Dagur - 22.11.1995, Qupperneq 6
6 - DAGUR - Miðvikudagur 22. nóvember 1995
Þarf aðhald í ríkisfjármálum?
Nú er sá tími árs þegar hin pólit-
íska umræða í þjóðfélaginu snýst
mest um fjármál ríkisins. Vinna
við fjárlagafrumvarp næsta árs
stendur yfir og ef að líkum lætur
verður það orðið að lögum eftir
einn mánuð. Það er vandasamt
verk að setja þjóðinni fjárlög og
við Islendingar eigum við sömu
útgjaldaþensluna að stríða og
aðrar þjóðir. Öll þau ár sem ég
hef setið á þingi hefur verið reynt
að stemma stigu við þessari
þenslu en gengið mjög misjafn-
lega.
Sú ríkisstjóm sem nú situr
hefur sett sér það markmið að
koma á jafnvægi í ríkisfjármálum
með fjárlögum 1997. Það þýðir
að eyða þarf halla, sem í ár er um
9 milljarðar. Þetta verður tekið í
tveimur áföngum, á næsta ári er
gert ráð fyrir 4 milljarða halla.
Það er sannfæring mín að þetta
muni ganga betur nú en oft áður
einkum vegna þess að mikil sam-
staða ríkir á milli stjórnarflokk-
anna um mikilvægi málsins.
Spornað gegn
útgjaldaþenslu
Það er athyglisvert að þrátt fyrir
það að ýmsum þyki nóg um að-
V
haldsaðgerðir þá verða fjárfram-
lög til heilbrigðis- og trygginga-
mála og menntamála hærri á
næsta ári en í ár. A verksviði
heilbrigðisráðuneytisins þarf
samt að draga úr útgjöldum sem
nemur 3 milljörðum króna ef
miðað er við útgjaldaauka vegna
launahækkana og fleiri þátta.
sem gengið hafði verið frá í tíð
síðustu ríkisstjórnar. Það er eðli-
legt að tekið sé á málum við
þessar aðstæður, svona getur
þetta ekki haldið áfram. Það er
hins vegar ekki létt verk að for-
gangsraða í viðkvæmum mála-
flokki eins og heilbrigðis- og
tryggingamálum en hjá því verð-
ur ekki komist.
Ábyrgð gagnvart
komandi kynslóðum
í dag eru um 10% af þjóðinni 67
ára og eldri en samkvæmt út-
reikningunt mun það hlutfall
verða um 17% árið 2030. Þá
verða 3,3 á vinnualdri á móti
hverjum 67 ára og eldri en í dag
er þetta hlutfall 6,3.
Við sem erum í stjórnmálum í
dag vitum vel að það verða aðrir
sem þurfa að takast á við þann
vanda sem þetta hefur í för með
sér. Okkur ber þó skylda til að
hugsa um komandi kynslóðir,
ábyrgð okkar gagnvart þeim er
mikil. Það er ánægjulegt að á AI-
þingi virðist ríkja nokkuð góð
samstaða um að að lengra verði
ekki gengið í sóun fjármuna og
skuldasöfnun ríkisins til þess að
„redda“ frá degi til dags.
VALCERÐUR SVERMSDÓTTIR
5JONARMIP
ÁMIÓVIKU-
DEÚI
Haldi hækkun ríkisútgjalda
áfram, eins og hún mun gera,
verði ekki gripið í taumana,
verður að mæta útgjaldaaukning-
unni með nýjum sköttum. Þá þarf
að finna 28 milljarða króna í nýj-
íslenskir máls-
hættir með skýr-
ingum og dæmum
og Islensk orð-
tök með skýr-
ingum og dæmum
Bókaútgáfan Iðunn hefur gefið út
tvær bækur eftir Sölva Sveinsson,
íslenskir málshættir með skýr-
ingum og dæmum og nýja útgáfu
bókarinnar Islensk orðtök með
skýringum og dæmum, sem kom
út fyrir tveimur árum og seldist þá
upp. Bækumar fást bæði stakar og
einnig saman í öskju.
í bókununt er fjallað um mik-
inn fjölda orðtaka, málshátta og
spakmæla, sem eru ríkur þáttur ís-
lenskrar tungu og draga fram
sannindi og skoðanir um ýmis fyr-
irbæri, en upprunaleg merking
þeirra er nútímafólki oft ekki Ijós,
síst hinum yngri. Bókunum er
ekki aðeins ætlað að auðvelda
fólki að auðga mál sitt og öðlast
skilning á því, heldur og að stuðla
að réttri meðferð þess. Höfundur-
inn skýrir hér málshættina og orð-
tökin, segir frá upprunalegri merk-
ingu þeirra og lýsir þeim aðstæð-
um sem þau eru sprottin upp við.
