Dagur - 06.01.1996, Page 4

Dagur - 06.01.1996, Page 4
4 - DAGUR - Laugardagur 6. janúar 1996 ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI, SlMI: 462 4222 SÍMFAX: 462 7639 - SÍMFAX AUGLÝSINGADEILDAR: 462 2087 ÁSKRIFT M. VSK. KR. 1500 Á MÁNUÐI • LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125 RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.), ÓSKAR PÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.) AÐRIR BLAÐAMENN: AUÐUR INGÓLFSDÓTTIR, GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON, SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON, FROSTI EIÐSSON (íþróttir), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 464 1585, fax 464 2285). LJÓSMYNDARI: BJÖRN Gl'SLASON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 462 5165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF. Dæmalaus deila Deila sóknarprests og organista í Langholtskirkju í Reykjavík er meö hreinum ólíkindum, alveg dæma- laust mál. Þjóðin fylgist með málinu í gegnum fjöl- miðla og dag frá degi virðist það fara í æ verri og óleysanlegri hnút. Yfirlýsingar allra málsaðila, hvort sem þeir eru organisti, sóknarprestur, bisk- up eða formaður Prestafélags, koma landsmönn- um alltaf jafn mikið á óvart og hafa lítið með kristi- legan kærleik að gera. Þetta mál er hvernig sem á það er litið afleitt fyrir þjóðkirkjuna. Því geta kirkj- unnar menn ekki mótmælt. Það getur ekki verið kirkjunni til framdráttar að svo hatrömm deila og svo víðs fjarri kristilegum kærleika komi upp innan hennar. Fyrst og fremst er deila sóknarprests og organ- ista Langholtskirkju harmleikur fyrir sóknarbörn í Langholtskirkjusöfnuði, en út á við er hún dæma- laus sjónleikur sem er deiluaðilum til heldur lítils vegsauka. Þetta er mál sem mönnum ber að leysa innan sjálfs Langholtskirkjusafnaðar. Kominn er tími til að orðsins vígaferlum í fjölmiðlum linni. Landsmenn eru búnir að fá nóg af þessari vit- leysu. Til hamingju Jón Amar! Jón Arnar Magnússon, frjálsíþróttamaður á Sauð- árkróki, var sl. fimmtudagskvöld útnefndur íþróttamaður ársins 1995. Þetta val íþróttafrétta- manna kemur ekki á óvart. Jón Arnar skipaði sér á síðasta ári í röð afreksmanna í tugþraut þegar hann náði yfir 8200 stiga múrinn með glæsilegu ís- landsmeti á móti í Austurríki. Á heimsmeistara- mótinu í Gautaborg gekk Jóni Arnari reyndar ekki sem skyldi, en hann sýndi og sannaði á eftirminni- legan hátt á árinu að hann er kominn í fremstu röð í heiminum í tugþraut og fyrir það er hann vel að sæmdarheitinu íþróttamaður ársins 1995 kominn. Um leið og Dagur óskar Jóni Arnari Magnússyni til hamingju með útnefninguna er honum óskað góðs gengis á Ólympíuárinu 1996. í UPPÁHALPI Baðmeistarinn á náttborðinu Sigíirður Guðmunds- son, framkvœmda- stjóri Sundlaugar Akureyrar, tók við því starýi fyrir fjór- um árum síðan og á þeim tíma hefur sundlaugin nánast tekið hyltingar- kenndum hreytingum; nýir pottar, rennihraut og eim- bað liefur glatt sundlaug- argesti svo eitthvað sé nefnt. A þessu ári verður hyrjað á viðbyggingu sem hýsa mun húningsklefa kvenna, afgreiðslu og veit- ingaaðstöðu. Til þess verður varið 35 milljónum króna sem nœgir til að gera húsið fokhelt. Stefnt er að því að Ijúka við hús- ið á árinu 1997 og byrja á nýrri sundlaug. Sigurður er fœddur í Reykjavík en alinn upp á Skagaströnd til 16 ára aldurs er lumn hleypti heimdraganum. Hingað kom hann frá Sví- þjóð þar sem hann nam œskulýðsstjórnun. GG Hvaða matur erí mestu uppáhaldi hjá þér? „Fiskur, aðallega ýsa, sem er best steikt.