningu presta sem þjónað hafa kirkjunni. Sex prestar hafa því þjónað kirkjunni en ekki fimm eins og ranghermt var. Beðist er velvirðingar á þessu. JÓH SJ AVARR ETTA- HLAÐBO RÐ 1.380.- YÍrr 20 rittk m ÚR GREIPUM ÆGIS Laugardagur 11. nóvember 1995 - DAGUR - FISKISUPA MEÐ HVITLAUKSKRUÐUM KALDIR RÉTTIR: , , KONFEKT SILD MARINERUÐ SILD I SYRÐUM RJOMA APPELSINUSÍLD BRENNIVINS-GRAFINN LAX FISKIPATE FISKI-PASTA-SALAT OÐUSKEL WIENARGRETT MARINERAÐUR §ILUNGUR DJUPSTEIKT HÓRPUSKEL KAVIAR I SMJORDEIGSFISKI HUNANGSGRAFINN KARFI HEITIR RÉTTIR: DJÚPSTEIKTAR RÆKJUR PÖNNUSTEIKTUR HÁFUR PÖNNUSTEIKT LANGA LAX AÐ HÆTTI SKOTA HVÍTVÍNSSOÐINN KRÆKLINGUR RJÓMASOÐINN SKÖTUSELUR í GRÁÐOSTASÓSU SÍTRÓNUKRYDDUÐ SKÖTUBÖRÐ HÖFRUNGA-MEDALÍUR í RÓSAPIPARSÓSU Hamar félagsheimili Þórs: Líkamsrækt og tækjasalur Ljósabekkir Vatnsgufubað Nuddpottur Salir til leigu Beinar útsendingar Getraunaþjónusta Hamar sími 461 2080 auglýsingadeild Evrópukeppni bikarhafa í handknattleik KA-VSZ Kosice í KA heimilinu í dag, laugardaginn 1 1. nóvember kl. 17.00 Nú er áríðandi að mæta. - Fyllum KA heimilið af bestu stuðningsmönnum í heimi. Arsmiðahafar! Mætum í kaffi fyrir leik

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.