Dagur - 06.01.1996, Page 12
12 - DAGUR - Laugardagur 6. janúar 1996
Hefur rekið bílaverkstæði í aldarfjórðung:
„Sporí gæti sjálfsagt rekið verkstæðið“
MATARKRÓKUR
Þessa dagana heldur Bjarni Sig-
urjónsson, bifvélavirki á Akur-
eyri, upp á 25 ára afmæli verk-
stæðis síns, sem er til húsa við
Laufásgötu á Akureyri. F'erill
Bjarna í þessari grein er þó öllu
lengri, eða um þrjátíu ár. „Ég
hef í mínum rekstri alltaf haft
þrjú atriði efst í huga; að vinna
öll verk eins vel og kostur er, að
standa við öll verðtilboð og í
þriðja lagi að fá menn til að
borga reikninga sína á réttum
tíma. Það er kannski erfiðast,“
sagði Bjarni, þegar Dagur ræddi
við hann, nú fyrr í vikunni.
í upplýsingaritinu Gulu bókinni
segir að starfsmenn á verkstæði
Bjama séu tveir. Einhverjum er
það sjáflsagt torskilið þar sem
Bjami sést alla jafna aðeins einn
við störf þar. En Scefferhundurinn
Spori fylgir húsbónda sínum og á
fastan samastað á verkstæðinu.
„Spori er orðinn sjö ára og hefur
alltaf fylgt mér, eins og skugginn.
Spora kalla ég stundum í gamni
stjórnarformann fyrirtækisins. Ef
út í það færi gæti Spori sjálfsagt
rekið verkstæðið í einhverja daga,
til dæmis ef ég yrði veikur," sagði
Bjami.
Það var árið 1965 sem Bjami
hóf nám í bifvélavirkjun hjá Svan-
laugi Ólafssyni hjá BSA. Hjá því
fyrirtæki starfaði hann um nokk-
urra ára skeið, uns hann stofnsetti
- rætt við Bjarna Sigurjónsson, bifvélavirkja á Akureyri
eigið verkstæði; það var í byrjun
árs 1971. „Ég byrjaði á að reka
verkstæði mitt í húsi við Kalbaks-
götu. Síðar byggði ég húsið að
Laufásgötu 9, þar sem BSA er nú
til húsa. A þessum árum var vegur
verkstæðis míns allnokkur og ég
var með allt að 18 manns í vinnu.
En slfkt leiddist mér, enda var ég
meira og minna á skrifstofunni í
pappírsleik. Ég vildi vera skítugur
úti á gólfi einsog mínir starfs-
menn. Þetta leiddi til þess að í
byrjun árs 1983 seldi ég verkstæð-
ið til BSA og ákvað að hætta í
þessu fagi,“ sagði Bjami.
Máltækið segir að hægara sé í
að komast, en úr að fara. Þetta
reyndi Bjarni og hans gömlu við-
skiptavinir leituðu mikið til hans
með ýmis tilfallandi verkefni. Því
ákvað hann að halda starfseminni
áfram, þótt með öðrum formerkj-
um væri. „Ég ákvað að halda
áfram, en vera sem mest aðeins
einn við störf. Það er lang þægi-
legast. Mest af þessum störfum
sem ég er við í dag eru boddývið-
gerðir á bílum. Þær eru ýmiskon-
ar, bæði stórar og smáar, allt frá
því að vera litlar beyglur til stór-
tjóna. Ég geri föst tilboð í við-
gerðimar. Én til réttingaviðgerða
hef ég þann fullkomnasta búnað
sem er á markaðnum í dag. Félag-
ar mínir hjá BSA sjá svo um að
sprauta lakki á bílana fyrir mig,“
„Ég vildi vera skítugur úti á gólfi eins og mínir starfsmenn,“ segir Bjarni hér í viðtalinu, meðal annars. Með honum
á myndinni er hundurinn Spori, sem hann kallar stjórnarformann fyrirtækisins. Mynd: Sigurður Bogi
segir Bjami. Hann segir að vinnu-
dagur sinn sé oft langur - en á
hinn bóginn komi oft góðar pásur
inn á milli. „Það er góðu heilli
mest að gera yfir vetrartímann.
Yfir sumarið vil ég vera úti í
gróðrinum og rækta rósir í garðin-
um heima eða ferðast um landið,"
sagði Bjami ennfremur. sbs.
Þægílegír og vinsælir réttir
- úr eldhúsi Ólínu Aðalbjörnsdóttur
Ólína Aðalbjörnsdóttir leggur til
uppskriftir í fyrsta Matarkrók
ársins en Ólína er búsett á Akur-
eyri og er staifsmaður á leikskól-
anum Síðuseli. Hún er gift Sig-
ttrði Björgvini Björnssyni, húsa-
smið, og börnin á heimilinu eru
þrjú: Guðrún Helga, 14 ára,
Bjarney, 9 ára og Björn Ómar, 5
ára.