“ Hver er þinn uppálialdsdrykkur? ,Jslenska vatnið.“ Sigurður Guðmundsson. Hvaða heimilisstörffinnstþér skemmtilegust og leiðinlegust? „Ég kem mjög lítið nálægt þeim en leiðinlegast er að vaska upp.“ Stundarþú einliverja markvissa hreyfingu eða Ifkamsrœkt? „Ég er í körfubolta og svo syndi ég svolítið, að sjálfsögðu!" Ertþú íeinhverjum klúbb eða fé- lagasamtökum? „Nei.“ Hvaða blöð og tímarit kaupir þú? „Dag, Morgunblaðið og Heimili og skóla.“ Hvaða bók er á náttborðinu hjá þér? „Engin bók, en ég er að lesa tímarit sem heitir „Baðmeistar- inn“, sem er gefið út af forstöðu- mönnum sundstaða í Svíþjóð." / hvaða stjörnumerki ert þú? „I vatnsberanum." Hvaða tónlistarmaður er í mestu uppáliaidi hjá þér? „Bubbi Morthens og hefur verið það a.m.k. síðustu 15 árin.“ Uppáhaldsleikari? „Gísli Halldórsson, alveg stór- kostlegur leikari." Hvað horfirþú mest á ísjónvarpi? „Aðallega fréttir, lítið annað.“ k hvaða stjórnmálamanni hefurþú mest álit? „Það stendur enginn upp úr.“ Hver er að þínu matifegursti staður á íslandi? „Borgarfjörður syðri.“ Hvar vildir þú helst búa efþú þyrftir að flytja búferlum? „Upp í sveit, t.d. í Borgarfirði.“ Efþú ynnir stóra vinningin í Lottói eða liappdrœtti livernig myndir þú eyða peningunum? „Greiðsla skulda gengi fyrir.“ Hvernig viltþú helst verjafrístund- um þínum? „Með fjölskyldunni, bæði heima við og á skíðum en við reynum að stunda skíðaíþróttina saman.“ Hvað gerðir þú íjólafríinu? „Ég var heima við, borðaði góð- an mat og kíkti m.a. í viðtalsbók- ina „Fimm læknar segja frá.“ Hvað œtlar þú að gera um helgina? „Því er fljótsvarað, ég er að vinna alla helgina." BAKÞANKAR KRISTINN C. JÓHANNSSON Um farsæla fortíð og góðar minningar um framtíðina En það bar til um þessar mundir að miklar stillur og frosthörkur urðu á Norðurlandi. Snjóföl og hrím á jörðu, Gleráin, nábúi minn, horfin með öllu undir ís, bílar og fólk dálítið tregt í gang á morgn- ana. Einn svoleiðis morgunn snemma varð mér gengið út úr húsi og ætlaði í morgunkaffið inn á teríu. Þann morgun var ég jafn- vel enn meira utan við mig en venjulega og tuttugu og einnar gráðu frost nægði ekki til að ég hrykki í gang. Það gerði bíllinn minn hins vegar þegar ég var kominn upp í hann og startaði. Ég ók síðan eins og leið lá á áfanga- stað en undraðist nokkuð á leið- inni hve skyggni var takmarkað ef litið var gegnum framrúðuna en ég sá hins vegar ágætlega aftur fyrir mig ef ég leit í baksýnisspeg- ilinn til hliðar við mig. Ég hugsaði þetta ekki frekar og fannst held ég eðlilegt að ég sæi betur það sem að baki var af leiðinni en hitt sem fram undan var. Þegar ég síðan stansaði á áfangastað hugkvæmdist mér að skafa héluna af framrúðunni. Það gerir venjulegt fólk í upphafi ferð- ar. Þeim félögum mínum við hringborðið þótti þetta nokkuð eðlilegt miðað við annað sem ég tek mér fyrir hendur, að ég kæmi akandi með ógagnsæja framrúð- una á vettvang og þyrfti þá fyrst að sjá fram fyrir mig þegar ég hafði slökkt á bílnum. Svona akst- urslag er síst til fyrirmyndar á ak- vegum milli staða