Dagur - 06.01.1996, Blaðsíða 5
Laugardagur 6. janúar 1996 - DAGUR - 5
Á Manhattan í New York
býr ungt og nýgift par.
Listina eiga þau sameigin-
lega en bæði eru mynd-
höggvarar. Bakgrunnur
þeirra er þó ólíkur því hún
er frá Singapore en hann
frá Islandi, nánar tiltekið
frá Akureyri. Stefán Jóns-
son og Yean Fee Quay
dvöldust á Akureyri yfir jól
og áramót og brugðust ljúf-
lega við þeirri bón að
spjalla stuttlega við blaða-
mann Dags.
Stefán og Yean Fee, eða Fee,
eins og hún kallar sig, kynntust
þegar bæði voru við nám í lista-
skóla í New York fyrir rúmum
þremur árum síðan. Þau hafa nú
lokið námi við skólann en eru þó
enn búsett í New York borg. Fee
vinnur sem aðstoðarframkvæmda-
stjóri í listagalleríi við skólann þar
sem þau voru við nám en Stefán
fæst við höggmyndalistina auk
þess sem hann starfar sem græn-
metissali á útimarkaði til að
drýgja tekjumar.
Singapore og Island eru lönd
sem óravegur er á milli bæði í
landfræðilegu og menningarlegu
tilliti. Samband þeirra Stefáns og
Fee kom því fjölskyldum þeirra
nokkuð á óvart og Fee viðurkennir
að fjölskyldu sinni hafi verið
brugðið að heyra að hún væri
komin með Islending sér við hlið.
Báðar fjölskyldurnar hafi þó tekið
samband þeirra í sátt og ekki ann-
að að heyra en hjónakomin séu
áhugasöm um að kynnast menn-
ingu hvors annars. Ferðin um jólin
er önnur heimsókn Fee til íslands
og Stefán hefur einnig komið til
Singapore og hitt tengdafjölskyldu
sína en þau giftu sig einmitt í
Singapore í haust.
'í
• ■
.
> ' 'y
■
• ■■■:•
Brúðkaup í Singapore
Stefán og Fee giftu sig í Singa-
pore eins og áður kom fram. Þar
er venja að byrja að undirbúa
brúðkaup tveimur árum fyrir
Ríkt, hreint og nýtískulegt
Singapore er lítið borgrfki í Suð-
austur-Asíu. íbúar eru tæpar 3
milljónir og landið er tiltölulega
ríkt miðað við Asíuríki en mikill
uppgangur hefur verið í efnahags-
lífinu síðustu áratugi. Efnahags-
sveiflunni má að miklu leyti
þakka góðri höfn á sjóleiðnni milli
Evrópu og Austur-Asíu og er
höfnin mesta umskipunarhöfn í
Suðaustur-Asíu enda starfar um
þriðjungur vinnuafls í Singapore
við viðskipti.
Fjölskylda Fee er einnig í við-
skiptum en faðir hennar á hlut í
flísaverksmiðju í Singapore. Op-
inber tungumál í Singapore eru
fjögur; kínverska, maljíska, tamíl
og enska. Kínverska er móðurmál
Fee en hún tekur þó fram að í
Singapore sé málið nokkuð öðru-
vísi en í Kfna. I skólum var hins
vegar kennt á ensku og samskipta-
mál Stefáns og Fee er enska enda
hafa bæði verið búsett í ensku-
mælandi landi síðustu árin. En
hvemig skyldi Singapore hafa
komið íslendingnum Stefáni fyrir
sjónir?
„Mjög ríkt og hreint,“ svarar
hann. Mannlífið segir hann fjöl-
breytt líkt og hann er vanur í New
York og ef til vill hafi hann búist
við meira menningarsjokki en
raunin varð á. „Ég hugsa að mun-
urinn milli íslands og New York
sé töluvert meiri en milli Singa-
pore og New York og að mörgu
leyti er Singapore rétt eins og hver
önnur stórborg senr við eigum að
venjast á Vesturlöndum. Hún er
mjög nýtískuleg og þróuð,“ segir
hann.
Á brúðkaupsdaginn. Fee
^ er kornin úr hvíta brúð-
arkjólnum og í kjól númer tvö.
„f Singapore er venjan að kon-
an skipti að minnsta kosti
tvisvar urn alfatnað en ég lét
mér nægja að skipta einu
sinni,“ segir hún.
