Dagur - 06.01.1996, Side 3

Dagur - 06.01.1996, Side 3
FRETTIR Laugardagur 6. janúar 1996 - DAGUR - 3 Dómur kveðinn upp vegna slyss Héraðsdomur Norðurlands eystra: um borð í Þorsteini GK Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt Önund Kristjánsson, skipstjóra og útgerðarmann á Raufar- höfn, til að greiða Heiga Péturssyni, véltæknifræðingi til heimilis í Reykjavík, 2,55 milljónir króna auk vaxta frá 1. júní 1988 til greiðsludags og 500 þús. króna í málskostnað vegna slyss sem varð um borð í Þorsteini GK-15, 50 tonna eikarbáti, þegar verið var að draga þorskanet suður af Langanesi í júní 1982. Helgi Pétursson, stefnandi inálsins, var skipverji á Þor- steini GK þegar slysið átti sér stað, en Önundur Kristjáns- son var skipstjóri og útgerðarmaður skipsins. Samkvæmt málsskjölum hafði Helgi þann starfa þegar slysið átti sér stað 18. júní 1982 að draga netið af dráttarkarlinum og fyl^jast með netinu þegar það kom inn fyrir borðstokkinn, yfir svokallaða rúllu. I tilkynningu til Tryggingastofnunar er það svo orðað að slasaði geri sér enga grein fyrir hvað kom fyrir. „Dróst inn á netavindu með þeim afleiðingum að hann lærbrotnaði og fór úr liði og tognaði illa á hand- legg.“ Önundur skipstjóri náði að stoppa spilið með ör- yggisrofa og var bátnum siglt til Bakkafjarðar og þaðan var flogið með Helga til Akureyrar þar sem hann gekkst undir aðgerð á Fjórðungssjúkrahúsinu. Engin sjópröf voru haldin vegna málsins, en fyrir dómi kom l'ram hjá Helga að enginn rnaður hafi verið á netarúll- unni og hafi hann teygt sig út fyrir borðstokkinn og fest sig f teininum og dregist inn á spilið 2-3 hringi. Taldi hann að ef annar maður hefði verið á rúllunni hefði þetta ekki skeð. Öryggisrofinn hafi ekki slegið út, en hann hafi líka verið notaður sem stopprofi, en rofinn hafi ekki verið í iagi. Önundur Kristjánsson sagði fyrir dónti að hann hafi ævinlega predikað yfir mönnuin sínunt að fara varlega við spilið og ítrekað það í tíma og ótíma. í þessu tilfelli hafi verið farið övarlega. Eftir slysið hafi hann margrætt við skipverja en enginn hafi séð hvernig það vildi til. Engan mann hafi vantað á bátinn til að hann væri fullmannaður til netaveiða og fjórir menn við netadrátt hafi verið feiki- nóg. Öryggisbúnaður um borð hafi verið í lagi, hafi hann verið tveggja ára þegar slysið átti sér stað og aldrei hafi verið kvartað um að hann væri ekki í lagi. Því miður hafi engin sjópróf verið haldin. Niðurstöður matsmanna í niðurstööu matsmanna er tímabundin læknisfræðileg og fjárhagsleg örorka Helga Péturssonar vegna slyssins metin 100% í 15 mánuði og 50% í aðra 15 mánuði. Varanlega læknisfræðilega og fjárhagslega örorku Helga mátu mats- menn 40%. Þá segir í niðurstöðu matsmanna: „Beinbrot á vinstra sköflung 18. febrúar 1983 og 10. april 1983 teljast ekki hafa áhrif á varanlega læknisfræðilega örorku mats- þola, en leiða má líkum að því að kalkrýr beingerð vegna slyssins 18. júní 1982 hafi verið meðverkandi þáttur í að beir.ið þoldi ekki áverkana.“ Álit dómsins í dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra, sem kveðinn var í júní 1982 upp í desember sl. af Ásgeiri Pétri Ásgeirssyni ásamt meðdómsmönnunum og skipstjórunum Gunnari Arasyni og Sverri Valdintarssyni, segir að ekki sé óvenjulegt að enginn maður sé á rúllunni þegar verið sé að draga net við þær aðstæður er siysið varð, á grunnu vatni í góðu veðri og tregfiski. Þar á rnóti komi að skipstjóri hafi ekki fylgst nægjanlega vel með vinnunni á dekkinu. Helgi Pétursson, sem sé vélstjóralærður, hafi ekki tilkynnt Önundi skip- stjóra um neina bilun á spilbúnaðinum að því er hann minni, þó svo hann fulltyrði að öryggisbúnaðurinn hafi ekki verið í fullkomnu lagi. „Þegar af þeirri ástæðu bar honum að sýna ennþá meiri aðgát við verk sitt. Verður að telja það allverulegt gáleysi af stefnanda að teygja sig út á rúlluna án þess að stöðva spilið. Að þessu virtu svo og með vísan til þess að sjópróf var ekki haldið þá þykir eftir atvikum rétt að skipta sök þannig að hvor aðilji unt sig beri helming sakar,“ segir í dómi Héraðsdóms Norður- lands eystra. Fjárkröfur Fram kernur í dómi Héraðsdóms að fjárhagstjón Helga vegna tímabundinnar ororku og