Dagur - 22.11.1995, Qupperneq 16
mm,
Akureyri, miðvikudagur 22. nóvember 1995
XEROX 5090 MAX ljósprentarinn tekur við þeim gögnum sem
skal ljósprenta (ljósrita) og skilar útkomunni innbundinni, sé þess
óskað. I einni og sömu aðgerðinni má prenta sjálft meginmálið,
kápuna, stinga inn aukasíðum (litasíðum td.) og binda inn
(kjölband (6 litir) eða vírhefta). KOMIÐ OG SJÁIÐ - SJÓN ER
Hafnarstræti 106
Sími 462 7422
NÝJA=Z=ZH
SÖGU RÍKARI. Filmuhúsið
Bæjarstjórn Akureyrar:
Samþykkti að ganga
til samninga við Þór-
arin Kristjánsson o.fl.
Sala hlutabréfa Akureyrarbæj-
ar í Krossanesi hf. að nafn-
virði 110 milljónir króna var til
umræðu í bæjarstjórn Akureyrar
í gær og samþykkt að ganga til
samninga við hóp fjárfesta sem
Þórarinn Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri Gúmmívinnsl-
unnar, hefur farið fyrir, með 10
samhljóða atkvæðum. Auk Þór-
arins standa m.a. að tilboðinu
starfsmenn Krossaness hf., Líf-
eyrissjóður Norðurlands hf. og
Sigurður Einarsson, útgerðar-
maður í Vestmannaeyjum, en
baki tilboðsgjöfum eru um 10%
af heildarloðnukvótanum.
Jakob Björnsson, bæjarstjóri,
sagði að þeim aðiium sem sýnt
hefðu verksmiðjunni áhuga hefði
verið boðið að gera tilboð í hana
með símbréfi 10. nóvember sl.
Tiiboðin voru opnuð 14. nóvem-
ber og að kvöldi þess dags hefði
svo borist tilboð frá Sverri Leós-
syni, útgerðarmanni, o.fl. Bæjar-
stjóri sagði að gagnrýna mætti
þessa aðferð og e.t.v. hefði verið
eðlilegast að auglýsa bréfín á op-
inberum markaði. Það væri hans
skoðun að það ætti ekki að gera að
svo komnu máli því hugsanlega
bærust þá lægri tilboð eða jafnvel
engin. Með sölunni myndi staða
Framkvæmdasjóðs batna verulega
og Akureyrarbær yrði laus úr öll-
um ábyrgðum í Krossanesi.
Sigurður J. Sigurðssson (D)
gagnrýndi bæjarstjóra fyrir að sala
hlutabréfa í Krossanesi hefði ekki
verið tekin fyrir í bæjarráði áður
en beðið var um tilboð í þau. Það
leiddi hugann að því hvernig
skynsamlegast væri að standa að
sölu hlutabréfa bæjarins í Laxá hf.
og hann varpaði einnig fram þeirri
spurningu hvort eign Akureyrar-
bæjar í formi hlutabréfa í Útgerð-
arfélagi Akureyringa hf. stæði í
vegi fyrir eðlilegum viðskiptum
með hlutabréf fyrirtækisins.
Kanna ætti hvort ekki væri rétt að
selja hluta þeirra. Bæjarstjórn
samþykkti að bjóða hlutabréf Ak-
ureyrar f Laxá hf. til sölu.
Guðmundur Stefánsson, bæjar-
fulltrúi og framkvæmdastjóri Fóð-
urverksmiðjunnar Laxá hf., sat hjá
við atkvæðagreiðsluna en Laxá hf.
átti einnig tilboð í hlutabréfin auk
Odds Halldórssonar, sem fór fyrir
áhugahópi um rekstur Krossaness
hf„ auk tilboðs frá Sveiri Leós-
syni o.fl., sem áður er getið. Sig-
ríður Stefánsdóttir (G) taldi Guð-
mund Stefánsson vanhæfan til að
greiða atkvæði um sölu hlutabréfa
Akureyrarbæjar f Krossanesi þar
sem Laxá hf. væri einn þeirra að-
ila sem sóst hefðu eftir bréfunum.
GG
Bæjarstjórn Akureyrar:
Hlutabréf í Skinnaiðnaði hf.
seld á nær þreföldu kaupverði
Bæjarstjórn Akureyrar sam-
þykkti í gær samning við
Kaupþing Norðurlands hf. um
sölu á hlutabréfum Akureyrar-
bæjar í Skinnaiðnaði hf. Hluta-
bréfin eru að nafnverði kr.
21.250.000 en voru á sínum
tíma, fyrir réttum þremur árum,
keypt á 22,5 milljónir króna.
Gengi bréfanna við sölu nú er
2,92 og heildarsöluverð þeirra
því kr. 62.050.000. Samþykkt
var einnig að hafna tilboði um
forkaupsrétt á auknu hlutafé í
Skinnaiðnaði hf.
Hótel Norðurland
Nokkrar umræður urðu um það er-
indi frá Hótel Norðurlandi að
Geislagötu 7 að byggja fjórðu
hæðina ofan á húsið án þess að að
þurfa að koma fyrir lyftu í húsinu.
Tillaga um að vísa málinu aftur til
bygginganefndar var felld og er-
indið síðan samþykkt með 7 at-
kvæðum gegn þremur þeirra Sig-
ríðar Stefánsdóttur, Heimis
Ingimarssonar og Sigfríðar Þor-
steinsdóttur.
