Dagur - 25.11.1995, Síða 13
Laugardagur 25. nóvember 1995 - DAGUR - 13
POPP
MAGNÚS GEIR ÚUÐMUNDSSON
Betl er besta mál
Árið 1993 tóku þeir félagar og
frændur, Rögnvaldur Bragi Rögn-
valdsson og Hreinn Laufdal, sig til
og gáfu út sérdeilis nýstárlega og
skemmtilega jólasnældu undir
nafninu Beti. Kallaðist verkið
„Skyldi það vera hjólastóll" og
innihélt frumsamda jólaóða þeirra
sungna af ýmsu góðu fólki. Verð-
ur ekki annað sagt en að tiltækið
hafi heppnast bærilega því þeim
félögum tókst að selja snælduna í
um 2000 eintökum, eða u.þ.b. allt
upplagið. Það var því óhjákvæmi-
legt annað fyrir þá Rögnvald og
Hrein en að endurtaka leikinn.
Spurningin var aðeins hvenær
þeir kæmu því við þar sem þeir
voru (og eru) búsettir sitt hvoru
megin á landinu, á Akureyri og í
Reykjavík. Er skemmst frá því að
segja að lagaframleiðsla hófst fljót-
lega í kjölfar jólasnældunnar, en
það var ekki fyrr en á þessu ári
sem þeir hófust handa við fyrstu
upptökur. Hafði þá þriðji meðlim-
urinn, Dósi, sem söng á snæld-
unni, bæst í hópinn og tók fullan
þátt í upptökunum. Afraksturinn
af amstrinu er nú kominn út og í
þetta skiptið í formi 16 laga
geislaplötu, sem ber heitið Eilíft
betl. Lagasmíðinni skipta þeir á
milli sín þannig, að Hreinn á sjö
laganna, Rögnvaldur sex og Dósi
þrjú. Textana við eigin lög semja
þeir yfirleitt sjálfir, nema hvað
Hreinn semur alla þrjá við lög
Dósa. Þeir syngja svo allir líka,
mismunandi mikið þó. Þenur Dósi
sín hráu en hrífandi raddbönd í
einum sjö lögum, Rögnvaldur í
einu og „Mr. Clean" (sem með
röklegri hugsun hlýtur að vera
augljóst hver er) í tveimur. Af-
gangnum, sjö lögum, skipta svo
jafnmargir sönvarar á milli sín og
eru nöfn þeirra, sum hver a.m.k.,
kunnugleg. Þetta eru þau Kristján
Pétur fjöllistamaður með meiru,
Halli Davíðs hinn eini sanni, Guð-
laugur Hjaltason, Sölvi Ingólfsson
fyrrum upprennandi íþróttahetja
(og skólabróðir ónefnds popprit-
ara) og söngkonurnar Guðrún
Baldursdóttir og Petr Björk. Um
bakraddasöng o.fl. sér síðan þriðja
söngkonan, Inga Guðmundsdóttir,
systir Bjarkar.
Dísætt og dillandi
Alveg eins og á jólasnældunni láta
Betl er bragðgott og akureyrskt popp.
þeir „Betlararnir" nú nær alfarið
hefðbundin hljóðfæraleik lönd og
leið, en láta þess í stað dýrindis
tölvutól um allt ómakið og erfiðið
við flutninginn. Þetta væri undir
venjulegum kringumstæðum
ámælisvert athæfi (nema ef um
hefði verið að ræða „Teknó" eða
annað slíkt danspopp) en þar sem
um oft á tíðum dæmalaust dísætar
og dillandi laglínur er að ræða,
sem vart hefðu hljómað betur
öðruvísi, er fullkomlega hægt að
fyrirgefa slíkan umbúnað hér.
Grátbroslegir textar, sem sumir
hverjir pota í ýmsa viðkvæma
staði, (og eru þ.a.l. vafalaust ekki
öllum að skapi) krydda svo her-
legheitin hressilega. Dæmi um eð-
alsmíðar eru lög og textar á borð
við Guð, í bítið, Þeir, Elskan, Basl,
Hvati og Fía, allt fín lög, sem
myndu sóma sér vel á öldum ljós-
vakans. Betlið eilífa er sem sagt
hið besta mál og hið mesta gleði-
og fagnaðarefni.
Plötuna er að fá í Tónabúðinni,
Radiónausti og Hljómdeild KEA,
auk þess sem „Betlarar" hafa hana
sjálfir til sölu.
Stelpumar standa sig
Á þessum tímum jafnréttis er
ánægjulegt að sjá að kvenþjóðin er
a.m.k. á einu sviði að færa sig sí-
fellt meira upp á skaftið, í tónlist-
inni. Hér á síðunni hefur aðeins
verið drepið á þetta áður í kjölfar
þess að ungar söngkonur á borð
við Kristínu Eysteinsdóttur, Heið-
rúnu Önnu Björnsdóttur og Emili-
önu Torrini, auk margra annarra
tónlistarkvenna af eldri kynslóð-
inni, hafa verið að gera athyglis-
verða hluti hér á landi. Það sama
er svo líka upp á teningnum þegar
augunum er rennt yfir poppflór-
una erlendis. Auðvitað er það ekk-
ert nýmæli að konur séu í sviðs-
ljósinu þar, en það hefur líklega
sjaldan verið eins áberandi og nú.
