Dagur - 11.11.1995, Qupperneq 11
Félag vélsleðamanna
í Eyjafírði
Árlegur haustfundur vélsleða-
manna úr Eyjafirði var haldinn í
Blómaskálanum Vín sl. fimmtu-
dagskvöld. Eyfirskir vélsleðamenn
hafa hist á þessum sama stað und-
anfarin ár og „hitað upp“ fyrir vet-
urinn. I raun hefur ekki verið um
formlegan félagsskap að ræða og
aðal fundarefnið verið að skipa
nefndir til að sjá um vélsleða- og
útilífssýningu og árshátíð í tengsl-
um við hana, sem jafnan er haldin
í janúar. Að þessu sinni var fund-
arefnið viðameira en oft áður, eða
stofnun formlegs félags vélsleða-
manna á Eyjafjarðarsvæðinu. Er
það jafnframt félag innan Lands-
sambands íslenskra vélsleða-
manna, LÍV, og lýtur lögum þess.
Samkvæmt núverandi skipulagi
færist stjórn LÍV milli landshluta
með reglulegu millibili. Hefur hún
sl. tvö ár setið á sv-horninu og
gott starf verið unnið í þágu vél-
sleðamanna, svo sem að öryggis-
málum og ýmsu öðru er lýtur að
samskiptum við opinbera aðila.
Hins vegar hefur staðreyndin ver-
ið sú að félagsstarf hefur nánast
dottið niður á þeim svæðum þar
sem stjóm LÍV er ekki í það og
það skipti. Með stofnun sérstaks
félags vilja menn freista þess að
gera á þessu breytingu og færa
ýmislegt starf sem betur verður
sinnt af svæðisbundnu félagi, nær
hinum almenna félagsmanni og
styrkja þannig samtök vélsleða-
manna sem slík.
Vösk sveit manna hefur á und-
anförnum misserum unnið að und-
irbúningi málsins og fundað bæði
með aðalstjóm LIV og fleirum.
Menn hafa skipst á skoðunum um
fyrirkomulagið en niðurstaðan er
sú að stofnað var sérstakt félag,
Félag vélsleðamanna í Eyjafirði,
sem jafnframt er félag í LÍV. Er
Tómas Búi Böðvarsson, formaður
Félags vélsleðamanna í Eyjafírði.
hugsunin sú að LÍV verði í fram-
tíðinni samtök svæðafélaga. Lög
voru samþykkt fyrir hið nýja fé-
lag, en ýmis nánari útfærsluatriði
bíða nýkjörinnar stjórnar. Hana
skipa: Tómas Búi Böðvarsson,
formaður, og aðrir í stjóm eru
Marinó Sveinsson, Halldór Arin-
bjamarson, Kjartan Snorrason og
Oli Þór Ragnarsson. Var leitast
við að skipa stjórnina monnum
sem víðast af félagssvæðinu og að
ungir vélsleðamenn ættu þar sinn
fulltrúa. Félagið er áhugamanna-
félag og öllum opið.
Næsta stórverkefni hins nýja
félags er að standa fyrir hinni ár-
legu vélsleða- og útilífssýningu og
árshátíð. Var skipað í sýningar-
nefnd, sem er hin sama og undan-
farin tvö ár og lýtur öruggri stjórn
Kjartans Snorrasonar. Raunar er
undirbúningur sýningarinnar haf-
inn fyrir nokkru og verður hún
helgina 13. og 14. janúar nk. í
Iþróttaskemmunni á Akureyri og
árshátíðin laugardagskvöldið 13.
janúar. HA
Biindrafélagid:
Gagnrýnir Seðlabankann
„Seðlabanki Islands hefur gefið út
nýjan peningaseðil. Utgáfa hans
brýtur blað í útgáfustefnu bank-
ans. Seðlabankinn hefur tekið um
það sérstaka og meðvitaða
ákvörðun að blindir eigi ekki að
geta aðgreint peningaseðla eftir
stærð. Ennfremur að gera skuli
sjónskertum örðugt að aðgreina
seðlana eftir lit.
Þessi makalausa stefnubreyting
bankans er skýlaust brot á þeirri
jafnræðisreglu sem opinberri
þjónustustofnun á borð við Seðla-
bankann er skylt að gæta. Það er
óskiljanlegt með öllu, eftir þá við-
leitni sem bankinn sýndi í útgáfu
sinni áður, að hann skuli nú
ákveða að varna blindum og sjón-
skertum þátttöku í almennri versl-
un og viðskiptum í landinu."
(Fréttatilkynning)
Nafh Bjartmars
féll nidur
I frásögn blaðsins í gær af 90 ára
afmæli Grundarkirkju í Eyjafjarð-
arsveit féll niður nafn sr.
Bjartmars Kristjánssonar í upp-
talningu presta sem þjónað hafa
kirkjunni. Sex prestar hafa því
þjónað kirkjunni en ekki fimm
eins og ranghermt var. Beðist er
velvirðingar á þessu. JÓH
SJ AVARR ETTA- HLAÐBO RÐ
1.380.-
YÍrr 20 rittk m
ÚR GREIPUM ÆGIS
Laugardagur 11. nóvember 1995 - DAGUR -
FISKISUPA
MEÐ HVITLAUKSKRUÐUM
KALDIR RÉTTIR:
, , KONFEKT SILD
MARINERUÐ SILD I SYRÐUM RJOMA
APPELSINUSÍLD
BRENNIVINS-GRAFINN LAX
FISKIPATE
FISKI-PASTA-SALAT
OÐUSKEL WIENARGRETT
MARINERAÐUR §ILUNGUR
DJUPSTEIKT HÓRPUSKEL
KAVIAR I SMJORDEIGSFISKI
HUNANGSGRAFINN KARFI
HEITIR RÉTTIR:
DJÚPSTEIKTAR RÆKJUR
PÖNNUSTEIKTUR HÁFUR
PÖNNUSTEIKT LANGA
LAX AÐ HÆTTI SKOTA
HVÍTVÍNSSOÐINN KRÆKLINGUR
RJÓMASOÐINN SKÖTUSELUR
í GRÁÐOSTASÓSU
SÍTRÓNUKRYDDUÐ SKÖTUBÖRÐ
HÖFRUNGA-MEDALÍUR
í RÓSAPIPARSÓSU
Hamar
félagsheimili Þórs:
Líkamsrækt og tækjasalur
Ljósabekkir
Vatnsgufubað
Nuddpottur
Salir til leigu
Beinar útsendingar
Getraunaþjónusta
Hamar
sími 461 2080
auglýsingadeild
Evrópukeppni bikarhafa
í handknattleik
KA-VSZ Kosice
í KA heimilinu í dag, laugardaginn 1 1. nóvember kl. 17.00
Nú er áríðandi að mæta. - Fyllum KA heimilið af bestu stuðningsmönnum í heimi.
Arsmiðahafar! Mætum í kaffi fyrir leik