Dagur - 06.01.1996, Blaðsíða 3
FRETTIR
Laugardagur 6. janúar 1996 - DAGUR - 3
Dómur kveðinn upp vegna slyss
Héraðsdomur Norðurlands eystra:
um borð í Þorsteini GK
Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt Önund
Kristjánsson, skipstjóra og útgerðarmann á Raufar-
höfn, til að greiða Heiga Péturssyni, véltæknifræðingi
til heimilis í Reykjavík, 2,55 milljónir króna auk vaxta
frá 1. júní 1988 til greiðsludags og 500 þús. króna í
málskostnað vegna slyss sem varð um borð í Þorsteini
GK-15, 50 tonna eikarbáti, þegar verið var að draga
þorskanet suður af Langanesi í júní 1982.
Helgi Pétursson, stefnandi inálsins, var skipverji á Þor-
steini GK þegar slysið átti sér stað, en Önundur Kristjáns-
son var skipstjóri og útgerðarmaður skipsins. Samkvæmt
málsskjölum hafði Helgi þann starfa þegar slysið átti sér
stað 18. júní 1982 að draga netið af dráttarkarlinum og
fyl^jast með netinu þegar það kom inn fyrir borðstokkinn,
yfir svokallaða rúllu. I tilkynningu til Tryggingastofnunar
er það svo orðað að slasaði geri sér enga grein fyrir hvað
kom fyrir. „Dróst inn á netavindu með þeim afleiðingum
að hann lærbrotnaði og fór úr liði og tognaði illa á hand-
legg.“ Önundur skipstjóri náði að stoppa spilið með ör-
yggisrofa og var bátnum siglt til Bakkafjarðar og þaðan
var flogið með Helga til Akureyrar þar sem hann gekkst
undir aðgerð á Fjórðungssjúkrahúsinu.
Engin sjópröf voru haldin vegna málsins, en fyrir dómi
kom l'ram hjá Helga að enginn rnaður hafi verið á netarúll-
unni og hafi hann teygt sig út fyrir borðstokkinn og fest
sig f teininum og dregist inn á spilið 2-3 hringi. Taldi hann
að ef annar maður hefði verið á rúllunni hefði þetta ekki
skeð. Öryggisrofinn hafi ekki slegið út, en hann hafi líka
verið notaður sem stopprofi, en rofinn hafi ekki verið í
iagi.
Önundur Kristjánsson sagði fyrir dónti að hann hafi
ævinlega predikað yfir mönnuin sínunt að fara varlega við
spilið og ítrekað það í tíma og ótíma. í þessu tilfelli hafi
verið farið övarlega. Eftir slysið hafi hann margrætt við
skipverja en enginn hafi séð hvernig það vildi til. Engan
mann hafi vantað á bátinn til að hann væri fullmannaður
til netaveiða og fjórir menn við netadrátt hafi verið feiki-
nóg. Öryggisbúnaður um borð hafi verið í lagi, hafi hann
verið tveggja ára þegar slysið átti sér stað og aldrei hafi
verið kvartað um að hann væri ekki í lagi. Því miður hafi
engin sjópróf verið haldin.
Niðurstöður matsmanna
í niðurstööu matsmanna er tímabundin læknisfræðileg og
fjárhagsleg örorka Helga Péturssonar vegna slyssins metin
100% í 15 mánuði og 50% í aðra 15 mánuði. Varanlega
læknisfræðilega og fjárhagslega örorku Helga mátu mats-
menn 40%. Þá segir í niðurstöðu matsmanna: „Beinbrot á
vinstra sköflung 18. febrúar 1983 og 10. april 1983 teljast
ekki hafa áhrif á varanlega læknisfræðilega örorku mats-
þola, en leiða má líkum að því að kalkrýr beingerð vegna
slyssins 18. júní 1982 hafi verið meðverkandi þáttur í að
beir.ið þoldi ekki áverkana.“
Álit dómsins
í dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra, sem kveðinn var
í júní 1982
upp í desember sl. af Ásgeiri Pétri Ásgeirssyni ásamt
meðdómsmönnunum og skipstjórunum Gunnari Arasyni
og Sverri Valdintarssyni, segir að ekki sé óvenjulegt að
enginn maður sé á rúllunni þegar verið sé að draga net við
þær aðstæður er siysið varð, á grunnu vatni í góðu veðri
og tregfiski. Þar á rnóti komi að skipstjóri hafi ekki fylgst
nægjanlega vel með vinnunni á dekkinu. Helgi Pétursson,
sem sé vélstjóralærður, hafi ekki tilkynnt Önundi skip-
stjóra um neina bilun á spilbúnaðinum að því er hann
minni, þó svo hann fulltyrði að öryggisbúnaðurinn hafi
ekki verið í fullkomnu lagi. „Þegar af þeirri ástæðu bar
honum að sýna ennþá meiri aðgát við verk sitt. Verður að
telja það allverulegt gáleysi af stefnanda að teygja sig út á
rúlluna án þess að stöðva spilið. Að þessu virtu svo og
með vísan til þess að sjópróf var ekki haldið þá þykir eftir
atvikum rétt að skipta sök þannig að hvor aðilji unt sig
beri helming sakar,“ segir í dómi Héraðsdóms Norður-
lands eystra.
Fjárkröfur
Fram kernur í dómi Héraðsdóms að fjárhagstjón Helga
vegna tímabundinnar ororku og varanlegrar ororku auk
verðmætis tapaðra lífeyrisréttinda kr. 6,8 milljónir króna.
