Dagur - 06.01.1996, Blaðsíða 13
Laugardagur 6. janúar 1996 - DAGUR - 13
plötu og var það í fullu samræmi
við þau viðbrögð sem platan fékk
þar, sem og þær gríðarlega góðu
viðtökur sem hljómsveitin fékk
með tónleikum sínum í Bretlandi á
árinu, sérstaklega á Readinghátíð-
inni, þar sem hún kom sá og sigr-
aði. A topp tíu eru síðan mergjað-
ar skífur á borð við Infernal Love
með Therapy?, ...And Out comes
The Wolves með nýpönkurunum í
Rancid og Astro Creep: 2000...
með hinni margræðu sveit White
Zombie. Annars lítur listinn yfir
15 efstu plöturnar frá hvoru þess-
ara tónlistartímarita þannig út.
Melody Maker:
1-2. Diffrent Class Pulpo
- Maxinquaye Tricky
3. (What's The Story) Morning
Glory Oasis
4. It's Great When You're Stra-
ight.. Black Grape
5. The Second Tindersticks Tind-
ersticks
6. The Bends Radiohead
7.1 Should Coco Supergrass
8. Timeless Goldie
9. To Bring You My Love PJ Har-
vey
10. The Great Escape Blur
11. In The Space Of A Few Mo-
ments Telstar Ponies
12. Clouds Taste Metalic The fam-
ing Lips
13. Leftism Leftfield
14. Drugstore Drugstore
15. The Charlatans The Charlatans
Kerrang:
1. Foo Fighters Foo Fighters
2. Astro Creep: 2000... White
Zombie
3. Demanufacture Fear Factory
4....And Otu Comes The Wolves
Rancid
5. Infernal Love Therapy?
6. Garbage Garbage
7. P.H.Q.U. The Wildhearts
8. Mellon collie An The Infinite
Sadness The Smashing Pumpk-
ins
9. One Hot Minute Red Hot Chili
Peppers
10. Replenish Reef
11. Draconian Times Paradise Lost
12. Dopes To Infinity Monster
Magnet
13. Soup Blind Melon
14. Alice In Chains Alice In Chains
15. King For A Day.. Fool For A
Lifetime Faith No More
Nú í upphafi árs er ekki úr vegi að
líta aðeins á það sem erlendum
poppritum þótti skara fram úr á
nýliðnu ári. Er hér aðallega stuðst
við niðurstöður tveggja rita, Melo-
dy Maker og Kerrang, en þær gefa
bara nokkuð glögga mynd af því
sem var að gerast í rokkinu og
poppinu á árinu 1995. Með undan-
tekningum þó, og það nokkuð
stórum hvað varðar val Melody
Maker sérstaklega. Ber þar fyrst að
telja, að hvorki Blur né Oasis,
þóttu eiga plötu ársins, eins og
ætla hefði mátt af æðinu í kringum
þessar hljómsveitir og alla umfjöll-
unina á árinu. Það var hins vegar
önnur til, „Brit pop" sveitin, sveit
sem sver sig í flokk hins nýja
breska gítarpopps, Pulp, sem kom
sá og sigraði í kjörinu með
plötunni sinni Diffrent Class. Lenti
(That's The Story) Morning Glory
með Oasis í þriðja sæti, en The
Great Escape með Blur náði bara
aví tíunda. Má reyndar segja að
aessi niðurstaða með Oasis og
Blur sé ofur eðlileg, einfaldlega
vegna þess að miklu meira líf og
frísklegra er í plötu þeirrar fyrr-
nefndu, heldur en hjá Blur. Aftur á
móti verður þetta að skoðast í því
samhengi að aðeins var um aðra
plötuna frá Oasis að ræða, en þá
fjórðu frá Blur, þannig að þeirra
hlutur er e.t.v. vel viðunandi.
Björk við botninn
Það sem svo líka vekur athygli við
val MM á bestu plötum ársins
1995, sem alls telur upp í 50, er að
okkar kona, Björk, „rétt sleppur"
inn með Post, eða í 47. sæti. Skiptir
þetta kannski ekki svo miklu fyrir
stúlkuna og er reyndar umsjónar-
maður Popps á því að hún sé eig-
inlega yfir slíkt kjör hafin, en mið-
að við umfjöllunina og allt lofið og
prísið í þessu ágæta vikuriti um
Björk og Post, hefði mátt ætla að
platan yrði ofar. Góðvini Bjarkar,
„Triphopparanum" Tricky hlotn-
aðist aftur á móti sá heiður að
deila efsta sætinu með Pulp með
plötunni Maxinquaye, þó reyndar
ætla megi á uppsetningunni í
blaðinu, að Pulp hafi samt aðeins
vinninginn. Segir það líka nokkra
sögu almennt um þetta val, því
það sýnir að danspoppið/Techno-
ið lætur nokkuð undan síga. Fyrir
með nýju sveitinni hans Shaun
Ryder úr Happy Mondays, sem
kom næst á eftir Oasis, The Bends
með Radiohead varð númer sex, I
Should Coco með Supergrass
númer sjö og The Tindersticks
urðu númer fimm með The
Second Tindersticks. Allar eru
þessar sveitir breskar og af gítar-
rokks/poppsmeiði. Ýmsar plötur,
sem fyrirfram hefði mátt ætla að
sæust á lista Melody Maker og
reyndar víðar vegna mjög góðra
dóma við útkomu, eru þar svo
ekki þegar til kastanna kemur.