Alþjóðleq óst
Hjónin Stefán og Yean
^ Fee Quay eru frá sitt
hvoru landinu og búa í því
þriðja. Hann er frá íslandi,
hún frá Singapore en heimili
þeirra er í New York.
Mynd: AI
væntanlega athöfn og algengt að
lágmarksfjöldi gesta sé um 300
manns. Fjölskylda Fee fékk þó að-
eins sex mánuði í undirbúning og
gestimir voru rétt tæplega 200
enda fjölskylda brúðgumans fjar-
verandi. Það sem á íslenskan
mælikvarða þætti stórveisla þótti
því frekar lítið brúðkaup í Singa-
pore. „Flest verðtilboð frá hótel-
urn og veitingahúsum gera ráð
fyrir a.m.k. 300 manns,“ segir
Fee.
Otal hefðir tengjast brúðkaup-
inu þar eins og hér og þau Stefán
og Fee segja að brúðkaupið hafi
verið eins konar blanda af vest-
rænum og asískum siðum. „Ég var
í hvítum brúðarkjól eins og tíðkast
á Vesturlöndum en flestar brúðir í
Singapore klæðast slíkum brúðar-
kjólurn. Athöfnin fór fram á heirn-
ili og fólst m.a. í að drekka te með
eldri kynslóðum," segir Fee.
„Kjaminn í athöfninni var að við
vorum að votta hinum eldri virð-
ingu okkar en virðing fyrir hinum
eldri er mjög áberandi í menningu
Singapore. Enginn prestur eða
munkur var viðstaddur sem
tilkynnti að við værum gift heldur
snerist þetta um að faðir hennar
var að gefa mér dóttur sína. Hún
var að fara í burtu og stofna eigin
fjölskyldu,“ bætir Stefán við.
í Singapore býr fólk sem til-
heyrir mörgum trúarhópum. Stór
hópur er kristinn, múslimar eru
fjölmennir og einnig taóistar og
eins eru margir utan trúarfélaga.
Stærsti hópurinn, eða tæp 30%,
eru þó Búddatrúar og tilheyrir
fjölskylda Fee þeim flokki. „Hluti
af athöfninni var að votta Búdda
virðingu okkar. Ég þurfti reyndar
ekki að gera það frekar en ég vildi
en mér þótti tilhlýðilegt að sýna
siðum tengdafjölskyldu minnar
virðingu," segir Stefán.
Framtíðarbúseta óviss
Fee kom til íslands í fyrsta sinn
vorið 1994. Hún hafði skoðað
mikið af nryndum og Stefán hafði
sagt henni frá landinu og því segir
hún ísland ekki hafa komið henni
mikið á óvart. „ísland er gott land
og þetta er staður sem ég gæti
hugsað mér að búa á ef ég gæti
talað tungumálið," segir Fee.
Henni finnst afslappað andrúms-
loft hér miðað við það sem hún á
að venjast í New York og Singa-
pore þar sem mannfjöldinn er gíf-
urlegur. Á íslandi finnst henni hún
líka vera örugg eins og í Singa-
pore þar sem glæpatíðni er mjög
lág. „I New York þarf ég alltaf að
hafa varann á.“
Fee segist hafa alist upp í um-
hverfi þar sem var fólk af mörgum
kynstofnum og þjóðemum. í New
York sé mannlífið einnig mjög
margbreytilegt en á Islandi finni
hún mjög greinilega fyrir því að
hún komi annars staðar frá enda
blöndunin hér mun minni en hún á
að venjast.
Sem stendur búa Stefán og Fee
í New York. En hvað með fram-
tíðina? Er inn t myndinni að setj-
ast að á íslandi eða í Singapore?
„Við höfunt vissulega velt því fyr-
ir okkur en ekkert hefur verið
ákveðið í þeim efnum,“ segir Stef-
án. „Best væri ef við gætum búið í
öllum þremur löndunum en slíkt
er auðvitað ekki raunhæft." Meira
er ekki hægt að fá upp úr þeim urn
framtíðarbúsetu. Nýgiftu hjónin
segjast taka eilt skref í einu og
ekki áætla of langt fram á við.
Eins og stendur séu þau ánægð í
New York og tíminn verði að
leiða í ljós hvert leið þeirra liggi í
framtíðinni. AI