Heildartjónið var metið 5,1 milljón m.a. að teknu tilliti til
greiðslna frá Tryggingastofnun, skattfrelsi örorkubóta og
fleira. Héraðsdómur dæmdi Önund Kristjánsson til að
greiða helming þessarar upphæðar, 2,55 milljónir auk
vaxta og hálfa milljón í málskostnað. óþh
Engar framkvæmdir við Víðidalsá á Vegaáætlun þrátt fyrir tíð umferðaróhöpp:
Ný brú á Húseyjarkvísl á þessu
ári og breikkun Dalsárbrúar 1997
Þrjú umferðaróhöpp urðu við
eða á brúnni yfir Víðidalsá í
Húnavatnssýslu í desember-
mánuði sl. og af þeim hlutust
bæði líkamsáverkar og eigna-
tjón. Engar breytingar eða lag-
færingar eru fyrirhugaðar á
brúnni samkvæmt yfír-
standandi Vegaáætlun, sem
samþykkt var vorið 1995 og
gildir út árið 1998. Vegna niður-
skurðar tengdum fjárlögum rík-
isins verður Vegaáætlun endur-
skoðuð á næstu vikum og tekur
væntanlega einhverjum breyt-
ingum í þeirri yfirferð.
Tvær brýr í Norðurlandsum-
dæmi vestra verða breikkaðar á
tveimur næstu sumrum. Það er ný
brú yfir Húseyjarkvísl í Skaga-
firði, sem byggð verður sumarið
1996, en til hennar verður varið
33 milljónum króna og breikkun
brúarinnar á Dalsá í Blönduhlíð
sem fær 31 milljón króna, en
framkvæmdir við hana hefjast
vorið 1997. Vegurinn við Dalsá
verður auk þess breikkaður til
beggja handa. Gunnar Guðmunds-
son, umdæmisverkfræðingur
Vegagerðar ríkisins á Sauðár-
króki, segir að stundum hafi minni
brýr verið breikkaðar og til þess
notað viðhaldsfé. Gunnar segir að
um það bil eitt slys sé skráð á ári
við brúna á Viðidalsá en ekki sé
lokið við lestur á lögregluskýrsl-
um varðandi slysin í desember-
mánuði sl. en umferð á þjóðveg-
um í desember sé yfirleitt með
minnsta móti en þó geti komið
einhverjir toppar á umferðina. Til-
tölulega snjólétt hefur verið og að-
stæður til aksturs fremur hagstæð-
ar en hins vegar gæli ísing verið
mjög varhugaverð og því gæti
akstur verið of hraður miðað við
aðstæður þótt sjónlengdir við
brúna eigi að teljast góðar. Sömu
sögu er að segja um Dalsárbrúna,
sem hefur verið með nokkuð háa
slysatíðni, þar er sjónlengd nokk-
uð löng en eitthvað sem glepur
augað. Einnig hafa orðið alvarleg
untferðarslys við Gljúfurá í Húna-
vatnssýslu en breikkun þeirrar
brúar er ekki inni á vegaáætlun.
Á Norðurlandi eystra verður
brúin yfir Djúpá austan Ljósa-
vatnsskarðs breikkuð eða byggt
nýtt, tvíbreitt ræsi og til þess varið
16 milljónum króna. Á árinu 1997
stendur til að byggja nýja brú yfir
Fnjóská hjá Laufási í Eyjafirði
fyrir 62 milljónir króna og 53 fara
í vegartengingu að brúnni en
hvorki brúin né vegarstæðið er
enn komið á teikniborðið. GG
Lottósalan:
Yfir 22 milljónir
í aðalvinning?
í þriðja sinn í sögu Lottósins
verður fyrsti vinningur fimm-
faldur þegar dregið verður í
kvöld.
Samkvæmt upplýsingum frá
íslenskri getspá er talið nær ör-
uggt að fyrsti vinningur fari yfir
22 milljónir króna. Það sést þó
ekki fyrr en við lokun sölustaða í
kvöld en eins og jafnan nær
miðasalan hámarki á síðasta
söludegi fyrir útdrátt. JÓH
Húsavík:
Þrettándagleði
Völsungs
íþróttafélagið Völsungur gengst
fyrir allsherjar þrettándagleði á
Breiðulág við Þverholt í dag,
laugardaginn 6. jan.
Þrettándagleðin hefst kl. 16
með blysför frá versluninni Þing-
ey. Síðan verður sungið og dansað
við bálköst, jólasveinarnir kvadd-
ir, álfakóngur og drotting hans
mæta og reiknað er með að Grýla,
Leppalúði, púkar og tröll komi
einnig til gleðinnar. IM
Bar á fengitíma
Á sama tíina og fengitími stend-
ur sem hæst hjá sauðfé tekur
ærin Móra frá Bakka í Vatnsdal
í A-Húnavatnssýslu sig til og
hefur sauðburð. Þetta hefur hún
leikið undanfarin ár og brá ekki
út af vananum að þessu sinni.
Aðafaranótt 30. desember sl.
bar Móra tveimur myndarlegum
lömbum, hrút og gimbur. Heilsast
öllum vel, að sögn Jóns Bjarna-
sonar bónda á Bakka. Ekki sagðist
hann hafa neina skýringu á því af
hverju Móra kysi að hafa þennan
háttinn á, en að því má leiða líkur
að ærin hafi verið blæsma í kring-
um verslunarmannahelgina. Hvort
sú ágæta helgi, þegar ástin
blómstrar sem aldrei fyrr hjá
mannfólkinu, hefur eitthvað með
þetta að gera, skal ósagt látið. HA