Kemur þar sérstaklega á óvart að
plata Neil Young og Pearl Jam
skuli ekki vera inni á listanum,
eins mikið og látið var með
plötuna. En svona er það nú þegar
valið er, það er aldrei alveg eins
og maður býst við.
Foo Fighters efst
Hjá einu helsta og víðlestnasta
rokkriti Bretlands, Kerrang, kemur
hins vegar öllu minna á óvart þeg-
ar val þess á 25 bestu plötum árs-
ins er skoðað. Þar höfðu Dave
Grohl fyrrum Nirvanatrommari
og félagar í Foo Fighters vinning-
inn með sinni fyrstu samnefndu
Foo Fighters. Gerðu það heldur betur gott í Bretlandi á nýliðnu ári.
Pulp. Bestir hjá Melody Maker.
utan Tricky er t.d. aðeins ein plata
til viðbótar af dansmeiði meðal tíu
efstu, Timeless, með „frumskógar-
fírnum" Goldie. Auk áðurnefndra
platna á topp tíu eru m.a. It's
Great What you're Straight, Yeah!
„ Þeir etstu“ meí útqáfu
- Gautar frá Siytufirði qefa út sína fyrstu ptötu
Hvaða hljómsveit skyldi vera
langlífasta popphljómsveitin norð-
an Alpafjalla? Góð spurning ekki
satt? Rolling Sones?, Status Que?.
Nei, þó þær séu báðar um 33 ára,
þá koma þær samt ekki til greina.
Shadows með (nú Sir) Cliff Ri-
chard eða Chieftains? Nei, ekki
heldur. Þessar eru „bara aðeins
eldri", svona 36-37 ára, auk þess
sem Shadows er varla að heitið
geti lengur í tölu lifenda. Nú hver
í ósköpunum getur það verið þá??
Jú, góðir hálsar í upphafi nýja árs-
ins. Ætli það sé ekki bara hin góð-
kunna dansiballasveit frá Siglu-
firði, Gautar, af öllum sveitum,
sem á langlífismetið, eða hvorki
fleiri né færri en 40 ár!! með stutt-
um hléum. Er þetta að öllu gamni
slepptu víst hreina satt og því ekki
vitlaust með öllu að ætla að vart
finnist eldri starfandi hljómsveit á
byggðu bóli. Það sem þó hljómar
jafnvel enn ótrúlegar er að þrátt
fyrir þennan langa feril hefur
hljómsveitin aðeins sent frá sér
eina litla plötu, þ.e.a.s. þar til nú
stuttu fyrir jól, að hún gaf loksins
út sína fyrstu plötu með 15 inn-
lendum og erlendum lögum, sem
nefnist, í vetrarbrautinni. Gauta
skipa nú fimm vaskir sveinar, sem
hafa verið allt upp í um 30 ár í
sveitmni. Þeir eru, Elías Þorvalds-
son, hljómborð, gítar og söngur,
Guðbrandur Gústafsson, saxafónn
og söngur, Stefán Friðriksson,
trommur og söngur, Sigurður Jó-
hannesson, gítar og Stefán Elefsen,
Hinir glaðbeittu sveinar í Gautum.
bassi. Njóta þeir síðan aðstoðar
nokkurra gestasöngvara í ýmsum
lögum auk trompetleikara. Tón-
listin er að mestu svífandi sveiflu-
popp, bara þó nokkuð skemmti-
legt á köflum eins og lög á borð
við titillagið, Von og í stuði bera
t.d. vott um. Er samanburður við
„unga manninn" og sýslusveit-
unginn Geirmund Valtýsson ekki
fjarri lagi til frekari glöggvunar á
tónlist Gauta og gildir þar eins og
stundum áður, „að margt er líkt
með skyldum". Gleðin og gamnið
er sem sagt við völd hjá Gautum
að vanda, en það sem aðeins má
setja út á eru útsetningamar á lög-
unum sumum hverjum. En ekki
orð um það meir.