Dagur - 22.11.1995, Qupperneq 4
4 - DAGUR - Miðvikudagur 22. nóvember 1995
LEIÐARI-------------------
Misnotaður miðill
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI,
SÍMI: 462 4222
ÁSKRIFT KR. M. VSK. 1500 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125
RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.),
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.)
AÐRIR BLAÐAMENN:
AUÐUR INGÓLFSDÓTTIR, GEIR A. GUÐSTEINSSON,
HALLDÓR ARINBJARNARSON,
SIGURÐUR BOGISÆVARSSON, FROSTI EIÐSSON (Iþróttir),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 4641585, fax 464 2285).
LJÓSMYNDARI: BJÖRN GÍSLASON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 462 5165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 462 7639
SÍMFAX AUGLÝSINGADEILDAR: 462 2087
íslendingar sjást oft lítið fyrir í nýjungagirn-
inni og tæknibreytingunum sem verða í nú-
tímaþjóðfélögum. Nýjasta dæmið um þetta er
tölvunetið Internet og þær óravíddir mögu-
leika sem það gefur. Nú þegar hafa komið upp
dæmi um alvarlega misnotkun á tölvunetinu
sem vekur upp spurningar um hvar ábyrgðin
liggur þegar og ef slíkt gerist.
Vöxtur netsins hér á landi hefur verið gríð-
arlegur, eins og við var að búast miðað við al-
menna tölvueign og notkun. Ábyrgð þeirra
sem veita aðgang að netinu er mikil og svo
virðist sem reglur um þjónustu af þessu tagi
séu litlar sem engar. Þetta er áhyggjuefni
þegar haft er í huga að hér er á ferðinni risa-
vaxinn fjölmiðill sem brýtur niður flest fyrri
landamæri. Hætta á misnotkun á þessum
miðli, eins og öðrum, er til staðar þannig að
það hlýtur að vera keppikefli að um hann gildi
eðlilegar reglur.
Þó skuggahliðar Internetsins hafi verið
mest til umræðu uppá síðkastið má heldur
ekki gleyma að jákvæðu hliðarnar eru fleiri og
notendur netsins sjá með hverjum deginum
fleiri hagkvæma notkunarmöguleika. Tölvur
hafa nú þegar gríðarlega mikil áhrif í þjóðfé-
laginu og munu gera það enn meira í framtíð-
inni. Samskipti fólks munu verða meiri í gegn-
um tölvur á komandi árum og sömuleiðis upp-
lýsingaöflun. Hér á landi verður aldrei snúist
gegn straumnum heldur verðum við að fylgja
þróuninni eftir en jafnframt þarf að búa þann-
ig um hnútana að við misnotkun á Internetinu
verði ströng viðurlög og þeim sem selja að-
gang að þessari þjónustu sett ströng starfs-
skilyrði. Dæmin sanna að hægt er að misnota
þennan miðil að óbreyttu en öllum áhuga-
mönnum um þennan stærsta upplýsinga-
banka heims hlýtur að vera keppikefli að á
þessu verði tekið.
A£ íþróttahúsi og körfúboltaskrifúm
Undanfamar vikur hafa átt sér
stað blaðaskrif í Degi, blaðaskrif
þessi hafa gengið út á það að
menn hafa verið að lýsa skoðun-
um sínum um hvort það sé réttlæt-
anlegt að byggt verði íþróttahús
við Hamar (félagsheimili Þórs),
bókasafnið skuli stækkað, eða
byggt skuli yfir fótboltavöll eða
skautasvellið, eða guð má vita
hvað.
Blaðaskrif þessi hafa verið
mjög athyglisverð, vegna þeirra
yfirlýsinga sem hinir ýmsu bæjar-
fulltrúar hafa gefið og í sumum
tilfellum skoðanaleysis hjá öðrum
fulltrúum.
Bæjarfulltrúar okkar eru greini-
lega búnir að gleyma þeim skjálfta
sem um þá fór fyrir síðustu kosn-
ingar þó ekki sé langt um liðið.
Skjálfti þessi stafaði af þeirri
hræðslu sem greip um sig þegar
menn fóru fyrir alvöru að ræða
um sérframboð í Glerárhverfi til
bæjarstjómar, þá stóð ekki á því
hjá æði mörgum þeirra að eigna
sér væntanleg atkvæði okkar íbúa
Glerárhverfis (Þorpara) eð öllu
heldur Þórsara, til að koma í veg
fyrir umrætt sérframboð, þeir voru
sko okkar menn, alveg fram yfir
kosningar, en þá gleymdust fögm
orðin. Ég er einn af þeim foreldr-
um sem þarf að rassskellast út um
allan bæ með mín böm á æfingar
þar sem fþróttahús Glerárskóla
rúmar ekki allar æfingar krakk-
anna, þá þarf maður að sækja alla
leið upp í Höll, sem orðið er full
langt í burtu, eða að fara niður í
Skemmu, sem er vart boðleg leng-
ur að mínu mati, enda ekki byggð
sem íþróttahús heldur sem áhalda-
hús. En það er víst alveg nógu
gott og á að duga áfram af því að
það hefur gengið fram að þessu.
Ég eins og eflaust allir Þórsarar
er harður stuðningsmaður þess að
byggt verði íþróttahús hjá okkur
hið fyrsta. Ég hef áður hvatt til
þess að íþróttahús rísi við Hamar
með greinum í Degi, þar sem ég
hef reynt að færa rök fyrir þeirri
kröfu okkar að umrætt hús skuli
rísa hið fyrsta. Vegna þeirrar um-
ræðu sem skapast hefur út af
þessu öllu er greinilegt að við
Þórsarar erum ekki einir um að
vilja þetta hús heldur eigum við
marga stuðningsmenn innan raða
KA og bæjarbúa almennt, og
reyndar andstæðinga líka.