varanlegrar ororku auk verðmætis tapaðra lífeyrisréttinda kr. 6,8 milljónir króna. Heildartjónið var metið 5,1 milljón m.a. að teknu tilliti til greiðslna frá Tryggingastofnun, skattfrelsi örorkubóta og fleira. Héraðsdómur dæmdi Önund Kristjánsson til að greiða helming þessarar upphæðar, 2,55 milljónir auk vaxta og hálfa milljón í málskostnað. óþh Engar framkvæmdir við Víðidalsá á Vegaáætlun þrátt fyrir tíð umferðaróhöpp: Ný brú á Húseyjarkvísl á þessu ári og breikkun Dalsárbrúar 1997 Þrjú umferðaróhöpp urðu við eða á brúnni yfir Víðidalsá í Húnavatnssýslu í desember- mánuði sl. og af þeim hlutust bæði líkamsáverkar og eigna- tjón. Engar breytingar eða lag- færingar eru fyrirhugaðar á brúnni samkvæmt yfír- standandi Vegaáætlun, sem samþykkt var vorið 1995 og gildir út árið 1998. Vegna niður- skurðar tengdum fjárlögum rík- isins verður Vegaáætlun endur- skoðuð á næstu vikum og tekur væntanlega einhverjum breyt- ingum í þeirri yfirferð. Tvær brýr í Norðurlandsum- dæmi vestra verða breikkaðar á tveimur næstu sumrum. Það er ný brú yfir Húseyjarkvísl í Skaga- firði, sem byggð verður sumarið 1996, en til hennar verður varið 33 milljónum króna og breikkun brúarinnar á Dalsá í Blönduhlíð sem fær 31 milljón króna, en framkvæmdir við hana hefjast vorið 1997. Vegurinn við Dalsá verður auk þess breikkaður til beggja handa. Gunnar Guðmunds- son, umdæmisverkfræðingur Vegagerðar ríkisins á Sauðár- króki, segir að stundum hafi minni brýr verið breikkaðar og til þess notað viðhaldsfé. Gunnar segir að um það bil eitt slys sé skráð á ári við brúna á Viðidalsá en ekki sé lokið við lestur á lögregluskýrsl- um varðandi slysin í desember- mánuði sl. en umferð á þjóðveg- um í desember sé yfirleitt með minnsta móti en þó geti komið einhverjir toppar á umferðina. Til- tölulega snjólétt hefur verið og að- stæður til aksturs fremur hagstæð- ar en hins vegar gæli ísing verið mjög varhugaverð og því gæti akstur verið of hraður miðað við aðstæður þótt sjónlengdir við brúna eigi að teljast góðar. Sömu sögu er að segja um Dalsárbrúna, sem hefur verið með nokkuð háa slysatíðni, þar er sjónlengd nokk- uð löng en eitthvað sem glepur augað. Einnig hafa orðið alvarleg untferðarslys við Gljúfurá í Húna- vatnssýslu en breikkun þeirrar brúar er ekki inni á vegaáætlun. Á Norðurlandi eystra verður brúin yfir Djúpá austan Ljósa- vatnsskarðs breikkuð eða byggt nýtt, tvíbreitt ræsi og til þess varið 16 milljónum króna. Á árinu 1997 stendur til að byggja nýja brú yfir Fnjóská hjá Laufási í Eyjafirði fyrir 62 milljónir króna og 53 fara í vegartengingu að brúnni en hvorki brúin né vegarstæðið er enn komið á teikniborðið. GG Lottósalan: Yfir 22 milljónir í aðalvinning? í þriðja sinn í sögu Lottósins verður fyrsti vinningur fimm- faldur þegar dregið verður í kvöld. Samkvæmt upplýsingum frá íslenskri getspá er talið nær ör- uggt að fyrsti vinningur fari yfir 22 milljónir króna. Það sést þó ekki fyrr en við lokun sölustaða í kvöld en eins og jafnan nær miðasalan hámarki á síðasta söludegi fyrir útdrátt. JÓH Húsavík: Þrettándagleði Völsungs íþróttafélagið Völsungur gengst fyrir allsherjar þrettándagleði á Breiðulág við Þverholt í dag, laugardaginn 6. jan. Þrettándagleðin hefst kl. 16 með blysför frá versluninni Þing- ey. Síðan verður sungið og dansað við bálköst, jólasveinarnir kvadd- ir, álfakóngur og drotting hans mæta og reiknað er með að Grýla, Leppalúði, púkar og tröll komi einnig til gleðinnar. IM Bar á fengitíma Á sama tíina og fengitími stend- ur sem hæst hjá sauðfé tekur ærin Móra frá Bakka í Vatnsdal í A-Húnavatnssýslu sig til og hefur sauðburð. Þetta hefur hún leikið undanfarin ár og brá ekki út af vananum að þessu sinni. Aðafaranótt 30. desember sl. bar Móra tveimur myndarlegum lömbum, hrút og gimbur. Heilsast öllum vel, að sögn Jóns Bjarna- sonar bónda á Bakka. Ekki sagðist hann hafa neina skýringu á því af hverju Móra kysi að hafa þennan háttinn á, en að því má leiða líkur að ærin hafi verið blæsma í kring- um verslunarmannahelgina. Hvort sú ágæta helgi, þegar ástin blómstrar sem aldrei fyrr hjá mannfólkinu, hefur eitthvað með þetta að gera, skal ósagt látið. HA

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.