Listinn yfir tiu söluhæstu plöturn-
ar í Bandaríkjunum er ekki hvað
síst til marks um þennan uppgang
tónlistarkvenna, því að um þessar
Janet Jackson er áfram ein af vin-
sælustu snótum poppsins.
mundir eiga þær hvorki meira né
minna en þrjár best seldu plöturn-
ar. Mariah Carey trónir nú á
toppnum með Daydream. í öðru
sæti er hin kanadíska Alanis Mori-
sette með frumburð sinn, Jagged
Little Pill og í þriðja sæti er svo
Janet Jackson, systir Michaels, með
nýju safnplötuna sína Design Of A
Decade 1985/1996. Neðar á listan-
um, í áttunda sæti, er síðan
stúlknaþríeykið TLC með Plötuna
Crazysexcool. í Bretlandi eru
Marih, Janet og Alanis allar inni á
topp 20 og fór sú fyrsttalda m.a. á
toppinn á sínum tíma. Lög þessara
kvenna hafa síðan mörg líka verið
í efstu sætum að undanfömu.
Verður það svo spennandi að sjá
hvernig Björku vegnar með nýju
smáskífuna, It's A1 So Quiet, en
hún var að koma út í Bretlandi í
síðustu viku.
Efefei dauður úr öllum æðum
Hafi einhverjir haldið að gamla
rokkbrýnið Ozzy Osboume væri
dauður úr öllum æðum, þá er
það mikill misskilningur. Gamla
rokksöngvaranum gekk að vísu
nokkuð brösuglegá að koma nýju
plötunni sinni, Ozzmosis, út auk
þess sem hann hætti við að hætta
í rokkbransanum á síðustu
stundu, en það hefur bara ekkert
komið að sök. Hefur hálfgert æði
skollið á í kringum hann og plat-
an selst gríðarvel á fyrstu útgáfu-
vikum. Til dæmis fór hún í yfir
90.000 í Japan í fyrstu söluviku
og í Bandaríkjunum seldist hún í
fyrstu vikunni í 135.000 eintök-
um og fór beint inn á topp tíu.
Hefur Ozzy ekki fengið slíkar
viðtökur í yfir tíu ár og gæti Ozz-
mosis allt eins orðið hans vinsæl-
asta plata ef fram heldur sem
horfir.
Ozzy gefur ekkert eftir.
Safn- og
endurútgáfur
Líkt og fyrir mörg undanfarin
jól, verða safn- og endurútgáfur
áberandi fyrir þessi jól í plötu-
flóðinu. Fer hér á eftir upptaln-
ing á nokkrum þeirra.
Gunnar
Þórðarsson
í tilefni af 50 afmæli Gunnars
Þórðarsonar á þessu ári, er
komin út tvöföld útgáfa með
fjörutíu af hans þekktustu lög-
um. Spanna lögin tímabil allt
frá Hljómum á miðjum sjöunda
áratugnum til nær dagsins í
dag.
Ragnar
Bjarnason
Ragnar Bjarnason hefur svo
áratugum skiptir verið einn af
vinsælustu dægurlagasöngvur-
um þjóðarinnar og er enn þann
dag í dag í fullu fjöri. Með hon-
um er komið út tuttugu laga
safn, þar sem perlur á borð við
Vorkvöld í Reykjavík og Vertu
ekki að horfa svona alltaf á mig
er að finna.
Einar
og MA
Úr klassískri deild íslenskrar
sönglistar er ekki úr vegi að
nefna hér tvær útgáfur, sem
báðar tengjast norðurhéruðum
landsins. Er þar annars vegar
um að ræða plötu með söng
hins margfræga MA kvartetts á
Akureyri, sem með sanni voru
einir helstu „popparar" síns
tíma. Hins vegar er það veglegt
safn með óperusöngvaranum
Einari Kristjánssyni úr Skaga-
firðinum, sem tvímælalaust er
með ástsælli söngvurum þjóð-
arinnar. Má geta þess hér til
gamans fyrir þá sem ekki vita
að Einar Kristjánsson var afi
Einars Amar Sykurmola og at-
hafnamanns með meiru og afa-
bróðir Halldórs Bragasonar,
blúsgreifa í Vinum Dóra.
BRUNALIÐIÐ
úr öskunni í eldinn
Plata Brunaliðsins, Úr öskunni
í eldinn, ein af þeim sem nú
hefur verið endurútgefin.
Bruna-
liðið
Sumarið 1978 tók margt af
helsta tónlistarfólki landsins sig
til og setti saman hljómsveitina
Brunaliðið. Er ekki að orðlengja
það að fyrsta platan, Úr ösk-
unni í eldinn, náði gríðarlegum
vinsældum og seldist í þúsund-
um eintaka. Meðal þeirra sem
þama komu við sögu voru
Magnús Eiríksson, Pálmi
Gunnarsson, Ragnhildur Gísla-
dóttir, Diddú, Magnús Kjart-
ansson og Laddi. Hefur nú
þessi vinsæla plata, sem inni-
heldur m.a. lög á borð við Ég er
á leiðinni, Einskonar ást og
Sandala, nú verið endurútgefin
í geislaformi, er áreiðanlega
gleður marga.
Halli og Laddi
Þeir bræður, Haraldur og Þór-
hallur Sigurðssynir, Halli og
Laddi, gerðu á sínum tíma þeg-
ar þeir voru sem vinsælastir
nokkrar plötur, sem nutu mik-
illar hylli meðal landsmanna.
Tvær þeirra vom Fyrr má nú
aldeilis fyrrvera og barnaplatan
um Skríplana. Eru þær nú báð-
ar endurútgefnar fyrir þessi jól,
en eins og flestir krakkar vita
kallast nú litlu fyrirbærin
Stmmpar og hefur upprunaút-
gáfunni verið breytt í samræmi
við það.