Ekki ætla ég að hætta mér út á
þann hála ís að fara að agnúast út
af því að ekki séu allir mér sam-
mála eins og gerst hefur milli
tveggja mætra manna að undan-
fömu hér á síðum blaðsins. Það er
hins vegar afar sorglegt þegar
málefnin gleymast að miklu leyti
og jafn hæfir og vel menntaðir
menn falla í þá gryfju að rífast og
ráðleggja hvaða uppnefni sé hægt
að nota til að uppnefna hinn. Enda
er undirritaður einungis lítt
menntaður sjómaður og tæplega
nógu fær um að grafa upp hvað
menn hafa sagt fyrir löngu síðan
og hvaða skoðanir þeir hafa haft
hér áður fyrr, til þess eru aðrir bet-
ur til þess fallnir og jafnvel
menntaðir í slíku. En þó er það
talið þroskamerki að geta skipt um
skoðun. Það er hins vegar krafa
mín að bæjarstjómin taki ákvörð-
un hið fyrsta og geri hana opin-
bera strax. Því ég hygg að ýmsir
þeir bæjarfulltrúar sem þóttust
eiga okkur við síðustu kosningar
eigi okkar atkvæði ekki alveg vís
við næstu kosningar, svo gæti ver-
ið gott að hafa tímann til að íhuga
og undirbúa sérframboð í fullri al-
vöm.
Svona rétt í lokin langar mig að
biðja fólk hér í bæ sem kaupir og
les DV að fara heldur varlega í að
taka mark á þeim manni sem
skrifar um fþróttir þar á bæ fyrir
Páll Jóhannesson.
Það er hins vegar
krafa mín að bæj-
arstjórnin taki
ákvörðun hið
fyrsta og geri hana
opinbera strax.
okkur Akureyringa. Skrif þau og
umfjöllun sem úrvalsdeildarleið
Þórs fær er hreint með ólíkindum,
þar fer blaðamaður DV á kostum
og mokar svo miklum skít yfir
leikmenn liðsins að maður á vart
orð til að lýsa þeirri reiði sem
grípur mann við lestur á skrifum
hans, nema þá í þeim dúr sem ég
geri núna, og á varla heima á síð-
um dagblaða. Mér er það til efs að
maðurinn hafi séð leiki liðsins, en
ef svo er þá hljóta að liggja ein-
hverjar annarlegur ástæður að
baki skrifum hans. Því þó liðinu
hafi ekki gengið eins vel og við
vildum, þá gefa þessi skrif ekki
rétta mynd af leik liðsins.
Geta liðsins er meiri en staðan í
deildinni sýnir. Ég skora á alla
Akureyringa að mæta betur á leiki
liðsins og hjálpa okkur að hvetja
þá til dáða, því hvatning er það
sem öll lið þurfa og þannig getum
við áhorfendur næstum því unnið
leiki. Og fullyrði ég að enginn
verður fyrir vonbrigðum, en þó
geta öll lið átt einn og einn dapran
dag, en réttlætir þó ekki slíka um-
fjöllun eins og ég var að benda á.
Páll Jóhannesson.
Höfundur er áhugamaður um boltaíþróttir og
velferð bama og unglinga.
Barnaskóli Bárðdæla:
Mannlega hagkvæmur skóli
„Ég veit ekki hvernig mér líst á
að sveitarfélög taki við rekstri
grunnskóla. Það er þó mín
grundvallarskoðun að ríkið eigi
alfarið að sjá um skóla- og heil-
brigðismál. Þetta tvennt er upp-
hafið af öllum jöfnuði manna á
meðal,“ sagði Svanhildur Her-
mannsdóttir, skólastjóri í
Barnaskóla Bárðdæla, í samtali
við Dag.
Ellefu nemendur stunda nám
við skólann í vetur, þar af eru
tveir í eldri deild, það eru nem-
endur sem eru tíu og ellefu ára. í
yngri deild eru nemendur frá sex
til tíu ára aldurs en hinir elstu í
yngri deildinni sitja þó allmarga
tíma í þeirri eldri. Svanhildur hef-
ur verið skólastjóri þessa skóla
síðustu 35 árin. Flestir voru nem-
endurnir í kringum 1980 - eða 28
talsins, en 1993 fóru þeir niður í
sex. Síðan hefur talan verið uppá
við og innan tveggja til þriggja ára
verða þeir orðnir 17 eða 18.
Þrír kennarar starfa við Bama-
skóla Bárðdæla, að skólastjóra
meðtöldum. „Það er máski pen-
ingalega óhagkvæmt að halda úti
skóla í þessari stærð. Það skal ég
viðurkenna. En þetta er þó hag-
kvæmt að því leyti að hér er
hverjum einstaklingi sem nem-
anda sinnt vel. Kostimir eru að
því leyti nokkuð margir og eru
fleiri en gallamir sem að vissu
leyti eru til staðar í þessari nem-
endafæð," sagði Svanhildur Her-
mannsdóttir skólastjóri. -sbs.
Blokkflautukennsla í Barnaskóla
Bárðdæla. A inyndinni má sjá
nokkra nemendur skólans sem eru,
frá vinstri talið; Sigríður Huld
Ingvarsdóttir, Hlíðskógum. Helga
Margrét Helgadóttir, Kálfborgará,
Sigurður Jón Eiríksson, Sandhaug-
um, Arnfríður Ingvarsdóttir, Hlíð-
skógum, og Anna Sæunn Ólafsdótt-
ir, Bjarnastöðum. Kennarinn og
skólastjórinn, Svanhildur Her-
mannsdóttir, stendur að baki nem-
endum sínum. Mynd: Sigurður Bogi.