Jafnframt eru gefin dæmi um
notkun þeirra í daglegu nútíma-
máli.
Þetta eru einkar handhægar og
fróðlegar bækur fyrir nútímafólk,
sem vill leita uppruna orðtaka og
málshátta og um leið auðga málfar
sitt og gera það blæbrigðaríkara. í
bókunum er íjöldi skemmtilegra
skýringarteikninga eftir Brian
Pilkington.
Bókin íslensk orðtök er 225
blaðsíður og íslenskir málshættir
247 blaðsíður. Verð hvorrar bókar
um sig er 3.880 en saman í öskju
kosta þær 7.760 krónur.
HOTEL KEA
Hinir sívinsælu
Miðatdamem
frá Siglufirði
halda uppi fjörinu
laugardagskvöld
Atfi.l Enginn aðgangseyrirl
Erum farin að bóka fyrir
okkar vinsœla
0 V
jomnmofjon
sem verður 1., 2., 8., 9., 15.
og 16. desember.
Htjómsdeit Inyu Eydat
fullkomnar jólastemmninguna.
Borðapantanir í síma 462 2200.
mmmm
um tekjum til að mæta útgjalda-
aukningunni frá 1995 til 1999.
Allir sjá að slfkt gengur ekki
upp.
Ymsar þjóðir hafa reiknað út
hvernig skattar komandi kyn-
slóða verði að hækka ef ekki
verði dregið úr útgjöldum. Italir
hafa t.d. komist að þeirri niður-
„Okkur ber þó skylda til'
að hugsa um komandi kyn-
slóðir, ábyrgð okkar gagn-
vart þeim er mikil. Það er
ánægjulegt að á Alþingi
virðist ríkja nokkuð góð
samstaða um að lengra
verði ekki gengið í sóun
fjármuna og skuldasöfnun
ríkisins til þess að „redda“
frá degi til dags.“
stöðu að komandi kynslóðir þurfi
að greiða fimmfalt hærri skatta
ef ekki verði dregið úr útgjöld-
um. Bandaríkjamenn telja að
skattar geti tvöfaldast
I stjómarsáttmála ríkisstjórn-
arinnar segir m.a.: „Tekið verði
upp samstarf við aðila vinnu-
markaðarins um endurskoðun á
skattkerfinu með það að mark-
miði að draga úr skattsvikum,
lækka jaðarskatta, einfalda skatt-
kerfið og auka jafnræði innan
þess.“
Nefnd þessi hefur þegar verið
skipuð og á hún að skila af sér á
næsta ári. Verkefni hennar er gíf-
urlega umfangsmikið og vanda-
samt.
Það er augljóst að skattsvik
eru stunduð hér af kappi og hafa
líkur verið leiddar að því að þær
upphæðir sem þannig tapist séu á
annan tug milljarða. Það sem
kallað hefur verið jaðarskattar og
er áhrif bótagreiðslna sem eru
tekjutengdar, er stórkostlegt
vandamál í okkar skattkerfi. Tal-
ið er að jaðarskattar séu í ýmsum
tilfellum hærri hér en þekkist
annars staðar.
Það er því eitt af stóru málun-
um að komið verði á réttlátara
skattkerfi ásamt því að jafnvægi
verði komið á í ríkisfjármálum.
Valgerður Sverrisdóttir.
Höfundur er þingmaður fyrir Norðurland
eystra og formaður þingflokks Framsóknar-
flokksins.
________________________________J
Inga Sólveig Friðjónsdóttir listakuna við tvö verka sinna. Mynd: Sigurður Bogi.
Ljósmyndasýning í Deiglunni:
Einskonar stúdía
af andstæðum
og formum
„Verkin á þessari sýningu eru
einskonar stúdía af andstæðum og
formum í borgar- og náttúrulands-
lagi,“ segir listakonan Inga Sól-
veig Friðjónsdóttir, sem um þessar
mundir heldur ljósmyndasýning-
una Af klettum og steini í Deigl-
unni í Listagilinu á Akureyri.
Myndirnar sem Inga Sólveig
sýnir eru allar svart-hvítar og lit-
aðar með litum. Myndirnar eru
ýmis teknar í fjörum víðsvegar um
landið eða þá í Berlín. „Að reika
unt stræti stórborgar og njóta þess
sem náttúran hefur uppá að bjóða
gefur gjörólíkar tilfinningar. En í
báðum tilfellum er hægt að finna
skemmtileg form og andstæður,"
segir listakonan, en sýning hennar
stendur fram á sunnudag um
næstu helgi, það er 26. nóvember.
-sbs.