Ráðning Valgerðar staðfest
A fundinum voru Jóni Björnssyni,
fráfarandi félagsmálastjóra, þökk-
uð giftusamleg störf fyrir Ákur-
eyrarbæ og jafnframt staðfesti
bæjarstjórn ráðningu Valgerðar
Magnúsdóttur í starf sviðsstjóra
félags- og fræðslusviðs.
Nýr fulltrúi í stjórn
Upplýsingamiðstöðvar
Jafnframt var kosið um nýjan full-
trúa Akureyrarbæjar í stjóm Upp-
lýsingamiðstöðvar ferðamála í
stað Hallgríms Guðmundssonar,
fyrrverandi atvinnumálafulltrúa,
og var tillaga bæjarstjóra um
Gunnar Karlsson, hótelstjóra,
samþykkt en fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins í bæjarstjórn sátu hjá.
GG
Þórarinn B. Jonsson bæjarfulltrúi:
Áhrif álversfram-
kvæmda á „Eyfirska
efnahagssvæðið“
Þórarinn B. Jónsson, bæjar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokks,
varpaði fram þeirri hugmynd á
fundi bæjarstjórnar Akureyrar í
gær hvort ekki væri rétt að
senda heillaóskaskeyti suður
vegna fyrirhugaðra fram-
kvæmda við stækkun og/eða
byggingu nýs álvers á suðvestur-
horni landsins.
Hann vildi jafnframt hvetja
stjómvöld til þess að draga að
sama skapi úr framkvæmdum á
því landshorni og leyfa öðrum
landshlutum að njóta þar með
einnig þeirrar þenslu í fram-
kvæmdum sem óhjákvæmlega
myndu fylgja í kjölfarið. Bæjar-
stjóri sagði vel athugandi að skoða
áhrif álversframkvæmda fyrir
sunnan, hvað stjórnvöld vildu gera
til mótvægis á „Eyfirska efna-
hagssvæðinu". GG
Einingarfélagar á einu máli
MikiII fjöldi fólks sótti félagsfund í Verkalýðsfélaginu Einingu, sem haldinn
var í Alþýðuhúsinu á Akureyri sl. mánudagskvöld. Þetta er með fjölmennari
fundum sem haldinn hefur verið í Einingu í langan tíma. Mikill meirihluti
fundarmanna samþykkti að segja upp gildandi kjarasamningum. Mynd: BG
Eining vill uppsögn
kjarasamninga
Mikill meirihluti félaga í
Verkalýðsfélaginu Einingu
samþykkti að segja upp gildandi
kjarasamningi þannig að þeir
verði lausir um áramót.
Á félagsfundum í Einingu sl.
sunnudag og mánudag var eftir-
farandi tillaga borin undir atkvæði
félagsmanna:
„Almennir félagsfundir í Verka-
lýðsfélaginu Einingu Eyjafirði
samþykkja að skora á launanefnd
landssambanda innan ASÍ að segja
nú þegar upp gildandi kjarasamn-
ingum þannig að þeir verði lausir
um næstu áramót. Ennfremur sam-
þykkja fundirnir að veita stjórn og
trúnaðarmannaráði félagsins heim-
ild til að segja upp gildandi kjara-
samningum félagsins."
Efnt var til félagsfunda í Ólafs-
firði, Dalvík, Hrísey, Grenivík og
Akureyri og greiddu alls 286 fé-
lagsmenn atkvæði. Tillögunni
greiddu 266 félagsmenn atkvæði,
nei sögðu 17 og 3 seðlar voru auð-
ir.
Beðið er niðurstöðu launa-
nefndar ASÍ og VSÍ, en í henni
eiga sæti fulltrúar beggja þessara
landssambanda. Björn Snæbjörns-
son, formaður Einingar, sagði í
Degi sl. þriðjudag að ef launa-
nefndin myndi ekki segja upp
gildandi kjarasamningum þannig
að þeir verði lausir um næstu ára-
mót, þá fari einstök verkalýðsfé-
lög af stað og láti á það reyna
hvort þau geti sagt samningunum
upp. óþh
Sóknarheimildir smábáta skerðast skv.
frumvarpi um smábátaútgerð:
„Leitum hráefnis á
öðrummiðum“
- segir Jóhann Ólafsson á Raufarhöfn
Ef sókn smábáta, sem mikið
leggja inn afla hér yfir sum-
artímann, verður heft hefur það
mikil áhrif hjá okkur. Við þessu
verður brugðist af okkar hálfu,“
sagði Jóhann Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Fiskiðju Raufar-
hafnar hf.
Nýtt frumvarp um stjórn fisk-
veiða, sem er til meðferðar á Al-
þingi, gerir ráð fyrir verulegri
fækkun sóknardaga þeirra smá-
báta sem eru undir 9 tonnum að
stærð. Má búast við að heimiluð-
um sóknardögum fækki um allt að
helming frá því sem nú er, en ntis-
jafnt er aftur hve marga daga hver
bátur hefur skv. núgildandi regl-
um. Frumvarpið tekur gildi þann
1. september 1996, verði það sam-
þykkt.
„Við verðum að bregðast við
þessu með einhverjum hætti og
gefumst ekki upp. Við þurfum að
fara af stað og leita hráefnis á öðr-
um miðum, svo sem að fá afla frá
skipum eða fiskmiðlunum í öðrum
landshlutum. Þetta nýja frumvarp
hefur líka mikil áhrif á iffíð á
stöðum eins og hér á Raufarhöfn,
svo margar fjölskyldur hafa viður-
væri sitt af útgerð smábáta. Stóra
málið er hinsvegar að takmarkað
magn fiskjar er í sjónum og hver á
að veiða hann?“, sagði Jóhann Ól-
afsson. -sbs
Innimálning
á ótrúlegu verði