Réttirnir sem Ólína býður upp
á eru þrír kaldir réttir, ein osta-
terta og ís. „Ég hef notað köldu
smáréttina mikið í saumaklúbba
og þetta ertt allt þœgilegir,
skemmmtilegir og vinsœlir rétt-
ir, “ segir hún.
Ólína skorar á vinkonu sína
sem býr í Eyjafjarðarsveit til að
sjá lesendum fyrir uppskriftum í
nœsta Matarkrók. Sú heitir Sig-
urlína Örlygsdóttir og býr á
Syðra-Felli.
Kaldw smáréttur
400 g rœkjur
'A dós aspas
150 g sveppir
3 tómatar (í bátum)
1 salathaus eða 'á hatts af kínakáli
Salatlögur:
2 msk. eplaedik
6 msk. salatolía
salt, pipar, hvítlauksduft og pap-
ríkuduft (eftir smekk)
Hluta af rækjum, aspas,
sveppum, tómötum og salati rað-
að í glerskál eða eldfast mót og
lögurinn settur á milli, lítið í
einu. Þetta er gert til skiptis þar
til allt er komið í skálina.
Borið fram með ristuðu brauði
eða snittubrauði og sósu (sjá eft-
irfarandi uppskrift).
Sósan:
1 dl rjómi (þeyla hann)
1 dl majones
1-2 msk. sherry
1 dl tómatsósa
1 msk. dill
1 tsk. karrý
1 msk. steinselja (duft eðafersk)
Rækjurís
1 poki laussoðin hrísgrjón
250 g rœkjur
3 dl majones
1 msk. tómatsósa
2 msk. dill
‘A dl blaðlaukur (hakkaður eða sax-
aður)
aromat krydd (eftir smekk)
Öllu blandað saman og þynnt
út með smá mjólk eða rjóma
(óþeyttuin). Borið fram með kexi
eða ristuðu brauði.
Klúbbréttur
600 g rœkjur
100 g sveppir
‘A meðalstór laukur
A-1 hvítlauksrif eða hvítlauksduft
Sósa:
hveiti, mjörlíki og mjólk
1 dl hvítvín eða mysa
2 dl rjómi
2-3 msk. chilesósa
A-1 msk. rauð paprika í litlum ten-
ingum
’A-l msk. grœn papríka í litlum ten-
ingum
1-2 tsk. karrý
1 tsk. papríkuduft
Sveppir, laukur og hvítlaukur
steikt í smjörlíki á pönnu í
smástund. Síðan er bökuð upp
sósa (jafningur) með hveiti og
smjörlíki og þynnt út með svolít-
illi mjólk. Hvítvínið eða mysan,
rjóminn, chilesósan, paprikan og
kryddið sett út í. Þegar sósan er
til er því sem steikt var á pönn-
unni bætt út í og síðast eru rækj-
urnar settar í.
Hægt er að setja þetta í tarta-
lettur eða bera fram með heitu
snittu- eða hvítlauksbrauði.
Ostaterta
Botn:
1 pakki haustkex
2 stk. Prins pólo
100 g smjörvil'smjör
Fylling:
400 g rjómaostur
200 g flórsykur
1 egg
'A tsk. sítrónusafi
vanilludropar (eftir smekk)
'A lítri rjómi (tœplega)
Haustkex og Prins póló mulið
niður og blandað saman við
smjörið. Einnig má bræða smjör-
ið og hella yfir mulið kexið. Þetta
er síðan sett í lága, víða skál og
sítrónusafi settur yfir kexið (eftir
smekk).
Þeytið vel saman flórsykur og
eggið og bætið síðan rjómaostin-
um við og þeytið meira. Bragð-
bætið með vanilludropum og
sítrónusafa, Bætið að síðustu við
rjóma sem búið er að þeyta og
blandið varlega saman. Setjið
fyllingu á kexmylsnuna. Hægt að
skreyta með niðursneiddu kiwi
og súkkulaðirúsínum.
Gott til að frysta.
Ólína ásamt yngri börnunum W
sínum tveimur, þeim Birni r
Óinari og Bjarneyju. Mynd: ai
Rommís
‘A lítri rjómi
3 egg
3 msk. sykitr
rommkúlur
Egg og sykur þeylt vel saman.
Rjóminn þeyttur og honum síðan
blandað varlega saman við eggja-
hræruna. Bragðefni sett í eftir
smekk (í þessu tilfelli muldar
rommkúlur).
AI