en þegar við leggjum upp frá einum áramótum til annarra er þetta þó það sem fyr- ir okkur liggur, framrúðan ógagn- sæ. Kemur fyrir lítið þótt lamba- spörð séu talin í görnum, völvur skyggnast í kúlu sína, stjömuspek- ingar horfi til himins eða öðruvísi spámenn og skemmtikraftar varði fyrir okkur leiðina, við vitum til allrar hamingju ekkert um það sem koma skal en höfum hins vegar nokkuð góða sýn á það sem nýliðið er án þess það komi að gagni heldur enda kunnara en frá þurfi að segja að við lærum ekki af reynslunni, mannlegt eðli samt við sig. Tækninni fleygir að sönnu fram ekki síst í tölvutengdum samskiptum manna og er áferða- fallegt en breyta engu um það að enn erum við að velkjast í foraði styrjalda, hungurs, mengunar, eit- urlyfja og firringar og ekki sýnt að tæknin breyti nokkru þar um. Maðurinn heldur uppteknum hætti og heldur áfram sjálfhverfum til- raunurn sínum til að hafa sitt fram hvað sem það kostar. Dæmi þessa sjáum við í smáu og stóru allt í kringum okkur. En það voru sem sagt komnir strákar að renna sér á Glerá í frosthörkunum. Þeir voru á nýju skautunum sínum og óstöðugir á fótunum. Þeir höfðu þó uppi þess konar tilburði að Ijóst var að þeir stefndu hátt í íþróttinni. Fóru aftur á bak og áfram á brauðfótum en stefnan óljós og bægslagangur meiri en hæfði tilefninu. Stundum stóðu þeir næstum uppréttir í næstu andrá á fleygiferð á rassin- um, bakinu eða maganum og það vildi þeim til að aldrei var langt í bakkann þegar þeir þreyttust á bakföllum á hálum ís. Það var hins vegar ljóst að þeir höfðu litla stjórn á því hvert þeir stefndu hverju sinni. Þeir voru að því leyti öðruvísi en ég um morguninn að þeir sáu fram fyrir sig en réðu samt ekki ferðinni, kunnu ekki að fóta sig en nýja árið á næstu grösum. Það er kunnara en frá þurfi að segja að við viljum, íslendingar, hafa bjart í kringum okkur unt jól og áramót, úti og inni. Tilburðir okkar eru með ýmsu móti af því tilefni. Menn klifra upp veggi, glugga, tré og runna til að hengja þar marglitar ljósaperur. Frú Guð- björgu finnst ég ekki duglegur í svona framkvæmdum. Það kom hins vegar í ljós þegar birgðir ljósa voru kannaðar nú á jólaföst- unni að ég átti mikið og fjölmennt úrval af ljósafestum til brúks utan- húss, stæðileg tré eru líka í garðin- um þannig að ekkert skorti á að jólalegt gæti orðið allt um kring. Þegar hins vegar kom að því að setja þessar flækjur í samband varð ekki ýkja bjart. Flestar sýndu ekkert líf en á sumum kviknaði undur Þjóðvakalega eina örskots- stund og síðan myrkur. Þetta skildist mér vegna þess að í sumum voru perur útbrunnar en í öðrum tilfellum ruglaðist ég svo í endunum, óviljandi, að ég stakk ýmist í samband gegnum spennubreyti eða ekki en aldrei eins og við átti. Af þessu urðu stundum skemmtilegir hvellir en aldrei ljós. Jólin komu samt og nýtt ár líka þótt skyggni væri lítið í kringum húsið og fór sem fyrr að tæknin skipti ekki máli eða spennubreytar eða peruljós. Hins vegar gekk dá- lítill ömmu og afastrákur úr út- löndum í bæinn. Það þurfti ekki aðra lýsingu. í þeirri von að á nýju ári lýsi meir af manneskjunum en tækn- inni og vel rætist úr fortíðinni og minningar um framtíðina verði góðar óska ég báðum lesendum mínum árs og friðar.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.